Morgunblaðið - 28.05.1977, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.05.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1977 Kleppsspítalinn 70 ára; Endumýjuð borð- stofa í gamla spítal- anum tekin í notkun Á 70 ÁRA afmæli Kleppsspítalans, sem var haldiS hátíðlegt í gær var ýmsum gestum boðiS til að skoða spitalann og við athöfn þar sem starfsfólk spltalans og gestir sátu fluttu ræður prófessor Tómas Helgason yfirlæknir, Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra og Eyjólfur Sigurðsson. umdæmis- stjóri Kiwanis-hreyfingarinnar. Þá mælti Jósteinn Kristjánsson nokk- ur orð fyrir hönd starfsmannaráðs Kleppsspítalans og sagði að ákveðið hefði verið aS færa spítal- Tómas Helga- son prófessor. yfirlæknir spft- alans, greindi i ræðu sinni frá helztu atriSum úr sögu Klepps- spitalans. anum að gjöf myndasafn er hafi aS geyma heimildarmyndir úr sögu spitalans. Tómas Helgason yfirlæknir tók viS gjöfinni og siSan var gestum boSiS til kaffidrykkju og á eftor gafst þeim tækifæri til aS skoða spitalann. Tekin var i notkun ný borSstofa og eldhúsaSstaða, en það er I þvi húsnæði gamla spftalans sem hef- ur verið endumýjaS nú á siSustu 10 mánuSum. í ræðu sinni rakti prófessor Tóm- as Helgason helztu atriði úr sögu spltalans, m.a að árið 1871 hefði Þorgrlmur Johnsen héraðslæknir rit- að I ársskýrslu slna lýsingu á aðbún- aði og meðferð geðveikra I landinu Heilbrigðisráðið I Kaupmannahöfn taldi þá brýna nauðsyn bera til þess að bæta úr þvl ástandi. sem Þor- grlmur lýsti I skýrslu sinni, en mál þetta lá óhreyft að mestu allt til ársins 1901 er danskur læknir Christian Schierbeck og fjölskylda Starfsfólk Kleppsspftala og gestir hlýSa á ræSu Tómasar Helgasonar yfirlæknis. Fremst sitja Matthfas Bjarnason heilbrigðisráðherra og Páll SigurSsson ráSuneytisstjóri ásamt konum sinum. Ljósm. RAX. hans buðust til að leggja fram fé til byggingar geðveikraspitala fyrír 14—16 manns. Sagði Tómas að Schierbeck hefði fundist fátt um meðferð málsins og tekið aftur til- boð sitt Alþingi skipaði nefnd til að gera tillögur um frumvarp að stofn- un geðveikrahælis og eftir nokkra meðferð I Alþingi var samþykkt að hefjast handa um byggingu sjúkra- húss er rúmaði 50 sjúklinga Árið 1906 var ráðgert að verja 90 þús kr. til byggingarinnar en það voru um 7 5% af heildarfjárlögum þess árs og til samanburðar gat Tómas Helgason þess að I ár væri varið um 1,8% af fjárlögum ársins 1977 Að lokum færði Tómas Helgason starfs- fólki árnaðaróskir og þakkaði fyrir samstarf og sérstaklega þakkaði hann framlag Kiwanisfélaganna og Hvitabandskvenna Matthias Bjarnason heilbrigðis- ráðherra sagði að nokkuð hefði áunnizt i málefnum geðsjúkra hér á landi og sagði að ekki væri þess nú langt að biða að áfanga yrði náð i nýbyggingunni sem væri að rFsa við Landspitalann. Hann færði siðan læknum og starfsfólki árnaðaróskir í tilefni afmælisins Eyjólfur Sigurðs- son, umdæmisstjóri Kiwanisklúbb- anna, sagði i ávarpi sinu að ákveðið hefði verið að Kiwanis-klúbbarnir ynnu áfram að fjáröflun fyrir málefni geðsjúkra og hefði næsti söfnunar- dagur verið ákveðinn i október i haust Afgreiðslubann sett á m.s. Laxá AFGREIÐSLUBANN var sett á m.s. Laxá i Akraneshöfn fyrri part dags i gær. þar sem Verkalýðsfélagið á staðnum taldi að farið hefSi veriS inn á sitt verksviS þegar skipið var bund- iS viS bryggju klukkan 18.30 I fyrra- kvöld, en þá var I gildi yfirvinnubann á svæSi félagsins. Klukkan þrjú igær heimilaSi VerkalýSsfélagiS aS af- greiSsla hæfist viS skipi, en þá lágu fyrir afsökunarbeiSnir frá Hafskip hf., sem á skipiS og skipstjóra þess. Þetta er i annaS skiptiS, sem til átaka kemur viS höfnina á Akranesi eftir aS yfirvinnubann var sett á. i fyrra skiptiS var um aS ræSa lýsis skip frá Kýpur, sem landfestar voru leystar á eftir klukkan 1 7. Bjarnfríður Leósdóttir á skrifstofu Verkalýðsfélagsins tjáði Morgunblað- inu í gær að Laxá hefði komið að bryggjunni klukkan 1 8 30 á fimmtu- dagskvöldið. „Við i stjórn og trúnaðar- mannaráði Verkalýðsfélagsins stóðum á bryggjunni og mótmæltum þvi að skipið legðist þannig að bryggju i um- sjá yfirhafnsögumannsins i yfirvinnu- banni félagsins," sagði Bjarnfriður. Skipstjórinn á m s. Laxá hafði sent skipverja með lóðsbátnum i landi til þess að taka á móti skipinu og binda = = = í einn dag það, en þegar skipverjanum var bent á, að hann væri að fara inn á verksvið félagsins, hafðist hann ekki frekar að þegar skipið kom að bryggju. En þá fór yfirhafnsögumaðurinn frá borði og batt skipið gegn mótmælim trúnaðarráðs- ins og sýndi ofbeldi við framkvæmd þess verknaðar. Síðan tilkynntum við þeim, sem hlut áttu að máli að skipið yrði ekki afgreitt ef komið yrði með það að bryggju Síðan tilkynntun við þeim aðilum, sem ætluðu að taka vörur úr skipinu að boðað yrði verkfall hjá þeim með löglegum fyrirvara ef þeir tækju við vörum úr því. Skipstjórinn kom síðan á fund og baðst afsökunar. Haf- skip sendi einnig afsökunarbeiðni undirskrifaða af framkvæmdastjóra og skipstjóra og einnig hélt bæjarráð fund í dag, þar sem bæjarráð baðst afsök- unar á verki starfsmanns síns og hét því að þetta kæmi ekki fyrir aftur. Þegar afsökunarbeiðnir lágu fyrir, leystist skipið út þessu banni klukkan þrjú í dag. Að öðru leyti hefur yfir- vinnubannið gengið vel," sagði Bjarn- fríður. . „ Kvikuhlaupin í Kröflu skoð- uð í Esjunni í DAG gefst kostur á að skoða í fylgd með Ingvari Birgi Friðleifssyni, sem er einn fróðastur jarðfræðinga um Esjuna, þær jarðmyndanir í fjallinu, sem talið er að séu svipaðar því sem er I Kröflu á 1 — 2ja km dýpi. Ferða- félag íslands efndi til þeirrar göngu- ferðar, auk hinnar föstu Esjugöngu, og hefst hún kl. 1. Farið er upp frá Skrauthólum á Kjalarnesi, hjá Lauganfpu og upp á Kerhólakamb. Ingvar sagði okkur, að á þessari.leið væri mikið af skrautsteinum. Ætlunin væri að skoða þarna innviði gamallar megineldstöðvar, sem lá yfir sundin til Reykjavlkur. Ofan af fjallinu væri auð- velt að skýra út hvernig fjallið varð til. Hann sagði að aðstæður væru þarna svipaðar og neðanjarðar við Kröflu, mörg kvikuinnskot, og hægt að skoða ofanjarðar þær myndanir, sem menn halda að séu að gerast í ólíkum kviku- hlaupum. Farið verður niður hjá Esju- bergi, nálægt leiðinni sem Esjugangan fer og fá menn líka Esjugönguviður- kenningu Árblik og fleiri troða upp á tónleikum í dag i Hafnarfirði í DAG, laugardag. kl. 4 verSa haldnir „Rokk og Ról tónleikar" i Bæjarbfó i HafnarfirSi. Fram koma fjórar hljóm- sveitir: ÁRBLIK. SONIC úr Hafnar- firSi og Alexia og EXIT úr Reykjavik. Framhald á bls. 26 • • Oryggi og dnægja í Útsýnarferðum Pantið áður en þærseljast upp Verðið hvergi hagstœðara. AUSTURSTRÆTI 17, SIMI 26611

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.