Morgunblaðið - 10.12.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.12.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974 25 •gvinsson liggur f valnum, en þeir isson horfa á aðfarirnar. afor- u 15:15 næstu lið um eitt stig. Eftir þeim leikjum að dæma sem búnir eru í Islandsmótinu, mun baráttan um Is- landsmeistaratitilinn í ár standa milli FH og Fram, þó að svo geti vel farið að önnur lið, og þá sennilega einkum Víkingur, blandi sér í hana. Og baráttan á botninum verður ugg- laust ekki síður tvisýn en baráttan á toppnum í ár. ÍR-ingar eru i þeirri baráttu eins og er, og hafa aðeins hlotið eitt stig eftir fjóra leiki. En mikið má vera ef það stig sem IR fékk í þessum erfiða leik, verður ekki til þess að ýta liðinu af stað upp á við. Það hefur alla burði til þess að vera með í baráttu hinna beztu. Stjl. ður iR-liðsins reyndist Fram oft erfiður i gómar hann knöttinn eftir að Björgvin DÓMARAR í AÐALHLUTVERKI Er Víkingur vann Hauka 18-16 ÞEIR félagar: Magnús V. Péturs- son og Valur Benediktsson, dóm- arar f leik Vfkings og Hauka f 1. deildar keppni tslandsmótsins f handknattleik, létu sér ekki nægja neitt minna en aðalhlut- verkið f þeim leik. Og ekki verður sagt að niðurstaðan úr þeirri hlut- verkaskipan hafi orðið gáfuleg. Seinni hálfleikur þessa leiks var tóm endaleysa, og ekki að undra þótt einn Hallargestur spyrði að leikslokum, hvort þessi leikur hefði átt að kallast handknatt- leikur eða sýning fjölleika- manna. En úrslit leiksins verða tekin með f reikninginn, hvað svo sem á undan gekk og þau urðu Vfkingum hagstæð, 18 mörk gegn 16. Fyrri hálfleikur þessa leiks var annars ekki sem verstur, og þá sérstaklega fyrri hluti hans.1 Þá léku bæði liðin ágæta vörn og sýndu öðru hverju tilþrif í sóknarleik sínum. Fram yfir miðj- an hálfleikinn höfðu Haukarnir forystuna, en þá náðu Víking- arnir að lagfæra leik sinn, sér- staklega i vörn, sem varð að lok- uðum vegg, og smátt og smátt náðu þeir yfirhöndinni og höfðu skorað helmingi fleiri mörk en Haukarnir er gengið var til leik- hlés. Og allan fyrri hálfleikinn höfðu þeir Magnús og Valur staðið sig mæta vel i leiknum. Það var ekki fyrr en seinni hálfleikur hófst að úr varð fjölleikasýning hjá þeim. Fyrsti þáttur hennar var sá að allt mögulegt og ómögulegt var dæmt á Víkinga, og m.a. tveimur vísað af velli samtímis fyrir ekkert mjög alvarleg brot. I þessum þætti jöfnuðu Haukarnir leikinn 8:8. Þá hófst annar þáttur, sem var algjör öndverða hins. Hauk- arnir máttu þá tæpast hreyfa sig án þess að dæmd væru á þá vita- köst og brátt kom að þvi að Vík- ingarnir náðu aftur fjögurra marka forystu. i þriðja og siðasta þætti hallaði svo ekki á, en þá var hins vegar svo komið, að aukaleik- endurnir i verki þessu, leikmenn Víkings og Hauka, voru orðnir svo ráðvilltir að fátt var um fína 1. deild kvenna Valur — Víkingur Á FÖSTUDAGSKVÖLD fóru fram þrlr leikir I 1. deild kvenna. Fyrsti leikur kvöldsins var á milli Reykjavíkur- meistara Vals og Vlkings. Fyrsta mark leiksins skoraði GuS- björg fyrir Víking, og var þaS I eina skiptið sem Vlkingsstúlkurnar höfSu yfir. Þær náSu þó aS jafna einu sinni 2—2. Eftir það seig Valur fram úr og hafði yfir 6 mörk gegn 3 I hálfleik. f slSari hálfleik juku Valsstúlk- urnar enn á forskotið, komust f 8—3 þegar tiu mínútur voru til leiksloka. Þá loks tókst Víkingum aS skora. Valsstúlkurnar bættu svo enn um betur og sigruðu auðveldlega með 12 mörkum gegn 5 Vikinga. LiS Vals virðist alls ekki eins sterkt og fyrri ár. Stúlkurnar virðast ekki búa yfir þeirri æfingu sem nauSsyn- leg er. En þegar æfingin verður orSin meiri verður Valsliðið ekki auð- sigraS. f þessum leik sem og fyrri leikjum Valsstúlknanna í vetur, voru þær Sigrún og RagnheiSur at- kvæðamestar. Annars er breiddin i liðinu nokkuSgóð. LiS Víkings leikur ákaflega leiSin- legan handknattleik. ÞaS er ef til vill skiljanlegt,þarsem engin stúlknanna getur skotið á markiS utan af vellin- um, og skapast þvi eintómt hnoð á miSjunni. ÞaS er helzt aS Agnes skeri sig úr, en hún leikur þó helzt til gróft, og fékk tvisvar aS kæla sig, alls 7 min. Markvarzlan hjá Vikingi er þó all góð, og bjargar þvi sem bjargaS verSur. En Víkingsstúlkurnar mega aivarlega gæta sin, ef þær drætti í leik þeirra. Höfðu Víking- ■ arnir jafnan betur í leiknum, minnsti munur var þrívegis tvö mörk, er staðan var 13—11, 14—12 og 18—16, en það urðu úrslit leiksins. Eins og fyrr er sagt dró leikur þessi dám af dómgæzlunni, og náðu liðin sjaldan að sýna það sem i þeim býr. Einkum voru Haukarnir langt frá því sem þeir hafa bezt gert I vetur. Hingað til hefur liðið leikið af rósemi, og fengið það út úr leik sinum sem mögulegt hefur verið, en að þessu sinni var alltof mikið bráðlæti ríkjandi, og stundum jafnvel kæruleysi. Má vera að þetta hafi orsakast af þvi að Ölafur Olafsson var greinilega ekki í formi i þess- um leik, og sat lengi á skipti- ætla aS halda sæti sinu i deildinni. Mörkin: Valur: Sigrún 8 (3v), RagnheiSur 2, Elin og Halldóra sitt markiS hvor. Vikingur: Agnes 3 (1 v) og GuS- björg 2. Leikinn dæmdu þeir Jón FriS- steinsson og Geir Thorsteinsson og féllu I sömu gryfju og þeir sem dæma handknattleik kvenna, aS leyfa stúlkunum aS komast upp með ýmis leiðinleg brot, sem spilla leikjum þeirra mjög. Eða eru það ekki sömu reglur sem gilda um handknattleik kvenna og karla? Sigb.G. KR — UBK ANNAR leikurinn á föstudagskvöldið var á milli KR og Breiðabiks. Fyrir fram höfðu menn reiknaS með auð- veldum sigri KR-stúlknanna, ekki sizt þar sem BreiSablik hafSi tapaS fyrir Þór frá Akureyri á dögunum meS helmings mun. En BreiSabliks- stúlkurnar reyndust harðari I horn aS taka en viS var búizt, og i lokin var spennan i algleymingi. KR-stúlkurnar skoruSu fyrsta markiS, og var Hansina þar að verki. Arndis jafnaði fyrir Breiðablik þegar I stað. Þegar líða tók á fyrri hálfleik virtist allt stefna að stórum sigri KR-stúlknanna. Þær komust þrjú mörk yfir, 6—3, en Breiðabliks- stúlkurnar gáfu ekkert eftir og skor- uðu tvö siðustu mörkin i fyrri hálf- leik. þannig að staðan var 6—5 I hálfleik KR Ivil. Þegar tiu minútur voru liðnar af siSari hálfleik höfðu KR- stúlkurnar aftur náS þriggja marka forskoti, 1 0 mörk gegn 7, en BreiSablik jafnaði i 10—10, og skyndilega var komin mannabekknum, en Ólafur hefur oft verið sú kjölfesta i Haukalið- inu sem úrslitum hefur ráðið. Þá var hreyfanleiki og barátta Haukavarnarinnar í lágmarki miðað við það sem verið hefur, lengst af leiknum. Aðeins Gunnar Einarsson markvörður stóð þar fyrir sínu, en hans hlutverk í þessum leik var hreint ekki öfundsvert. Það má hverjum vera ljóst sem ber Víkin'gsliðið nú saman við það sem verið hefur undanfarna vetur, að á því hefur orðið ein meginbreyting. Varnarleikur liðs- ins er ailur annar og betri en verið hefur, en oft hafði það verið sagt um Vlkingana, að þeir kynnu hreinlega ekki að leika vörn. Þetta verður ekki sagt lengur, heldur þvert á móti, að vörn liðs- ins er með ágætum. Þá var mark- varzlan sem verið hefur annar höfuðverkur Víkinganna oft á tíð- mikil spenna i leikinn. Þegar ein mlnúta var til leiksloka var enn jafnt 12—12 og KR með knöttinn. En fumið var of mikið, aðeins örfáum sekúndum fyrir leikslok náðu Breiða- bliksstúlkurnar knettinum og fengu dæmt viti. Moðan Alda Helgadóttir var að undirbúa sig til að taka vitið rann tfminn út. Úr vftinu skoraði Alda svo örugglega, og fyrsti sigur Breiðabliks var staðreynd, 13—12. Þegar þessi tvö lið eru borin saman virðist KR-liðið hafa yfir betri einstaklingum að ráða. Ef til vill hafa KR-stúlkurnar gengið til leiks með það I huga, að þær yrðu öruggur sigurvegari i leikslok, og þvi bara formsatriði að Ijúka leiknum. Beztar KR-inga voru þær Hansina og Jónína Ólafsdóttir. Lið Breiðabliks kom sannarlega á óvart, og er algjörlega ástæðulaust að vanmeta liðið eins og KR gerði i þessum leik. Aðalkostur liðsins virt- ist I þessum leik hve breiddin er mikil, þvert ofan i það sem búizt var við. Greinilegt er að liðið er á réttri leið. Beztan leik þeirra áttu, Sigur- borg, Alda og Margrét I markinu, sem varði vel einkum i lok leiksins. Mörkin: Breiðablikj Sigurborg 4, Jóna 3, Kristin 2, Alda 2 (1 v) og Arndis og Sigriður sitt markið hvor. KR: Hansina 6 (2 v), Jónina Ól. 3, Hjördís 2 og Helga eitt. Leikinn dæmdu Eysteinn Guðmundsson og Þorvarður Björns- son og áttu slakan dag. Margir dóma þeirra voru ákaflega umdeildir og hafa ef til vill kostað KR sigurinn. Sigs. G. um með ágætum, en þetta tvennt fer oftast saman — góð vörn og góð markvarzla. Var það Sigur- geir Sigurðsson, sem stóð I mark- inu allan tímann og var hinum gömlu félögum sínum i Haukum oft erfiður. Sóknarleikur Vikings- liðsins er hins vegar ekki eins beittur og verið hefur, en það atriði ætti að vera auðvelt að laga. Stefán Halldórsson var sá er ógn- aði mest svo og Páll Björgvinsson meðan hans naut við, en Páll varð fyrir því óhappi að nefbrotna í leiknum. Kann það að reynasf: Víkingunum afdrifaríkt, þar sem Páll hefur verið „primus mótor“ liðsins í leikjunum að undan- förnu. Stórskytta Víkingsliðsins, Einar Magnússon, hefur hins vegar lítt náð sér á strik, það sem af er keppnistímabilinu, og virð-, ist einkum og sér í lagi skorta hörku og ákveðni til þess að fá það út úr leik sinum, sem augljóst virðist að hann eigi að geta náð. Fram — Armann KVENNALEIKURINN sem áhorfend- ur biðu eftir á föstudagskvöldið var á milli Fram og Ármanns, en þau Ii8 ásamt Val eru talin einna sigur- stranglegust i mótinu. Þessi tiS hafa mætzt einu sinni I móti það sem af er vetrar. ÞaS var I Reykjavikurmótinu og þar bar Ármann sigurorð af Fröm- urum. Oddný skoraði fyrsta mark leiksins þegar aðeins rúm minúta var af leik. Jóhanna jafnaði þegar fyrir Ármann, og þannig skiptust liðin á um að skora i upphafi. Siðan fóru Ármanns- stúlkurnar að siga fram úr og höfðu tveggja marka forskot i hléi, 7—5. I siðari hálfleik byrjuðu Framarar á að jafna, en Ármann skoraði siðan tvö næstu mörk, þannig að staðan var 9—7 Ármanni I vil þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leikstoka. Fram-stúlkurnar sáu að við svo mátti ekki una, og skoruðu fimm næstu mörkin og gerðu þar með út um leikinn. Eftirleikurinn var svo Fram auðveldur, og lauk með óruggum sigri þeirra 14 mörkum gegn 12 Ármenninga. Framstúlkurnar hafa skemmtilegu liði á að skipa. Breiddin i liðinu er nokkuð mikil þó svo að nokkrar stúlknanna skari fram úr. Oddný, Arnþrúður, Jóhanna og Silvia voru áberandi beztar f Framliðinu. Lið Ármanns er sennilega með lægstan meðalaldur i 1. deildinni. Þvi er ástæðulaust fyrir stúlkurnar að örvænta þó að ekki gangi allt I haginn, framtiðin er þeirra. Erla Sverrisdóttir sem verið hefir þeirra skæðasta vopn undanfarið var tekin úr umferð i leiknum eins og oftast Framhald á bls. 27. Hannes Leifsson skorar með geysifallegu og föstu skoti, án þess að Agúst Svavarsson (nr. 7) ogólafur Tómasson (nr. 4) komi við vörnum. W Urslit samkvæmt áætlun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.