Morgunblaðið - 04.12.1976, Síða 12

Morgunblaðið - 04.12.1976, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4, DESEMBER 1976 12 H vad kostar raf magn til heimilisnotkunar? r •3 4, Tankvæðing fiskiflotans Ég hef aldrei heyrt nokkurn mann halda því fram að raf- magn sé ódýrt. Ei heldur sfmi. Hvað veldur? Ein ástæðan mun vera sú að erfitt er að gera samanburð. Rafveitur og sfmi eru þess eðlis að hvert fyrir si^ verður að hafa einkasölu á sfnu svæði. Kaupandinn getur ekki farið í aðra búð til samanburðar á verðlagi. Þótt flestir telji raf- magnið rándýrt vill þó enginn án þess vera, og getur raunar ekki. Einn af mörgum þáttum raf- orkunotkunar er til alm. heimilishalds, en þar eru æ fleiri og fullkomnari tæki tekin í notkun, sem þurfa á raforku að halda. Öll þessi tæki nota nú, á meðalstóru heimili, um 3.300 kflówattstundir (kwst.) á ári, en hver kWst. kostar nú, t.d. f Reykjavík, kr. 11.97. Ársreikn- ingur slfks heimilis verður þvi kr. 39.500.-, eða til jafnaðar um kr. 3.300,- á mánuði. Að sjálf- sögðu getur þetta orðið minna eða töluvert meira eftir stærð og aðstæðum heimila. En hvaða heimilistæki eru það sem valda þessari notkun, og hve mikinn þátt á hvert þeirra i heildarreikningi? Hér á landi hefur nær ekkert verið gert að þvf að mæla notk- un hvers tækis fyrir sig, t.d. hvað notar eldavélin, ryksugan, kæliskápurinn eða útvarpið, svo eitthvað sé nefnt. Hvert þessara tækja veldur mestu um háan rafmagnsreikning? Slík könnun hefur verið gerð vfða erlendis, en útkoman orðið nokkuð misjöfn. Ég hef hér með höndum danska og sænska rannsókn á þessari skiptingu, og hef með hliðsjón af henni, svo og mjög lauslegri athugun hér á landi, reynt að finna út hvern þátt hvert einstakt heimilistæki á í áðurnefndum 39.500,- kr. rafmagnsreakningi meðalheimilis á ári. Til þess að þvæla ekki með mjög margar tölur, mun ég að- eins tilgreina krónur, en ekki kWst., en útreikningar eru byggðir á rafmagnsverði f Reykjavík, þ.e. kr. 11.97 á kWst. Þannig kostar notkun hvers tækis á ári þetta: Kr. Eldavélin 7.780.- Kæliskápurinn 7.180,- Uppþvottavélin 5.390.- Brauðristin 360,- Strokjárnið 600.- Ryksugan 600,- Ljósin 960.- Sjónvarpið 1.200. Utvarpið 600. Þvottavélin 5.980. Frystikistan 8.300. Tmisleg smátæki 470. Samtals 39.500. Á þessu sjáum við t.d. að ef einhver húsmóðir vildi sleppa þvottavélinni og jafnvel lfka frystikistunni, myndi raf- tjek.nl eftir VALGARÐ THORODDSEN magnsreikningurinn lækka um nálægt 33%, en þá er að vega og meta hvort sá sparnaður ét- ist ekki upp á öðru sviði. Ef húsbóndinn ætti rakvél, og notaði slíkt apparat, myndi það valda 6,- kr. hækkun á raf- magnsreikningi hans — sam- kvæmt sænskum heimildum. Ef keypt yrði litasjónvarp í stað hins svarthvíta, myndi það hækka rafmagnsnotkun heimilisins um 100 kWst. á ári, einnig samkvæmt sænskri reynslu. En að lokum — þvf umræður um litasjónvarp eru nú í tísku — hver verður aukinn kostnað- ur heimíla við það að taka upp litasjónvarp í stað hins svart- hvíta? Við skulum athuga það, en þá verður að nefna nokkrar tölur til þess að auðvelda les- anda dóm á réttmæti útreikn- inga. Látum mun nærri að litasjón- varp kosti f innkaupi um 150.000 kr. meira en svarthvítt. Af þessum aukaútgjöldum stafar fjármagnskostnaður og verður hér miðað við 20% árs- vexti og 10 ára lifstíð tækisins. Við jafnar greiðslur til vaxta og afborgana verður fjármagns- kostnaður 24% af þessum auka- kostnaði á ári. Viðhaldskostnað vegna bilana vil ég giska á að telja megi 3%. Nú mun vera venja að afnotagjald litasjón- varps sé hærra en hins svart- hvita. Þá erlendu venju vil ég reikna með að islenska sjón- varpið taki einnig upp, og vil i þeim efnum nefna 50% ofan á núverandi gjald fyrir svart- hvitt, sem er 13.000,- á ári. Hækkunin fyrir notanda með talkomu litasjónvarps, verður þá þessi: Kr. Fjármagnskostnaður 24% af 150.000,- 36.000,- Viðhaldskostnaður 3% af 150.000,- 4.500,- Afnotagjald 6.500.- Rafmagn 1.200,- á ári 48.200,- Svo má velta fyrir sér hinum ýmsu og mörgu kostnaðarliðum heimilanna, ásamt með raf- magninu. Það er ekki langt um liðið siðan hafist var handa um tank- væðingu í landbúnaði. 1 stað þess að nota mjólkurbrúsa var tekin upp dæling og flutningur mjólkur í kældum tönkum og þótti það mikil framför á sviði vinnusparnaðar og vörugæða. Við fiskveiðar var fyrir nokkrum árum tekin upp notk- un plastkassa í stað þess að nota lestarstíurnar beint til geymslu á fiskinum. Þó mun þetta ekki vera algild regla. Það hvarflar nokkuð að mönnum hvort plastkassarnir í sjávarútvegi séu svipað þróunarstig sem brúsarnir I landbúnaði. Eitthvað mun þó hafa verið um það að islenzk skip við síldveiðar í Norðursjó noti tanka, en sérstök nefnd, á vegum opinberra stjórnvalda I Noregi, er í þann veginn að skila áliti um notkun tanka í veiðiskipum, almennt við fisk- veiðar. Nefnd þessi var skipuð til þess að kanna úrbætur i fisk- veiðum Norðmanna, varðandi arðsemi þeirra og nýtingu allra verðmæta, sem dregin eru úr sjó. Nefndin segir m.a. í bráða- birðgaáliti sínu, að Norðmenn hendi í sjóinn á ári hverju um 300.000 tonnum af proteinrikri fæðu, sem þeir meðhöndli sem einskis nýt úrgangsefni, á sama tíma sem fæðuskortur hrjái milljónir jarðarbúa. Norðmenn dragi úr sjó 1 milljón tonna af fiski Af þvi magni notist 400.000 tonn beint til fæðu, unnin sé fæða og annað úr 300.000 tonnum sé kastað. Það er talin venja hjá norskum fiskiskipum, sérstaklega á tog- urum, ati hausa fiskinn um borð og henda honum og slóginu. Með því einu að hirða hausinn og láta fiskiverksmiðjurnar vinna úr honum, megi auka verðmætin um 4—5%. Þá er ennfremur bent á bætta hirðingu á hrognum og lifur, auk þess að vinna mætti næringarríkt dýrafóður úr gell- um, þörmum og öðru. Afgangsfisk frá vinnslustöðv- um mætti nýta betur en nú er gert, til manneldis, i stað þess að henda eða senda í fiskimjöls- verkverksmiðjur. Mjölverk- smiðjurnar ættu aðeins að taka beinin, en annað ekki. Þá er minnst á fiskkassana. Notkun þeirra sé mjög kosn- aðarsöm, bæði I innkaupi og viðhaldi. Kassarnir séu á sí- felldum þeytingi — um borð — fylltir fiski — fluttir í land — tæmdir — þvegnir — geymdir í landi — fluttir aftur um borð — hlaðið upp — og svo sama hringrásin aftur og aftur. Hér sé full nauðsyn að kanna hvort ekki mætti koma við hag- kvæmari vinnubrögðum til auk- innar arðsemi í rekstri og til bættra gæða hráefnisins. Nefndin leggur til að gerðar verði ýtarlegar rannsóknir á því að nota stáltanka, þar sem fiskurinn sé geymdur um borð, en f tönkunum sé ísvatn eða kældur sjór (blóðgun?). Við löndun komi þá til greina að flytja þessa tanka beint i fisk- vinnslustöðvarnar. Hrafli úr þcssu bráðabirðga- áliti norsku nefndarinnar er hérmeð komið á framfæri til þeirra, sem betur kunna skil á sjávarútvegsmálum en sá sem þetta skrifar. I>6rður Jónsson skrifar frá Bandaríkjunum: Erfðaverkfræði á næsta leiti I ágústmánuði s.l. gerðist merk- ur atburður í Tækniháskóla Massachusettsríkis í Bandarikj- unum. Hópi visindamanna undir forystu Nóvelsverðlaunahafans H.G. Kohrana tókst að búa til fyrsta starfhæfa genið, sem gert er af mannahöndum. Genin eða erfðavísarnir eins og þau eru einnig nefnd eru flókin efnasam- bönd, sem er að finna í kjarna sérhverrar frumu. í genunum eru fólgnar upplýsingar um gerð líf- veranna og með genunum berasta milli kynslóða fyrirmæli um vöxt og þroska sérhverrar tegundar líf- ríkisins. Með breytingum á gen- unum er unnt að framkalla breyt- ingar á gerð dýra, plantna og ann- arra lífvera. Það er því augljóst að þekking á gerð genanna óg hinu efnafræðilega dulmáli sem erfðirnar eru ritaðar á, opnar nýj- an og ókannaðan heim f liffræði. Lengi hefur verið vitað að geisl- un, Röntgengeislar, gammageisl- ar o.s.frv., getur valdið breyting- um f genum, sem sfðan orsaka stökkbreytingar f lífverum. Þess- ar breytingar eru hins vegar til- viljunarkenndar, eru i nær öllum tilvikum til hins verra og leiða til dauða. Vísindamenn hefur því talsvert lengi dreymt um að ráða gátu erfðanna og geta framkallað breytingar að eigin geðþótta og öðlast þar með fullkomið vald yfir þróun lífheimsins. Þessi gáta er ein hin alflóknasta og erfiðasta, sem mannsandinn hefur tekizt á við. Dr. Kohrana og samstarfs- mönnum hans tókst að ákvarða gerð eins gens í einni bakterfuteg- und. Rannsóknirnar tóku u.þ.b. níu ár. Genafjöldi í flestum ein- frumungum skiptir þúsundum og fer ört vaxandi með stærð lffver- anna, svo að ljóst er, að nákvæm þekking á erfðalykli æðri Iffvera er ekki í sjónmáli. Rannsóknir og tilraunir af lfku tagi og dr. Kohrana fæst við eru stundaðar af kappi vfða um heim, einkum í Bandarfkjunum. Genin eru hluti risastórra sameinda, svonefndra DNA-sameinda, sem líkjast einna helzt keðjum í lag- inu. Tilraunir þessar eru m.a. fólgnar í þvi að slíta þessar keðjur í sundur með efnafræðilegum að- ferðum, bæta síðan stubbum inn i þær eða taka búta úr og athuga hvað gerist. Ennfremur er fengizt við að blanda saman genum úr óskyldum lffverum. 1 þessum rannsóknum virðist ekki annað kleift en að þreifa sig áfram í blindni. Ekki eru allir á einu máli um ágæti þessara tilrauna. Ymsir telja að ,,fikt“ við erfðaefnið bjóði heim ýmsum hættum, t.d. gætu hugsanlega sprottið upp nýjar og óþekktar bakteríur og veirur, er ógnað gætu mönnum og öðru lífi, eða sýklar gætu órðið ónæmir fyr- ir þeim lyfjum, sem nú eru notuð gegn þeim. Vilja sumir að tekið verða upp strangt eftirlit með öll- um genrannsóknum. Allir eru sammála um að fullrar aðgátar sé þörf og í fyrra voru samþykktar reglur á þingi vís- indamanna, sem leggja bann við þeim tilraunum, er augljóst virð- ist að gætu haft hættu f för með sér. Talsmenn vfðtækra og óheftra rannsókna hafa hins veg- ar bent á hina geysifjölbreyttu gagnsemi sem þekking a ' erfða- lyklinum gæti haft í för með sér. Unnt ætti að vera að kynbæta húsdýr og nýtjajurtir f mun stærri stíl en tíðkazt hefur. Sumir þykjast jafnvel sjá fyrir endann á fæðuskorti mannkyns. Afdrifa- ríkastar yrðu afleiðingarnar ef til vill í læknavísindum. Krabba- mein lýsir sér í ofvexti einstakra frumna í likamanum, sem sfðan mynda æxli. Talið er, að í mörg- um tilvikum sé orsök ofvaxtarins stökkbreytingar, sem ónæmis- kerfi likamans ræður ekki við að kveða niður af einhverjum óþekktum orsökum. Er það trú ýmissa vísindamanna, að þekking á erfðalyklinum muni að lokum leiða til lækningar á krabbameini. Stórkostlegustu afleiðingar af þessum rannsóknum verða þó ef- laust þær, sem enginn sér fyrir, eins og gerzt hefur svo oft áður f sögu vísindanna, og á það við kosti jafnt og galla. Nærtækasta hliðstæðan er lfklega beizlun kjarnorkunnar, sem býður heim gereyðingu jarðarinnar en leysir jafnframt orkuþörf mannkýns um komandi kynslóðir. En nú eru viðhorfin dálítið öðruvísi. Margir þeirra vfsindamanna, er unnu að gerð fyrstu kjarnorkusprengj- unnar i Bandaríkjunum á stríðs- árunum töldu sig vera í kapp- hlaupi við Þjóðverja um smfði sprengjunnar og gafst þvf lítill tfmi til siðfræðilegra bollalegg- ina. Nú er á hinn bóginn unnt að hafa gát á og fhuga vandlega hvert skref, sem stigið verður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.