Morgunblaðið - 21.12.1976, Side 46
46
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976
Móðir Bukovskys þurrkar tár úr augum sér ð blaðamannafundinum.
Bukovsky:
Heilaþyottur og sveltí meðal aðferða
sem beitt er gegn politískum föngum
—ísland og EBE
Framhald af bls. 1.
makrfl né veiðar okkar við Græn-
land.
• Sfðdegis í gær gerði Gunde-
lach aukafundi utanrfkisráðherra
Efnahagsbandalagsins grein fyrii
viðræðunum við fslendinga og
frestun þeirra. Lýstu ráðherrarn-
ir yfir áhyggjum sfnum með
þessa þróun mála. Utanríkisráð-
herrafundinum er ætlað að finna
lausn á mismunandi stjórnarmið-
um sem uppi eru meðal banda-
lagsrfkjanna um tilhögun fisk-
veiða rfkjanna innbyrðis. Sam-
kvæmt fréttastofufregnum virð-
ast litlar lfkur á samkomulagi á
þessum fundi og virðast einkum
vera uppi ágreiningur milli Þjóð-
verja annars vegar og Breta og
Ira hins vegar um stefnuna f þess-
um efnum.
RAMMASAMKOMULAG
UM FISKVERND
I samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Tómas Tómasson,
sendiherra og formaður fslenzku
viðræðunefndarinnar, að íslenzka
nefndin hefði f gærmorgun átt
bæði fundi með Gundelach og að-
stoðarmanni hans, Emon Gallag-
her, og síðan fund með hinni
formlegu samninganefnd Efna-
hagsbandalagsins. Viðræðunum
hefði siðan verið slitið að sinni en
ákveðið að taka upp viðræður að
nýju í næsta mánuði.
Tómas sagði, að viðræðurnar f
gær hefðu fyrst og fremst snúizt
um gerð langtima rammasam-
komulags um fiskvernd milli Is-
lands og Efnahagsbandalagsins,
og uppkast slfks rammasamnings
væri nú til athugunar. Þá kvað
Tómas viðræður um gagnkvæm
veiðiréttindi milli Islands og
Efnahagsbandalagsins hafa flétt-
azt inn í viðræðurnar f gær en
eins og fram hefur komið hefur af
hálfu Efnahagsbandalagsins kom-
ið fram tilboð um gerð bráða-
birgðasamkomulags við íslend-
inga um gagnkvæm veiðiréttindi,
en íslenzk stjórnvöld eiga eftir að
fá þessar tillögur f hendur.
Tómas kvað utanríkisráðherra-
fund Efnahagsbandalagsins, sem
hófst síðar f gærdag, óneitanlega
hafa sett mark sitt óbeint á við-
ræður íslenzku nefndarinnar og
bandaiagsins. Menn væru
almennt efins um að fundinum
tækist að móta tilhögun fiskveiða
EBE-ríkjanna innbyrðis fyrir 1.
janúar, þegar færa á fiskveiðilög-
söguna út I 200 mílur og þess
vegna hafi af hálfu bandalagsins
komið fram tillögur um gerð
bráðabirgðasamkomulaga við rfki
þau sem standa utan bandalags-
ins.
GUNDELACH VARAR
tSLENDINGA VIÐ
Á blaðamannafundi f Brtissel í
gær eftir viðræðurnar við
íslenzku nefndina sagði Gunde-
lach, að þar sem viðræöunum í
gær hefði lokið án samkomulags
myndu brezkir fiskimenn ekki
geta snúið að nýju á fiskimiðin
við Island 1. janúar eins og vonast
hefði verið til og af hálfu banda-
lagsins hefði þessu verið svarað
með því að meina íslenzkum fiski-
skipum veiðar innan fiskveiðilög-
sögu bandalagsins eftir næstu
mánaðamót.
Gundelach kvað Islendinga
ekki hafa komið fram með neitt
jákvætt til að koma hreyfingu á
þessa fyrstu lotu viðræðnanna og
afstaða Islendinga væri Efna-
hagsbandaiaginu mikið áhyggju-
efni. Ekki væri þó hægt að segja,
að slitnað hefði upp úr viðræð-
unum, því að ákveðið væri að
hann og Tómas Tómasson hittust
aftur eftir nýár. Hins vegar vissi
hann ekki nánar hvenær viðræð-
urnar hæfust en mjög ólfklegt
væri að það yrði fyrr en Alþingi
kæmi saman aftur í næsta
mánuði.
Gundelach sagði ennfremur, að
fiskimálaviðræður Islendanga og
EBE yrði að skoða f ljósi heildar-
samskipta þessara aðila, og
Reuter-fréttastofan hefur eftir
embættismönnum EBE f Brtissel,
að þar hafi Gundelach átt við
möguleika þess, að EBE beitti
verzlunar- og viðskiptatengslum
bandalagsins og Islands sem þætti
í fiskimálaviðræðunum. Gunde-
lach sagði hins vegar á fundinum
sem svar við fyrirspurn, að hann
væri ekka að hafa i hótunum við
einn eða neinn.
Gundelach sagði ennfremur, að
Islendingar virtust hafa skipt um
skoðun varðandi veiðiheimildar
til handa EBE á þessu stigi vegna
stjórnmálaástands heima fyrir.
Lýsti hann afstöðu íslendinga á
þann veg, að þeir væru „óhjálp-
legir“ og sagði að tsland væri sér
á báti meðal annarra ríkja sem nú
stæðu í viðræðum við EBE um
fiskveiðisamkomulag.
REIÐUBtJNIR TIL
SAMNINGA UM
FISKVERND
Eins og getið er í upphafi sagði
utanríkisráöherra Einar Ágústs-
son, í samtali við Morgunblaðið,
að viðræðurnar hefðu á engan
hátt farið út um þúfur en hins
vegar hafi aldrei staðið til að gera
samninga á þessum fundi, og
sagði jafnframt vegna þeirra um-
mæla sem fréttastofur hafa eftir
Gundelach, þar sem hann segir að
líta verði fiskimálaviðræðurnar í
ljósi heildarsamskipta íslands og
EBE, að Gundelach hafi hingað til
ekki haft í hótunum við fslenzk
stjórnvöld. Varðandi tillögur þær
sem EBE hefur lagt fram um
gagnkvæm veiðiréttindi sagði
Einar að fslenzka ríkisstjórnin
væri ekki búin að fá þær í hendur
og hann gæti þar af leiðandi ekk-
ert tjáð sig um efni þeirra.
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, sagði að ákvörðun
EBE um að meina islenzkum
fiskiskipum veiðar innan fisk-
veiðilögsögu EBE frá og með
næstu áramótum hefðu ekki
minnstu áhrif á veiðar okkar al-
mennt miðað við þennan árstfma,
hvorki hvað snerti síldveiðar
islenzkra skipa f Norðursjó né við
Grænland.
Matthías sagði, að hann færi
ekkert dult með það, að hann
væri hlynntur því að gert yrði
fiskverndarsamkomulag við Efna-
hagsbandalagið og hann teldi það
vera til góðs fyrir Islendinga
engu sfður en fyrir þá. Hvað
snerti gagnkvæm fiskveiðirétt-
indi milli Islands og EBE kvaðst
ráðherra ekkert vilja segja fyrr
en hann hefði séð þær tillögur
sem íslenzku sendimennirnir
kæmu með frá Briissel, en þær
yrði að athuga mjög vel hér heima
fyrir.
ÁGREININGUR Á
UTANTlKISRÁÐHERRA
FUNDINUM
1 fréttastofuskeytum kemur
fram, að á utanríkisráðherrafundi
EBE i Briissel í gær hafi lítið
miðað í samkomulagsátt og mikill
ágreiningur sé um ýmis grund-
vallaratriði. Þvi þykir æ ósenni-
legra að ráðherrarnir muni kom-
ast að samkomulagi á yfirstand-
andi fundum.
V-Þjóðverjar munu álíta, að hin
endurskoðuðu tillögudrög EBE-
ráðsins séu um of höll undir hags-
muni Breta og Ira, sem sækja fast
að fá einkalögsögu allt upp í 50
mílur fyrir fiskimenn sína ein-
vörðungu." Það er komið fram við
okkur eins og við séum alls ekki f
bandalaginu," hefur Reuter-
fréttastofan eftir þýzkum em-
bættismanni f gær, og fram kem-
ur að ýmis önnur aðildarríki deili
þessari óánægju með þjóðverjum.
Ráðið hefur endurskoðað kvót-
ana í þá veru að Bretar og Irar fá
nú meiri hlutdeild í afla EBE-
lögsögunnar en gert var ráð fyrir
í fyrri drögunum, sem bæði þessi
rfki höfnuðu. I nýju drögunum er
þó ekki lagt til að rfkin tvö fái
einkaveiðisvæði heldur er stungið
upp á vissum takmörkunum á
vernduðum svæðum, þar sem að-
eins vissum stærðum veiðiskipa
er heimiluð veiði, sem i reynd
tryggir nánast fiskiskipum við-
komandi strandríkja einkarétt til
veiða. Einnig er lagt bann við
veiðum verksmiðjuskipa innan
200 málna fiskveiðilögsögu EBE,
sem v-þýzkir heimildarmenn EBE
segja að sé algerlega óaðgengilegt
fyrir þá, þar sem 70% úthafsafla
V-Þjóðverja fáist með verk-
smiðjuskipum.
Framhald af bls. 1.
in litu á Vesturlönd sem óvin, sem
strfðsástand ríkti við.
Yfir 100 fréttamenn voru á
fundinum með Bukovsky og risu
þeir á fætur er hann kom f salinn
og klöppuðu fyrir honum. Bukov-
sky var taugaóstyrkur og hikandi
f fyrstu, en brosti síðan öðru
hverju. Hann svaraði flestum
spurningunum á rússnesku með
aðstoð túlka. Hann sagði að sú
staðreynd að sér hefði verið
sleppt, væri fyrsta viðurkenning
Sovétstjórnarinnar á því að póli-
tískir fangar væru f landinu og
skapaði því fordæmi. Hann hvatti
til stóraukinnar baráttu fyrir mál-
stað pólitískra fanga „þekktra og
óþekktra hvar sem í heiminum
væri.“
Þegar hann var spurður hvort
hann hefði nokkra orðsendingu
til Leonids Brezhnevs, leiðtoga so-
vézka kommúnistaflokksins á sjö-
tugsafmæli hans, svaraði Bu-
kovsky brosandi: „Skiptum á hon-
um og Pinochet." Átti hann þar
við Pinochet forseta Chile.
Bukovsky sagði, að einn af yfir-
mönnum sovézku leyniþjónust-
unnar KGB hefði fylgt sér til
Sviss og sér hefði verið tjáó að
hann hefði ekki verið sviptur so-
vézkum ríkisborgararétti, eins og
gert var t.d. við Solzhenitsyn,
hann hefði fengið 5 ára vega-
bréfsáritun. „Ég verð því líklega
að líta á mig sem pólitískan fanga
í leyfi.“ Bukovsky sagði að fram-
tíð sfn væri óráðin og myndi ráð-
ast mjög af þvf hvernig 12 ára
systursyni sfnum heilsaðist, en
hann þjáist af krabbameini í eitl-
um og var fluttur beint í sjúkra-
hús f Sviss. Hann sagðist myndu
fara í stutta heimsókn til Bret-
lands í boði leikarans David
Markhams, sem mjög beitti sér
fyrir því að Búkovsky yrði látinn
laus. Síðan sagðist hann hugsan-
lega halda áfram Líffræðinámi,
Gód lodnu veiði
MJÖG góð loðnuveiði var hjá
þeim fáu skipum sem voru á
miðunum NA af Horni f fyrri-
nótt, en þá fengu fjögur skip
1780 lestir. Ársæll GK fékk 250
lestir, Sæbjörg VE fékk 280
lestir, Grindvíkingur GK 600
lestir og Súlan 650 lestir. Þá
fékk Pétur Jónsson RE 630 1
Eldur í Jökut
felli á Höfn
ELDUR kom upp í Jökulfellinu
í gær, er verið var að lesta síld
og ufsaflök á Höfn í Hornafirði.
Eldurinn kom upp í neðri lest
skipsins, en þar voru 77 tohn af
kjöti, sem flytja á til Danmerk-
ur. '
sem hann lagði stund á, er hann
var handtekinn. Líklega myndi
hann stunda það nám í Hollandi.
Hann sagðist einnig vilja heim-
sækja Bandarfkin og þakka öllum
þeim, sem hefðu veitt sér lið.
Brezki leikarinn David
Markham heimsótti Bukovsky f
Sviss og sagði er hann kom aftur
til London að Bukovsky liti ótrú-
lega vel út eftir allar þær þol-
raunir, sem hann hefur orðið að
líða. Sér hefði hins vegar brugðið
stórlega er hann fyrst sá
Bukovsky. Hann sagði að
Bukovsky væri hálfruglaður
ennþá af öllu umstanginu og
breytingunum og fréttin um að
honum yrði sleppt hefði verið
mikil andleg áreynsla fyrir hann.
Hann ætti því ekki eins auðvelt
með að tala við fólk og hann
sjálfur hefði vonað.
Bukovsky sagði fréttamanni
Reuterfréttastofunnar í dag, að
hann hefði fyrst heyrt um ákvörð-
unina um að sér yrði sleppt frá
samfanga f Vladimirfangelsinu,
sem hefði morsað fréttirnar á
vatnsrörum fangelsins.
Mikið hefur verið fjallað um
skiptin á Bukovsky og Corvalan f
blöðum á Vesturlöndum. The
Times í London sagði í morgun,
að það, sem, vekti undrun væri að
sovézkir leiðtogar hefðu látið
undan beiðnum frá Kaupmanna-
höfn og beiðnum bandaríska
embættismanna í einkaviðtölum.
Hins vegar hefðu þeir hugsanlega
álitið að Bukovsky myndi ekki
valda þeim meiri vandræðum á
Vesturlöndum en Solshenitsyn og
aðrir hefðu þegar gert. Það sem
erfiðast er fyrir þá, er að nú hafa
þeir viðurkennt að pólitfskir
fangar eru til í Sovétríkjunum,
ekki aðeins glæpamenn og geð-
veikissjúklingar.
Daily Telegraph sagði að bar-
átta Bukovskys hefði vakið mikla
aðdáun fólks á Vesturlöndum og
því yrði vitnisburður hans tekinn
fullkomlega trúanlegur. Fólk á
Vesturlöndum fengi æ meiri við-
bjóð á notkun sovézkra yfirvalda
á geðveikrahælum, sálfræðingum
og geðveikislyfum gegn pólitísk-
um andófsmönnum.
Málgagn ítalskra kommúnista
gagnrýndi f dag takmarkanir á
mannréttindum í Sovétríkjunum
og sagði að það væri ófyrirgefan-
legt að fólk væri sett í fangelsi
fyrir að hafa skoðanir. Blaðið L.
Unita, sagði í forsíðuleiðara að
ýmsum spurningum væri enn
ósvarað en ánægjulegt væri að
Bukovsky og Corvalan væru laus-
ir úr haldi.
Luis Corvalan var enn í kvöld í
leynilegum bústað einhvers stað-
ar fyrir utan Moskvu, en búizt var
við, að er hann æki inn f Moskvu
yrðu honum fagnað sem erlend-
um þjóðhöfðingja og hetju. Hann
sagði við fréttamann um borð í
flugvélinni, sem flutti hann frá
Chile, að hann væri glaður og
leiður yfir að fara frá heimalandi
sínu. Hann væri ánægður yfir að
geta hafið baráttuna að nýju gegn
hægristjórninni í Chile, en leiður
yfir að þurfa að yfirgefa félaga
sína. Hann sagði að enginn vissi
hve margir fangar væru í haldi í
Chile, né hve margir hefðu horfið
sem aldrei myndu koma fram.
Luis Corvalan gengur f átt til flugvélarinnar á Antiagoflugvelli, sem
flutti hann til Evrópu.