Morgunblaðið - 21.12.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
5
Verðbólga getur farið
niður fyrir 20% á íslandi
Tómstundagam-
an 11 ára drengs
skemmt í 4. sinn:
Verðmætum
dúfum stolið
DUFNABU 11 ára gamals drengs I
Kópavogi hefur verið skemmt fyrir
honum í fjórða sinn. Átti sá atburður
sér stað einhvern tima aðfararnótt
laugardags í síðustu viku, eftir kl. 2
um nóttina. Drengurinn sem fyrir
þessu varð heitir Eyjólfur Orri
Sveinsson og á heima að Hlíðarvegi
61 í Kópavogi.
í samtali við Mbl. sagði móðir
drengsins, Rannveig Guðmundsdóttir,
að þetta væri í fjórða sinn sem þetta
tómstundagaman drengsins hefði verið
skemmt fyrir honum og væri hann
mjög leiður yfir þessu Hér hefði verið
um mjög verðmætar dúfur að ræða og
ef þær væru ekki undir umsjá manna
sem kynnu með þær að fara myndu
þær ekki lifa það af, það væri ekki
sama hvernig með þær væri farið
Hún sagði að þetta hefði sennilega
gerst einhvern tíma eftir kl. 2 aðfarar-
nótt laugardags Dúfnakofinn væri rétt
utan við eldhúsgluggann hjá sér og þvi
hlyti hún að hafa orðið mannaferða vör
en hún var við vinnu í eldhúsinu fram
að þeim tíma. Einnig nefndi hún að dyr
sneru út i garðinn rétt við kofann og
hún efaðist um að nokkur hefði getað
farið þar um nema hún hefði orðið
þess vör.
— Drengurinn hefur lagt sitt sparifé
í þetta tómstundagaman og er hann að
vonum sár yfir því hvernig komið er.
Þetta eru verðmætar dúfur, svonefndar
hoyara-dúfur, og er stél þeirra eins og
á páfugli. Þær eru því auðþekkjanlegar
frá öðrum dúfum og ef foreldrar verða
varir við að börn þeirra eru með dúfur
sem koma heim við þessa lýsingu ættu
þeir að athuga hvaðan börnin hafa
fengið þær
Undir það tók drengurinn. Eyjólfur
Orri, og sagði hann að þessar dúfur
væru auðþekkjanlegar frá öðrum
dúfnategundum og hann vildi biðja
foreldra að athuga hvort börn þeirra
væru með einhverjar óvenjulegar
dúfnategundir í fórum sínum.
Ragnheiður Guðmundsdóttir sagði
að drengurinn hefði unnið að þessu i
langan tima, hann hefði fóðrað þær
svo mánuðum skipti á hverjum degi.
Einhverjir með öflugar klippur eða sög
hefðu án efa komist inn i kofann og
náð dúfunum út, því eftir eftir síðasta
Edinborg:
Námsmenn
mótmæla
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á fundi stúdenta I Edinborg
þ. 9/12 1976:
Islenzkir námsmenn f Edinborg
lýsa örvæntingu sinni vegna
þeirrar svívirðilegu árásar sem
gerð hefur verið á kjör þeirra.
Ekki einungis hafa endur-
greiðsluskilmálar verið gerðir
þeir verstu sem þekkjast á Islandi
með þvf að vísitölubinda upphæð
lánanna, heldur hefur einnig ver-
ið ráðizt að barnafólki með því að
draga úr ívilnunum vegna barna
á þess framfæri. Ekki hefur held-
ur með núgildandi lögum verið
staðið við fyrri loforð um það að
greidd yrðu 100% umframfjár-
þarfar námsmanna.
Þetta verður ekki skilið á annan
hátt en þann að verið sé að gera
tilraun til þess að fækka náms-
mönnum og veita börnum af ríku
foreldri þau forréttindi sem þau
höfðu áður til að stunda nám.
Það er greinilegt, að með nú-
gildandi lögum hefur verið stigið
skref aftur á bak og kjör náms-
manna stórlega skert frá því sem
áður var.
Benda má einnig á það misrétti
sem fólgið er í þvf að námsmenn
erlendas sem búa utan Reykjavík-
ur fá einungis greiddan ferða-
styrk til og frá Reykjavik, en fá
engan styrk til að ferðast á milli
heimilis sfns og Reykjavíkur.
Hér stendur Eyjólfur Orri Sveinsson
vi8 dúfnakofann sinn. Hann heldur á
sundurklipptum eða söguðum hengi
lás sem notaður var til að læsa
slagbrandinum meS.
innbrot hefðu drengurinn og faðir hans
sett rammbyggðan slagbrand fyrir
dyrnar svo það væri ekki auðvelt að
komast þarna inn fyrir hvern sem væri
— Ég er hissa á þvi að ef hér er um
að ræða unglinga sem eru eftir ein-
hverjum jólapeningum þá finnst mér
það litið i anda jólanna að stunda
svona iðju. sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir að lokum
EFNAHAGUR lslands einkennd-
ist af versnandi viðskiptakjörum
og mikilli verðbólgu á sfðasta ári,
en útlitið fyrir 1977 vekur góðar
vonir og hugsanlegt er að verð-
bólga fari niður fyrir 20% segir
Efnahags og framfarastofnunin
OECD, f skýrslu um efnahag ts-
lands, sem birt var I Parfs í gær.
Segir f skýrslunni að efnahags-
þróun á Islandi hafi einkennst af
breytilegum viðskiptakjörum.
Þau versnuðu verulega 1975 eða
um þriðjung miðað við 1974 en þá
voru þau betri en nokkru sinni
fyrr. Stafaði þetta bæði af hærra
Laugardag s.l. voru birtir f
Morgunblaðinu kaflar úr nýrri
bók Einars Pálssonar, Steinkross.
Allmikið var um prentvillur í
þessum köflum, og komu margar
þeirra illa niður á innihaldi text-
ans. Einkum á þetta við um eftir-
farandi málsgrein, sem ástæða er
þvf til að endurprenta rétta:
„Fjörleg bók Bredsdorffs kryf-
ur stíl, söguþráð, persónusköpun.
Engin alvarleg tilraun er þar gerð
til að vinna úr þeim sundurliðaða
olfuverði og lægra verðlagi á
fslenzkum útflutningsvörum.
Segir í skýrslunni að stjórnvöld
hefðu með stefnu sinni tekizt að
draga úr eftirspurn eftir árið
1974, en heildarstefnan hefði þó
verið verðbólguvaldandi. Minnk-
un eftirspurnar hélt áfram 1975,
sérstaklega vegna hækkunar á
innlendu verðlagi sem að meðal-
tali var nálægt 50% það ár. En
með versnandi viðskiptakjörum
varð greiðslujöfnuðurinn áfram
með halla og nam hallinn 11,5%
af vergri þjóðarframleiðslu, eða
svipað og árið 1974.
efniviði goðsagnar um Island,
sem lögð hafði verið fram í til-
fátuformi. Þó finnur Nóbelskáld
slendinga sig til þess knúið að
tilkynna heimi menntanna í krón-
íku Politiken, 24. september,
1971, að bók Bredsdorffs sé ný
„idemæssigt", Daninn geri „et
forsög pá at bryde den tilstand af
stagnation í fastlásede positioner,
som har hersket i denne
problemdebat alt for længe.“
Skáldið nefnir ekki, að helztu
Um framtíðarhorfur segir
skýrslan að framleiðsla sjávarút-
vegs muni aukast lítillega á næsta
ári á meðan álframleiðsla, þar
sem framleiðslugetan er nú nýtt
að fullu, og aðrar greinar muni
auk framleiðslu sína eitthvað
meira.
Segir í skýrslunni að spár geri
ráð fyrir því að greiðsluhallinn
muni minnka um helming á næsta
ári vegna minnkandi innflutnings
og verulegs bata viðskiptakjara.
Þá er búizt við því að enn dragi úr
verðbólgunni þannig að hún geti
farið niður í 20% eða minna.
hugmyndafræðilegu leiðarljós
Bredsdorffs liggi fyrir á íslenzku
í bókarformi. Hver lesandi
framangreindrar utansveitar-
króniku hlýtur að skilja mál
skáldsins svo, að Bredsdorff sé
frumherjinn, að nauðsynlegt hafi
verið fyrir Islendinga að sækja
nýja hugsun um Sögur sinar til
danskra manna. Vfxill þagnarinn-
ar sýnist þannig gulltryggður,
menntamenn hafa vottfest, af
áhrifamesta ábekingi íslenzkrar
menningar, að tilraun til að
höggva á hnút fornritarannsókna
Framhald á bls. 28
Leiðrétting við Steinkross