Morgunblaðið - 10.12.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.12.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974 — Sýningar Framhald af bls. 14 án slíkra auglýsinga og í þeim mæli að aðstandendur varnings- ins geta verið vel ánægðir og hrópað húrra fyrir landi og lýð. Innilegar þakkir til ykkar allra er heiðruðu okkur á gullbrúðkaups- afmælinu 6. þ.m. með skeytum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Guðmundína Guð- mundsdóttir, Hjörtur Jóhannsson. Nýlokið er sýningu Karls T. Sæ- mundssonar í Bogasal Þjóðminja- safnsins, en hann sýndi þar 29. olfumálverk. Mér þykir tilefni til að geta þessarar sýningar fyrir það, hve drengilega Karl kom fram í fjölmiðlum. Fúskarar hvers konar, er t.d. mála Þingvelli í metratali fyrir rammagerðir hafa löngum komið óorði á starfs- heitið „listmálari11, þannig að landsþekktir sniilingar hafa svar- ið af sér slíkt heiti sem ónefni. Ég hefi oft bent á þetta í skrifum mínum og þó ekki nógu oft, en nú virðist breyting vera að koma fram. Æ fleiri, sem halda sýn- ingar, nefna þetta frístunda- gaman, og segjast ekki vilja kalla þetta list, og það er rétt, því að langoftast er hér ekki um list að ræða; en frístundagaman á þessu sviði getur þó orðið list og hefur það gerst. Vil ég aðeins benda á sunnudagsmálarana svo- nefndu erlendis, er halda sýn- ingar reglulega víðsvegar og eru sumir hverjir heimsfrægir orðnir. Það er öllu hreinna yfir hlutun- um, er menn koma fram eins og þeir eru klæddir, og það er engin vanvirða að nefnast frístunda- eða sunnudagsmálari, því að menn geta þar verið hvorttveggja góðir sem lakir, líkt og til eru hvorttveggja góðir sem slakir at- vinnumálarar. Ég hafði ánægju af að skoða sýningu Karls T. Sæmundssonar sem sýningu frístundamálara, og nokkrar myndir svo sem t.d. nr. 19 „Mosi“, nr. 21 „1 Heiðmörk- inni“, og nr. 32 „Vorleysing" bentu á ótvíræða maleriska kennd, sem er drjúgt vegarnesti í mal frístundamálara og benti til, að Karl geti átt landvinninga framundan. Bragi Asgeirsson. — Minning skipverja Framhald af bls.39 legur beygur af þeim hættum, sem á leiðinni kunna að vera. Félagarnir þrir sem hér er minnst hafa áreiðanlega í gegnum árin átt margar ánægjulegar stundir við störfin á sjónum. Tryggð þeirra við starfið ber því öruggt vitni að svo hafi verið. Þegar skyldan kallaði var hik- laust haldið úr höfn og tekist á við erfiðleikana. Störfin leyst af hendi með ljúfu geði og af hinni mestu skyldurækni. Þegar útiver- unni lauk var oft ánægjulegt að leita hafnar á ný með góðan afla og gleðjast við endurfundi góðra vina. Það er okkur dauðlegum mönnum áskapað að einn dag verður lagt upp í hina hinstu ferð. Barnafatnaður Barnasmekkbuxur Efni: flauel Litir: Blátt, grænt, gult og rauðbleikt. Stærðir: Frá 1 til 7 ára. Verð frá kr. 1.050 — 1.290. Skokkur og buxur telpna t t Efni: Fleuel •• ' f ' Litir: Lillablátt, túrkisblátt, rautt, Ijósgrænt og bleikt. Stærðirfrá 1 til 8 ára. Verð: Frá kr. 1.600 — 2.085. Einnig er hægt að fá skokkana sér. Sendum gegn póstkröfu um allt land. Tekið við pöntunum í símum 30975 og 30980. ■ SKEIFUNNII5I1SIMI 86566 Hvenær það verður er sem betur fer hulið á bak við tjald þess ókomna. Einum er það ætlað að renna æviskeið sitt til enda um langan veg, jafnvel svo langan að á honum sannast máltækið að tvisvar verður gamall maður barn. Langir lífdagar geta endað með þeim hætti að sá aldni er genginn í barndóm og hann verður að meðhöndla nánast sem barn. Lífið hefir rænt öldunginn öllum þrótti og myndugleik, sem honum hafði verið gefinn, þegar fullum þroska var náð. Þegar svo er komið endar lifið með þeim hætti að það veldur þeim sem eftir lifa alla jafna ekki miklum sársauka. Lifið er margslungið og oft fjarar það út á annan hátt en hér var minnst á að ofan. Það er mikið reiðarslag þegar ungir og hraustir menn eru skyndilega kallaðir burt mitt í önnum hins daglega lífs. Öhjákvæmilega hlýtur þá að vakna sú spurning hver sé i raun og veru tilgangurinn með slíku. Hvað meinar sá máttur sem stýrir gangi tilverunnar. Hvers vegna að láta líf kvikna og ná eðlilegum þroska andlega og líkamlega, en kippa því svo burt þegar mikill áfangi er enn ófarinn. Dauðinn veldur mönnum óhugnaði vegna þess að þegar hann birtist þá rofna skyndiiega ættar og vináttu- bönd í allar áttir. Öll tilveran er manninum óráðin gáta og verður sennilega svo um alla framtíð þrátt fyrir undraverðustu framfarir á sviði vísinda og tækni. Sá vefur sem hverjum einstaklingi er ofinn í taffi tilverunnar verður aldrei rakinn og fer sennilega best á því. Okkur er boðið að trúa því að dauðinn i daglegum skilningi þess orðs sé ekki til. „Dauðinn dó en lífið Iifir,“ segir sálmaskáldið. Margt hefir komið fram sem sannar þá kenningu að jarðvistar- dagar mannsins séu aðeins áfangi á miklu lengri leið, enda væri þetta líf harla lítils virði ef hin jarðneska tilvera væri endir alls. „I þúsund ár bjó þjóð við nyrstu voga, mót þrautum sínum gekk hún djörf og sterk“. Öldum saman urðu íslenskir sjómenn að sækja sjóinn á svo litlum fleytum að sjósókn hlaut að verða takmörkuð við firði og grynnstu mið. Þá voru oft höggvin djúp skörð í þær raðir, sem stóðu í fylkingarbrjósti og er svo enn í dag þó að skipin séu orðin stór og búin full- komnustu tækjum sem völ er á. Frammi fyrir þessari hættu hafa íslenskir sjómenn staðið síðan land byggðist og þeir orðið að gera það, því þetta land er óbyggilegt nema menn njóti sjávaraflans. Þetta mun sjálfsagt svo verða meðan nokkur íslend- ingur leitar á djúpið til fanga. Skipverjarnir á Guðbjörgu, sem máttu horfa á eftir félögum sínum yfir landamærin miklu til hins ókunna lífs, senda þeim inni- iegustu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf. Utgerð skipsins þakkar störf þeirra og einkar góða viðkynningu. Dýpsta hjartans samúð er vott- uð eiginkonum, börnum og öðrum ættingjum. Þeim er beðið huggunar almáttugs guðs. Isfirsk sjómannastétt og aðrir sem þá þekktu heiðra og geyma minningu þessara hraustu drengja. Minningarathöfn og út- för þeirra félaga fór fram frá Isa- fjarðarkirkju á laugardag. Isafirði, 3. des. Guðmundur Guðmundsson Tæki til pípugerðar óskast Sveitarfélag óskar eftir að kaupa notuð tæki til framleiðslu á steinsteypupípum í holræsalagn- ir. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 18. þ.m. merkt „Pípugerð 881 7". Rangæingar Önnur umferð I 3ja kvölda spilakeppni sjálfstæðisfélaganna i Rangár- vallasýslu verður i Gunnarshólma fimmtudaginn 1 2. des. kl. 21.30. Steinþór Gestsson alþingismaður flytur ávarp. Karl Einarsson skemmt- ir. Sjálfstæðisfélögin. Árg. Tegund Verð í þús 74 Cortina 1 600 680 73 Cortina 1 600 560 70 Cortina 250 74 Datsun 1 00A 630 74 Vauxhall Viva 590 74 Citroen Ami 530 73 Lada Station 430 74 Bronco 6 cyl. 880 73 Austin Mini 370 73 Escort Van 385 73 Skoda 1 1 0 L 360 72 Land-Rover 590 73 Comet Custom 890 72 Comet 690 68 Land-Rover diesel 350 71 Wagoneer 695 73 Chevrolet Nova 950 67 Merc. Benz 200 490 72 Sunbeam 1 250 330 72 Dodge Pick up 600 74 Toyota Celica 850 JJ.IJ SVEINN IÍfcJÍ1Pi EGILSSON H FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.