Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið að er leitun að þjóð, sein háðari er verzlun, uaiutnirgi framleiðslu sinnar og innflutningi margháttaðra nauðsynja en fslendingar. Svo hefur verið frá upphafi byggðar hér á landi. Eyland i út- sævi, með einhæft atvinnu- líf, hlýtur að byggja tilveru sína á verzlun og viðskipt- um að verulegu leyti. Jafn- vel á tímum niðurlæging- ar, er þjóðin játaðist undir norskan konung með gamla sáttmála, 1262, gleymdist ekki það höfuð- atriði, að tryggja nauðsyn- legar siglingar til og frá landinu. Og þungamiðjan í sjálfstæðisbaráttu þjóðar- innar og kenningum Jóns Sigurðssonar forseta var að tryggja landsmönnum frjálsa vpf7)un 1 kjölfar frjálsrar verzl- unar komu og þær hrær- ingar í íslenzku þjóólífi, sem breyttu fátæku og frumstæðu þjóðfélagi okk- ar í nútíma horf, urðu und- irstaða velmegunar, fjöl- hæfingar og tæknivæðing- ar íslenzkra atvinnuvega. Landbúnaður, sjávarút- vegur og iðnaður eru þrír burðarásar íslenzkra at- vinnuhátta. Engin þessara atvinnugreina getur staðið ein sér, án tengsla eða stuðnings frá hinum. Iðn- aðurinn byggist m.a. á hrá- efnum, sem sótt eru til landbúnaðar og sjávarút- vegs. Hann byggist ekki síður á margháttaðri þjón- ustu við sveitir og sjávar- pláss. Sjávarplássin, sem margfalda verðmæti sjávarafla af veiðisvæðum er umlykja landið allt, byggja tilveru sína, at- vinnu og afkomu íbúa sinna, jöfnum höndum á aðliggjandi landbúnaðar- héruðum og útgerð. Og landbúnaðurinn, þessi elzta atvinnugrein þjóóar- innar, sækir frjómagn sitt til þeirra markaða, sem þéttbýlið skapar. Tengilið- ur þessara atvinnugreina innbyrðis er verzlunin. Hún er jafnframt tengilið- ur þeirra sem heildar og þjóðarinnar við umheim- inn. Hún er forsenda og farvegur þeirra viðskipta, bæði út á við og inn á við, sem afkoma og efnahags- legt sjálfstæði þjóðarinnar grundvallast á. Þrátt fyrir þetta mikil- vægi verzlunar á Islandi er þjóðin enn þann dag í dag haldin margvíslegum hleypidómum í garð hennar. I geymd þjóðar- innar blundar enn það við- horf, sem skapaðist með henni á tímum verzlunar- einokunar, þegar verzlunin var tæki erlends konungs- valds til að ná sem mestum arði af hjálendu sinni. Sel- stöðukaupmaðurinn, sem tilheyrir löngu liðinni for- tíð, lifir enn í hugarheimi sagnaþjóðar, sem er það eðlislægt, að standa öðrum fæti í samtímanum, hinum í fortíðinni. Verzlunareinokun er hins vegar andstæða frjálsrar verzlunar. Hún á ekkert sammerkt með nú- tímanum nema þá tilhneig- ingu, sem fram kemur í verzlunarhöftum og þeim forneskjulegum kenning- um sósíalista, að verzlun- ina skuli binda í fjötra ríkiseinokunar. Rikið það er ég, sagði einvaldur kon- ungur á sinni tíð. Og ríkis- einokun yrði aðeins nútíma mynd af þeirri verzlunar- einokun, sem í geymd þjóð- arinnar blundar sem víti til varnaðar. Frjáls verzlun á íslandi, sem var eitt af grundvall- arboðorðum Jóns Sigurðs- sonar forseta,leysti úr læð- ingi með þjóðinni þau öfl, það framtak og framsækni, sem fleytti þjóðinni á fáum áratugum úr fátækt og forneskju til nútíma vel- megunar. Hún var sú dags- brún, sem frumkvöðlar ís- lenzkrar sjálfstæðisbaráttu sáu við sjóndeildarhring, meðan þjóðin átti enn ófarna langa leið til full- veldis. Frjáls verzlun og heil- brigð samkeppni einka- verzlunar og samvinnu- verzlunar hefur reynst þjóðinni gagnleg og farsæl. Hins vegar skortir enn á, að verzlunin búi við það frjálsræði, sem vera þyrfti. Svo hlýtur áfram að vera meðan þjóðin, almennings- álitið, tekur ekki af skarið, meðan hinn almenni borg- ari tryggir ekki sjálfum sér þann rétt, sem felst í val- frelsi hans til viðskipta á grundvelli eigin mats og dómgreindar. Auðvitað ætti hann sjálfur að vera sitt eigið verðlagseftirlit, þvi að engum ætti að vera betur treystandi til að skapa heilbrigða verzlunar- hætti en fólkinu sjálfu. Fjölhæfing íslenzkra at- vinnuvega hefur gert hlut- verk verzlunarinnar í þjóð- arbúskapnum þyngra á metum en áður var. Sala á framleiðsluafurðum okkar og innkaup nauðsynja, hrá- efna og neyzluvara, elendis frá, sem og dreifing varn- ings með þjóðinni, er einn þýðingarmesti þátturinn í þjóðarbúskapnum. Það er gæfa okkar í dag, að eiga vel mennta og starfhæfa verzlunarstétt, sem gegnt hefur þýðingarmiklu hlut- verki sínu með ágætum, þrátt fyrir oft á tíðum erfið starfsskilyrði. Rétt og skylt er að minn- ast þessa í dag, á fríhelgi verzlunarfólks, og árna því gæfu og gengis í framtíðar- störfum í þágu lands og lýðs. Fullveldi og frjáls verzlun Reykj aví kurbréf •Laugardagur 2. ágúsL Vinur kvaddur Sigfúsar Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Morgunblaðsins, hefur verið minnzt hér í blaðinu að verðleikum, og ástæðulaust að bæta þar miklu við. Hann var einn þeirra brautryðjenda, sem lagði grundvöllinn að fjárhags- Iegri stöðu blaðsins, en sem kunn- ugt er getur ekkert blað sinnt skyldunum við samtíð sína og þjóðfélag, sem býr ekki við fjár- hagslegt sjálfstæði. Starf Sigfúsar Jönssonar hér við Morgunblaðið hefur þvf verið ómetanlegt og mun þess ávallt sjá stað, þegar saga blaðsins verður rakin. Sigfús Jónsson var einn þeirra manna, sem kaus fremur hlé- drægni en átök, það var í eðli hans að vinna starf sitt i hljóði, en ekki fyrir allra augum. Honum var sízt í huga að tfunda það mikla starf, sem hann lagði af mörkum til vaxtar og velgengni Morgunblaðsins, enda voru sam- vizkusemi hans og trúmennska með þeim hætti, að sjaldgæft mun vera nú orðið. Raunar má segja, að Sigfús Jónsson hafi helgað Morgunblaðinu alla krafta sína og mun blaðið búa að starfi hans, gætni og fyrirhyggju um mörg ókomin ár. Mönnum er ekki alltaf Ijóst, hvilik nauðsyn það er, að blöð geti staðið á eigin fótum, haldi fjár- hagslegu sjálfstæði sínu og þar með reisn, þurfi ekki að vera upp á neinn kominn að því leyti. Enda þótt Sigfús Jónsson kæmi ekki með auð úr ættargarði, hafði hann meirí og betri skilning á þessu en ýmsir þeir, sem um þessi mál fjalla, oft og einatt af lítilli þekkingu og enn minna viti. Það var gæfa Morgunblaðsins að Sig- fús Jónsson réðst til þess og mark- aði fjárhagslega stefnu blaðsins um mörg ár. Fyrir starf hans við Morgunblaðið verður honum seint fullþakkað af þeim, sem bera hlýhug til blaðsins og er annt um vöxt þess og velgengni. En þó að Iífsstarf Sigfúsar Jóns- sonar hafi verið merkt og mikils virði var maðurinn þó sjálfur ekkí síður ógleymanlegur öllum þeim, sem kynntust honum, svo að ekki sé talað um þá, sem kynntust honum náið og eignuð- ust vináttu hans. Frá þeim streyma nú hlýjar og þakklátar tilfinningar; ekki einungis til hans eins, heldur allra þeirra merku brautryðjenda, sern Iögðu grundvöllinn að farsæld blaðsins og mörkuðu stefnuna í upphafi. Stefna Morgunblaðsins hefur ávallt verið sú að halda vörð um frelsi og lýðréttindi á Islandi. Frá þvi verður ekki hvikað, enda þótt ýmsir andstæðingar blaðsins haldi því fram sýknt og heilagt, að það hafi ekki alltaf verið stefnu sinni trútt að þessu leyti. En í frjálsu landi hljóta forráðamenn blaðs eins og Morgunblaðsins að hlusta á slika gagnrýni, jafnvel frá andstæðingum þess, þó án þess að nokkrum muni takast að villa svo um fyrir þeim, að þeir missi sjónar á skyldum blaðsins við samtímann, markmiði þess og stefnu. Eins og kunnugt er, var Morg- unblaðið stofnað í því skyni að veita íslendingum sem gleggst og áreiðanlegast yfirlit yfir þær fréttir, sem markverðastar eru í þjóðfélaginu hverju sinni, en að sjálfsögðu einnig að fjalla um þær þjóðfélagslegu hræringar, sem mestan svip setja á samtímalíf í landinu. Oft hefur á ýmsu gengið, eins og kunnugt er, ekki sízt vegna fámennis ög þeirrar þröng- sýni, sem oft fylgir í kjölfar þjóð- félags kunningsskaparins, sem svo hefur verið kallað. Forráða- menn blaðsins hafa oft og einatt orðið fyrir miklu aðkasti vegna þess, að þeir hafa haldið tryggan vörð um upphaflegt markmið blaðsins og ekki látið bilbug á sér finna, enda þótt tizkustefnur hafi stundum reynt að grafa undan blaðinu og þá ekki siður þeim, sem því hafa stjórnað. Á þessu máttu látnir ritstjórar blaðsins kenna, stundum harkalega, og að sjálfsögðu einnig þeir, sem valdir hafa verið til þess að sjá svo um, að stefnunni sé haldið. Verst er þó þegar fulltrúar alls kyns ein- ræðishópa, jafnvel fulltrúar póli- tiskra öfga og ofbeldis, hafa reynt að telja mönnum trú um, að Morg- unblaðið sinni ekki skyldum sín- um við frjálsa hugsun, tjáningar- frelsi og lýðræði í landinu. En vöxtur og viðgangur blaðsins og tugþúsundir áskrifenda þess hafa svarað öllum slíkum árásum, enda eru þær ekki annað en dá- litlar gárur á vatni mikillar sögu. Þetta ættu andstæðingar blaðsins að hafa i huga í hvert skipti, sem þeir halda, að þeir geti talið fólki trú um, að Morgunblaðið sé eitt- hvert annarlegt afl i þjóðfélaginu, berjist jafnvel gegn lýðræðislegri hugsun og tjáningarfrelsi. Allir Islendingar vita, að ekkert blað á Islandi er jafn opið fyrir hvers konar umræðum eins og Morgun- blaðið, enda er nú svo komið, að mestöll skoðanaskipti í prentuðu máli á Islandi fara fram hér í blaðinu. Þetta vita þeir, sem vilja vita, og þarf ekki að hafa um það lengra mál. Arásirnar á forráðamenn Morg- unblaðsins hafa stundum gengið svo Iangt, að höggvið hefur verið nærri æru þeirra. Þess erskemmst að minnast, hvernig linnulausar árásir á Valtý Stefánsson voru til þess ætlaðar m.a., að sú hugsun festi rætur með þjóðinni, að hann væri öðrum mönnum ver skrif- andi. Áður en Valtýr lézt voru gefnar út bækur með fjölmörgum greinum hans og samtölum og kom þá í Ijós, að þær eru órjúf- andi þáttur af samtímasögu og ritmenningu, enda var hann um sína daga I hópi snjöllustu blaða- manna ekki einungis hér á landi, heldur þótt víðar væri leitað. Sig- fúsi Jónssyni hefði þótt vænt um, að þessa væri ekki síður getið nú, þegar hann er kvaddur. Þeir þurftu á sínum tíma, ásamt Jóni Kjartanssyni, að snúa saman bök- um, ekki síður en þeir menn, sem síðan hefur verið falið að veita Morgunblaðinu forstöðu. Sjálfstæði blaða I þessu sambandi er ekki úr vegi að minnast þess, sem Valtýr Stefánsson segir, þegar hann rifj- ar upp í samtali hvernig þeir Jón Kjartansson mörkuðu stefnuna, þegar þeir tóku við ritstjórn Morgunblaðsins 1924. Þá komust þeir m.a. svo að orði — og eiga þessi ummæli ekki siður við nú á dögum, enda reyna forráðamenn Morgunblaðsins að standa við þau fyrirheit, sem I þeim felast: Áðalhlutverk dagblaða er, að greina frá þvi, sem er að gerast hér og erlendis, að skýra lesend- um sínum sem fljótast og gleggst frá öllum þeim atburðum, er nokkru varða og þeim straumum f viðskiptum og menningu þjóð- anna, er nokkru máli skipta. Og eftir því sem þjóðin er minni og í lífi sinu öllu og viðskiptum háðari umheiminum, eftir því er það nauðsynlegra að þetta starf sé vel rækt. Þeir sem hafa haft tækifæri til að fylgjast með blaðamennsku landanna siðustu 20 árin og eink- um árin fyrir 1914, þeir hafa bezt getað séð hvernig hægt er að rekja saman blaðamennskuna og afdrif þjóðanna ..Siðan er tal- að um, að blöðin eigi að vera sjálfstæð. Og i lok leiðarans er komizt að orði eitthvað á þá leið, að rórill pólitiskra flokka sé sjálf- stæði blaðanna óviðkomandi. Allt á þetta enn við sömu rök að styðjast og þegar þessi orð vorú rituð fyrir rúmri hálfri öld. Hollt er að hafa þau í minni og rifja þau upp við rétt tækifæri. Hér að framan var minnzt á nauðsyn þess, að grundvöllur blaða væri traustur og til þess fallinn að efla sjálfstæði þeirra, eins og unnt er. Einnig var að þvi vikið, að gvo virtist sem ýmsir gerðu sér litla grein fyrir þessu undirstöðuatriði i útgáfu sjálf- stæðra dagblaða. En áreiðanlegt er, að þeir 40.000 kaupendur, sem fá Morgunblaðið daglega, eiga ekki heitari ósk en þá, að blaðið geti sinnt þeirri frumskyldu sinni við þá og aðra þjóðfélagsþegna að vera sem óháðast öllum þrýst- ingi, hvaðan sem hann kemur. Það hefur því ávallt verið gæfa Morgunblaðsins, að það hefur verið fjárhagslega sterkt, getað látið þrýsting sem vind um eyru þjóta, ef þjóðarheill og þarfir blaðsins hafa verið annars vegar. Atlaga að Le Monde En hversu lengi geta dagblöð verið frjáls og óháð, sem eru und- ir ríkisvaldið sett. Eitt frægasta dæmi um tilraun stjórnvalda til að hafa áhrif á merkt blað I frjálsu landi er meðferðin á. franska stórblaðinu Le Monde fyrir ekki allmörgum árum. Frönsk stjórnvöld höfðu verðlags- ákvæði f hendi sér og gátu beitt frönsk blöð þvingunum, ef þau höfðu eitthvað að athuga við skrif þeirra og stefnu. Le Monde gagn- rýndi einn af ráðherrunum í frönsku stjórninni allmjög, enda ekki vanþörf á, eins og á stóð. Svar ráðherrans var að beita þetta forystublað frjálsrar hugs- unar í Frakklandi hörðum verð- lagsákvæðum og reyna á þann hátt að kúga það til hlýðni. Að sjálfsögðu mistókst þessi atlaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.