Morgunblaðið - 10.12.1974, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1974
47
Jólakeppni Morgunblaðsins
NC eru bréfin f sambandi við
jólakeppni yngri lesendanna
byrjuð að streyma inn á ritstjórn-
ina. Hér eru þau sem komu undir
helgina og svo verðlaunin sem
Morgunblaðið veitir f ár: þrjátíu
bækur alls til skiptanna milli
þeirra hlutskörpustu. Við verð-
GRÆNLENSKI rækjubáturinn
sem kom við hér I Reykjavfk fyrir
sfðustu helgi og lagði af stað vest-
ur yfir hafið á laugardagsmorg-
uninn, er aftur kominn f fréttirn-
ar. Varðskipið Þór bjargaði hon-
um til hafnar á sunnudagsmorg-
uninn. •
Báturinn sem heitir Kirstine
Hansarak varð að leita hafnar hér
í Reykjavík um miðja síðustu
viku vegna leka. — Ahöfnin sem
þá var með bátinn, fimm Græn-
lendingar, gengu af bátnum
vegna þessa Jeka og var þá send
frá Kaupmannahöfn fjögurra
manna áhöfn — allt Danir. Hér
fór fram viðgerð á dekkþilfari
sem var þétt og lensipumpa var
lagfærð. Aftur lagði báturinn af
stað til Grænlands með hina
dönsku áhöfn laust fyrir hádegið
á laugardaginn.
Um klukkan 8 á laugardags-
kvöldið er báturinn var staddur
65 milur útaf Garðskaga kallaði
hann eftir aðstoð vegna þess að
verulegur leki hafði gert vart við
sig. — Eigi allfjarri var þá varð-
skipið Þór og fór hann bátnum
þegar til hjálpar. Var er þetta
gerðist leiðindaveóur á þessum
slóðum. — Um klukkan 10 á
laugardagskvöld var varðskipið
komið á staðinn. Var ástandið þá
hjá okkur vissulega orðið allalvar-
legt, sagði skipstjóri bátsins, Kurt
Nielsen, er blaðamaður Mbl.
ræddi við hann. — Þá var kominn
verulegur sjór i vélarrúmið og
þar hækkaði hann jafnt og þétt.
Mér taldist svo til að um 10 tonn
af sjó kæmu inn i bátinn á
klukkustund en það var meira
magn en dælur bátsins réðu við.
Bað ég þvi skipherrann á Þór
(Helga Hallvarðsson) um að
Tækjum stolið
fyrir á annað
hundrað þúsund
BROTIZT var inn i Sjónvarpsmið-
stöðina við Þórsgötu um helgina,
og stolið þaðan hljómflutnings-
tækjum og sjónvarpstækjum aó
verðmæti eitthvað á annað hundr-
að þúsund krónur. Um er að ræða
sjónvarpstæki af Hitachigerð,
segulband af Poppeygerð, tvö
bílasegulbönd af gerðinni
Automatic radio og loks magnara.
Þeir, sem hafa orðið varir við
tæki af þessum gerðum við grun-
samlegar kringumstæður, eru
beðnir að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna.
launum bestu Ijóðin, sögurnar og
myndirnar, og skilafrestur er til
18. þ.m. Bók Stefáns Jónssonar,
Björt eru bernskuárin, varð fyrir
valinu hjá okkur I ár, en þeir sem
sigra í hverjum flokki hljóta
Ljóðasafn Tómasar með eigin-
handaráritun skáldsins.
reyna að koma til okkar tveim
góðum dælum, þess væri annars
skammt að bíða að vél bátsins
stöðvaðist. — Varðskipsmenn
brugðust vel við og innan stundar
voru þeir komnir til okkar á gúm-
báti með tvær dælur og fylgdu
þeim þrir menn sem þegar tengdu
þær og settu i gang. — Dráttarvír
var komið milli skipanna og fyrir
miðnætti á laugardagskvöldið var
Þór lagður f stað með okkur til
Reykjavikur, sagði Nielsen skip-
stjóri sem bætti þvi við að varð
skipsmenn hefðu sýnt mjög góða
sjómennsku i þessu björgunar-
starfi. Er ekki að orðlengja það,
sagði skiptstjórinn, að ferðin til
Reykjavíkur gekk að óskum og
hingað komum við milli kl. 9 og 10
á sunnudagsmorguninn.
Nielsen skipstjóri sem er maður
á besta aldri, sagði, að ljóst væri
af öllu þvi sem á undan væri
gengið með þennan bát, að taka
yrði hann i slipp og ganga úr
skugga um hvar lekinn væri og
hvað gera þyrfti til að stöðva
hann, — þvi ég get ekki gert mér
grein fyrir því hvar hann er. Það
fer ekki að bera á neinum leka í
bátnum fyrr en hann er kominn
út á rúmsjó í þau átök sem
siglingunni fylgja.
Slipppláss fékk báturinn ekki i
gær, en vonir standa til að það
verði i dag eða á morgun, upplýsti
umboðsmaður eiganda bátsins,
Þorvaldur Jónsson skipamiðlari.
Eigandi bátsins er Konunglega
Grænlandsverslunin og er bátur-
inn að koma úr klössun i skipa-
smiðastöðinni Grenaa í Dan-
mörku. Héðan fer báturinn til
Godthaab þegar viðgerð hér er
lokið og hann kemst af stað.
A.m.k. 30 send-
ingar sviknar út
UNNIÐ var að talningu í vöru-
skemmum Flugleiða hf alla helg-
ina, og verður því verki haldið
áfram eitthvað út þessa viku.
Komið hefur í Ijós, að a.m.k. 30
vörusendingum hefur verið
laumað út úr skemmunum fram-
hjá tolli. Eins og fram kom i blað-
inu á laugardaginn, er aðallega
um tizkufatnað að ræða. Eru
nokkrir innflytjendur viðriðnir
mál þetta, svo og starfsmaður
Flugleiða, en honum hefur verið
vikið frá störfum. Sakadómur
Reykjavíkur hefur fengið málið
til rannsóknar, en um er að ræða
tollsvikamál, sem skiptir milljón-
um króna.
Bátar í
árekstri
UM KL. 18 á laugardfginn varð
allharður árekstur tveggja vél-
báta úti af Reykjanesi. Voru það
vélbátarnir Ingólfur VE 216, sem
er 48 lesta tréskip, og Hafsteinn
RE 133, sem er 176 lesta stálskip.
Dimmviðri var og gekk á með
éljum.
Nánari atvik voru þau, að
Ingólfur var á leiðinni frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur i
viðgerð og á honum voru aðeins
tveir menn, en Hafsteinn, sem er
á netaveiðum, var á leið inn til
Grindavíkur. Areksturinn var
þannig, að Hafsteinn lenti á bak-
borðskinnungi Ingólfs, framan
við vantinn, og brotnaði Ingólfur
allmikið. Nokkrir skipverjar af
Hafsteini fóru yfir i Ingólf til
aðstoðar hinni fámennu skips-
höfn og sjódæla var fengin hjá
Grindvikingi GK, sem var þarna
nærstaddur. Inn til Sandgerðis
komu bátarnir síðan um kl. 21 á
laugardagskvöldið I fylgd með
LjósfaraÞH. Jón.
— Stakk mann
Framhald af bls. 48
brjósti, og Björgvin með 4 stungu-
sár. Hnífurinn, sem er um 20 sm
langur, fannst í íbúðinni brotinn.
Björgvin sagði við yfirheyrslur á
sunnudaginn, að þeir hefðu verið
þrir einir i ibúðinni. Sagðist hann
hafa setið á legubekk í stofunni,
liklega undir morgun, þegar
Kristján hefði skyndilega komið
æðandi út úr eldhúsinu með hnif-
inn á lofti og rekið hann á kaf i
brjóst sér. Stakk hann húsráðand-
ann f jórar stungur, en hvarf síðan
inn i herbergið. Björgvin sagðist
hafa reynt að komast i simann, en
verið of máttfarinn til þess. Siðan
reyndi hann að kalla í Friðmar en
fékk ekki svar. Féll hann þá í mók
og man ekkert eftir sér fyrr en
konan kom um klukkan 10. Ekki
kvaðst hann muna gjörla hvenær
Kristján réðst á sig, en telur það
hafa verið undir morgun. Ekki
sagðist hann vita ástæðuna til
þess að æði rann á Kristján. Ekki
liggur ljóst fyrir hvort vin var
haft um hönd í húsinu, en þó er
talið liklegt að a.m.k. Kristján og
Friðmar hafi setið að drykkju, en
húsráðandinn var sjúklingur.
Líðan hans var eftir atvikum góð I
gær, en hann liggur á gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans. Er hann
ekki úr allri lifshættu, að því talið
er.
Yfirheyrslur yfir Kristjáni hóf-
ust siðdegis á sunnudag, og játaði
hann á sig verknaðinn. Hefur
hann verið úrskurðaður i 60 daga
gæzluvarðhald. Kristján á heimili
við sömu götu og atburðurinn
gerðist, Þverholt.
— Óþolandi
ástand
Framhald af bls. 48
vera í henni, en úr því fæst trú-
lega skorið á næstu vikum.
Fyrir tæpum 4 árum þegar vit-
að var, að ekki yrði virkjað meira
i Laxá, var af undirrituðum og
fleirum bent á gufuna i Náma-
fjalli sem aflgjafa við næstu
virkjun hér, þar sem rannsóknir
sýndu, að þar myndi vera nægileg
orka til virkjunar á hagkvæman
hátt. Var i þvi sambandi talið, að
hægt væri að byggja slika virkjun
í áföngum. Síðan þetta átti sér
stað hefur litið verið gert i þess-
um málum, svo sem kunnugt er,
þar til á síðasta sumri, að hafin
var borun í Kröflu.
Hvað svo um framhaldið? Nú
vilja menn hér fá eftirfarandi
spurningum svarað. Hverjir réðu
því, að ekki var reist stærri gufu-
virkjun i Bjarnarflagi á sinum
tima, og hún síðan stækkuð. Og i
öðru lagi, hvi var ekki byrjað að
virkja austan við Námafjall i
áföngum úr þvi að rannsóknir
leiddu i ljós, að þar væri næg
orka. Óskað er eftir skýrum svör-
um hjá viðkomandi aðilum.
Ástandið í þessum málum er væg-
ast sagt orðið óhugnanlegt og
óþolandi.
Kristján
— Rækjudeilan
Framhald af bls. 48
Blönduósi, þrátt fyrir, að hann
væri aðeins skráður á öðrum
staðnum. Hugmyndin hjá okkur
er að gera út á rækju f allt sumar,
sækja á djúpið við Kolbeinsey og
landa henni hérna hjá verksmiðj-
unni á Blönduósi," sagði Kári
ennfremur.
Morgunblaðið spurði Kára þá
að því hvers vegna Særún hefði
nú auglýst eftir þriðja rækjubátn-
um í viðskipti. Kári svaraði þvi
til, að af köst rækjuverksmiðjunn-
ar væru næg til að geta annað
þremur bátum og þess vegna
hefði verið auglýst eftir þvi hvort
einhver af skipstjórum hinna 27
báta, er leyfi hefðu til rækjuveiða
á Húnaflóa, hefði ekki áhuga á
þvi að flytja kvóta sinn yfir á
Blönduóssverksmiðjuna. Kári
sagði sér hafa heyrzt á forsvars-
mönnum sjávarútvegsráðuneytis-
ins, að öðru vísi horfði við með
slika umsókn en veiðar Blöndu-
óssbátanna, og sagði ennfremur,
að tveir skipstjórar hefðu strax í
gær haft samband við Særúnu og
látið líklega yfir því að þeir væru
tilbúnir að sækja um yfirfærslu á
kvótum sínum til Blönduóssverk-
smiðjunnar.
— Rafmagn
Framhald af bls. 3.
höldum skömmtunum áfram
þangað til afköstin hafa aukizt
enn meir. Þá veit ég, að fram-
leiðsla Gönguskarðsárvirkjunar í
Skagafirði er komin niður i eitt
stórt núll. Aó sjálfsögðu eru allar
dísilvélar á fullum krafti og olian
á þær kostar aðeins 35 þús. kr. á
klukkustund eða 840 þús. kr. á
sólarhring. Við þetta bætist svo
margskonar kostnaður.
- StjórnBrattelis
Framhald af bls. 1
er gert ráð fyrir þvi, að bréfin séu
keypt fyrir 62 milljónir dollara.
Astandið er vægast sagt mjög
óljóst, en fari svo, að stjórn
Brattelis falli á þessu máli, má
búast við erfiðri stjórnarkreppu i
Noregi. Borgaraflokkarnir hafa
87 þingsæti af 155 og líklega
mundi borgaraflokkastjórn með
Lars Korvald i forsæti taka við
völdum. Sú stjórn gæti þó aldrei
orðið langlíf og þá kæmi aftur að
Verkamannaflokknum eða efnt
yrði til nýrra kosninga.
Samtök verkamanna við efna-
iðnað i Noregi hafa reynt að miðla
málum en lítið orðið ágengt enn
sem komið er. Hafa samtökin
lagt hart að bæði Verkamanna-
flokknum og SV að setjast saman
að samningaborði en þrátt fyrir
viðræður hefur lítið miðað i sam-
komulagsátt. Talsmaður samtak-
anna sagði i dag, að i rauninni
gæti hann vel fallizt á hugmyndir
SV um þjóðnýtingu. Þær væru þó
ekki raunhæfar á þessu stigi
málsins. I fyrsta lagi striddu þær
gegn norskum lögum, i öðru lagi
yrðu álverksmiðjurnar eftir sem
áður háðar kanadíska fyrirtækinu
um hráefni.
Þar til á föstudaginn verður
barizt bak við tjöldin, bæði milli
flokka og innan þeirra — og þá
einkum innan SV, en flokkurinn,
sem samanstendur af fjórum
flokksbrotum á vinstri væng
stjórnmálanna, skiptist algerlega
I tvo hópa. Getur framtið flokks-
ins I raun og veru ráðizt af þessu
máli ekki síður en framtið rikis-
stjórnar Brattelis.
— Þing
Framhald af bls. 18
hlutfall þeirra fari til dreifikerf-
anna.
Að lokum ræddi Þorvaldur
Garðar um það misrétti, sem i því
fælist, að enn næði sjónvarpið
ekki til 472 sveitabæja. Talið væri
að það þyrfti 150 endurvarps-
stöðvar til að ná settu marki i
þessu efni. Fyrir 2—3 árum
hefði verið gerð kostnaðaráætlun,
þá að fjárhæð 150 milljónir
króna, sem hann taldi naumast
undir 220 milljónum i dag, miðað
við verðlagsþróun siðustu 2ja —
3ja ára.
— Konstantín
Framhald af bls. 1
að hann vænti þess, að réttlæti
gagnvart þegnum landsins ein-
kenndi þróun mála í Grikklandi i
framtiðinni og sagði, að þjóðar-
eining yrði að ganga fyrir öllu svo
að ástandið í landinu kæmist sem
fyrst í eðlilegt horf. Konstantin
sagði ekkert um hvað hann hygð-
ist fyrir, hann hafði fyrir at-
kvæðagreiðsluna lýst þvi yfir, að
ef hann biði ósigur sneri hann
heim sem óbreyttur borgari og
settist að i Aþenu.
Gert er ráð fyrir, að Ghizikis
hershöfðingi, sem nú gegnir for-
setaembættinu til bráðabirgða,
segi af sér í kvöld eða á morgun
og þingið útnefndi þá nýjan
bráðabirgðaforseta, unz stjórnar-
skrárbreyting hefur verið gerð,
er kveður á um framtiðarskipulag
forsetaembættisins og kjör hans.
Er búizt við, að Panayotis
Kanellopulos fyrrum forsætisráð-
herra verði skipaður forseti.
— Frímerki
Framhald af bls. 12
stimplun fyrstadagsum-
slaganna, enda er það nú alltaf
gert i Svíþjóð við útgáfu
minningarfrimerkja.
Eru flúrfrímerki
hættuleg heilsu manna?
Um allmörg ár hafa ýmsar
póststjórnir gefió út sérstök
flúrskinsfrimerki. Hafa þau
þann eiginleika, að mjög auð-
velt er að lesa í sundur póst-
sendingar með þessum
merkjum í sérstökum vélum.
Japanir munu einna fyrstir
hafa orðið til að setja þetta flúr-
efni í lit frimerkja sinna. Síðan
breiddist þessi aðferð út til
Evrópu, þar sem nokkur lönd
hafa notað hana. Ðanska póst-
stjórnin hefur einungis notað
flúrfrímerki frá 1967 en áður
hafði hún um nokkur ár gert
tilraun með slík frímerki sam-
hliða sömu merkjum á venju-
legum pappir.
Islenzka póststjórnin hefur
aldrei látið gefa út frímerki
með flúrefni, enda ekki haft
þörf fyrir þau.
Nú herma nýjustu fréttir, aó
japanska póststjórnin sé að
hætta við að nota flúrfrimerki,
þar sem grunur leikur á, að
flúrefnið geti valdið krabba-
meini. Reynt verður að fylgjast
með umræðum um málið og
skýra frá þeim hér i þættinum,
þegar einhverjar niðurstöður
liggja fyrir.
— Við hefðum . .
Framhald af bls. 17
Þegar island var hernumið 1940
hringdi Gunnlaugur Einarsson lækn-
ir. sem þá var formaður, I mig strax
um morguninn og kvaddi mig til
hjálparstarfa I sambandi vi8 hernám-
i8. Ég var ekki búin aS ganga frá
lokun skýlisins og átti alla reikninga
ófrágengna. En ég dreif mig I bæinn
og hóf störf I sambandi vi8 hernám-
i8, en þar var I ýmis hom a8 llta.
— RauSi kross íslands haf8i ann-
ast forskóla fyrir hjúkrunarkonur ár-
i8 1937 og annaSist ég þa8 á hverju
ári þar til ág ré8st til Landspltalans
sem hjúkrunarkennari áriS 1941. a8
undanteknu hemámsárinu 1940
þegar forskólinn varð niður að falla.
Hann fluttist svo með mér frá R.K.f.
til Landspltalans. Gunnlaugur Claes
sen var forgöngumaður þessa máls
eins og margra annarra. Hann var
áhugamaður um aukna menntun
hjúkrunarkvenna og heilsuvernd.
— Eitt starf var mér falið einni og
sem ég hef sjaldan rætt um þar sem
um mjög viðkvæmt mál var að ræða.
f strlðslokin var ég útnefndur tengi-
liður R. K. f. við Amerlska Rauða
krossinn til úrlausnar ýmsum mjög
erfiðum og viðkvæmum barns-
faðernismálum við lok styrjaldarinn-
ar.
— Störfin I R.K.Í. voru öll
skemmtileg og ánægjulegt að sinna
málum sem við töldum vera til gagns
fyrir almenning og einnig það að
vinna meS hinum frábæru áhuga- og
athafnamönnum sem voru I forystu
R.K.i. En öll hefðum viS viljað gera
betur.
Þór bjargaði græn-
lenska rækjubátnnm
— var hætt kominn vegna leka