Morgunblaðið - 21.12.1976, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
23
HREINN Halldórsson, KR, setti
nýtt Islandsmet á innanhússmóti
I Laugardalshöllinni á laugardag-
inn. Kastaði Hreinn lengst 19,16
metra 1 keppninni og bætti þvl
fyrra innanhússmet sitt um alls
53 sentimetra, því gamla metið
var 18,63 m. Þetta kast Hreins
kom I fjórðu umferð, en I þeirri
fyrstu kastaði hann einnig lengra
en eldra metið, þ.e. 18,98 m.
Hreinn var yfirburða sigurvegari
f kúluvarpinu. þvi næsti maður
kastaði 11,77 m.
í viðtali við Mbl. sagðist Hreinn
vera nokkuð ánægður með þenn-
an árangur. „Ég reiknaði með þvi
að í manni byggi um 18V4 til 19
metrar, og þvl er ánægjan yfir
þessu kasti meiri en ella. 1 sjálfu
Hreinn Halldórsson f keppninni á
laugardaginn. Myndina tók Frið-
rik Þór Óskarsson.
sér veit ég ekkert hvað í mér býr
núna hvað lengdar snertir, þvi ég
kasta eingöngu I net um þessar
mundir. Þá er einnig vont að
kasta hér i Laugardalshöllinni,
þvl gólfið er stammt en það gerir
það að verkum að löppin situr
eiginlega eftir,“ sagði Hreinn.
Aðspurður kvaðst Hreinn æfa
sæmilega, og vonast hann til að
vera með á Evrópumeistaramót-
inu innanhúss, sem haldið verður
I San Sebastian á Spáni um miðj-
an marz.
Annar i kúluvarpinu varð Ás-
geir Þór Eiríksson, ÍR, en hann
kastaði 11,77 metra. I kúluvarps-
keppninni kastaði Óskar Reykdal,
HSK, sveinakúlu, og þvi áhaldi
kastaði hann 16,02 metra sem er
nýtt sveinamet. Fyrra metið átti
hann sjálfur frá þvi fyrr i haust. I
keppni kvenna sigraði Asa Hall-
dórsdóttir, Á, en hún kastaði
lengst 10,40 m. Lára Sveinsdóttir,
Á, varð í öðru sæti með 9,58 m og i
þriðja sæti varð svo Ingunn
Einarsdóttir, IR, með 9,16 m.
Á móti þessu var einnig keppt I
stangarstökki. Eitthvað fundu
stökkvararnir sig illa, því flestir
voru þeir nokkuð frá sinu bezta.
Þá felldi Stefán Hallgrimsson,
KR, byrjunarhæð sina 4.30 m en
annars urðu úrslit sem hér segir:
1. Guðmundur Jóhannesson,
UMSK, 3,60
2. Ásgeir Þ. Eiriksson, IR, 3,18
3. Þráinn Hafsteinsson, HSK 3,00
4. Þorsteinn Þórsson, UMSS, 3,00
Myndina hér að ofan tók ljósmyndari Morgunblaðsins f Vest-
mannaeyjum, Sigurgeir Jónsson á leik Islands og Danmerkur f
hinu nýja og stórglæsilega fþróttahúsi Eyjamanna á laugardag-
inn. Geir Hallsteinsson er með knöttinn og ógnar að vörninni, en
á Ifnunni halda tveir danskir leikmenn Björgvin Björgvinssyni.
Danir sigruðu f þessum leik með 3 mörkum og geta tslendingar
þakkað markverði sfnum, Gunnari Einarssyni, að ekki fór verr.
Myndin hér til hliðar er af bezta leikmanni danska liðsins f
landsleikjunum, Michael Berg. Hann er þarna með átta fingur á
lofti f tilefni þess að f fumi við stöðugar skiptingar varnar- og
sóknarleikmanna hjá fslenzka liðinu henti það einu sinni að átta
tslendingar voru samtfmis inni á vellinum.
Nauösynlegt að fá Olaf H
Jónsson til liðs við okkur
- sagði Jón Karlsson fyrirliði íslenzka landsliðsins
— ÞESSI leikur var eins og fyrri
leikir okkar nú að undanförnu, að
vörnin var alls ekki nógu góð,
sagði Jón H. Karlsson, fyrirliði
islenzka handknattleikslandsliðs-
ágás. ins eftir tapleikinn gegn Dönum i
FRAMARAR LEITA EFTIR
SAMNINGUM VIÐ KNAPP
Þróttur og KA hafa ráðið sér þjálfara
— ÞAÐ ER rétt að við höfum
haft samband við Tony Knapp
og erum að kanna möguleika
þess að fá hann til starfa hjá
okkur sem þjálfara á næsta
keppnistfmabili, sagði Sveinn
Sveinsson, einn af stjórnar-
mönnum knattspyrnudeildar
Fram f viðtali við Morgunblað-
ið f gær. — En þetta mál er á
algjöru frumstigi, sagði
Sveinn, við skrifuðum Knapp
og óskuðum eftir viðræðum við
hann, en jafnvel þótt hann
hefði áhuga á málinu er alls
ekki vfst að af ráðningu hans
yrði.
— Við höfum að undanförnu
haft Islenzka þjálfara, sagði
Sveinn, — og að okkar mati
hafa þeir skilað betri árangri
en hinir erlendu þjálfarar. Það
var hins vegar ákveðið fyrir
löngu að þeir Guðmundur Jóns-
son og Jóhannes Atlason sem
verið hafa með Framliðið að
undanförnu tækju það ekki að
sér næsta sumar. Við vonum
hins vegar að þeir komi aftur
til starfa hjá félaginu þótt slðar
verði, enda báðir frábærir
þjálfarar. Við höfum leitað til
tveggja innlendra þjálfara,
þeirra Árna Njálssonar og
Guðna Kjartanssonar, en þeir
gáfu báðir afsvar.
Töluverðar hræringar eru nú
I þjálfaramálum knattspyrnu-
liðanna, enda styttist óðum til
þess tima að liðin fara að búa
sig undir keppnistlmabilið af
alvöru. Tvö annarrar deildar
félög hafa nú gengið frá ráðn-
ingu þjálfara, KA, en Jóhannes
Atlason mun þjálfa liðið næsta
sumar, og Þróttur, Reykjavlk,
en aðalþjálfari þess liðs verður
Theódór Guðmundsson, sem að
undanförnu hefur þjálfað ís-
lenzka unglingalandsliðið og
náð mjög góðum árangri með
það. — það getur vel verið að
Lárus Loftsson, «em þjálfað
hefur unglingalandsliðið með
Theódór, starfi einnig að þjálf-
un meistaraflokksins hjá okk-
ur, sagði Helgi Þorvaldson, for-
maður knattspyrnudeildar
Þróttar I gær.
Þá hafa FH-ingar verið að
leita eftir þjálfara að undan-
förnu og er líklegt að annað-
hvort Þórir Jónsson eða Albert
Eymundsson verði með liðið á
næsta keppnistfmabili.
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldið. — Það þarf greinilega
meira en lltið að gera til þess að
bæta þar um betur. Okkur skortir
snerpu og úthald fyrst og fremst,
þannig að mótherjar okkar ná oft
að setja okkur út af laginu með
brellum og bolvindum og við
verðum sfðan of seinir I þá,
brjótum illa af okkur og fáum
dæmd á okkur vltaköst.
— Ég tel leiki þessa hafa sýnt
fram á það að okkur er nauðsyn-
legt. að fá Ólaf H. Jónsson til liðs
við okkur. Ég hef mikla trú á því
að hann gæti tengt saman vörnina
og styrkt hana verulega á miðj-
unni.
Um danska liðið sagði Jón H.
Karlsson. — Ég leyfi mér að full-
yrða að þetta var miklu betra og
skemmtilegra lið en við mættum I
Danmörku, jafnvel þótt I það
vantaði nokkra leikmenn sem
þykja sjálfsagðir I danska lands-
liðið eins og t.d. Flemming
Hansen. Þegar hann var með
gekk sóknarleikurinn mun hægar
fyrir sig hjá liðinu og það var
auðveldara fyrir okkur að verjast.
Þessir leikmenn voru fullir af
áhuga og vilja — ætluðu að sanna
að það væri hægt að vinna þrátt
fyrir að stórstjörnurnar væru
ekki með, og þeim tókst það.
— Ég er tiltölulega ánægður
með sóknarleikinn, en vörnin var
herfiieg I leiknum, sagði Janus
Cerwinski landsliðsþjálfari eftir
leikinn á sunnudaginn. — Ég er
hins vegar bjartsýnn á að við
náum varnarleiknum vel upp, og
takist það ættu Islendingar að
komast áfram I B-keppninni.
Ætlunin er að þeir Ólafur H.
Jónsson og Axel Axelsson komi til
liðs við okkur núna um áramótin
og mjög sennilega styrkja þeir
liðið verulega. Þá er einnig llkur
á þvl að Arni Indriðason komi inn
I landsliðshópinn aftur, en hann
er sterkur varnarleikmaður. \
Um dómarana sagði Cerwinski,
að sér hefðu virst þeir vera tauga-
óstyrkir og gera töluvert af mis-
tökum. Þannig hefðu t.d. mistök
þeirra bitnað tvívegis illa á
islenzka liðinu.
— Tuttugu mörk eiga að nægja
til sigurs I svona leik, sagði Geir
Hallsteinsson, er Morgunblaðið
ræddi við hann eftir leikinn. —
En þau gerðu það ekki, einfald-
lega af þvl að varnarleikurinn hjá
okkur var ákaflega slakur. Ég
hugsa að það sé rétt sem Janus
Cerwinski, landsliðsþjálfari,
hefur látið hafa eftir sér, að það
séu ekki nema tveir leikmenn
sem geta leikið vörn sæmilega,
þeir Þórarinn Ragnarsson og Þor-
björn Guðmundsson. Hitt liggur
fyrir að islenzku landsliðsmenn-
irnir hafa aldrei verið i betri
æfingu en um þessar mundir, og
ég er sjálfur viss um að liðið á
eftir að springa út og ná árangri.
Þannig er ég t.d. mjög bjartsýnn á
að við vinnum Austur-
Þjóðverjana I B-
heimsmeistarakeppninni I
Austurriki og komumst þar
áfram.
2ttorjjunIiIaí>ií>
III II I III II I II —Ml
llprðtlirl
Met hjá Hreini
Bætti fyrra met um 53 sentimetra
TVEIR BLAKSIGRAR YFIR FÆREYINGUM 3-2 OG 3-1
UM HELGINA léku tslendingar
tvo landsleiki við Færeyinga I
blaki og voru þetta þriðji og
fjórði leikur þjóðanna I þessari
íþróttagrein. Að þessu sinni unnu
Islendingar, eins og I fyrri skipt-
in, en leikir þessir voru þó
nokkuð erfiðir fyrir fslenzka
landsliðið — ef til vill ekki sfzt
vegna þess að fslenzku landsliðs-
mennirnir vanmátu andstæðinga
sfna, og virtust fyrirfram halda
að Iftið sem ekkert þyrfti fyrir
sigri að hafa.
Fyrri leikurinn vannst með
þremur hrinum gegn tveimur, og
lék fslenzka liðið þarna fremur
slakan leik. Einkum og sér i lagi
var uppspilið slakt hjá liðinu og
töpúóust þannig mörg tækifæri.
Hins vegar náði liðið svo öórtl
hverju að sýna allgóð tilþrif og
einstakir leikmenn náðu góðum
skellum.
I byrjun leiksins kom það
greinilega fram að Islendingarnir
voru þreyttir eftir erfiða ferð til
Færeyja, og náðu Færeyingar for-
ystu I leiknum 2—1. En þá loks
fór íslenzka liðið sæmilega I gann
og vann tvær næstu hrinur og þar
með leikinn 3—2.
1 seinni landsleiknuin voru yíif-
burðir tslendinganna ótvfræðir
og lék liðið þennan leik til muna
betur en fyrri leikinn. Þrátt fyrir
það unnu Færeyingar eina hrinu,
þannig að leiknum lauk með 3—1
sigri Islands. Verður því ekki á
móti mælt að Færeyingarnir
kunna talsvert fyrir sér I þessari
íþrótt og lið þeirra náði ágætum
jeikköflum. Islenzka liðið gerði
ýmsa hluti ágætlega I þessum
leik, en öðru hverju bar svo á
mistökum, sem auðvelt hefði átt
að vera að komast hjá, ef leikur-
inn hefði verið tekinn af meiri
alvöru.