Morgunblaðið - 25.04.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1976
21
n ö ld
Elskuðust og voru husluð lifandi
Þorpið Garton Slack i Austur-Yorkshire er stærsta forna
dauðraborg, sem fundizt hefur á. Bretlandi til þessa
Fornleifafræðingar hafa grafið i Garton Slack i 10 ár Þeim
lá á, vegna þess að leggja átti staðinn undir steinnám Þeir
hafa haft margt merkilegt upp úr krafsinu Einkum hefur
komið þarna upp fjölbreyttur fróðleikur um greftrunarsiði
í Bretlandi til forna
Þorpið i Garton Slack er frá járnöld. En fram að þessu
hefur minna verið vitað um járnmenninguna í Bretlandi en
menninguna i Egyptalandi á dögum faraóanna Nú er
komið á daginn, að þessum tímaskeiðum i Egyptalandi og
Bretlandi hefir svipað saman um ýmislegt og til dæmis
útfararsiði
Um daginn fundust í Garton Slack minjar um grimmúð-
legan refsingarsið Svo virðist, að maður um tvitugt og
kona um þrítugt, sem uppi voru einhvern tíma frá
1 00— 200 f Kr hafi fellt hugi saman en það ekki fallið að
siðgæðishugmyndum almennings Hjónaleysm hafa verið
grafin saman lifandi Þau voru jörðuð þannig, að staur var
rekinn djúpt i jörð, en þau bundin sitt hvorum meginn við
hann og mokað yfir
Nú virðast þau hafa verið uppi á talsverðum velmegunar-
og siðmenningar tíma En jafnframt hafa menn verið
siðavandir Fornleifafræðingar segjast ekki kunna önnur
dæmi um slika refsingu fyrir ..hórdóm ' frá þessum tíma í
Bretlandi Hins vegar mun hún hafa tíðkazt í Þýzkalandi
í dalnum umhverfis Garton Slack er fjöldi grafa og má
segja, að dalurinn sé einn allsherjar kirkjugarður Þar er
sérstaklega gott til fanga vegna þess, að fornmenn þarna
voru vei stæðir og lögðu þvi margt forvitnilegt í grafir
dauðra. sem fátækari eftirlifendur hefðu hagnýtt sér sjálf-
um Til dæmis fannst heill vagn i gröf höfðingja nokkurs
og var maðurinn grafinn í vagninum Fátækt fólk hefði að
minnsta kosti brætt hjólin undan vagnmum Höfðmginn
fyrrnefndi tók ekki aðeins með sér farkost inn i eilifðma
Hann hafði líka með sér nesti Það var svínshaus og hafði
verið klofinn i tvennt En fleiri hafa fundizt en höfðingjar
einir, og eitthvað er að græða á flestum gröfum þarna
Karlmenn eru grafnir með verkfærum sinum og konur með
speglum og skartgripum, og mætti svo lengi telja
Eitt hið einkennilegasta. sem fannst í Garton Slack var
safn lítilla kritarstyttna af mönnum og var höfuðið af þeim
öllum Þetta er talið benda til þess, að hausaveiðarar hafi
búið í Garton Slack Hefur þeim stundum orðið óvinavant
Þeir hafa þá gripið til þess i leiðindum að gera likneski af
fjandmönnunum og skella hnappinn af þeim i staðinn. þar
til annað betra byðist. —JOHN EZARD
Herforingja-
stjórnin bætir
ráð sitt — að
eigin sögn...
Herforingjastjórnin í
Chile hefur nú verið við
völdin í tvö og hálft ár.
Hefur henni náttúru-
lega orðið ýmislegt mót-
drægt eins og öðrum
stjórnum, en einkum
veldur það henni
áhyggjum hve frammi-
staða hennar i mann-
réttindamálum hefur
vakið litla hrifningu.
Herforingjar gerðu
stjórnarbyltingu í Chile
árið 1973 og steyptu þá
Salvador heitnum Al-
lende, eins og menn
minnast. Á stuttum
tima eftir byltinguna
voru fleiri en 45 þúsund
menn hnepptir í fang-
elsi —að því er herfor-
ingjastjórnin segir
sjálf. Kaþólikkar í Chile
halda því hins vegar
fram, að óhætt sé að tvö-
falda þessa tölu. Væri
það þá u.þ.b. einn
hundraðshluti af öllum
Chilebúum.
Enn eru tæplega 4000
manns i fangelsi i Chile.
Aðra 1000 fanga „vant-
ar“ og kveðst stjórnin
ekkert vita, hvað orðið
hafi um þá. En kirkju-
menn og lögfræðingar,
sem fást við mannrétt-
indamál þykjast vita, að
margt af þessu fólki
hafi látið lífið í fangels-
um.
Að öðru leyti er
mannréttindaástandið i
landinu ennþá heldur
lakt. Stjórnmálaflokkar
eru annað hvort bann-
aðir eða ströng höft eru
á starfsemi þeirra. Blöð
stjórnarandstöðunnar
eru horfin úr umferð.
Þau, sem eftir lifa eru
flest einlæg stuðninga-
blöð stjórnarinnar. Hin,
sem hafa eitthvað út á
hana að setja í einstök-
um greinum hafa vit á
því að birta ekki efni,
sem gæti komið þeim i
koll. Verkalýðsfélög eru
ekki til lengur nema á
papprírnum. Búið er að
flæma alla marxista úr
háskólum og opinberum
störfum og nú er röðin
komin að frjálslyndum.
Þetta hefur aflgð
Chilestjórn mikillar
andúðar um heiminn.
Það veldur henni ber-
hans voru tugþúsundir
fangelsaðar.
sýnilega einhverjum
áhyggjum, því hún er
farin að reyna að bæta
hinn slæma orðstir sinn.
Ekki er þó að vita hve
mikið er að marka þá
viðleitni.
Stjórnin hefur m.a.
látið hæstaréttardóm-
ara og starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins
lita inn i fangelsi og
hafa þeir undantekn-
ingarlaust lýst því yfir,
að allt sem þeir sáu,
væri i sómanum. Það
þarf naumast að taka
fram, að þessir menn
eru allir vinir ríkis-
stjórnarinnar.
Leyniþjónustan f
Chile hefur verið i 11-
ræmd og nú hyggst
stjórnin ráða bót á þvi.
Hefur hún gefið út til-
skipanir um starfsemi
leyniþjónustunnar og
gætu þær kannski orðið
til einhvers góðs — ef
þeim yrði framfylgt. En
þær eru á þá leið, að
aðeins þrjú pólitísk
fangelsi verði i land-
inu leyniþjónustumenn
verði að kynna sig, er
þeir handtaka fólk, þeir
verði að leggja fram
sakalista, ástvinir hand-
tekinna skulu látnir
vita innan tveggja sólar-
hringa frá handtöku, og
fangar skuli sjálfir
frjálsir ferða sinna inn-
an fimm sólarhringa frá
þvi þeir eru handteknir,
eða þá leiddir fyrir rétt
innan sama tíma. Loks
er ákveðið, að læknir
skuli skoða fanga strax
fyrir og eftir fangavist-
ina.
Þetta hljómar ekki
illa. Að minnsta kosti
yrði það til bóta. Meinið
er, að ósennilegt þykir,
að leyniþjónustan láti
sér þessi „höft“
lynda. — JONATHAN
KANDELL.
NJÓSNIR
„Grár gróður”, morð og svoleiðis brellur
Það hefur verið mikil skemmtun undanfarið að fletta
ofan af vélabrögðum sovézkra og bandarískra leyniþjón-
usta. Stjórnmálamenn hafa leikið mörg stærstu hlutverkin í
þessum alþjóðlega samkvæmisleik Þetta er nærri þvi orðið
að áráttu Stundum hefur það minnt á sjálfspyntingar
Náttúrulega hefur margt Ijótt komið upp úr kafinu i
uppljóstrunarherferð þessari, og hafa menn gleypt i sig
fréttirnar af fúlmennsku leyniþjónustanna jafnóðum og
þær bárust Liklega hafa þó Asiumenn lesið þær af mestri
athygli Þeir hafa nefnilega orðið mest fyrir barðinu á
leyniþjónustunum
Fyrir skömmu fundust um það sannanir, að CIA hefði oft
látið alþjóðlegum fréttastofum (Reuter t d.) í té loginn
fróðleik Svona „fréttir" eru nefndar ..grár eða svartur
áróður", og eru þáttur i ..sálrænum hernaði", sem rekinn er
um allan heim Einkum hefur slikur hernaðarmáti tekizt vel
i Austurlöndum Er svo komið fyrir löngu að þar er þykkt
loft af lygum og hálflygum leyniþjónusta
Leyniþjónustur hafa stundað þvílíkan áróður lengi og
hefur aðferðunum auðvitað fleygt mjög fram. Áróðurs-
meistarar Bandarikjanna voru m a.s. orðnir svo sleipir, að
þeir urðu fyrir barðinu á sjálfum sér Þannig var, að CIA
kom á kreik fréttum um óróa i Kina og erjur milli Kinverja
og Sovétmanna. Útvarpaði CIA „fréttum" þessum og áttu
útvarpsstöðvarnar að vera i Kínverska alþýðulýðveldinu.
Svo óheppilega vildi til, að fleiri trúðu „fréttunum" en
starfsmenn fréttastofanna Það kom i Ijós, að stjórnmála-
menn í Washington höfðu líka lagt trúnað á þær og
studdust við þessar „upplýsingar" i ráðagerðum sinum um
utanrikisstefnu stjórnarinnar
Annars eru Bandarikjamenn fráleitt einir um „sálrænan
hernað KGB, sovézka leyniþjónustan. flytur lika „fréttir"
af þessu tagi og það i stórum stil. Svo eitthvað sé nefnt
lugu útsendarar KGB því eitt sinn að Súkarnó veslingnum
Indónesiuforseta, að CIAmenn hygðust myrða hann Og
fyrir nokkrum árum komu þeir „fréttum" á kreik um það. að
rannsóknadeild bandariska flotans hefði játað, að miklar
birgðir sýklavopna væru komnar til Vietnams og ætti að
nota þennan hrylling á Vietnam Þessar fréttir tókust svo
vel. að The Times i London birti þær
En lygahernaðurinn er ekki alltaf háður með orðum
einum Það er t d ein aðferðin, að fremja útspekúleruð
morð, sem vist þykir, að muni hafa „heppileg, sálræn"
áhrif. Eru KGBmenn sérstaklega útfarnir i þessum „áróð-
ursmorðum" Það eru ekki nema tæpir þrir mánuðir frá þvi,
að yfirmaður lögreglunnar i Malaysíu lét liggja að þvi, að
„marx-leninistar" og sovétvinir úr kommúnistaflokknum i
Malaysiu hefðu myrt forvera sinn i enbættinu i því skyni að
spilla vináttu stjórnanna i Kuala Lumpur og Peking (flestir
hryðjuverkamenn í Malaysiu eru nefnilega maóistar). Það
hefur reyndar ekki sannast, að KGBmenn hafi framið þetta
morð En allra augu beindust samt strax að þeim, og fylgir
Framhald á bls.39
ER SÉRVERZLUN MEÐ
LISTMÁLARA OG
FÖNDURVÖRUR.
AEG
BORVELAR
Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
Aó sjálfsögóu vegna einstakra gæóa
Reyplasteinangrunar.
1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (lomdogildi 0,028 - 0,030)^
2. Tekur nálega engan raka eóa vatn í sig
3. Sérlega létt og meófœrileg
Yfirburóir REYPLASTeinangrunar eru augljósir og
enn sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi.
REYPLAST hf.
mmmmmimmmmmmimmmmmÉimmgmimmimmmmmm
S.-
Armúla 44
Húsbyggjendur
Einangrunar-
piast
Gefum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavíkursvæðið með stuttum fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆMT VERÐ.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi simi: 93-7370
Kvöldsími 93-7355.
Ttbre/
Hótel Valhöll
Þingvöllum
LUff
NJÓTIÐ GÓÐRA VEITINGA í
FÖGRU UMHVERFI
w
Félag
járniönaöarmanna
Félagsfundur
Verður haldinn þriðjudaginn 27. apríl 1 976
kl. 8.30 e.h. í Félagsheimili Kópavogs, niðri.
Dagskrá:
1 , Félagsmál
2. Önnur mál
3. Erindi: „Lífeyrissjóðsmálin"
Hrafn Magnússon framkv.stjóri Sambands
almennra lífeyrissjóða flytur.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna