Morgunblaðið - 10.12.1974, Side 2

Morgunblaðið - 10.12.1974, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974 Annríki hjá rannsóknar- lögreglunni RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavík átti óvenju ann- rlkt um helgina. Að sögn Helga Daníelssonar lögreglu- manns, sem var á vakt ásamt þremur öðrum rannsóknar- lögreglumönnum, bárust 30—40 tilkynningar um helg- ina. „Við höfðum varla undan að taka við tilkynningum," sagði Helgi. 1 flestum til- fellunum var um smá mál að ræða, en um stærri mál verður getið hér á eftir: 100 þúsund- um stolið úr peningaskáp EINS og fram kom i Mbl. á sunnudaginn, var logskurðar- tækjum stolið frá Sindrastáli við Borgartún aðfararnótt s.l. laugardags, og fundust þau síðar í Vöruflutningamiðstöð- inni við sömu götu. Höfðu þau verið notuð til að skera sundur peningaskáp fyrirtækisins. Nú liggur ljóst fyrir, að í peninga- skápnum voru um 100 þúsund krónur í peningum, og var allt hirt. 1 frétt blaðsins um innbrot þetta s.l. sunnudag sagði, að ekki hefði tekizt að ná í for- ráðamenn fyrirtækisins þegar fréttin var skrifuð. Það rétta er, að ekki hafði náðst i gjald- kera fyrirtækisins, sem einn vissi nákvæmlega hve mikið variskápnum. Skemmdu bíla UM HELGINA var stungið með eggjárni á hjólbarða fólksbfls, sem stóð fyrir utan hús I Fossvogshverfi. Er þetta I þriðja sinn á stuttum tíma, sem stungið er á hjólbarða þessarar sömu bifreiðar. Maður á þritugsaldri hefur verið handsamaður vegna þessa máls. Hefur hann viður- kennt að hafa stungið á barð- ana nú um helgina, en vill ekki kannast við að hafa valdið skemmdum á bflnum I hin tvö skiptin. Þá voru piltar staðnir að því að brjóta spegla í bflum, sem stóðu við Egilsgötu, Barónsstfg og Þingholtsstræti. Hafa þeir viðurkennt skemmdir á 4 bfl- um en ekki er Ijóst hvort þeir hafa fleiri slfk skemmdarverk á samvizkunni. Dekkin hurfu undan bflnum UM HELGINA var dekkjum á felgum stolið undan vörubíl, sem stóð á nýjum knattspyrnu- velli, sem Vaiur er að gera norðan Flugvallarvegar. Var öllum hjólum á afturöxli, fjórum að tölu, stolið og auk þess bremsuskál öðru megin. Skiptir verðmæti þeirra hluta sem stolið var, tugum þúsunda króna. 60—70 þús- undum stolið A LAUGARDAGINN var stolið 60—70 þúsund krónum frá starfsfólki DAS í Reykja- vfk. Gerðist þetta á tfmabilinu 8—13. Var peningunum stolið úr hlífðarfötum f fatageymslu. Skal enn einu sinni vakin á þvf athygli, hve óráðlegt er að skilja fjármuni eftir f fatnaði, seui gcymdur er í sameigin- l-;g".m klæðaskápum starfs- fÓ>i(S. Fjallvegir víðast ófærir Óveður á Norðausturlandi og Austfjörðum ÓVEÐUR var í gær á norð- austanverðu landinu og á Aust- fjörðum og litið vitað um færð á þeim slóðum. Þó var vitað, að fjallvegir allir á Austurlandi væru ófærir. Á Suðurlandsundir- lendinu er aftur á móti ágæt færð, allt austur á firði, en að vfsu mikil hálka á nokkrum stöðum. I Borgarfirði og á Snæfellsnesi er sömu sögu að segja nema hvað fjalivegirnir á Fróðárheiði og Kerlingarskarði eru þungfærir. Sjónvarpið sést ekki Neskaupstað 9. desember. SJÓNVARP hefur svo til ekkert sézt hér i þrjá daga og þannig hefur það verið langan tíma á þessu hausti. I gærkvöldi kom hljóðið af og til, en á skerminn kom einu sinni texti frá sjónvarp- inu: „smá hljóðtruflanir eru nú á Norður- og Austurlandi“. Brattabrekka var talin ófær i gær en fært var um Heydal og þaðan áfram vestur í Reykhólasveit fyrir stóra bíla og jeppa. A norðanverðum Vestfjörðum voru allar heiðar lokaðar en ágæt færð innan fjarða á þeim -slóðum. Á sunnanverðum Vestfjörðum var stórum bílum fært frá Patreks- firði suður yfir Kleifaheiði og vegurinn um Hálfdan var ruddur i gær. Þorkafjarðarheiði var aftur á móti ófær. Einnig var vegurinn yfir Holta- vörðuheiði talinn ófær i gær en hann verður ruddur i dag ef að- stæður leyfa. I gær var þó fært um Norðurland allt austur að Akureyri en Öxnadalsheiðin var að visu þungfær. Siglufjarðarleið var lokuð i Fljótunum, og ekki tókst að ryðja hana í gær og hún verður ekki rudd fyrr en á föstu- dag aftur. Eins var vegurinn til Ólafsfjarðar ófær í Múlanum — bæði vegna snjókomu og snjó- flóða. Fyrir austan Akureyri var leiðin um Dalsmynni áleiðis til Húsavikur mokuð í gær. Hraðfrystihúsið Flugfiskur í Vogum brann á laugardagskvöldið. Beitningamenn i næsta húsi urðu fyrstir eldsins varir og var kallað á slökkviliðin í Keflavfk og á Keflavíkurflugvelli, en þau fengu lítið að gert. I húsinu var fiskur fyrir nokkrar millj. kr. og er hann að líkindum að mestu ónýtur. Sjálft húsið brann til grunna, en það hafði verið endurbætt f fyrrahaust. Ljósm.: Heimir Stfgsson. Gamalt og nýtt í bland Sinfóníutónleikar á fimmtudag með nýju ísl. tónverki og tékkneskum píanóleikara Er spurt var um ástæðuna fyrir þessum bilunum og hvort þær yrðu ekki lagaðar þá vísaði sjón- varpið á Landssímanr, og Lands- siminn á sjónvarpið. Því finnst okkur úti á lands- byggðinni ekki timabært að tala um litasjónvarp á meðan stór hópur landsmanna hefur ekki einu sinni „svart-hvítt sjónvarp". Asgeir. Akureyri 9. desember. Akureyringar eru farnir að lita rafmagnsleysið sem eðlilegan hlut þegar eitthvert hrfðaráhlaup kemur. Flest ef ekki öll heimili eru vel birg af kertum, olfulömp- um og gastækjum til eldunar. Menn taka skömmtun og raf- magnslcysinu með jafnaðargeði, enda ekkert annað að gera. 1 dag hefur skömmtun verið hagað þannig, að veitusvæðinu hefur verið skipt í 4 svæði og hvert svæði hefur haft rafmagn f 6 tíma f senn, en verið rafmagnslaust f 2. Frf varð að gefa f Gagnfræða- skólanum eftir kl. 14.30 vegna rafmagnsleysisins og myrkurs, en það þykir tiltölulega vel sloppið. Sundlaug Akureyrar mun verða óstarfhæf á morgun vegna þess, að rafmagn til upphitunar hefur verið tekið af henni. Meiri óþægindum hefur skömmtunin valdið á hinum ýmsu vinnustöð- um, sem eru mjög háðir rafmagni. Yfirleitt má segja, að almenning- ur hafi brugðizt vel við áskorun- um rafveitustjóra um að spara rafmagn eins og frekast hefur verið kostur, og það hefur áreiðanlega stuðiað að því, að raf- Einar á fund utanríkisráð- herra NATO Einar Ágústsson, utanríkisráð- herra, heldur til Bríissel á morg- un þar sem hann mun sitja utan- ríkisráðherrafund NATO-ríkj- anna, en hann verður haldinn þar 12. og 13. þ.m. I fylgd með ráð- herranum verður Hörður Helga- son skrifstofustjóri í utanríkis- ráðuneytinu. Utanríkisráðherra ervæntanlegurheim um helgina. SJÖTTU reglulegu tónleikar Sinfónfuhljómsveitar lslands verða haldnir f Háskólabfói nk. fimmtudag og hefjast kl. 20.30. magnsskömmtun hefur ekki verið strangari en raun er á. Stjórnandi verður Páll P. Pálsson en einleikari tékkneski einleikar- inn Dagmar Simonkova. Á þess- um tónleikum verður flutt í fyrsta sinn hérlendis verkið Flower Shower eftir Atla Heimi Sveinsson, ennfremur Soirée Musicale eftir Britten og Píanó- konsert nr. 1 eftir Tsjaikovsky. Verk Atla Heimis var samið sumarið og haustið 1973 og þá sérstaklega fyrir sinfóníuhljóm- sveitina í Norrköping að tilhlutan Nomus-nefndarinnar og frum- flutt þar í apríl 1974. Páll P. Páls- son stjórnaði þeim flutningi. Verkið er tileinkað dr. Róbert A. Ottóssyni. Einleikarinn i hinum vinsæla pianókonsert Tsjaikovskys — Dagmar Simonkova — hefur átt miklum frama að fagna, vann fyrstu verðlaun 1961 i samkeppni píanóleikara við skóla sinn, hlaut heiðursverðlaun listahátiðarinnar í Prag tveimur árum siðar og sigr- aði i samkeppni kvenpianóleikara i hinni alþjóðlegu pianókeppni í Moskvu árið 1966. Síðustu árin hefur Simonkova haldið hljóm- leika víða og hvarvetna hlotið hina ágætustu dóma. Sv. P. ,Starfshættir Braga samrýmast ekki starfi deildarstjóra, menntamála ráðherra „Gagnrýndi aðeins yfírboðarana," segir Bragi EINS og Morgunblaðið skýrði frá á laugardaginn, hefur menntamálaráðherra ákveðið að vfkja dr. Braga Jósepssyni frá störfum sem deildarstjóra f Menntamálaráðuneytinu frá og með 9. desember að telja. 1 uppsagnarbréfi menntamála- ráðherra til Braga segir m.a., að ákvörðun þessi sé byggð á þvl, að ýmsar athafnir hans og framkoma hafi verið óhæf og ósamrýmanleg f starfi sem deildarstjóri. Megi f því sam- bandi nefna ritgerð f tfmarit- inu Heimili og skóli, formála, fjölritun og dreifingu skýrslu dr. Arnórs Hannibalssonar um hjálparkennslu f skyldunáms- skólum, án vitundar ráðherra og ráðuneytisstjóra, svo og ákærubréf til menntamálaráð- herra, dags. 10. október s.I. Þessu bréfi hefur Bragi Jósepsson svarað, þar sem hann segir, að hann muni flytja mál sitt á opinberum vettvangi. Þá segir hann einnig, að hann hafi óskað eftir þvi, að málið verði tekið upp innan ríkisstjórnar- innar. Morgunbíaðið spurði Vil- hjálm Hjálmarsson, mennta- málaráðherra, hver væri ástæð- an fyrir uppsögn Braga Jóseps- sonar. Ráðherra sagði: „Ég óska ekki að ræða þetta mál í einstökum atriðum við fjölmiðla, en orsök uppsagnar- innar er að sjálfsögðu sú, að ég tel starfshætti Braga ekki sam- rýmast starfi hans sem deildar- stjóra i ráðuneytinu.“ Vilhjálmur Hjálmarsson sagði ennfremur, að breytingar á stöðum innan stjórnarráðsins gerðust með formbundnum hætti og væri frá þeim greint í lögbirtingarblaði, t.d. eins og þegar um deildarstjóraskipti er að ræða. „Mér þykir fyrir því, hvernig þetta mál hefur þró- azt,“ sagði ráðherra. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við dr. Braga Jósepsson og bað hann að segja álit sitt á þessu máli. Bragi sagði: „Ég tel það algjört einsdæmi, að opinberum starfsmanni, skipuðum, hafi verið sagt upp starfi. Uppsögnin er að minu mati ólögmæt, enda er hún fyrst og fremst fólgin i þvi, að ég gagnrýndi yfirboðara mina. Menntamálaráðherra hefur neitað að láta fara fram könnun á réttmæti gagnrýninnar. Ég fór fram á, að gerð yrði rann- sókn á starfsháttum ráðuneytis- ins og lagði ég fram bréf þar að lútandi i 28 liðum, sem ég sendi forsætisráðherra og mennta- málaráðherra. Menntamálaráð- herra kallar þetta bréf „ákæru- skjal" og segir það eina af ástæðunum fyrir uppsögninni. Aðrar ástæður, sem mér eru tilgreindar, eru grein, sem ég skrifaði í Heimili og skóli, og útsending skýrslu Arnórs Hannibalssonar. Ég tel mig geta sýnt fram á það með óyggj- andi rökum, að ég hafði fulla heimild til að senda hana skóla- stjórum. Menntamálaráðherra sagði, er hann sagði mér upp störfum, að stundum væri það venja að bjóða mönnum annað starf, en hann gæti það hins vegar ekki. Því tel ég, að hann telji sök mina það mikla, að ég sé óhaf- andi innan fræðslukerfisins. Með þessari brottvíkningu er ráðherra að skapa fordæmi þess, að hægt sé að vikja opin- berum starfsmönnum, sem ráðnir eru til lifstíðar, fyrir- varalaust úr starfi fyrir þá eina sök að hafa gagnrýnt yfirboð- ara sína. Ég hefði talið liklegra að þess háttar aðgerðir kæmu frá öðr- um en þeim, sem segjast til- heyra lýðræðisflokkunum." Líta á rafmagnsleysið sem eðlilegan hlut

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.