Morgunblaðið - 10.12.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974
11
örn og örlygur:
Frumherjar
í landaleit
BOKAUTGÁFAN örn og örlygur
hefir sent frá sér fyrstu bókina í
stórum og fallegum bókaflokki,
sem fjallar um könnunarsögu
jarðarinnar og nefnist Lönd og
landkönnun, en fyrsta bókin:
Frumherjar í landaleit. Hér er i
rauninni mannkynssagan sögð
með nýjum hætti eins og hún
blasir við af sjónarhóli landkönn-
uðanna. Þróunarsaga mannkyns-
ins er samofin sífelldri leit þess
að löndum og leiðum og hver nýr
áfangi að baki þeirra er gerðust
frömuðir landafunda er merkur
kafli í mannkynssögunni. I hinum
nýja bókaflokki er saga mannsins
þvi rakin frá nýju og spennandi
sjónarhorni.
Höfur. ar bókanna eru Anthea
og Felix Barker, en þýðandi er
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um og umsjón með Islenzku útgáf-
unni hafa Hákon Tryggvason og
örnóifur Thorlacius.
Bækurnar eru prentaðar hjá
Mladinska Knjiga í Ljubljana í
Júgóslaviu og prýða litmyndir
hverja einustu síðu. Myndirnar
eru valdar af sérfræðingum og
eru þær nátengdar efni bókanna.
Myndatextar eru mjög itarlegir,
svo að lesandinn fær mjög góða
yfirsýn yfir efni bókanna, þótt
hann jafnvel tileinki sér ein-
göngu þann fróðleik sem mynd-
irnar og myndatextarnir geyma.
i þeirri bók, sem nú er út
komin, segir m.a. frá ferðum
Pýþeasar sem margir telja að
komið hafi til íslands (Thule), en
í næstu bók sem kemur út
snemma árs 1975 verður itarlega
sagt frá ferðum víkinga hingað til
lands og landafundum þeirra í
vesturveg, á Grænlandi og Vín-
landi.
Aftast í hverri bók er itarleg
tímatalsskrá er sýnir þátt hverrar
þjóðar i könnunarsögunni, auk
yfirlits um alla helstu könnuðina
og kort er sýnir ferðir hvers og
eins. Þá eru og skýringar á öllum
helstu erlendu orðunum í bók-
inni.
Auk sérkortanna aftast i bók-
inni yfir ferðir hvers könnuðar,
þá eru fjölmörg heildarkort, þar
sem lesandanum ergefin heildar-
sýn yfir allar könnunarferðir
hvers tímabils.
Bókin er sett i Prentstofu G.
Benediktssonar og umbrotin þar,
en filmuð hjá Prisma hf. Prentun
og band var gert i Júgóslavíu.
Sjómenn Eyjafjarðar:
Vilja eflingu
landhelgis-
gæzlunnar
FUNDUR i Sjómannafélagi Eyja-
fjarðar, haldinn á Akureyri 24.
nóvember 1974, lýsir eindregnum
mótmælum við hverskonar
undanslætti stjórnvalda í land-
helgismálinu — frekar en orðið
er. Telur fundurinn, að engar
gildar ástæður séu fyrir þvi að
semja nú við Þjóðverja eða aðrar
þjóðir um veiðar innan 50 mílna
landhelginnar, og að framlenging
þeirra samninga, sem gerðir voru
við Breta og fleiri þjóðir, komi
ekki til mála, þar sem afleiðing
ofveiði á ýmsum mikilvægustu
fisktegundum fyrir afkomu þjóð-
arinnar er öllum, sem til fiskveiða
þekkja, vel ljós.
Væntir fundurinn þess, að
stjórnvöld landsins efli land-
helgisgæzluna sem mest má og
standi nú og framvegis óhvikul
við hlið þjóðarinnar, sem er vel
sameinuð i þessu mesta lífshags-
munamáli sínu. Jafnframt verði
nú allt kapp lagt á að tryggja
landsmönnum einum veiðar á öllu
landgrunninu við island, allt að
200 mílur frá landinu, svo fljótt
sem kostur er.
RAFTÆKIN VINSÆLU I MIKLU URVALI
__________frá Hoover og Pifco____________
Brauðristar,
hárliðunarjárn,
gigtarlampar, hárþurrkur,
nuddtæki, _ __ ljosalampar,
og mafgt fleira StrokvaaTalJós og handljós
Fást víða um land FÁLKINN
Sendum gegn póstkröfu |^°“d*0brau'8
KONFEKTMARSIPAN,
SKRAUTSYKUR,
TERTUBLÓM,
SÚKKAT,
HESLIHNETUKJARNAR,
VALHNETUKJARNAR,
MÖNDLUR,
BÖKUNARHNETUR,
LYFTIDUFT,
PERLUGER,
KÓKOSMJÖL,
SÝRÓP,
SUÐUSÚKKULAÐI,
SÚKKULAÐISPÆNIR,
HVEITI,
SYKUR,
FLÓRSYKUR,
PÚÐURSYKUR, LJÓS OG DÖKKUR,
KÚRENUR, ALLS KONAR,
SULTUR, 10TEG.
VANILLUSTENGUR,
MATARLÍM,
ALLAR TEGUNDIR AF ESSENSUM OG DROPUM.
ÍUUeUöldl,