Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975 3 stjórnmála í Portúgal? nefnist almenningsálit. Þetta er mitt mat á þessu efni: Byltingin í Portúgal í fyrra- vor var fagnaðarefni, fyrsta stóra skrefið var stigið til þess að Portúgalir losnuðu við spillta og ógeðslega einræðis- stjórn. Þróunin siðan hefur ver- ið jákvæð, miðað við mitt gildis- mat, eða var það a.m.k. fram að kosnungum snemmsumars. Samúð mín hefur eindregið verið með Mario Soares og flokki hans, væri ég Portúgali þá óska ég þess að mér hefði borið gæfa til að standa þar i liði. Veramáað Portúgalir séu gengnir nokkru skemmra á pólitiskri þroskabraut en við norrænir ábúendur. En barátta Soares og félaga hans hefur að minu viti beinzt að þvi að tryggja Portúgölum grund- vallarmannréttindi — þau og Ölafur Ragnar Grfmsson þau ein eru grundvöllur sem manneskjuleg framfarasókn getu byggzt á — þrátt fyrir þessa daga og þrátt fyrir allt. Soares er maður lýðræðis, og þess vegna er hann gæfusmiður þjóðar sinnar. Herforingjarnir eru menn einræðis, og fari svo að þeir verði enn hrokafyllri til valda og beiti her en beygi sig ekki fyrir óskum meirihlutans, þá er til lítils unnið. Þeir geta að vísu leyst fjölmörg vanda- mál, en það eru samt léttvæg rök. Adolf heitinn Hitler byggði vegi og útrýmdi at- vinnuleysi. Við þetta má svo bæta að nokkuð lærdómsríkt er að fylgj- ast með viðbrögðum hér heima við þessum atburðum. Herfor- ingjarnir hafa sett upp einræði og beita viðurstyggilegri skoð- anakúgun — og rökin eru þau sömu og alltaf — að þjóðin sé ekki nægilega þroskuð. Þetta sagði einnig Papadopoulus í Grikklandi. Hér hafa sjálfskip- aðir „vinstri" sveinar tekið að sér að verja þessi ósköp. Þessi brengl milligagnaugnanna eru undarleg, svo ekki sé meira sagt. Magnús Kjartansson, fyrr- um ráðherra, skrifaði m.a. í sitt oft ágæta blað einhverja þá fer- legustu forustugrein um þessi mál, sem ég minnist að hafa séð þar um langa hríð. Þróunin í Portúgal og slíkur ofstopi hugarins hér fyrir norð- an verður m.a. til þess að fólk eins og ég, sem er til þess að gera nýfætt, skilur betur en Ragnar Tómasson ella hvað það var sem gerðist f Evrópu — heima og heiman — á árunum milli stríða. ögmundur Jónasson sagn- fræðingur: Þjóðfélagsbylting er allt of flókið fyrirbæri til að unnt sé að skilgreina hana að nokkru gagni meðan hún á sér stað. Fréttir í æsifregnastíl eru því mjög ótraustar heimildir. Þar gætir ekki hlutlægs mats, held- ur ráða þar meiru tilfinninga- bundin viðbrögð óháð allri skynsemi. Þessvegna ber að slá varnagla við öllum fljótfærnis- legum dómum. Á sama hátt er allur samanburður við íslenzk- ar aðstæður vægast sagt grunn- hyggnislegur. Portúgalskt þjóð- félag er ólíkt islenzku þjóðfé- lagi um flest og af þeim sökum eru þau vandamál sem bylting- aröflin i Portúgal eiga við að striða okkur framandi. Það kom flestum á óvart hversu mikillar róttækni virð- ist hafa gætt meðal verkalýðs borganna þegar i upphafi bylt- ingarinnar. Herinn ásamt Steinunn Sigurðardóttir Kommúnistaflokki Cunhals og Sósialistaflokki Soares áttu fullt í fangi með að stemma stigu við þjóðnýtingaráformum verkamanna, sem þeir töldu geta leitt til upplausnar, jafn- vel borgarastyrjaldar væri of hratt farið i sakirnar. Stefnuyf- irlýsingin frá 9. júli getur bent til þess að barátta framsækinna afla fyrir meiri þáttöku verka manna í byltingunni svo og auknum lýðréttindum fólkinu til handa hafi borið nokkurn árangur. Engan veginn er þó útséð um hvort takast muni að koma á sósialisku lýðræði i Portúgal. Stéttaátök fara harðnandi með hverjum degin- um sem llður og skýrast linurn- ar jafnframt nokkuð. Sem kunnugt er hefur Sósíalista- flokkurinn kosið að skjóta hækju undir íhaldsöfl landsins en hin síðarnefndu beita nú öllum brögðum til að hefta framgang byltingarinnar. Njóta þau þar um dyggilegrar aðstoð- ar erlendis frá og er nú svo komið að Portúgalir eiga í mikl- um erfiðleikum með að selja ýmsar framleiðsluvörur sínar \\ X*. js. .• frfmt Einar Karl Haraldsson sem þeir áður höfðu selt i Vest- ur-Evrópu. Verði byltingin sigursæl i Portúgal verður athyglisvert að sjá hversu lengi þessi fyrrver- andi nýlenduþjóð og banda- maður í Nato muni eiga samleið með okkur i þvi hernaðar- bandalagi. Ólafur Ragnar Grfmsson prófessor: Síðustu mánuði hefur Portú- gal verið eins konar tilrauna- stofa i stjórnmálum. Stjórn- kerfisbreytingar hafa verið tið- ar og á stundum hefur virzt sem mörg stjórnkerfi væru í senn í landinu. Óvissa og snögg- breytingar hafa verið ríkjandi einkenni. Portúgölum hefur sjálfum reynzt erfitt að skýr- greina atburðarásina og er þvi engin fúrða þótt íbúum fjar lægs eylands komi fremur spurningar í huga, en dómar um eðli hinnar portúgölsku stjórnmálaþróunar. Viðburðir siðustu vikna hafa þó greinilega gert Portúgal að enn einu dæminu um hve tor- velt lýðræðinu getur reynzt að festa rætur í illa undirbúnum jarðvegi. Séu tilteknar hefðir ekki fyrir hendi, sé efnahags- þróunin ekki komin á ákveðið stig, sé aðdragandinn ekki nægilega langur — þá verður lýðræðið ekki veruleiki, aðeins leikur að orðum. Alræði I krafti hervalds hverfur ekki á einni nóttu þótt búningarnir skipti um menn. Þorsteinn Thorarensen Stjórnendum Portúgals hef- ur mistekizt margt og loforð fyrri missera láta nú mörg hver undarlega I eyrum. Drottnun fámennrar auðklíku hefur þó verið brotin niður og eignir hennar færðarþjóðinni form lega I hendur. Hvort þessar að- gerðir veita hinni fátæku al- þýðu borga og sveita betri kjör mun framtíðin leiða i ljós. Hin- ir ungu herforingjar hafa örlög þjóðarinnar i hendi sér. Á næst- unni eru það vopn þeirra sem ráða úrslitum. Eins og áður er það herinn sem hefur lokaorð- ið. Hvort hann velur götu lýð- ræðis eða alræðis veit enginn nú — ekki einu sinni foringj- arnir sjálfir. Framhald á bls. 32 Morgunblaðið leitar svara nokkurra lesenda Allir fara í ferð með UTSYN Gultna ströndin Lignano Dresden Prag Wien London Ódýrar vikuferðir: Costa Del Sol TORREMOLINOS BENALMADENA águst: 10., 17., 24. og 31 Verö með vikugistingu og morgunverði frá kr. 43.000,— Bezta baðströnd Itallu Fyrsta floK*c »ðbúnaðu, og fagurt, friðsælt uiiV hver*i. Einróma álit ta. þeganna frá i tyrra „PARADÍS Á JÖRÐ" Laus sæti 10. sept. Verð með fyrsta gistingu fra Verðfrá kr. 34.300. Skemmtileg ferð á nýjai slóðir. Þrjár glæsilegar listaborgir, ekið frá Kaupmannahöfn og við- dvöl þar Laus sæti 5. okt. Verð með 1. flokks gistingu í 2 vikur Verðfri kr. 32.500 Verðlækkun frá 7. sept. Verðfrá kr. 38.000.— Sept. 7., 14., 21. oq 28 Brottför 21. ágúst. Fáein sæti laus. Austurriki Zillertal — Tyrol 1 2 daga bílferð frá Kaupmannahöfn 3 nætur í Kaupmannahöfn Aukaferð til Costa Brava Vegna giturlegrar eftirspurnar efnir Útsýn til aukaferð- sr til Costa Brava/Lloret de Mar. Brottför 15. sept. 2 vikur. Sömu góðu gististaðirmr, sama ótrúlega hagstæða verðið. PANTIÐ TÍMANLEGA. Brottför: 14 ágúst VerS kr. 69.500 ^FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SlMAR 26611 OG 20100 - AMERICAN EXPRESS OG TJÆREBORG EINKAUMB. Á ÍSL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.