Morgunblaðið - 23.11.1976, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1976
21
Friðrik Jósepsson með hinn glæsilega verðlaunagrip er hann vann til á
kraftlyftingamötinu.
Friðrik Jósepsson
setti tvö ný met
HIÐ árlega kraftlyftingamót KR
var háð í hinu nýja æfingahús-
næði félagsins við Reykjaveg á
sunnudaginn. Keppendur voru 6
talsins. Agætur árangur náðist á
mótinu og bera þar hæst tvö Is-
landsmet Vestmannaeyingsins
Friðriks Jósepssonar I þungavigt.
Hann setti Islandsmet í bekk-
Auðfengin
stighjá
Þórsstúlkum
KVENNALIÐ Þórs í hand-
knattleik fékk tvö auðfengin
stig í 1. deildar keppninni á
sunnudaginn. Þá áttu þær að
leika við KR fyrir norðan, en
KR-stúlkurnar mættu ekki til
leiks. Var leikurinn flautaður
á og síðan af, og Þór dæmdur
sigur í leiknum.
Upphaflega átti leikur þessi
að fara fram á laugardaginn,
en var síðan frestáð til sunnu-
dags vegna þess að ekki voru
flugsamgöngur við Akureyri á
laugardaginn. Á sunnudag var
hins vegar flogið og fóru þá
dómarar norður til þess að
dæma leikinn. KR-stúlkurnar
sátu hins vegar heima.
pressu, lyfti 200 kg og samanlagt
lyfti hann 782,5 kg í hinum þrem-
ur greinum kraftlyftinganna, og
er það einnig Islandsmet. Arang-
ur Friðriks gefur 955 stig sam-
kvæmt stigatöflu, og var það lag-
bezti árangur mótsins. Fyrir það
hlaut Friðrik fagran verðlauna-
grip, sem Björn Lárusson fyrrum
lyftingakappi gaf. fyrra var
fyrst keppt um grip þennan í
fyrsta skipti og hlaut hann þá
Gústaf Agnarsson.
Arangur einstakra manna var
sem hér segir. Fyrsta talan er
árangurinn i hnébeygju, sú næsta
um árangur í bekkpressu, siðan í
réttstöðulyftu og loks er það
samanlagður árangur:
LÉTTVIGT:
Þorsteinn Leifsson Á
120+70 + 130=320 kg
LÉTTÞUNGAVIGT:
Ölafur Sigurgeirsson KR
150 + 155+200=505 kg
MILLIÞUNGAVIGT:
Helgi Jónsson KR
217,5 + 155+240=612,5 kg
Stefán Hallgrímsson KR
130+117,5+170=417,5 kg
Magnús Óskarsson Á
215+125+óg=óg
ÞUNGAVIGT:
Friðrik Jósepsson IBV
282,5+200+300=782,5 kg
Arangur Helga Jónssonar er
athyglisverður, en þetta er hans
bezti árangur i greininni. Þá var
Stefán Hallgrimsson tugþrautar-
maður meðal keppenda og stóð
sig ágætlega.
sigraði í opnu júdómóti í Rnnlandi
VIÐAR Guðjohnsen, hinn
ungi júdómaður úr Ár-
manni, vann það frækilega
afrek að sigra í sínum
þyngdarflokki, léttþunga-
vigt, á opnu júdómóti sem
fram fór í Finnlandi um
helgina. Meðal keppenda í
þyngdarflokki Viðars á
móti þessu voru margir
mjög góðir júdómenn,
meðal annarra sá er
hreppti bronsverðlaunin á
Ólympíuleikunum í
Montreal í fyrra.
Viðar keppti til úrslita við Sví-
ann Bengt Snöbengt og vann á
yppon, þ.e. hlaut fullnaðarsigur
— tíu stig. Er afrek Viðars þeim
mun glæsilegra þegar tekið er til-
lit til þess að hann er aðeins 18
ára, og var til muna léttari en
flestir keppinautar hans. Viðar
hefur til þessa keppt i millivigtar-
flokki, en var aðeins of þungur
þegar keppendur voru vigtaðir
fyrir mótið og fór því í næsta
flokk fyrir ofan.
Pressuleikur í
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leika
pressuleik I körfuknattleiknum og
hefur landslið verið valið í þvi tilefni
og er það skipað eftir töldum mönn-
um: Jón Sigurðsson Ármanni, Kári
Marlsson UMFN, Kristinn Jörunds-
son ÍR, Kolbeinn Kristinsson ÍR og
Rikharður Hrafnkelsson Val verða
bakverðir. framherjar verða Ingi
Stefánsson ÍS. Þórir Magóusson Val.
Torfi Magnusson Val, Jón Jörunds-
son jR og Birgir Guðbjörnsson KR og
miðherjar verða þeir Bjarni Gunnar
Sveinsson ÍS og Einar Bollason KR.
Liðið mun leika tvo leiki fyrir lands-
leikina við Norðmenn um mánaða-
Tveir aðrir íslenzkir keppendur
voru á móti þessu og stóðu þeir
sig einnig mjög vel. Gisli Þor-
steinsson keppti i sama þyngdar-
flokki og Viðar og varð í fjórða
sæti og Svavar Carlsen sem
keppti í þungavigtarflokknum
sigraði tvo andstæðinga sina, en
tapaði tveimur glimum og var þvi
úr leik.
körfuknattleik
mótin og verður það pressuleikur við
lið sem blaðamenn velja og verður
hann á fimmtudagskvöldið og einnig
verður leikinn einn leikur við Njarð-
víkinga á sunnudaginn og verða þá
fleiri leikmenn reyndir Liðið sem
iþróttaf réttaritarar hafa valið er skip-
að eftirtöldum leikmönnum: Kolbeini
Pálssyni og Bjarna Jóhannssyni úr
KR, Þorsteini Hallgrimssyni, Agnar
Friðrikssyni og Erlendi Markússyni
ÍR, Steini Sveinssyni og Jóni
Héðinssyni ÍS, Guðmundi Böðvars-
syni Fram, Jimmy Rogers Ármanni,
Stefáni Bjarkasyni UMFN og
Kristjáni Ágústssyni Val.
Vonsvikinn
meistarí
Á sunnudaginn var krýndur nýr Norðurlandameistari I badminton I Laugar-
dagshöllinni, Flemming Delfs frá Danmörku, en hann sigraði landa sinn,
Svénd Pri, fyrrverandi heimsmeistara i íþróttagrein þessari með óvæntum
yfirburðum i úrslitaleiknum. Var auðséð að mótlætið á móti þessu fór i
taugarnar á Pri og sýnir hann það t.d. á þessari mynd. Þarna hefur hann
hlaupið fram að netinu og lyftir þvi með spaða sinum, þannig að sending
Delfs lendir netinu.
Mjög grunnt hefur verið f þvi góða milli Delfs og Pri að undanförnu, og
varla batnar andrúmsloftið eftir úrslitin i Laugardagshöllinni. Sjá nánari
frásögn af mótinu á bls 24—25.