Morgunblaðið - 21.12.1976, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
— „Samneyslaa.
má ekki. . .
Framhald af bls. 17.
í sambandi við þetta mál. Því tel
ég brýnast af öllu, að inn í fjár-
lagafrumvarpið verði nú settar
70—80 millj. kr. vegna þessa
máls, sem er samkvæmt tillögu
nefndarinnar.
Það eru mörg mál, sem ég hefi
mikinn áhuga á að fáist fjárveit-
ingar til, svo sem skólar, íþrótta-
mannvirki heykögglaverksmiðjur
og fl. Enn er ekki farið að skipta
því fjármagni, sem er eyrnamerkt
til þessara framkvæmda, og því
ekki séð hvernig til tekst. Þó vil
ég nefna sérstaklega aðra fram-
kvæmd, sem ég tel að eigi að sitja
fyrir öllu öðru nú, og það er
sjúkrahúsið á Akureyri. Eins og
fjárveitingin til þess var á síðasta
ári og þær hugmyndir, sem ég
hefi heyrt um þær nú, myndi það
taka 25—30 ár að byggja upp
þetta sjúkrahús miðað við þær
áætlanir, sem fyrir Iiggja.
Ekki getur það verið þjóðhags-
lega hagkvæmt að hafa bygging-
artímann svo langan, og mikið
öryggi hlýtur að verða í því fyrir
þjóðina alla að fá sem allra fyrst
fullbúið sjúkrahús á Akureyri,
þar sem ekkert sambærilegt
sjúkrahús er nú til utan Reykja-
víkur. Það ætti því ekki að vera
neinn ágreiningur um það að
ljúka þessari byggingu á 6—7 ár-
um, en til þess þarf fjárveitingu
nú að vera allt að 400 m.kr. Þá er
spurt hvaða liði fjárlagafrum-
varpsins megi lækka til að mæta
þessum útgjöldum?
Um það hef ég engar tillögur.
Ég tel að samneyslan megi alls
ekki minnka, frá því sem verið
hefur. Við eigum að kappkosta að
minnka aðstöðumuninn í þjóð-
félaginu og við gerum það ekki
með því að minnka samneyslu,
heldur hið gagnstæða. Ég fylgi
því ekki þeirri íhaldsstefnu, að
draga eigi úr samneyslu.
Stefán Valgeirsson.
,JVIeimtun kennara
líður fyrir
lakan aðbúnað”
Spurt er um tvö mál, sem brýnt
sé að veita fé til á fjárlögum
næsta árs en ekki er getið í fjár-
lagafrv.
Ég nefni tvo þætti skólabygg-
inga. Annar er almenns eðlis.
Hinn snertir sára þört’ einstakl-
inga.
Menntun kennara líður fyrir
lakan aðbúnað. Almennti
kennaraskólinn býr við óskapleg
Hjá okkur
PIONEER
strigi-korkur
á veggina
PIONEEK
veggstrigj í nátturulegum litum
90 sm breidd
IMOXri-K
korkveggklœðning í veggfóðursformi
90 sm breidd
nJÍGÖFDÐHflniNH-
HVERFISGÖTU 34 - REYKJAVlK - SI M I 14484 - 13150
A ELSKUNA Þ
þrengsli og aðstaða handavinnu-
deildar og íþróttakennaraskóla er
mjög erfið. Æfinga- og tilrauna-
skólinn er og vanbúinn, en einnig
honum er mikið hlutverk ætlað í
kennaramenntuninni.
Skortur á skólahúsnæði fyrir
ungmenni, sem víkja svo frá
venjulegum þroska að þau fá vart
eða ekki notið tilsagnar í almenn-
um skólum, er ákaflega mikill.
Hér eru það í fyrstu einstakl-
ingarnir, sem eiga um sárt að
binda. Síðar geldur þjóðfélagið ef
tækifærin til að gera vanmegna
einstaklinga sjálfbjarga, eru ekki
notuð. Öskjuhlíðarskólinn er ekki
hálfbyggður. Og við heimili
hjálparfélaga ýmissa vantar mjög
aðstöðu til kennslu og þjálfunar
huga og handar.
Bæði þessi verkefni eru allstór
og hljóta að vinnast i áföngum á
mörgum árum. En til þess að hjól-
in geti farið að snúast, þarf ná-
lega 50 millj. kr. í hvort um sig á
næsta ári. Stærð og verð nýtan-
legra áfanga er álitamál.
Lækkun einstakra liða fjárlaga
tel ég öróugra viðfangsefni en
svo, að ég treysti mér að forma
ákveðnar tillögur, en tæpi á
tvennu. Framkvæmd skattalaga
hefir lengi verið talin allflókin og
dýr. Hugsanlegt er að vitrir menn
geti fundið hagkvæmari og ódýr-
ari aðferðir. I annan stað: per-
sónugjöld til almannatrygginga
hafa verið afnumin. Geti því kom-
ið til álita að takmarka greiðslur
lífeyris til tekjuhárra, þar sem
hér er ekki lengur um beina, per-
sónulega tryggingu að ræða.
Þess skal að lokum getið, að ég
tel að fjárlög beri að afgreiða
greiðsluhallalaus og þó leitast við
að halda eðlilegum hraða í opin-
berum framkvæmdum og brýnum
þjónustuaðgerðum.
Vilhjálmur Hjálmarsson.
— Banaslys
Framhald af bls. 48
Hansen, 51 árs, til heimilis að
Laufskógum 39 I Hveragerði, læt-
ur hann eftir sig konu og 4 börn.
Slysið bar að með þeim hætti,
að Jakob ók af Vorsabæjaraf-
leggjaranum inn á Suðurlands-
veginn. Lenti bifreið hans, sem
var af Volkswagengerð, fyrir
Wagoner-bifreið. Var áreksturinn
mjög harður og báðar bifreiðarn-
ar skemmdust mjög mikið. Lög-
reglan á Selfossi kom fljótlega á
vettvang og var Jakob fluttur til
Reykjavlkur, en var látinn þegar
komið var með hann á Slysadeild-
ina.
1 jeppabifreiðinni var þrennt.
Handarbrotnaða ökumaðurinn, en
kona hans og sonur slösuðust
óverulega.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
THorgunblabih
jólamarkaðnum
^AIIt til jólanna^
Jólakúlur
Jólaskreyt
ingar
allskonar
Jólatré o.fl
Opið kl.
10-22
daglega