Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975
33
Brynjólfur Guðmunds
son — Stutt kveðja
Fæddur 21. 9. 1909
Dáinn 19. 7. 1975
Þegar minnast skal látins vinar
er oft erfitt að fá hugann til
hlýðni, því mjög er tregt tungu að
hræra. Svo fer nú, þegar ég vil
með fáum orðum minnast
Brynjólfs Guðmundssonar járn-
smiðs frá Miðdal í Kjós. Mig
skortir kunnugleika til þess að
rekja ætt hans og uppruna, skal
því ekki farið út á þá braut, sem
ég vænti að aðrir mér kunnugri
geri.
Þessar línur eru settar á blað
sem Iftill þakklætisvottur fyrir
góða og trausta samfylgd í nokkur
ár, sem urðu mér góður skóli.
Kynni mín af Brynjólfi eru að
vísu ekki löng. Þau hófust
skömmu eftir að hann settist að í
Selásnum. Þar urðum við ná-
grannar í nokkur ár. Hann átti
þar lítið einbýlishús og dálitla
landspildu. Hann kom sér upp
smiðju þar sem hann lúði járn
flestum stundum. Hann lagði
aðallega fyrir sig smíði á hesta-
járnum hin siðarí ár og hafði vart
undan eftirspurn. Nú munu fáir
sem stunda þessa iðngrein, enda
bæði erfið og óhreinleg. Járn-
smiðurinn við steðjann fer að
verða fáséður, þó mun enn um
langan tíma verða þörf á skeifna-
smið, því að enn hefur ekki tekist
að smíða í véi skeifur undir
íslenzka hesta svo vel fari.
Brynjólfur komst raunar í kynni
við slíka samkeppni og hafði
betur.
Þó að Brynjólfur legði aðallega
stund á járnsmiðar þar sem hann
hafði full iðnréttindi, var hann
einnig mjög hagur að aðra smíði,
svo sem úr tré. Hann byggði upp
mörg hús í nærliggjandi sveitum
og var eftirsóttur til þeirra
starfa, enda lék öll smiði i hönd-
um hans.
Það var vegna félagsstarfa sem
kynni okkar Brynjólfs hófust.
fyrst í Framfarafélagi Seláss- og
Árbæjarbletta. Síðar unnum við,
ásamt fleirum, að stofnun Félags
landeigenda i Selási og vorum
saman í stjórn þess i nokkur ár.
Ég tel mér óhætt að fullyrða að
samstarf okkar hafi verið mjög
gott. Að öðrum ólöstuðum hefði
ég fáa fremur kosið til þess að
vinna með að félagsmálum.
Brynjólfur var mjög traustur
maður í öllum störfum sínum og
þó ekki sízt í félagsstörfum. Hann
kom beint að hlutunum, en fór
ekki með veggjum eins og sagt er,
hann var hreinskilinn og hrein-
skiptinn i hverju máli. Hann
hafði ríka réttlætiskennd, þoldi
illa væri einhver órétti beittur,
hvort heldur það var í orði eða í
verki. Hann sagði sina meiningu
óhikað hver sem í hlut átti, hann
hlaut því stundum ijndúð þeirra,
setn ekki þoldu gagnrýhi hans.
Sjálfur tók hann vel gagnrýni
sem á rökum var reist. Væri
honum misboðið gat honum mis-
líkað, en var fljótur tii sátta væri
eftir leitað af eindrægni.
Brynjólfur hafði gaman að
góöum kveðskap. Sjálfur var
hann góður hagyrðingur. Þær
voru ekki svo fáar hendingarnar
sem komu frá honum bæði á
stundum gleði og sorgar. Veit ég
að margur mun minnast hans ein-
mitt frá slíkum stundum, þarsem
hann var sannur þátttakandi í lífi
samferöamanna sinna. Brynjólfur
var mjög félagslyndur og mikill
félagshyggjumaðui’, þó að honum
væri búið það hlutskipti að verða
oft einbúi. Brynjólfur var maður
sém gott var að leita til í hverju
sem var. Hann var ráðhollur og
hjálpfús með afbrigðum. Betra
var að eiga vináttu hans en
margra annara og raunbetri
maöur verður varla fundinn.
Börn hændust fljótt að Brynjólfi,
hann hafði líka mjög gaman af að
gleðja þau á allan hátt, þvi að þótt
hann virtist hrjúfur á ytra borði,
var hann afar ljúflyndur maður.
Brynjölfur andaðist á Landspít-
alanum aðfaranótt 19. júli s.l. eft-
ir erfiða sjúkdómsbaráttu. Hann
var jarðsettur í Fossvogi 28. sama
mán.
Hér skulu færðar þakkir til
hans, fyrir alla hans miklu hjálp-
semi og vináttu bæði fyrr og
síðar. Dóttur hans, aldraðri
móður hans, systkinum og öðrum
vandamönnum votta ég innilega
samúð okkar hjónanna. Guö
blessi minningu góðs drengs.
Finnbogi Haukur Sigurjónsson.
Brynjólfur Guðmundsson frá
Miðdal í Kjós hefir nú óvænt
horfið til feðra sinna, en hann lést
á sjúkrahúsi i Reykjavik 19. júlí
s.l. eftir stutta legu.
Sporaslóðir okkar Brynjólfs
lágu saman fyrir um það bil 20
árum eða nánar tiltekið óþurka-
sumarið 1955, en þá beitti hann
sér fyrir bættum vinnubrögðum
og endurbótum á tiltölulega frum-
stæðum verkfærakosti bænda við
hin erfiðu heyskaparskilyrði
þetta sumar. Síðan hefir
kunningsskapur fjölskyldu
minnar við hann aukist og þróast
í það að vera vinátta. Brynjólfur
heitinn var heimilisvinur og'
raunar velgjörðamaður, sem við
viljum minnast nú við hið skyndi-
lega fráfall hans. Lof og hól var
honum lítt að skapi enda skal öllu
slíku stillt í hóf í þessum fáu
kveðjuorðum. Hinsvegar er af
nægu að taka sem gæfi nokkra
innsýn í magnaðan persónuleika
hans, Upplag og efniviður manns-
ins var einkar góður, hvort heldur
var til hugar eða handar,
greindur vel og lesinn í ólikleg-
ustu bökmenntum og hagmæltur,
en þó var mest áberandi í fari
hans þjóðhagasmiðurinn. Allt
smiðaefni lék i höndum hans,
hvort heldur um var að ræða tré,
stein ellegar járn og mótaðist
fljótt og vel að vilja hans.
Skólaganga var eins og tíðkaðist
á þessum árum stutt en gagnsöm
og um langskólanám var ekki að
ræða heldur vinnu til framfærslu
bús og heimilis. Foreldrar hans
bjuggu fyrst að Melum á Kjalar-
nesi i 2 ár, en þar er hann fæddur
21. sept. 1909. og var hann næst-
elstur átta systkina. 1 tíu ár bjó
fjölskyldan að Litlasandi á Hval-
fjarðarströnd, en siðan að Miðdal
í Kjós, og þar býr Davið bróðir
hans nú myndarlegu búi. Ættir
Brynjólfs get ég ekki rakið að
gagni, en Guðmundur Brynjólfs-
son faðir hans var Hreppamaöur,
en Guðbjörg móðir hans Jóns-
dóttir frá Brennu i Lundarreykja-
dal. Á yngri árum lagði Brynjólf-
ur stund á margvísleg störf, s.s.
sjósókn, en þó mest hygg ég á
vegavinnu og brúarsmíðar ásamt
byggingum fyrir bændur, en til
þeirra hluta var hann mjög eftir-
sóttur.
Brynjólfur var vel liðtækur í
félagsmálum, og mun þáttur hans
vera einna drýgstur i Verklýðs-
félaginu Esju í Kjósarsýslu, enda
sat hann ávallt þing Alþýðu-
sambandsins fyrir það félag þau
25 ár sem það starfaði. en Kjósar-
Framhald á bls. 47.
úrval heyvinnuvéla
CLAAS heyhleðsluvagnar
Við bjóðum upp á tvær stærðir af
hinum þekktu og traustbyggðu CLAAS
heyhleðsluvögnum, Autonom LWL og
Autonom LWG, sem er stærri.
CLAAS heyhleðsluvagnarnir eru
sterkbyggðir og liprir. Hjólbarðar eru
stórir, 11,5x15 (svonefndir flothjólbarðar).
Söxunarbúnaður er fyrir þurrhey og vothey
og stillanlegt dráttarbeizli. Þurrheys-
yfirbygging er fellanleg. Hleðslutíminn er
5 mín. og losunartíminn allt niður í 2 min.
CLAAS heyhleðsluvagninn nær upp allt
að 1,60 m breiðum múga.
Góð reynsla hefur fengizt af
notkun CLAAS heyhleðsluvagna hérlendis.
Stærífin LWL er 1100 kg að þyngd tómur,
en 3600 kg hlaSinn. Hann rúmar 21 m3 af þurrheyi,
en 12 m’ af votheyi. PalistærS er 3,60x1.60 m og
heildarlengd 6 m.
LWG er 1200 kg aS þyngd tómur, en
3800 kg hlaSinn. Hann rúmar 24 m1 af þurrheyi, en
14 m5 af votheyi. PallstærS er 4,30x1,60 m og
heildarlengd 6,80 m.
Sporvldd LWL er 1,80 m, en LWG 1,50 rh.
BUSATIS BMT 1650 sláituþyrla
BUSATIS sláttuþyrlur eru smiðaðar
á grundvelli margra ára reynslu og til-
rauna. Framúrskarandi traustbyggðar og
afkastamiklar. Vinnslubreidd sláttu-
þyrlunnar er 1,65 m. Mjög auðvelt er að
skipta um hnífa í BUSATIS BMT 1650
sláttuþyrlunni.
CLAAS hjólmúgavélar
CLAAS AR 4 hjólmúgavélin er
tengd á þrítengi dráttarvélar og er hægt
að lyfta henni með vökvalyftunni. Burðar-
grindin er tengd í tvo stifa gorma og tindar
hjólanna hafa mikinn
sveigjanleika, þar sem þeir ná 30 cm
út fyrir hjólgjörðina. Þetta hvorttveggja
stuðlar að þvl, að múgavélin geti fylgt
ójöfnum landsins.
hraðinn hefur ekki áhrif á vinnugæðin. Við
hraðann 8—12 km/klst. eru meðalafköst
vélarinnar allt að 2 ha á klst.
CLAAS AR 4 múgavélin er lipur og traust-
byggð.
CLAAS BSM 6 er dragtengd hjól-
múgavél og óháð tengidrifi dráttarvélar.
Hún hefur sex rakstrarhjól og hvilir á þrem
gúmmíhjólum. Vinnslubreidd er allt að
2,80 m. Afköst við venjuleg skilyrði eru
2—3 ha á klst.
CLAAS heybindivél
CLAAS-MARKANT heybindivélin
tekur heyið upp, pressar það í bagga og
bindur og rennir siðan heyböggunum upp
í vagn, þar sem þeim er staflað. 25 ha
dráttarvél getur dregið heybindivélina.
CLAAS-MARKANT heybindivélin er
hagkvæm, sparar bæði tíma og vinnu.
Afköst allt að 12 tonn á klst.
Færa má tvö fremstu rakstrarhjólin á
burðarbita til hægri á vélinni og rakar hún
þá f tvo múga. Vinnslubreidd er stillanleg
allt að 2,30 m.
CLAAS AR 4 rakar vel, skilur eftir
litla dreif og er lipur I notkun, þar sem hún
er tengd á vökvalyftu dráttarvélar. Öku-
Allar þessar heyvinnuvélar eru
fyrirliggjandi á lager og geta fengizt
afgreiddar strax. Bændur, kynnið ykkur
kosti þeirra og leitið upplýsinga um verð
og greiðsluskilmála hjá okkur.
22/tofio^éla/t A/
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVÍK • SÍMI 86500 • SÍMNEFNI ICETRACTORS