Morgunblaðið - 04.12.1976, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. DESEMBER 1976
Sendið efni í
jólablað bamanna
AÐ VENJU mun Morgunblaðið
verða með serstakt jólablað barn-
anna og eru nú börn hvött til að
senda efni af öllu tagi. Sögur og
frásagnir eru vel þegnar, svo og
reikningar og ef til vill leikir og
þrautir. Bregðið nú við, krakkar,
og sendið skemmtilegt efni.
Umslögin skulu merkt: Morgun-
blaðið, „Jólablað barna“,
Aðalstræti, Reykjavík.
Saga f jallagarps:
Vogun vinnur
VOGUN VINNUR er heiti á bók
Edmund Hillary, sem hefur að
geyma frásagnir af fjallgöngum
og ferðalögum höfundar. Bók
þessa hefur Skuggsjá sent frá sér.
Á kápusfðu bókarinnar segir orð-
rétt:
„Hér er sögð saga manns, sem
lifað hefur heiliandi ævintýralífi,
þar sem hættur leyndust svo að
segja við hvert fótmál. Þetta er
saga fullhuga, sem í orðsins
fyllstu merkingu hugsaði og náði
hærra en samferðamenn hans,
sem ungur að árum uppgötvaði
undraheim fjallanna á Nýja-
Sjálandi, hinna hrikalegu og
fögru fjalla, sem heimamenn
kalla „Alpana". Hann fór í fjall-
göngur hvenær sem færi gafst, —
einn eða með öðrum, — honum
var fyrir öllu að njóta þess frelsis,
sem hvergi er að finna nema á
fjöllum uppi. Þessi ást hans á
fjöllum og firnindum varð til þess
að hinn 29. mai 1953 varð hann
fyrstur manna til að stíga fæti á
hæsta tind jarðar, Everesttindinn
i Himalajafjöllum, á mörkum
Nepals og Tíbets."
Oili Elin Sandström við verk sfn.
Finnsk málverk
á Akranesi
DAGANA 3—5. des. mun standa
yfir i Bókasafni Akraness mál-
verkasýning finnsku listakon-
unnar Oili Elínar Sandström.
Listakonan sýnir að þessu sinni
um 50 olíumálverk og eru fyrir-
myndirnar sóttar í íslenzkt og
finnskt landslag. Einnig eru
margar blómamyndir á sýning-
unni. Frú Sandström er iðinn
málari og er þetta þriðja sýning
hennar hérlendis á þessu ári. Sýn-
ingar hennar hafa verið fjölsótta
og fengið góðan róm.
Sýningin verður sem fyrr segir
í Bókasafni Akraness og er opin
föstudag 3. desember frá 17—22
og laugardag og sunnudag frá
14—22. Aðgangur er ókeypis og
allir eru velkomnir.
Sýning á
verkum
Ragnheidar
Jónsdóttur
Á LAUGARDAG, 4. desember,
verður opnuð sýning á graffk-
myndum eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur f bókasafninu á tsafirði. Á
sýningunni verða 19 myndir,
fiestar unnar á þessu ári og eru
þær allar til sölu. Sýningin mun
standa næstu vikur og er opið
virka daga.
Ólafur Jóhannesson hjá mynd sinni „Heilög kvöldmáltfð".
r
Olafur Jóhannes-
son á Loftinu
ÓLAFUR Jóhannesson opnaði f
gær sýningu á penna- og túss-
teikningum á Loftinu við
Skóiavörðustfg. Ólafur sýnir
þar 31 mynd, sem allar eru
gerðar fyrr á þessu ári. Ólafur
Jóhannesson fæddist árið 1948
á Neskaupstað. Hann hefur ver-
ið f einkatfmum hjá t.d. Vetur-
liða og Benedikt Gunnarsson-
um og Hafsteini Austmann og
var um tfma f Myndlistarskól-
anum við Freyjugötu. Ólafur
hefur áður tekið þátt f samsýn-
ingum, en þetta er hans fyrsta
einkasýning.
Ólafur Jóhannesson tók þátt f
samkeppni um myndskreyting-
ar við safn íslenzkra ljóða, sem
nýlega komu út í Noregi og
safnað var af Ivar Eskeland. 21
listamaður tóku þátt í sam-
keppninni og varð Ólafur einn
þeirra fjögurra, sem eiga mynd-
ir i bókinni, en hún heitir
Váren kjem ridand. Myndir Ól-
afs í bókinni eru gerðar í sama
stíl og þær sem hann sýnir nú á
Loftinu. Þær eru hárffnar
teikningar gerðar með penna
og tússi. Ólafur kvað myndirn-
ar vera hugsaðar sem spurning-
ar frekar en svör og sagðist
vona að gestir sýningarinnar
kæmu til með að velta þeim
spurningum fyrir sér við skoð-
un á myndunum.
Sýningin verður opnuð laug-
ardaginn 4. desember kl. 2—6
og stendur yfir næstu viku að-
eins.
Egill Hallgfmsson, fyrrverandi kennari, skólabróðir og vinur
Jóhannesar S. Kjarvals frá skólaárum f Flensborgarskólanum f
Hafnarfirði, hefur gefið Kjarvalsstöðum teakningu eftir Kjarval,
sem Kjarval gaf honum f afmælisgjöf árið 1943.
Egill hefur einnig gefið Kjarvalsstöðum 4 bækur eftir Kjarval og
hefur áður ánafnað safninu olfumálverk af Þingvöllum. Gjafirnar
verða afhentar eftir dag Egils Haligrfmssonar. Á meðfylgjandi
mynd tekur borgarstjóri Reykjavfkur við gjafabréfinu frá Agli.
Jólakaffi
Hringsins
Á SUNNUDAGINN kemur, 5.
desember, býður Kvenfélagið
Hringurinn borgarbúum upp á
sitt árlega jólakaffi á Hótel Borg.
Hefur þetta verið fastur liður í
starfsemi félagsins í áraraðir.
Auk veitinga verða á boðstólum
margs konar handunnir jólamun-
ir og jólagóðgæti, jólakort og jóla-
plattar félagsins. Einnig verður
skyndihappdrætti með fjölda
góðra vinninga, m.a. ferð til
Kaupmannahafnar.
Auk tækjakaupa og endurnýj-
unar á Barnaspítala Hringsins á
Landspítalanum, hefur félagið
lagt kapp á að byggja upp Geð-
deild Barnaspítala Hringsins við
Dalbraut.
Basar í
Garðabæ
4
ÞANN 5. desember n.k. heldur
kvenfélag Garðabæjar basar í
Barnaskóla Garðabæjar. Þar
verður margt góðra og nýtilegra
muna til jólagjafa. Ýmiss konar
leikföng, sem félagskonur hafa
sjálfar unnið, uppstoppuð dýr,
brúður, jólaskreytingar og laufa-
brauð. Ágóðinn af þessum basar
mun allur renna i sundlaugarsjóð,
en mikill áhugi er meðal bæjar-
búa að hér f byggðalaginu komi
sundlaug sem allir ibúar geti
notað. Basarinn hefst kl. 14.30.
(Fréttatilkynning).
Leikrit eftir Véstein Lúð-
víksson frumflutt á Isafirði
EINÞÁTTUNGUR eftir Véstein
Lúðvfksson rithöfund var frum-
fluttur á Isafirði hinn 1. desem-
ber s.I. Vésteínn skrifaði leikritið
sérstakiega fyrir tsfirðinga, en
hann var staddur fyrir vestan I
tilefni af fundi Herstöðvaand-
stæðinga á tsafirði 1. des. Ein-
þáttungurinn fjallar um ísfirzkan
útgerðarmann, sem fer suður til
að vera á Land'sfundi Sjálfstæðis-
flokksins. Sviðið er barinn á
Hótel Sögu.
Fund Herstöðvaandstæðing-
anna sóttu um 100 manns. Aðal-
ræðu kvöldsins hélt Njörður P.
Njarðvík, en meðal skemmti-
atriða auk leikrits Vésteins var
kórsöngur undir stjórn Leifs
Þórarinssonar tónskálds, sem
starfar nú sem kennari á Isafirði,
og Bryndís Schram skólameistari
las kvæði eftir Jakobínu
Sigurðardóttur.
Jólamark-
aður í
Kópavogi
LIONSKLUBBUR Kópavogs
gengst fyrir jólamarkaði f félags-
heimili Kópavogs sunnudaginn 5.
desember klukkan 14. Á
markaðinum verður margt muna,
m.a. leikföng. Ágóðinn rennur til
viðbyggingar við sumardvalar-
heimilið að Kópaseli við Lækjar-
botna.
Fullveld-
isfagnað-
ur Suomi
FULLVELDISFAGNAÐUR
Finna er 6. des. n.k. Af því tilefni
efnir Finnlandsvinafélagið Suomi
til fagnaðar í Norræna húsinu
n.k. mánudag kl. 8.30. e.h. eins og
jafnan á undanförnum árum að
kvöldi 6. des.
Ávarp flytur formaður félags-
ins, Barbro Þórðarson, og aðal-
ræðu kvöldsins Ragnhildur
Helgadóttir forseti íslandsdeildar
Norðurlandaráðs.
Þá koma gestir frá Finnlandi,
álenzkir vísnasöngvarar, Pia-
Gunn Anckar og Börje Láng. Þau
eru hér gestir félagsins og
Noræna hússins og syngja við
undirleik Karls Billich. Sýning
verður á finnskum skartgripum,
sem stúlkur frá Karon-
samtökunum kynna. Einnig verða
sýndar finnskar borðskreytingar
og ofin veggteppi. . •
í hléi verður kaffi framborið og
finnsk terta og að loknum dag-
skráratriðum snædd létt máltíð
og leikin tónlist af plötum.