Morgunblaðið - 21.12.1976, Qupperneq 21
íbúðarhúsnæði verði tekin út
bæði tekjumegin og gjalda-
megin. Er um að ræða annars
vegar eigin húsaleigu en hins
vegar fasteignagjöld,
fyrningu og viðhaldskostnað
annan en vegna greiddrar
viðhaldsvinnu. Við álagningu
1975 voru bæði tekjur og
gjöld íbúðarhúsnæðis reiknuð
sem hlutfall af fasteignamati.
Við álagningu 1976 var
frádrætti breytt með reglu-
gerð þar sem einungis fyrning
er ákveðið hlutfall af fast-
eignamati en fasteignagjöld
og viðhaldskostnaður
frádráttarbær samkvæmt
reikningi. 'Sé litið á eigih
húsaleigu i heild annars vegar
og heildargjöld af íbúðar-
húsnæði hins vegar vógu
þessir liðir nokkurn veginn
salt við álagningu 1975. Sú
tilhögun sem ríkti við
álagningu í ár hefur ekki gef-
ið eins góða raun varðandi
betra framtal viðhaldsvinnu
og vonir stóðu til, auk þess
sem afar erfitt er að draga
skýr mörk milli viðhalds og
endurbóta á íbúðarhúsnæði. 1
frumvarpinu er gert ráð fyrir
að sérstakur afsláttur frá
skatti verði veittur vegna
greiddrar viðhaldsvinnu að
vissu marki við eigin íbúð.
Telja verður að þær breyt-
ingar sem lýst hefur verið.
auðveldi allar upptöku
staðgreiðslu opinberra gjalda,
enda þótt ástæða kynni að
vera til að ganga enn lengra í
átt til einföldunar ef hún yrði
lögleidd. Einnig er greinilegt
að hin nýja tilhögun leyfir
verulega einföldun skattfram-
tals hjá öllum þorra ein-
staklinga. Ekki er síður um
vert að þær ættu að létta störf
skattyfirvalda að mun.
5. Skattlagningu tekna barna er
breytt á þann veg að fyrstu
krónurnar verða skattfrjálsar
en þær siðustu eru skatt-
lagðar þyngst. í gildandi lög-
um er tiltekinn hluti skatt-
lagður með tekjum foreldra,
en sé sérsköttun heimiluð
lækkar tekjuskattur niður í
núll á tilteknu bili (og útsvar
er greitt af ónýttum eftir-
stöðvum persónuafsláttar að
vissu marki) eins og ein-
staklingur ætti í hlut.
6. Ákvæði um tekjuskattsfrelsi
vaxtatekna eru nú miðuð við
vaxtagjald í stað skulda sam-
kvæmt gildandi lögum. Arður
er gerð|ur frádráttarbær hjá
móttakanda að vissu marki,
Framtalsskylda er útvíkkuð
t.d. á sparifé.
7. Frumvarpið gerir ráð fyrir að
tekjur einstaklings af at-
vinnurekstri verði áfram á
einkaframtali hans, eins og
nánar er lýst, en sú breyting
er gerð að tap af rekstrinum
verður einungis
frádráttarbært frá tekjum af
honum en ekki öðrum tekjum,
svo sem launatekjum og
lífeyri.
8. Reiknað er tneð að skattþrep
verði áfram tvö og sömu hlut-
fallstölur gildi til útreiknings
tekjuskatts.
9. Ymsar aðrar tillögur um
^nauNBLADW-
þR1ÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
21
breytingar eru gerðar svo sem
um skattskyldu, og eru þær
raktar í athugasemdum um
einstakar greinar.
Einstaklingar
í atvinnu-
rekstri
1. 1 gildandi lögum um tekju-
skatt og eignarskatt eru engar
heimildir til ákvörðunar
launa af eigin atvinnurekstri
manns eða sjálfstæðri starf-
semi, umfram þær sem al-
mennt gerist um einstaklinga.
1 lögunum eru ekki sérstök
ákvæði sem takmarka frá-
dráttarbærni taps frá öðrum
en af rekstrinum sjálfum. Sé
reksturinn hins vegar í félags-
formi kemur tap af rekstri
ekki til frádráttar tekjum ut-
an rekstrarins.
2. I lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga er heimild til að
áætla manni tekjur af at-
vinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi „ef sérstaklega
stendur á“, sbr. 23. gr. þeirra
laga. Þessari grein hefur hins
vegar lítt verið beitt í fram-
kvæmd og ágreiningur ríkt
meðal úrskurðaraðila um
hvernig beri að túlka lagabók-
stafinn.
3. Þá er í 4. mgr. B-liðar 25. gr.
laga um tekjuskatt og eignar-
skatt takmörkunarákvæði á
greiðslu eftirstöðva ónýtts
persónuafsláttar til greiðslu
útsvars hjá aðila sem vinnur
við eigin atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi.
4. í frumvarpinu er lagt til að
maður sem atvinnurekstur
stundar i eigin nafni eða sjálf-
stæða starfsemi sitji við sama
borð og eigandi félags af
starfslaunum sinum frá félag-
inu. Er miðað við aó maður
skuli telja sér til tekna eigi
lægra endurgjald fyrir starf
sitt en hefði hann innt starfið
af hendi fyrir óskyldan aðila,
hvort sem hann vinnur við
eigin atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi eða þá
hjá félagi sem honum er
tengt. Endurgjald þetta yrði
frádráttarbært sem kostnaður
í atvinnurekstrinum en ekki
frádráttarbært frá öðrum
tekjum. Við ákvörðun endur-
gjaldsins yrði tekið tillit til
aðstæðna aðila, svo sem
starfsaldurs, heilsufars og
starfstíma hans hjá öðrum á
árinu. Með þessu móti reiknar
maður sér tekjur af atvinnu-
rekstrinum óháð sveiflum á
afkomu rekstrarins frá einu
ári til annars. Jafnframt er
ekki lengur þörf takmörkun-
arákvæðis skv. 4. mgr. B-liðar
25. gr. gildandi laga um tekju-
skatt og eignarskatt.
Söluhagnaður
og fyrningar
Frumvarpið kveður á um veiga-
miklar breytingar á reglum um
fyrningar og söluhagnað eigna.
Breytingarnar eru í aðalatriðum
þessar.
1. Söluhagnaður af þeim eignum
i atvinnurekstri, sem heimilt
yrði að fyrna, verði að fullu
skattskyldur á söluári, óháð
eignarhaldstima. 1 gildandi
lögum er skattskyldan hins
vegar bundin eignarhalds-
tíma, en mismunandi er eftir
tegundum eigna hvenær hann
leysir aðila undan skattskyldu
að einhverju eða öllu leyti,
sbr. E-lið 7. gr. laga um tekju-
skatt og eignarskatt.
2. Að því er tekur til fyrnanlegs
lausafjár færist söiuverð sam-
kvæmt frumvarpinu til lækk-
unar fyringargrunns þess og
verður söluhagnaður þannig
óbeinlínis skattskyldur án til-
lits til eignarhaldstíma. Fyrn-
ingar af lausafé reiknist af
bókfærðu verði, samanber síð-
ar. Heimild er í frumvarpinu
til frestunar skattgreiðslu eða
til flýtifyrningar annarra
fyrnanlegra eigna ef
fyrningargrunnur lausafjár
verður neikvæður.
3. Hagnaður af sölu fyrnanlegra
fasteigna þ.m.t. mannvirki og
fyrnanleg náttúruauðævi,
verður samkvæmt ákvæðum
frumvarpsins einnig að fullu
skattskyldur án tillits til
eignarhaldstíma og telst mis-
munur á söluverði annars veg-
ar og stofnverði (kostnaðar-
verði) þeirra að frádregnum
áður fengnum fyrningum,
framreiknuðu með víisitölu
verðbreytinga, hins vegar. Sá
munur, sem þá stendur eftir,
sem söluhagnaður, ætti að
svara til raunverulegs hagn-
aðar sem myndast hefur, t.d.
vegna þjóðfélagslegra að-
gerða eða breytinga, svo og
vegna fenginna fyrninga um-
fram slit mannvirkis við öflun
tekna. Heimild er til að nota
fasteignamat 1977 Fstað stofn-
verðs, hafi aðilar eignast hið
selda fyrir þann tíma. Jafnan
er heimilt að telja helming
söluverð til tekna sem sölu-
hagnað. Einnig er heimild til
frestunar skattgreiðslu eða
fyrningar annarra fyrnan-
legra eigna, lausafjár eða fast-
eigna. Með þessu ákvæði,
samanber einnig samskonar
ákvæði um lausafé, er leitast
við að hafa flutning eigna
milli atvinnugreina sem greið-
astan, t.d. milli fiskveiða og
fiskvinnslu, eða úr útgerð í
vefjariðnað, ef svo ber undir.
Þá verður hagnaður af sölu
annarra fyrnanlegra eigna en
lausafjár og fasteigna að fullu
skattskyldur á söluári.
4. Svipað ákvæði gildir um sölu-
hagnað af ófyrnanlegum fast-
eignum, þ.m.t. lönd, lóðir og
ófyrnanleg náttúruauðævi, og
um söluhagnað af fyrnanleg-
um fasteignum. Þó er skattað-
ila jafnan heimilt að telja
helming söluverðs ófyrnan-
legrar fasteignar til tekna
sem söluhagnað, enda getur
viðmiðun við fasteignamat
1977 eða framreikningur á
gamalt stofnverð reynst erfið-
ur í sumum tilvikum. Þetta
þýðir í reynd að heildarskatt-
ur af söluhagnaðinum yrði
rúm 25% hið mesta (í stað
skattfrelsis eftir sex ára eða
lengri eignarhaldstíma).
Flutningur söluhagnaðar til
lækkunar stofnverðs
annarrar eignar er bundin við
sams konar eign, þ.m.t. sölu-
hagnaður af landi bújarðar
samkvæmt nánari ákvæðum.
5. Hagnaður af sölu lausafjár,
sem eigi er heimilt að fyrna,
svo sem einkabíla, telst því
aðeins til skattskyldra tekna,
að hlutaðeigandi hafi átt hina
seldu eign skemur en tvö ár.
Akvæði þetta tekur ekki til
hlutabréfa og eignarhluta í
samlögum og félögum og er
óbreytt frá gildandi lögum.
6. Frumvarpið gerir ráð fyrir að
ekki verði heimilt að fyrna
íbúðarhúsnæði hvorki í eigu
félaga né manna. Hagnaður af
sölu íbúðarhúsnæðis teljist að
fullu til skattskyldra tekna á
y söluári, hafi maður átt það
skemur en fimm ár, en sé
skattfrjáls eftir fimm ára eða
lengri eignarhaldstíma, enda
eigi hlutaðeigandi eigi fleiri
en þrjár íbúðir á söludegi. Um
söluhagnað af íbúðarhúsnæði
í eigu félaga svo og þeirra
einstaklinga, sem eiga fleiri
íbúðir en þrjár, fer eins og um
söluhagnað af öðrum ófyrnan-
legum mannvirkjum. Þá eru í
frumvarpinu ákvæði um
flutning söluhagnaðar af
seldu ibúðarhúsnæði á það,
sem aflað er í staðinn.
7. í gildandi lögum telst ágóði af
sölu hlutabréfa og eignar-
hluta í sameignarfélögum og
samlögum að fullu til skatt-
skyldra tekna á söluári hafi
aðili átt hið selda skemur en
tvö ár, en eftir fjögur ár eða
lengrí eignarhaldstima telst
ágóðinn ekki til skattskyldra
tekna. Samkvæmt frumvarp-
inu er full skattskylda sölu-
hagnaðar af þessum eignum,
ef eignarhaldstími er styttri
en fjögur ár, en engin skatt-,
skylda ef hann er fjögur ár
eða lengri.
8. Ymis ákvæði önnur eru í frum-
varpinu um söluhagnað, svo
sem af eignum sem einungis
eru notaðar að hluta i at-
vinnurekstri, um altjón og
eingarnám, tímamörk við
kaup og sölu, arftöku, tap af
sölu, makaskipti um sölu fast-
eignar sem er seld í heild eða
að hluta og sala hennar fellur
undir mismunandi ákvæði,
um ákvörðun vísitölu við
ákvörðun söiuhagnaðar o.fl.
9. I gildandi lögum fer um fyrn-
ingar skv. 15. gr. en þær telj-
ast til rekstrarkostnaðar. skv.
A-lið 11. gr. 1 A-lið 15. gr.
laganna er fyrnanlegum eign-
um skipt í fimm flokka og i 1
mgr. C-liðar sömu greinar er
fyrning ákveðin sem fastur
árlegur hundraðshluti af
heildarfyrningarverði eigna,
sem þar eru upp taldar, og
innan vissra marka að því er
fyrningarhlutfall varðar.
í aðalatriðum er árlegt
fyrningarhlutfall lausafjár
8—15%, bygginga og annarra
Framhald á bls. 47
BOLTAR
Blakboltar Verðfrð kr. 18.30.-! Flestar gerðir af
Fótboltar VerSfri kr. 2080.- æfingaskóm m.a.
Handboltar VerSfri kr. 4510 frá PUMA
Körfuboltar Ver8 frá kr. 2180,- Verð frá kr. 1932
KLAPPAHSTIG 44
SIMI11783
LOUHOLUM 2 — 6
SIMI75020
laiy/onar
• KÖ 0 \\°, S\V° ,-i’O
'YV
\>°* ,
J Almenn
[ /l) Austurstræ
KiU simi 19707