Morgunblaðið - 21.03.1974, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974
39
| íl'lilímfliííTlli MOWMflSIIIS
Orð þjálfara dönsku meistaranna
Arhus KFIJM um Bjarna Jónsson
BJARNI Jónsson varð Dan-
merkurmeistari f handknattleik f
sfðustu viku með Arhus KFUM er
liðið vann Skovbakken. A sunnu-
daginn innsiglaði Arhus svo
sigurinn með 21:19 sigri yfir HG
og fór leikurinn fram f Kaup-
mannahöfn. Bjarni átti góðan
ieik með Arhus og skoraði 4
mörk. Hinir nýbökuðu dönsku
meistarar eru væntanlegir hingað
til lands f byrjun næsta mánaðar
og munu leika nokkra leiki f boði
Þróttar.
A mánudaginn birti danska
blaðið Berlingske Tidende viðtal
Bikarkeppni í sundi
BIKARKEPPNI Sundsambands-
ins fer fram f Sundhöll Reykja-
vfkur um næstu helgi, dagana 22.,
23. og 24. marz. Keppt verður f 26
greinum og má búast við mikilli
þátttöku, en aðeins mega 2 þátt-
takendur frá hverju félagi taka
þátt f hverri grein og ein sveit f
boðsundgreinum. Félag má þó
skrá þátttakendur, sem keppa án
stiga og þurfa þeir þá að hafa náð
settum lágmörkum á löglegum
mótum, sem miðast við 6. sæti f
Bikarkeppni fyrra árs. Hve ein-
staklingur má aðeins taka þátt f 4
greinum auk boðsunds.
manninum.
Staðan í 1. deildinni dönsku er
þessi, þegar einni umferð er ólok-
ið.
Arhus KFUM 17 337:257 30
Helsingör 17 324:285 25
Frd.cia KFUM 17 348:295 24
Stadion 17:290:288 19
HG 17 305:260 18
Efstersl. 17 317:322 15
Stjernen 17 263:281 14
Skovbakken 17 255:280 12
AGF 17 250:290 11
Virum/S 17 254:385 2
við Erik Holst þjálfara Árhus og
segir hann meðal annars. Það er
mikilvægt fyrir möguleika Arhus
KFUM I Evrópukeppninni næsta
haust, að Bjarni Jónsson hefur
lofað að dvelja áfram í Árhus svo
framarlega sem við getum útveg-
að honum gott starf. Bjarni er
klettur í vörninni og Arhus
KRUM álíka mikilvægur og
Jörgen Frandsen er landsliðinu
— maður, sem fær sóknarleikinn
til að ganga.
Forráðamenn Arhus KFUM og
danskir blaðamenn halda enn í þá
von, að Bjarni verði áfram með
liðinu, en sjálfur hefur Bjarni
margsagt, að hann ætli heim til
Islands að loknu tæknifræðinámi.
Það er eins og dönsku blaðamenn-
irnir geti í hvorugan fótinn stigið,
Tfu af Danmerkurmeisturum Arhus KFUM, fremri röð:
Christensen, Berg, Stenskjær, Tolstrup, Bjarni Jónsson. Aftari
röð: Vodsgárd, Klitgárd, Larsen, Sörensen og Nielsen.
annan daginn segja þeir, að
Bjarni verði áfram með liðinu og
hinn daginn, að Anders-Dahl
Nielsen taki stöðu hans í liðinu.
Nielsen þessi er hinn nýi íslands-
bani en í leik Islands og Dan-
merkur í Heimsmeistarakeppn-
inni skoraði hann 8 mörk, en
sýndi svo lítið f öðrum leikjum
keppninnar. Anders-Dahl Nielsen
kemur með Árhus KFUM til Is-
lands f næsta mánuði, þannig að
ljóst má vera, að forráðamenn Ar-
hus hafa mikinn áhuga á leík-
„Bjarni er klettur 1 vörn
og lætur sóknarleik ganga”
Unglingarnir sem kepptu til úrslita á unglingamóti KR í borðtennis.
Efnilegir unglingar á
borðtennismóti KR
NÝLEGA var efnt til borðtennis-
móts á vegum KR fyrir unglinga.
Keppnin fór fram f Laugardals-
höllinni og var f jöldi þátttakenda
mikill og gefur til kynna þær
auknu vinsældir sem þessi
fþróttagrein á nú að fagna meðal
unglinganna. Þannig voru t.d. 40
keppendur f flokki 15 ára og
yngri.
I flokki 15—17 ára bar Hjörtur
Gislason sigur úr býtum. Sigraði
hann Jón Sigurðsson í úrslitaleik
21—17, 21—17, og 22—20. Báðir
þessir piltar eru bráðefnilegir,
svo og raunar fleiri sem kepptu í
þessum flokki. Til úrslita um
þriðja sætið í mótinu léku þeir
Jónas Kristinsson og Elías Guð-
mundsson og sigraði Jónas I
þeirri viðureign 21—8, og 21—17
og21—18.
I flokki stúlkna sigraði Emilia
Sigurðardóttir, KR, en hún er
einnig þekkt fyrir góða frammi-
stöðu sfna bæði í knattspyrnu og
körfuknattleik.
I flokki 15 ára og yngri sigraði
Bjarni Jóhannesson. Keppti hann
úrslitaleikinn við Odd Sigurðsson
og fór sá leikur 21—17 og 21—13.
Kjarni 16 leikmanna valinn
í upphafi keppnistímabilsins
— Fyrsta verkefni okkar
verður að ræða við forráðamenn
og þjálfara liðanna f 1. deild,
setja fram okkar hugmyndir og
heyra, hvað þeir hafa fram að
færa. Sfðan er ætlunin að koma á
leik, sennilega f mafmánuði, á
milli landsliðsins eins og það var
skipað f fyrrahaust og úrvalsliðs,
sem ef til vill verður valið af
blaðamönnum. Að þessum leik
loknum munum við svo velja 16
manna kjarna, sem koma mun
saman til æfinga og funda reglu-
lega, að minnsta kosti hálfs-
mánaðarlega f sumar.
Þetta sagði Jens Sumarliðason,
er við ræddum við hann I gær, en
Jens er ásamt Bjarna Felixsyni í
landsliðsnefnd í knattspyrnu.
Jens sagði, að ekki hefði verið
ákveðið, hver annaðist þjálfun
liðsins, en að öllum lfkindum yrði
það einhver erlendu þjálfaranna,
sem starfa hjá félögunum í 1.
deild. Ekki væri enn farið að
ræða við neinn þeirra ákveðið.
Eins og fram kemur i orðum
Jens hér að ofan verður valinn 16
leikmanna kjarni í upphafi
keppnistímabilsins og er það
nýmæli. Undanfarin ár hefur 16
manna hópur verið valinn nokkru
fyrir hvern leik.
Island leikur 4 eða 5 knatt-
spyrnulandsleiki á sumri
komanda eins og fram hefur
komið í fréttum áður. Rétt er að
rif ja upp, við hvaða þjóðir verður
leikið, hvar og hvenær. Fyrsti
leikurinn verður gegn Færey-
ingum í Færeyjum og fer hann
líklega fram um hvftasunnuna.
Við Finna verður leikið f Reykja-
vík 19. ágúst og Belga á sama stað
8. september. Gegn A-Þjóðverjum
verður leikið ytra 12. október og
verið er að reyna að fá leik við
Dani í sömu ferð.
BERGSTAÐASTRÆTI 4A SÍMI 14350
Austfir&ingar athugiö.
Opnum n.k. laugardag
útibú á Reyóarfiröi.