Morgunblaðið - 21.12.1976, Blaðsíða 38
38
MORCiUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
+
Útför
FRÍMANNS EINARSSONAR
Kumbaravogi, Stokkseyri
er lézt 16 þ m fer fram miðvikudaginn 22 desember kl 3 00 frá
Aðventkirkjunm í Reykjavík
Ferð verður frá Selfossi með sérleyfisbílum Selfoss kl 1 30
Fyrir hönd barna, tengdabarna. barnabarna og barnabarnabarna
Kristfn Ólafsdóttir.
Eigmmaður minn t
JACOB HANSEN
Kálfakoti við Laufásveg.
lést af slysförum 18 desember s.l. Jarðarförin fer fram frá Kotstrandar
kirkju þann 23 desember kl 14
Ferð verður frá BSÍ kl 13 Margrét Hansen.
t
Taðir minn
JON JÓNSSON
frá Kaldbak.
Suður Þingeyjarsýslu
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 22 desember kl 1 30 _
Fyrir hönd systkina minna
Egill Jónsson.
Konan min
SARA ÓLAFSDÓTTIR
frá Akranesi
lést að Hrafnistu 1 8 þ m
Fyrir mína hónd og barnanna
Bergur Arnbjörnsson.
t
Maðurinn minn
MAGNÚSJÓNSSON
Freyjugotu 17 B,
andaðist í Landakotspitala 1 8 desember
Sigurjóna S. Sigurjónsdóttir.
t
Móðir okkar tengdamóðir og amma
ÓLAFÍA KRISTÍN INDRIÐADÓTTIR
Hrauni, Tálknafirði
lést 19 þessa mánaðar
Sigríður Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Einarsson
Guðrún Þorsteinsdóttir Reynir Þ. Hörgdal
Ingibjartur Þorsteinsson Kristín Guðmundsdóttir
Einar Þorsteinsson Heiðrún Helgadóttir
fósturdætur og barnabörn.
Steinn K. Steindórs-
son — Minningarorð
Fæddur. 13.8. 1907
Dáinn. 12.12. 1976
„Requiem æternam —
„Drottinn veiti þeim hina eilifu
hvíld, og hið eilifa ljós lýsi þeim.“
Þessi upphafsorð kveðjubænar-
innar ævafornu munu verða flutt
í dag yfir jarðneskum leifum
Steins K. Steindórssonar í
Dómkirkju Krists konungs á
Landakotsliæð. Hálf öld er nú að
baki frá þvi er fundum okkar bar
fyrst saman á þeirri hæð. Þar
áttum við síðar margar samveru-
stundir, flestar hugljúfar, en þá
dapurlegasta er við hringdum
saman klukkum yfir likkistum
hinna látnu frá „Pourquoi Pas?“
árið 1936. Hvers vegna við urðum
vinir allt frá fyrstu kynnum? Ég
veit það i rauninni ekki, og ég
held að við höfum aldrei reynt að
skýra það eða skilgreina. Það var
sennilega alltof augljós staðreynd
okkur báðum til þess að við teld-
um nokkra nauðsyn til þess bera
að leita henni röksemda, en nú er
mér það ráðgáta hvernig á því
stóð, að við, sem áttum svo fjar-
skyld áhugamál, skyldum verða
jafn samrýndir og raun bar síðar
vitni. Fyrir það langar mig til að
þakka með kveðjuorðum, sem
mega ekki verða alltof mörg, þar
sem ég veit, að Steinn vildi helzt
mega hverfa kyrrlátlega í faðm
þeirrar moldar, sem hann óx úr,
að fengnum fyrirbænum
kirkjunnar, sem varð kjörmóðir
hans og leiðarsteinn um langa tíð.
Steinn Kristinn fæddist að Ira-
felli I Kjós. Foreldrar hans voru
Guðný Þorkelsdóttir, ættuð frá
Meðallandi í Skaftafellssýslu, og
Steindór Steinason frá Valda-
stöðum í Kjós. Ég er ekki nógu
fróður um ættir hans til leið-
beiningar þeim, sem þær eru
ókunnar, en kunnugir geta
staðfest það, sem ég heyrði jafn-
an, að Steinn væri af góðu bergi
brotinn og ljóð þau er hann orti
til foreldra sinna eru til vitnis-
burðar um, að hann mat þau að
verðleikum. Steinn ólst upp í Kjós
og á Kjalarnesi, en fluttist til
Reykjavíkur árið 1921. Næstu
árin einkenndust af baráttu
unglings, sem var of fátækur til
þess að setjast á skólabekk, fyrir
því að afla sér menntunar. Það
tókst Steini af miklum bóklestri
og með hjálp góðra manna. Hann
gerðist snemma mjög fjölfróður
og á mörgum sviðum ágætlega
menntaður. 1 þessu sambandi
nefndi Steinn oft nafn Maulen-
bergs biskups og presta hans, sem
reyndust honum góðir og veitulir
lærifeður. Það mun hafa verið
árið 1925 er Steinn gekk í sveit
kaþólskra, og mun hugur hans um
þær mundir mjög hafa staðið til
þess að helga kirkjunni alla
starfsorku sina, þótt örlög felldu
lif hans síðar i annan farveg.
Hann átti löngum skjól hjá trú-
bræðrum sinum, bæði að Jófríðar-
stöðum og Landakoti, og minntist
þeirra jafnan með þakklæti og
aðdáun.
Þegar fundum okkar bar fyrst
saman var Steinn orðinn mikill
atgervismaður um allt það, er
ungan mann mátti prýða. Hann
hafði þá þegar dregið að sér mikið
safn bóka, sem hann las af kappi
og jók jafnan við síðan af mikilli
ástriðu. Hann var prýðilega skáld-
mæltur, ágætlega ritfær og setti
aldrei ljós undir mæliker. Rit-
gerðir hans og ljóð höfðu þá birzt
I blöðum og tímaritum, en þeim
fór síðar fjölgandi með nýjum
áhugamálum og viðhorfum. Hann
var harður og óvæginn í baráttu
fyrir þeim stjórnmálaskoðunum,
sem hann taldi réttar, brá sverði
og skildi til varnar og sóknar fyrir
málstað kirkju sinnar, og lét sér
fátt mannlegt óviðkomandi.
Síðar ferðaðist hann talsvert,
dvaldi m.a. í Clervaux, og fór í
suðurgöngu, en frá þessum ferð-
um ritaði hann margar góðar
greinar.
Steinn vann fyrir sér með
ýmsum hætti og var t.d. um árabil
afgreiðslu- og skrifstofumaður í
Laugavegs apóteki, en Ilentist
hvergi til langframa unz hann
gerðist starfsmaður Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur árið 1936. Þar
vann hann alla tíð síðan, að
frádregnum tveim árum, og þar
lauk hann starfsævinni, þrotinn
að kröftum. Steinn lofaði mjög
allt samstarfsfólk sitt hjá sjúkra-
samlaginu, og kvað forráðamenn
þess jafnan hafa auðsýnt. sér
mikinn drengskap og góðvild.
t
Dóttir okkar
ÁLFHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
lézt af slysförum í Danmörku Útförin hefur farið fram í Reykjavik
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
Olafur Kjartan Olafsson,
Ingibjorg Gísladóttir.
t
Amma mín og mágkona
ETHEL ODDSSON
andaðist að heimili sinu Cleethirpes, Englandi þann 1 9 þ.m.
Jón Magnússon
Hólmfríður Oddsdóttir
Barónstfg 33.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
mannsíns mins og föður
SIGURBJORNS L. GUÐNASONAR
Faxabraut 9. Keflavik
Sérstakar þakkir færum við vinnufélögum hins látna á Vörubilastöð
Keflavikur fyrir fagra minnmgargjöf
Svava Árnadóttir,
Guðni Sigurbjörnsson.
Útför systur okkar
KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR,
kennara,
frá Skáleyjum,
Breiðafirði,
sem lést 1 5. desember, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
22 desember klukkan 10 30
Blóm og kransar afþokkuð, en þeir sem vildu minnast hennar, láti
liknarfélög njóta þess Systkini hennar látnu.
Árið 1937 kvæntist Steinn Britt
Haveland frá Noregi. Síðar skildu
leiðir þeirra, og árið 1954
kvæntist Steinn danskri konu,
Ellen að nafni. Þau bjuggu hér í
Reykjavik i 9 ár og eignuðust tvo
sonu, Stein, sem nú er 19 ára og
Sturlu, nú 17 ára. Ellen tók sjúk-
dóm, sem auðsætt þótti að myndi
verða banvænn, en i von um
lengri stundargrið erlendis en
hér fluttist fjölskyldan til Kaup-
mannahafnar. Þar dó Ellen tveim
árum siðar, og varð Steinn þá
einn erlendis til forsjár og um-
önnunar hinum ungu sonum
sinum tveim. Þá rættist hinn
gamli draumur skáldsins norska,
er skóp Sólveigu, hina sígildu
táknmynd órofa tryggðar, trúar,
vonar og ástar. Britt kom aftur til
Steins, bjó honum á ný hlýlegt
heimili hér I Reykjavik og stóð
styrk við hlið hans i bliðu og
striðu unz yfir lauk. Ég veit að
hún vill ekki, að um þetta sé
fjölyrt, og þess vegna verður það
ekki gert. En Steinn myndi
áreiðanlega ekki hafa kosið, að
um þennan einstæða og fagra þátt
hennar í æviskeiði hans yrði þag-
að, og þess vegna er það ekki gert.
Síðustu æviárin átti Steinn við
mikla vanheilsu að stríða, og
hefði engum, er muna hann ung-
an, filhraustan, lifsglaðan og
stæltan, þótt trúlegt að vinir hans
myndu eiga eftir að varpa önd-
inni léttar er fregnin barst um að
þjáningastríði hans væri loksins
lokið. Við þennan þátt verður
ekki skilizt án þess að færa öllum
þeim þakkir, sem hjúkruðu
honum af þeirri nærfærni og
hjartahlýju, sem ógleymanleg er
öllum, er til þekktu.
Upp hefir nú aftur birt eftir hið
svarta sorgarél sjúkdóma og
andstreymis síðustu æviáranna,
og þá er okkur gott, hinum mörgu
vinum Steins, sem áttu svo oft
með honum indælar stundir, að
minnast þess í fari hans, sem olli
þvi, að hann verður okkur alltaf
hugljúfur og eftirminnilegur.
Þess vegna munum við um leið og
við tökum undir þá bæn, er síðust
verður nú flutt vegna hans í dóm-
kirkju Krists „Requiescat inpace“
— Hvil þú í friði — þakka fyrir,
að hann veitti okkur þá samfylgd,
sem dýrmætt er nú að eiga i sjóði
ljúfra minninga við leiðarlok.
Sigurður Magnússon
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og mlnningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máii. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.
t
Listla dóttir okkar lézt á Barna-
deild Hringsins þann 19/12
Sigríður Breiðfjorð,
Stig Lauridsen.
S^Helgason hf. STEINIÐJA
tlnholti 4 Slmar 24477 ogf 14254