Morgunblaðið - 21.03.1974, Page 26

Morgunblaðið - 21.03.1974, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974 Dr. Róbert A. Ottós- son — Minningarorð Hér missti ísland mikið. Kirkj- an mest. Svo mikils er að sakna, að orð um það eru fánýti. Og öll þakkarorð fátækleg. Dr. Róbert kvaddi óvænt, stadd- ur á erlendri grund. Hann hafði og heilsað þessu landi forðum vegna voveiflegra atvika. I milli er ævisaga, skemmri en skyldi, sem verður ekki máð úr lífs- reynslu þeirrar þjóðar, sem varð hans. Sú saga er meira þakkar- efni en svo, að harmurinn sé þyngri ámetum, þótt ærinn sé. Hann unni því landi, sem hafði fóstrað hann og forfeður hans um aldir. Hann bar þess merki, að hann hafði ungur mótazt í Um- hverfi hárrar menningar. Hingað barst hann rúmlega tvítugur. Hann var borinn með þeim yfir- burðum og hafði þá þegar, þótt ungur væri, þá menntun til að bera, að hann hafði getað valið um úrkosti hvarvetna þar í heimi, sem bezt eru skilyrði til þess að njóta sín og neyta snillings gáfna. Hér hlaut svigrúm hans að verða miklum mun þrengra en hann hafði efni til. En hitt er og víst, að Island veitti honum margt, sem hann mat til jafns við tækifæri meiri landa. Og eitt gaf það hon- um, sem engu öðru varð til jafn- að, þá könu, sem hann unni og mat yfir allt annað fram. tsland varð hans land á furðu skömmum tíma og hann þess son- ur, skilborinn í djúpri merkingu. Svo skjótlega náði hann fullu valdi á íslenzkri tungu, að með ólíkindum var. Fáa veit ég hafa haft meiri ræktarkennd til tung- unnar en hann né dýpri tilfinn- ingu fyrir eðlislögum hennar. Og engan vissi ég eindregnari í því að vanda sig i meðferð málsins í ræðu sem riti. Og á suma þætti íslenzkrar menningar varð hann gagnfróðari og gjörhugulli en aðr- ir menn íslenzkir fyrr og síðar. Islenzkur söngarfur helgur hefur ekki í annan tíma eignazt þann elskhuga, er tæki honum fram. hvorki um þel né þekking. Rit- gerð sú um Þorlákstíðir, sem hann varði til doktorsprófs við Háskóla íslands ber visinda- legum hæfileikum hans órækt vitni. Á sviði kirkjulegr- ar tónlistarsögu átti hann mikið eftir óunnið. Þar sá hann verkefni í öllum áttum. En timi hans til slíkra starfa var að sjálfsögðu ódrjúgur. 1 kennslu sína og leiðbeíningarstörf sem söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, skólastjóri Tónskóla kirkjunnar og kenna.ú guðfræðistúdenta lagði hann mikinn tíma og orku. Hann gat á engu tekið meðal- mannshendi. Hann snerti ekki við neinu verki án þess að leggja i það alhug sinn meðan unnið var, gildir einu hvort meira kvað að eða minna að almannamati. Þau hin miklu kirkjutónverk, sem hann æfði og stýrði til flutnings árlega með alkunnum yfirburð- um, kröfðust og eigi lítillar at- orku. Það er einmælt, að sem kennari, kórstjóri og hljómsveit- arstjóri hafi hann verið frábær maður. Öllum er hann ógleyman- legur, sem nutu hans að á þeim vettvangi. Þar fór saman tón- næmi, sem teljast má til afbrigða, kunnátta, sem var óbrigðul, per- sónutöfrar, hrifning og verkgleði, sem hófu alltí hærra veldi. Hann hafði rammaukið vald til þess að stýra beztu kröftum til frábærs árangurs. En hann gat ekki síður unnið afrek þar, sem litlu var til að tjalda. Hann fann leið til þess að laða hið bezta fram og vekja það, sem menn vissu ekki, að þeir ættu til. Hver, sem verið hefur nærri honum, þegar hann lauk upp töfrum tónanna, hefur öðlast mikla reynslu. Og þeir, sem hafa notið hans að í samstarfi, geyma með sér mynd manns, sem þeir telja með mestu gjöfum lífsins að hafa kynnzt. Ég á þess ekki kost að fylgja þessum hjartfólgna vini mínum til grafar. Sú kirkja, sem fékk að njóta krafta hans, lýtur minningu hans í hljóðri, djúpri þökk. Og þá gleymist ekki konan, sem stóð honum við hlið. Guðríður. Með henni þáði hann það af íslandi, að honum mundi þykja að fullu gold- ið hér í lífi það, sem honum varð auðið að veita. Deo dicamus et agamus voce, voto, corde toto gratias. Sigurbjörn Einarsson Þegar hugurinn reikar um minningarnar um látinn kennara og vin, staldrar hann viða við. Hann nemur staðar við kennslu- stundir fyrir tveimur áratugum jafnt og samtöl vina fyrir tveimur vikum — og óteljandi önnur augnablik. Smám saman safnast I heila mynd og bjarta minningarn- ar um dr. Róbert, og þær eru allar á einn veg: hann var örlátur á sjóði hugar síns bæði við kennslu og samræður vina í milli. Þegar umræðan fjallaði um hugleikin snilldarbrögð í meistaraverkum tónlistar, voru honum dæmin til- tæk, hann greip til hljóðfæris eða hóf upp raustina og söng máli sínu til stuðnings. Með innsýn og sannfæringu lauk hann þannig upp ýmsu, sem fáfræðinni var áð- ur hulið og viðmælandi hreifst með, fannst hugur sinn ljóma. Aldrei leitaði ég I erindisleysu til Róberts. Þegar eitthvað vafðist fyrir, greiddi hann úr vafningun- um og benti huganum áfram. Þannig útbjó hann nemanda sín- um veganesti og bætti sífellt við það á öðrum samferðum. Sumt fólk skynjar liti við það að heyra hljóð og tóna. Þannig gáfu hafði dr. Róbert. Jafnframt fágætu tónnæmi greindi hann lit- brigði tóntegundanna. Þar að auki skildi hann ljós og myrk hljómasambönd. Einu sinni bárust í tal „sérkennilega fallegu“ hljómasamböndin f hljómsetningu Verdis á orðunum „et lux perpetua“ í Introitus Sálu- messunnar. „Þau eru eins og ljós- ið sjálft,“ sagði dr. Róbert, „þegar ég tók fyrst þátt í söng þessara takta, fannst mér ég skynja eilífa ljósið — og þannig hefur það alltaf verið síðan.“ Það, sem hversdagslega tæknimálið kallar „tegund þverstæðu“, skynjaði dr. Róbert sem bjarma eilífs Ijóss. Megi það ljós lýsa honum að eib'fu. Þorkell Sigurbjörnsson Fregnin um hið sviplega fráfall dr. Róberts A. Ottóssonar, söng- málastjóra Þjóðkirkjunnar, kom sem reiðarslag yfir alla hans mörgu vini og aðdáendur, svo að ekki sé minnzt á fjölskyldu hans. Með honum er fallinn frá einn nýtasti og afkastamesti áhrifa- maður í tónlistarlífi á íslandi nokkra undanfarna áratugi, en um þau störf hans læt ég mér fróðari fjalla. Mig langar með þessum fáu lín- um til að minnast og þakka þau löngu kynni, sem ég hafði af Hró- bjarti, eins og við vinir hans kölluðum hann gjarnan í gamla daga. Þau kynni hófust haustið 1938 er ég kom til náms f Mennta- skólanum á Akureyri. Var ég þann vetur í kosti hjá þeim ágætu systrum, Sesselju og Ingibjörgu Eldjárn, sem ráku mjög umfangs- mikla og vinsæla matsölu þar í bæ. Voru þar meðal gesta þennan vetur ýmsir frábærir menn, sem sumir hverjir urðu síðar þjóð- kunnir, og má þar til nefna dr. Halldór Halldórsson, Þdrarin heitinn Björnsson skólameistara, Hjört Eldjárn, Berg Sigurbjörns- son og síðast en ekki sízt Róbert Abraham. Má nærri geta, að þarna spunn- ust oft spaklegar og fjörmiklar umræður um mannlíf og menn- ingu, en þó ekki sizt um þann mikla hildarleik, sem þá var ný- hafinn. Var það einmitt aðdynj- andi þess sterkviðris, sem leiddi til þess, að Róbert Abraham leit- aði skjóls og friðar hér á landi. Ungum pilti var það einstak- lega lærdómsríkt og gott vega- nesti, að njóta kynna og samvista við þetta ágæta fólk f þessu eftir- minnilega húsi, sem með drjúgum sanni mætti kalla Unuhús Akureyrar. Róbert Abraham var einstak- lega vel liðinn í þessum hópi og mat stórlega hlýjar móttökur þar, ekki sízt þeirra Halldórs og Þór- arins, sem tóku á móti honum þar nyrðra. En Róbert Abraham miðlaði okkur öllum af frábærum gáfum sfnum og menntun og var sem opnaðist gluggi til menningar- og tónlistarlífs meginlandsins er hann sagði frá. Einkum eru mér minnisstæðar margar unaðs- stundir á heimili hans á Akureyri er hann lék fyrir okkur á píanóið ýmsar perlur tóhbdkmenntanna og útskýrði snilld meistaranna. Hefi ég æ síðan búið að þeirri fræðslu og skilningi, sem hann glæddi með mér á gildi og göfgi klassiskrar tónlistar, og svo er tví- mælalaust um ótal fleiri, sem kynntust þessum einstaka manni á lífsleiðinni. Ég er einlæglega þakklátur fyrir að hafa notið vináttu hans og leiðsögu, ekki sizt á þroska- árunum, og ég kveð hann nú að leiðarlokum með djúpum söknuði og harmi. Frú Guðríði og syni þeirra hjóna sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Róberts A. Ottóssonar. Högni Torfason Þegar sú harmafregn barst til Islands, að dr. Róbert A. Ottósson hefði látist snögglega er hann var á fyrirlestraferð í Svíþjóð, kom það eins og reiðarslag, ekki aðeins fyrir fjölskyldu hans og vini, heldur alla þá Islendinga, sem láta sig einhverju varða menn- ingu þessa lands. Satt að segja er ég varla farinn að skilja þetta ennþá. Það er stutt síðan við hjón- in Vorum heima hjá Guðriði og Róbert, og lék hann-þá á als oddi, elskulegur, skemmtilegur og fræðandi, eins og hann var alltaf, enda einn sá gáfaðasti og mennt- aðasti maður sem ég hefi kynnst. Ég mun ekki rekja hans merku störf hér á landi f áratugi, það munu mérfærari menn gera en það er óhætt að segja, að dr. Ró- bert hafi verið tnargra manna maki. Tónvísindamaður, kór- og hljómsveitarstjóri, kennari, fyrir utan hans mikla starf sem söng- málastjóri þjóðkirkjunnar, o.m.fl. Kunnátta hans og gáfur voru svo einstæðar, og virðing hans fyrir verkefnunum var svo mikil, að hann þoldi engum að kasta til höndum, þess vegna gat það hent, að hann ryki upp í reiði ef honum fannst verkefninu misboðið, en svo var hann fljótur að gera gott úr öllu, því hann meinti þetta aldrei persónulega. Aðalatriðið fyrir hann, var að fá eins góðan árangur og frekast var unnt, og má telja það til mikilla afreka, + Konan min og móðir okkar, GUÐBJÖRG KÁRADÓTTIR, andaðist að Landakotsspítala 1 9. marz. Jón Kristófersson og dætur. t Þakka auðsýnda samúð við and- lát og jarðarför móður minnar, ÖNNU MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Kalla Nielsen. Móðir okkar + MARGRÉT JÓNGDÓTTIP fyrrum húcÞeyj' - Galtalæk í Landsveit, lézt þriðjudaginn 1 9 marz að heimili sinu V'ðimeí 21 Ragnheiður Finnbogadóttir, Svanlaug Finnbogadóttir. + Faðir okkar, BJARNI SVERRISSON, Bjargarstig 6, andaðist að morgni 20 marz. Börnin. + Útför eiginmanns mins, ALEXANDERSKÁRASONAR húsasmiðs, Bugðulæk 13, verður gerð frá kapellunni i Fossvogi föstudaginn 22. marz kl. 1 3.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Hjartavernd. Ingveldur Jónatansdóttir. + Minningarathöfn um ÓLÖFU ÓLAFSDÓTTUR frá Setbergi, sem andaðist á Vífilsstöðum 15. marz, fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 22. marz, kl. 3. e.h Ásmundur Sigurðsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SVERRIR ÓLAFSSON Hæðargarði 22, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. marz kl 1 0.30. Soffía Kristjánsdóttir, Björg Sverrisdóttir, Guðmundur Hervinsson, Björn Sverrisson, Sólveig Indriðadóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför ASTRI FORBERG ELLERUP. Johan Ellerup, börn, barnabörn og tengdabörn. t Þökkum innilega sýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför, LÁRU GUÐMUNDSDÓTTUR. F.h. vandamanna. Halldór Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.