Morgunblaðið - 10.12.1974, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974
37
— Strjálbýli
Framhald af bls. 20
Nefndin ræður sér fram-
kvæmdastjóra.
3.2. örvunarlán:
Samstarfsfundurinn telur
ljóst, að aukin lánsfyrirgreiðsla
til ibúðabygginga í dreifbýlinu
er ein áhrifamesta leiðin til að
draga úr búsetutilfærslu til
Reykjavíkur- og Reykjanes-
svæðisins. Samstarfsnefndin
skorar á milliþinganefnd í
byggðamálum að endurflytja á
næsta alþingi tillögur sínar um
sérstök örvunarlán til ibúða-
bygginga út í landshlutunum.
3.3. Bankalán til íbúðarhúsa-
bygginga út um land:
Samstarfsnefndin skorar á
útibú viðskiptabankanna víðs-
vegar um landið, að lána ekki
lægri upphæð en sem svarar %
hlutum af væntanlegu húsnæð-
ismálaláni til húsbyggjenda,
þar til þeir hafa fengið húsnæð-
ismálalán, og að 'A af upphæð
húsnæðismálalánsins verði lán-
uð til 10 ára til viðbótar við
húsnæðismálalánið.
4. SlMAMÁL:
4.LGjaldskrá:
Samstarfsfundurinn beinir
þvi til alþingismanna lands-
hlutanna og samgönguráð-
herra, að með lagasetningu
verði tryggt, að símgjöld innan
eins og sama svæðisnúmers eða
landshluta verði hin sömu um
land allt, og að öll gjöld fyrir
simtöl milli dreifbýlisins og
höfuðborgarsvæðisins lækki
verulega.
4.2. Þjónustutimi:
Samstarfsfundurinn leggur
áherzlu á, að simakerfið verði
þannig hannað, að hver símnot-
andi eigi tök á að ná sambandi
við simamiðstöð allan sólar-
hringinn, vegna þess mikla ör-
yggis, sem það skapar.
5. SAMGÖNGUMÁL:
5.1. Vöruflutningar á sjó:
Samstarfsfundurinn bendir á
þá staðreynd, að strandferða-
þjónusta Skipaútgerðar rikis-
ins er nú mun lakari en áður
var, og telur óhjákvæmilegt að
rekstur útgerðarinnar verði
endurskoðaður í þeim tilgangi
að hann veiti íbúum lands-
byggðarinnar og ört vaxandi at-
vinnurekstri þar, þá þjónustu,
sem fullnægjandi verður talin á
nútima mælikvarða.
Fundurinn telur nauðsynlegt
að Eimskipafélag Islands auki
vöruflutningaþjónustu sina er-
lendis frá beint til hinna dreifð-
ari byggða landsins.
5.2. Samgöngumál á landi:
Fundurinn telur nauðsyn-
legt, að stjórnvöld sjái svo um,
að tryggt sé á hverjum tima
nægilegt fjármagn til að fram-
kvæma þær samgönguáætlanir,
sem gerðar eru af áætlanadeild
Framkvæmdastofnunar rikis-
ins og landshlutasamtökunum.
Sérstök áherzla er lögð á inn-
byrðis tengingu þéttbýlisstaða
með vetrarfærum vegum, og
markvisst verði unnið að því að
endurbæta svo sýsluvegi og
þjóðvegi, að mögulegt sé að
halda uppi eðlilegum flutning-
um á mjólk og öðrum afurðum
landbúnaðarins. Einnig bendir
fundurinn á ört vaxandi
heimanakstur skólabarna i
dreifbýlinu.
Faryman smá-diesel-vélar
í báta og vinnuvélar, tveggja, þriggja, fjögurra, fimm,
átta, tíu, fjórtán, tuttugu, tuttugu og Iveggja, tuttugu og
fimm hestafla. Loft-eða vatnskældar.
Sturlaugur Jónsson & CO. SF.,
Vesturgötu 16, Reykjavík, sími 14680.
enskgólfteppi
frá Gilt Edge og CMC
Vió bjóóum fjölbreytt úrval gólfteppa
frá Gilt Edge og CMC til afgreióslu strax;
og einnig má panta eftir myndalista
meó stuttum afgreiöslufresti.
Festió ekki kaup á gólfteppum, án þess
aó kynna yóur þessi gæóateppí -
þaó borgar sig.
EBE ákveðið
gegn friðunar
svæðum við
Norður - Noreg
BrUssel, 6. des. NTB.
SENDIHERRAR Efnahags-
bandalagsríkjanna urðu
ásáttir um það á fundi
sfnum 1 Brússel í dag, — að
þvf er áreiðanlegar heim-
ildir herma — að standa fast
gegn fyrirætlunum norsku
stjórnarinnar um að banna
togveiðar á tilteknum haf-
svæðum undan strönd Norð-
ur-Noregs.
Mál þetta verður rætt nk.
miðvikudag í nefnd þeirri,
sem sérstaklega hefur með
viðskiptasamninga Norð-
manna við EBE að gera, en
ekki er búizt við neinu sam-
komulagi. Samkvæmt EBE-
heimildum telja Bretar, V-
Þjóðverjar og Frakkar, að
afli sá, er þeir tapi við frið-
un svæðanna, muni nema
um 60.000 lestum á ári. Litið
er á þetta mál sem deiluefni
milli Norðmanna og EBE í
heild en ekki Norðmanna og
einstakra aðildarrikja. Er
því líklegt að það hafi áhrif
á samningana um viðskipta-
kjör Norðmanna hjá EBE.
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Austurbær
Baronstígur, Laufásvegur 2 — 57,
Þingholtsstræti, Sóleyjargata,
Laufásveg frá 58 — 79, Laugaveg-
ur frá 34—80, Miðtún, Blöndu-
hlíð, Flókagata 1 —45, Kjartans-
gata, Háteigsvegur, Laugavegur
101 —171, Skúlagata.
ÚTHVERFI
Hluti af Blesugróf, Fossvogsblettir,
Selás, Laugarásvegur 1—37,
Ármúli, Snæland. Kambsvegur.
SELTJARNARNES
Melabraut
Upplýsingar í síma 35408.
KÓPAVOGUR
Bræðratunga.
Upplýsingar í síma 35408.
Stokkseyri
Umboðsmaður óskast til að annast
dreifingu og innheimtu fyrir Mbl.
Uppl. hjá Kaupfélagi Höfn eða hjá
afgr. Mbl. sími 10-100.
Já, í ár verður jólagjöfin frá Eymundsson,
við bjóðum gjafavörur í glæsilegu úrvali.
Ennfremur bjóðum við mikið
úrval af jólakortum
og jólaskrauti.
BÓKAVERZLUN*
SIGFUSAR
EYNUNDSSONAR
AUSTURSTRÆTI 18 REVKJAVÍK SÍMI: 13135