Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975 .
Flugvélar í kristniboðsstarfi
Rætt við Helga Hróbjartsson, sem notar
flugvélar 1 kristniboðsstarfi sínu í Eþíópíu
UNDANFARNAR tvær vikur
hefur dvalist hér á landi Helgi
Hróbjartsson sem starfar að
kristniboði í Eþíópíu. Hann starf-
ar þar á vegum Norsk Luthersk
Misjonssamband og er starfs-
svæði hans f suðurhluta landsins,
austur af Konsó, þar sem aðrir
Islendingar eru við störf. Helgi er
kvæntur norskri konu og eiga þau
þrjú börn. Við byrjuðum á að
spyrja Helga nánar um starfs-
svæði hans:
kallað því nafni. Mér til undrunar
komst ég þó að raun um að svo er
ekki í þeim hluta Borana, sem
mitt starf hefur verið. Þar er aðal-
lega „Somalíufólk og „Arússi"
fólk. Borana-þjóðflokkurinn er
kannski um 25% af fólksfjöldan-
um.
Fyrir 5—10 árum átti Somalí-
fólkið í ófriði og hefur búið mikið
úti á sléttunum. Hefur það því
verið í litlum tengslum við skóla,
sjúkrahús og kristniboð, en það
hefur breytzt nokkuð síðustu ár.
Eitt það fyrsta sem við höfum
reynt að gera fyrir þetta fólk er
að opna möguleikana á skóla-
göngu og sjúkraþjónustu, en hún
er tiltölulega lítil. Aldrei hafði
mig samt grunað að þörfin væri
svo mikil sem raun var. I fyrsta
lagi varð okkur ljóst að þar bjó
fleira fólk en álitið var samkvæmt
manntali. 1 öðru lagi ríkti þar
mikil hungursneyð og hófumst
við því handa að hjálpa þessu
fólki og báðum um aðstoð norsku
hjálparstofnunarinnar. Hún
sendi okkur matvæli og dreifðum
við þeim til um 300.000 manns á
árinu 1974. Á þessu ári hefur
verið um minni hjálp að ræða.
Hefur hjálparstofnun norsku
kirkjunnar dregið sig smám
(Jlfaldar hafa löngum verið aðal
samgöngutæki f Eþíópfu.
„Við höfum verið í Neghelle,
Borana síðastliðin 2 ár, en það er
kristniboðsstöð, sem hefur verið
starfrækt í 27 ár. Neghelle er höf-
uðsetur fyrir Borana héraðið sem
nær bæði að landamærum Kenya
og Somaliu og er álfka stórt og
Island.“
Og Helgi segir áfram frá þjóð-
flokkunum sem hann starfar
með:
„Það álíta margir að hér búi
aðallega svokallaður Boranaþjóð-
flokkur enda er landssvæðið
ALLIR
Á miðvikudaginn hefst í
Reykjavik Norrænt kristilegt
stúdentamót. Kristilegt
stúdentafélag í Reykjavik
stendur fyrir þessu móti í sam-
vinnu við systurfélög sín á
Norðurlöndum. Norrænir þátt-
takendur verða um 1200 og
mun mótið verða eitt hið
stærsta sem haldið hefur verið
á Islandi. Um 160 Islendingar
taka þátt í því þannig að alls
verða um 1360 manns skráðir
þátttakendur.
Aðalkjörorð mótsins er: Orð
Guðs til þín, og verður fjallað
um það á ýmsan hátt m.a. með
biblíulestrum, sem verða á
morgnana, í umsjá Bo Giertz
sænsks biskups, og samkomum
sem verða á kvöldin. Á þeim
tala bæði Islenskir og erlendir
Kvöldsamkomur stúdentamóts-
ins verða opnar öllum, sem
áhuga hafa þótt þeir séu ekki
skráðir þátttakendur. Laugar-
dalshöllin tekur nú yfir 2000
manns í sæti.
AUa sfðustu viku hefur f jöldi sjálfboðaliða unnið við að koma fyrir
borðum og stólum f Iþróttahöllinni, en f henni verða ekki aðeins
samkomur mótsins, heldur einnig mötuneyti.
ræðumenn svo sem Thorsten
Josephsson og Raimo Mákela
stúdentaprestar í Svíþjóð og
Finnlandi og íslenzku prestarn-
ir Lárus Halldórsson og Jónas
Gíslason. Tekið skal fram að
mál ræðumanna verður túlkað
jafnóðum yfir á íslensku.
Ekki mun allt mótshaldið
fara fram í töluðu orði, heldur
munu þarna koma fram song-
hópar stórir og smáir, íslenzkir
og erlendir. Verður æfður upp
og stofnaður kór mótsgesta og
er það Henrik Perret, prestur í
Finnlandi, sem stjórnar hon-
um. Hann og kona hans, Anna
Kristín komu hingað fyrir fjór-
um árum með „GospeIteamet“
og mun hún syngja einsöng á
mótinu.
Flugleiðir h.f. hafa tekið að
sér að flytja fólkið til og frá
landinu og koma mótsgestir 4.,
5. og 6. ágúst. Langflestir munu
dvelja hér á landi eftir mót I
nokkra daga og fara i styttri
eða lengri skoðunarferðir. Um
500 manns hafa þegar beðiö um
ferð til Vestmannaeyja
og verður ein Fokkerflugvél
Flugfélagsins bundin i þeim
ferðum í einn til tvo daga. Auk
þess er einn mótsdaginn Skál-
holtsferð allra þátttakenda og
verður mikill hluti bílaflota
B.S.I. notaður til þeirrar ferðar,
eða 30—40 bilar. Því má segja
að allur flugkostur Flugleiða
verði í þjónustu kristilegs
stúdentamóts dagana fyrir og
eftir mót og komast ekki aðrir
til eða frá landinu á meðan.
Mót þetta er hinn merkasti
viðburður og er þvi einstakt
tækifæri fyrir þá sem hafa
áhuga á að kynnast kristindómi
að koma í Iþróttahöllina I
Laugardal eitthvert kvöldið
6.—12. ágúst.
I HÖLLINA
Þyrlur frá þýzka flughernum voru notaðar 1 hjálparstarfinu.
saman út úr þessu svæði og hætti
alveg í júní 1975“.
Við höfum heyrt að þið hafið
notað flugvélar I Neghelle. Get-
urðu sagt okkur eitthvað frá því?
„Neghelle-héraðið er mjög við-
áttumikið og byrjuðum við þvi að
nota flugvélar til þess að ná ystu
svæðunum. Þetta hefur komið sér
vel i sambandi við hjálparstarf-
semina bæði við flutninga á
matvælum og skipulagningu.
Þetta byrjaði með þvi að okkur
voru boðnar tvær þyrlur sem
þýzki flugherinn átti til þess að
ná inn á svæði þar sem engar
samgöngur voru, siðan fórum við
að nota smáflugvélar, Cessna 182
og 185.
Smám saman komumst við að
raun um gildi þessara flugvéla og
höfum við því haldið áfram að
nota þær fram á þennan dag ekki
bara við hjálparstarfsemina
heldur einnig í kristniboðsstarf-
inu.“
Hvað er gert þegar þú kemur á
nýjan stað í flugvél?
„Við getum auðvitað ekki
komið á neinni flugvél nema flug-
völlur sé á staðnum. Höfum við
þvi komið fyrst á annan hátt, ef
ekki er hægt að keyra alla leið
förum við gangandi eða á múl-
dýri. Á þessa staði sendum við t.d.
hjúkrunarlið með flugvél frá
Neghelle sem hlynnir að þeim
sjúku. Er þetta þá gert reglulega
á ákveðnum timum. Einnig opn-
um við lestarskóla ef hægt er. I
þriðja lagi boðum við Guðs orð.
Þetta þrennt helzt alltaf i hendur
í okkar starfi."
A kristniboð rétt á sér?
„Það segist stundum að kristni-
boðið eyðileggi menningu þjóð-
flokkanna. Ég hef einnig mætt
vesturlandabúum sem hafa komið
til Neghelle ög sagt það sama.
Þegar þessir sömu menn fóru
skildu þeir eftir sig þá
„menningu" að þeir innfæddu
sem voru með þeim, lærðu af
þeim bæði reykingar, drykkju-
skap og aðra „vestræna ósiði" og
héldu þeim áfram eftir að þeir
voru farnir.
Kristniboðið á rétt á sér. Það
má nefna, að það var kristniboðið
sem vakti fyrst athygli á þeirri
hungursneyð sem var I S-Eþiópíu.
1 Afriku hefur það yfirleitt verið
kristniboðið sem hefur opnað
fyrstu skólana og sjúkrahúsin og I
kjölfar boðunar Guðs orðs hafa
kynflokkar horfið frá manndráp-
um og illu athæfi og þar með hafa
þeir gerst góðir og nýtir
borgarar.“
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason
Ráðstefna Biblíufélaga
Á vegum Hins íslenzka Bigliu-
félags verður dagana 7.—12.
ágúst n.k. svæðisráðstefna United
Bible Societies, (Sameinuðu Bibl
iufélaganna), fyrir Biblíufélögin
á Norðurlöndum. Slíkar ráð-
stefnur eru haldnar annað hvert
ár, en þátt í þeim taka leiðandi
starfsmenn félaganna, ásamt
eiginkonum þeirra, svo og
stjórnarmenn eftir þvi sem við
verður komið.
Til ráðstefnunnar sem verður I
Skálholti koma 20 erlendir þátt-
takendur, auk stjórnar og starfs-
manna Hins ísl. Bibliufélags. Á
ráðstefnunni verður fjallað um
hin hefðbundnu verkefni félag-
anna, þ.e. þýðingu, útgáfu og
dreifingu Ritningarinnar, sam-
starf að útbreiðslu Biblíunnar á
vegum Sameinuðu Bibiliufélag-
anna.
Morgunstundum ráðstefnunnar
er varið til uppbyggilegrar sam-
veru um Bibliuna sjálfa, lestur
hennar og samræðna um það efni
sem sérstaklega er valið til Ihug-
unar. Morgun- og kvöldbænir
verða I Skálholtskirkju og sunnu-
daginn 10. ágúst verður þar guðs-
þjónusta kl. 11 f.h. og er fyrir-
hugað áð einn af framkvæmda-
stjórum danska Biblíufélagsins,
Gurli Vibe Jensen prestur við
Helligándskirken — við Strikið
— I Kaupmannahöfn prédiki þar.
Föstudaginn 8. ágúst verða þátt-
takendur norræna krístilega stúd-
entamótsins á samkomu I Skál-
holti þar sem biskupinn og forseti
Hins Isl. Biblíufélags prédikar.
Þátttakendur á ráðstefnunni
verða viðstaddir setningu og slit
stúdentamótsins I Laugardalshöll-
inni 6. og 12. ágúst n.k.
Hinn 10. júlí s.l. var þess minnst
að 160 ár eru liðin frá stofnun
Hins ísl. Biblíufélags og þann dag
tók stjórnin ákvörðun um nýja
prentun að stóru upplagi ísl. Bibl-
iunnar. Samtimis var ákveðið að
leitast við að auka nokkuð hið
árlega framlag Islands til hins
alþjóðlega samstarfs Biblíufélag-
anna að útbreiðslu Biblíunnar I
þriðja heiminum og I Austur-
Evrópulöndunum, þar sem
Biblíu-útgefendur eiga mjög vlða
erfitt uppdráttar vegna hindr-
unar stjórnvalda. Framlag Is-
lands til þessa astarfs undangeng-
in ár hefur fyrst og fremst runnið
til styrktar útgáfu Bibllunnar I
Eþlópíu þar sem íslenzku kristni-
boðarnir starfa. Gíró-reikningur
Biblíufélagsins nr. 15000 tekur
við öllum framlögum stórum og
smáum, til stuðnings þessu hjálp-
arstarfi.
Með tilliti til þess að aldrei mun
hafa verið jafn mikið og gott
framboð á íslenzkum Bibllum og
einmitt nú, þá væri verðugt að
Islendingar, sem svo lengi hafa
átt Heilaga ritningu á eigin
móðurmáli, legðu fram myndar-
legt fjárframlag á 160 ára afmæli
Hins ísl. Biblíufélags til þess að
greiða fyrir þvl, að þeir sem enn
ekki eiga hið ritaða Guðs orð, fái
það í hendur.