Morgunblaðið - 10.12.1974, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974
Eplaleikurinn frœgi
eftir Robert Newton Peck
Fólkiö mitt var ekki baptistar. En hún var
kunningjakona mömmu og Carrie frænku og kom í
heimsókn vikulega. Trúmál voru hennar eftirlætis-
umræðuefni. Varla var sá ofar moldu, sem vissi
meira um guð en frú Stetson. Hún var eins og biblían
holdi klædd og vitnaði í hana statt og stöðugt. Þegar
hún var komin á skrið, fékk ekkert stöðvað flaum-
inn. 1 fjörutíu daga og fjörutíu nætur. Það var eins
og að lenda úti í heilliidembu
Þau orð, sem fóru henni nú um munn, voru þó
ekkert skyld heilagri ritningu. Hún átti líka töluvert
bágt með að skattyrðast. við mig um leið og hún
baksaði uj)p brekkuna. Þegar hún komst loks upp
til mín var hún svo móð, að hún kom ekki upp
nokkru orði.
Ég svipaðist um eftir Matta, en hann var þá
horfinn. Matti karlinn! Ég stóð þarna með lárviðar-
teinunginn í hendinni og eplablettina í skyrtunni.
Blettirnir voru varla þornaðir. Fætur mínir voru
enn eins og blýlóð. í eyrum mínum hljómaði brot-
hljóðið, sem aldrei virtist ætla að þagna.
„Þú þarna!“ sagði bún.
Or augum hennar brann öll reiði gamla testament-
isins. Það var augljóst mál, að frú Stetson var
þeirrar skoðunar, að syndarar skyldu slegnir þar til
jörðin litaðist af blóði þeirra öðrum til viðvörunar.
„Robert Peck!“ sagði hún fullum hálsi.
Það var ég.
Hún greip báðum höndum um höfuð mér og hristi
mig, svo að ég missti af mér annan skóinn. Þegar hún
var búin að því, sneri hún á mér höfðinu svo nefið á
mér vissi beint að svarta gapinu í kirkjuglugganum.
„Sérðu hvað þú gerðir?“ sagði frú Stetson.
„Horfðu í augu mér og segðu sannleikann. Þorirðu
að neita?“
„Ég gerði þetta ekki.“
Þessu svari bjóst hún ekki við. Hún bjóst áreiðan-
lega við fullri játningu og einlægri bæn minni um
fyrirgefningu frá guði og henni... eða henni og guði,
svo röðin sé rétt.
„Ég gerði þetta ekki, frú Stetson. Ég skaut ekki
eplinu svona langt. Þér sjáið það sjálf, hvaö þetta er
langt.“
„Víst gerðir þú það. Ég sá til þín. Og hérna er
eplið, sem þú kastaðir."
Jölamerkimiðar:
Efni:
Teiknipappfr
Litir
Skæri
Garn
Það er gaman að geta sjálfur útbúið merkimiða á jólapakkana
sína. Miðana sem sýndir eru á teikningunum hér á sfðúnni er
mjög auðvelt að gera. Þið notið teiknipappfrsörk og setjið
myndina með merkimiðunum ofan á og hafið kalkipappfr á
milli. Sfðan litið þið miðana og klippið þá út. Gerið gat með
prjóni til þess að hægt sé að festa band f merkispjöldin. Farið
með oddinum á skærunum ofan f punktalfnurnar svo hægt sé að
brjóta miðana saman. Þið getið svo auðvitað búið til marga
merkimiða — rniklu fleiri en hér eru sýndir.
Ægisútgáfan:
Stóra
drauma-
ráðninga
bókin
Stóra draumaráðningabókin
heitir ein af nýútkomnum
bókum Ægisútgáfunnar. Þrátt
fyrir tækni, menntun og vís-
indi er það staðreynd að enn
dreymir fólk og alla dreymir.
Misjöfn er trú manna á draum-
speki manna, en tæpast
verður á móti mælt, „að oft er
mark á draumum" ef rétt er
ráðið. Þessi bók er ekki alls-
herjarlausn á þeim vanda að
ráða drauma, en draumspök-
um ætti hún að vera nokkur
stoð.
STÚRA
ORAUMA
RÁOIMIIMGA
BÖKIIM
I ólgusjó
lífsins með
sagnaþætti
í
ÓLGUSJÓ
LÍFSINS
Bækur Vigfúsar Kristjáns-
sonar rithöfundar, 1 ólgusjó
lífsins og Sagnaþættir hafa að
gyyma fjölda af merkum og
forvitnilegum atburðum víða
að. I ólgusjó lífsins segir Vig-
fús frá ýmsum atburðum í ævi
sinni, sem spannar vítt svið, en
í sagnaþáttunum eru fjölmarg-
ar frásagnir úr lífi lands-
manna. M.a. er þar fyrsta frá-
sögnin á prenti af brúðarrán-
inu 1870 á Suðurnesjum. Bæk-
ur Vigfúsar eru til sölu heima
hjá honum að Hátúni 8.
JHor0u«bInt>ib
nucivsincnR
#^»22480