Morgunblaðið - 10.12.1974, Page 48
Ronson
Electronic
gjöfin, sem
vermir RONSON
ÞRIÐJUDAGUR 10.DESEMBER 1974
Enn eitt morð í Reykjavík:
Stakk mann til bana og
særði annan hættulega
57 ÁRA gamall maóur, Friðmar Sædal, var stunginn til
bana með hnífi, og annar maður Björgvin Óskarsson, 51
árs, særður lífshættulega í húsinu númer 18j við Þver-
holt í Reykjavík að morgni s.l. sunnudags. 35 ára gamall
maður, Kristján Kristjánsson, var tíandtekinn strax um
morguninn, og játaöi hann á sig verknaðinn við yfir-
heyrslur seinna um daginn.
Lögreglan fékk tilkynningu um
atburðinn skömmu fyrir klukkan
10 á sunnudagsmorguninn. Kona,
sem var að koma með mat til
Björgvins húsráðanda og ætlaði
einnig að laga til i húsinu, fann
Björgvin liggjandi á legubekk i
stofunni, mikið særðan, og i her-
bergi innaf stofunni lágu tveir
menn Friðmar og Kristján, annar
þeirra særður, að því er virtist.
Hún hringdi strax i slökkviliðið
úr sima, sem er í íbúðinni, og bað
um að sjúkrabifreið yrði send á
staðinn. Slökkviliðið lét lög-
regluna þegar vita, og komu bæði
lögregla og slökkvilið að húsinu
um svipað leyti. Var aðkoman sú
sama og þegar konan kom á vett-
vang. Þegar lögreglan kom inn í
herbergið, reis Kristján á fætur,
en Friðmar hreyfði sig ekki, og
við nánari athugun kom í ljós, að
hann var látinn. Húsráðandinn
var þegar fluttur á Borgsspítal-
ann til aðgerðar, en lögreglan tók
Kristján i sína vörzlu, enda beind-
ust böndin að honum. Játaði hann
við yfirheyrslur að hafa stungið
báða mennina í brjóstið með búr-
hnífi, sem til var á heimilinu. Var
sá látni með 8—9 stungusár á
Framhald á bls. 47.
Hnífurinn,
sem notaður var
við verknaðinn.
Hann fannst
brotinn
á vettvangi.
iM
■
. .*#■:
v*
eítr ♦>'
iMMDttm
m t
iiáiW
Rækjuveiðideilan við Húnaflóa:
Óvenju mikið
um hvers kyns
óhappaverk
ALLS kyns óhappaverk hafa
verið óvenju mörg upp á síð-
kastið, svo þess eru engin
dæmi hér á landi. A rúmum
þremur mánuðum hafa átt sér
stað sex morð eða manndráp,
auk ýmissa likamsmeiðinga.
Það, sem fyrst gerðist, var,
að gamall maður lézt eftir átök
við annan mann í kjallaraibúð
við Vesturgötu í Reykjavík að
kvöldi 4. september. Næst í
röðinni var morð á 28 ára
gömlum manni i húsi við
Suðurlandsbraut, en vinkona
hans stakk hann til bana með
hnífum og skærum. Þá lézt
ungur maður eftir átök fyrir
framan skemmtistaðinn Þórs-
eafé. Á Akranesi lézt 18 ára
piltur, einnig eftir átök, og i
Vestmannaeyjum lézt mið-
aldra maður eftir að hafa lent í
átökum að loknum dansleik.
Loks er það morðið í Reykja-
vík um síðustu helgi, sem
nánar er greint frá I blaðinu í
dag.
Þá má geta þess, að rann-
sóknin á hvarfi Geirfinns
Einarssonar er unnin með það
í huga, að hugsanlega geti
verið um morðmál að ræða.
Blönduósverksmiðjan ekki í vandræð-
um með að fá þriðja bátinn í viðskipti
EKKI dró til neinna stórtíðinda i
deilunni við rækjubátana tvo á
Blönduósi nú um helgina. Tals-
maður sjávarútvegsráðuneytisins
telur, að skipstjórar bátanna
tveggja muni ætla að virða veiði-
leyfissviptinguna og að þeir hafi
ekki farið á sjó frá því fyrir helgi.
Forstöðumaður rækjuverksmiðj-
unnar Særúnar á Blönduósi og
skipstjóri annars bátsins segir
það hins vegar stafa af þvl, að
bræla hafi verið á miðunum og að
bátarnir muni ekki virða leyfis-
sviptinguna. Rækjuverksmiðjan
á Blönduósi hefur nú auglýst eft-
ir þriðja rækjubátnum í viðskipti
og fengið jákvæð svör.
1 samtali við Morgunblaðið i
gær sagði Þórður Ásgeirsson,
skrifstofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins, að ekkert yrði frekar
aðhafzt í máli þessu af hálfu ráðu-
neytisins, þar eð allt benti til
þess, að rækjubátarnir tveir frá
Blönduósi myndu ætla að virða
veiðileyfissviptinguna. Bátarnir
hefðu ekki farið á sjó í gær og
þrátt fyrir að þeir hafi róið á
laugardag eftir að ákvörðunin um
sviptingu leyfanna hafði verið
tekin, sagði Þórður, að áhöld
væru um hvort skipstjórunum
hefði borizt vitneskja um það
nógu timanlega eftir formlegum
leiðum.
Þórður var þá spurður um það
hver viðbrögð ráðuneytisins yrðu
við auglýsingu rækjuverksmiðj-
unnar á Blönduósi eftir þriðja
rækjubátinum í viðskipti, þ.e. ef
umsókn kæmi frá skipstjóra ein-
hvers rækjubátsins með veiðileyfi
á Húnaflóanum um að færa kvóta
sinn yfir til Blönduóss. Þórður
kvaðst ekki geta svarað öðru til en
því, að það yrði tekið til athugun-
ar eins og önnur erindi, er bærust
ráðuneytinu. Hann taldi hins veg-
ar öll tormerki á því, að ráðuneyt-
ið breytti afstöðu sinni til rækju-
bátanna tveggja frá Blönduósi,
þeir hefðu fyrirgert rétti sínum
til veiða í Húnaflóanum með því
að brjóta gegn skilmálum veiði-
leyfanna.
Kári Snorrason veitir rækju-
verksmiðjunni Særúnu á Blöndu-
ósi forstöðu en hann er jafnframt
skipstjóri Aðalbjargar, annars
Blönduóssbátsins, þó svo að 17
ára sonur hans, Snorri, væri með
bátinn þegar deilan blossaði upp
að nýju fyrir helgina. Hinn bátur-
inn heitir Nökkvi og er skipstjóri
hans Jón Ámundi Jónsson.
„Við munum ekki virða leyfis-
sviptingu," sagði Kári Snorrason,
þegar Morgunblaðið spurði hann
um viðbrögð þeirra skipstjóranna
á Aðalbjörgu og Nökkva.
Óþolandi ástand
r af orkum álunum
— 298 stiga heit gufa úr Kröflu
Björk, Mývatnssveit
9. desember.
1 GÆR fór veður hér mjög versn-
andi og um kvöldið var komið
norðan hvassviðri með snjókomu
og skafrenningi. Frostlaust var að
kalla og setti því víða ísingu á
raflinur, enda urðu truflanir á
rafmagni i gærkvöldi og fór það
Þorskblokkin lækkar
Norðmenn reiðubúnir að selja 6000 lestir á 58 sent pundið
ÝMISLEGT bendir til þess, að
verð á þorskblokk á Bandaríkja-
markaði fari lækkandi. Norð-
menn eru byrjaðir að selja tals-
vert magn af þorskblokk, líklega
um 6000 lestir á 58 sent pundið en
hingað til hefur verðið verið 60
scnt pundið. Ekki munu Norð-
menn ætla sér að selja þetta
magn í einu lagi, heldur munu
þeir ætla sér að koma því inn á
markaðinn á næstu þremur
mánuðunum og athuga hvort
verðið fari ekki að hækka á ný.
Við síðustu skráningu í Banda-
ríkjunum var pundið af þorsk-
blokkinni skráð á 58—59 sent.
Enn hafa engar afskipanir farið
fram héðan frá íslandi á iægra
verði en 60 sentum, og ekki er
vitað hvaða áhrif verðlækkun
Norðmanna hefur á markaðinn
en seljendur óttast, að þessar söl-
ur Norðmanna muni hafa þau
áhrif að draga verðið heldur
niður. Hinsvegar ber að gæta
þess, að mjög lítið magn mun vera
til af þorskblokk í geymslum
frystihúsanna. í geymslunum er
lang mest magn af ýsu- og
ufsaflökum.
alveg af milli kl. 20 og 21. Eftir að
Mývatnssveit og Kisiliðjan voru
eingöngu tengd við gufuaflstöð-
ina í Bjarnarflagi, virtist allt I
lagi og var svo s.l. nótt. Veður er
hér skárra í dag, þó er allhvasst
og kólnandi og éljagangur. Ekki
er annað vitað en færð á vegum til
Húsavikur sé góð. Hér hefur raf-
magn verið skammtað í dag, 2
tíma í senn, enda er talið, að fram-
leiðslan I Laxárvirkjun hafi
minnkað um nálægt helming.
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum, er nú lokið borunum á
tveimur holum eftir gufu norður i
Kröflu. Búið er að láta fyrri hol-
una blása út i nokkurn tíma og
var hitinn í henni mældur í s.l.
viku. Reyndist hann vera 298 stig.
Er þessi hola talin ein sú heitasta,
sem boruð hefur verið hér á
landi. Síðari holunni hefur enn
ekki verið hleypt upp, en það
verður væntanlega gert næstu
daga. Því er ekki hægt að segja á
þessu stigi hversu hár hiti reynist
Framhald á bls. 47.
.Ástæðan fyrir þvi, að við erum
ekki á sjó í dag, er einfaldlega sú,
að það er bræla á miðunum. Við
teljum, að það sé ekki hægt að
svipta mann leyfum ef lagt er upp
hjá löglegum stöðvum, og raunar
ekkert samræmi í þessari ákvörð-
un ráðuneytisins, þar sem annar
bátanna lagði til skiptis upp á
Hvammstanga og Skagaströnd áð-
ur en byrjað var að landa hér á
Framhald á bls. 47.
Samið við hönn-
unaraðila að
Kröfluvirkjun
EINS og getið er í annarri frétt i
Mbl. í dag hefur árangur af bor-
unum vegna undirbúnings
Kröfluvirkjunar orðið góður. Jón
G. Sólnes, alþingismaður, for-
maður Kröflunefndar sagði i við-
tali við Mbl. i gær að mikið starf
hefði verið unnið innan nefndar-
innar að undirbúningi fram-
kvæmda. Hefði ráðuneytið lagt
mikla áherzlu á að öllu viðvíkj-
andi málið yrði flýtt og kvað hann
nefndina nú búna að semja við
hönnunaraðila virkjunarinnar.
Er það Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen, sem hanna mun
virkjunina í samráði við banda-
rískt verktakafyrirtæki, Rogers
Inc.
Láta ekki í
sér heyra
ÞEGAR Mbl. hafði samband
við Hauk Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumann I Kefla-
vík f gærkvöldi, var ekkert sér-
stakt að frétta af rannsókn
Geirfinnsmálsins. Var unnið
að rannsókn þess af fullum
krafti. Enginn þeirra fimm
manna, sem auglýst hefur
verið eftir vegna málsins,
hefur enn gefið sig fram.