Morgunblaðið - 28.05.1977, Side 35

Morgunblaðið - 28.05.1977, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1977 35 — Helena fagra Framhald af bls. 14 síðustu verka hans var óper- an Ævintýri Hoffmanns, sem sýnd var hér í Þjóðleik- húsinu árið 1966. Frumsýning á Helenu fögru er sem fyrr segir á föstudagskvöld, 2. sýning er að kvöldi annars dags hvíta- sunnu og 3. sýning 1. júní. Helena fagra verður sýnd til loka leikárs, út júnímánuð. — á.j. — Kolmunni Framhald af bls. 13 hverju leyti viö aðrar þjóðir. Ég er sannfærður um, að bæði skip og verksmiðjur eiga eftir að njóta mjög góðs af þessum veiðum," segir Viðar. Þá sagði hann, að það hlyti vera hægt að stunda þessar veiðar i framtíðinni í maí við Færeyjar og frá júli fram í september úti fyrir Austfjörðum. Þau vandamál sem nú væru, yrðu örugglega hægt að leysa, aðrar þjóðir og þá ekki sist Danir legðu nú gífurlega áherzlu á kolmunnaveiðarnar, en svo virt- ist sem þeir gætu samt ekki stundað þær jafn lengi á ári hverju og íslendingar. Verðið olli mestum vonbrigðum „Ef ég hef orðið fyrir regluleg- um vonbrigðum með eitthvað, þá er það með verðlagninguna á kol- munnanum á Islandi. Maður átti von á því að það yrði eins hátt og mögulegt væri til að örva menn til veiðanna fyrst i stað á meðan menn eru að átta sig á hlut- unum,“ sagði hann ennfremur. Það kom í ljós, að annar vængur vörpunnar hafði rifnað litillega, þótt ekki væri meira i en rösklega 100 tonn eins og fyrr gétur. Menn voru fljótir að gera við, og innan stundar var varpan komin í sjóinn á ný. í næsta holi fengust hins vegar ekki nema 20—30 tonn, en þá voru lóðningar fremur litlar. Nú var tekið við að leita að betri ióðningum og fundust þær nokkru norðar undir kvöldið. Varpan var aftur komin í sjóinn rúmlega fimm og byrjað var að hífa eftir kvöldmat. Að þessu sinni voru einnig rösklega 100 tonn í og uppskera dagsins um 240 lestir. Má segja að útkoman hafi því ekki verið sem verst, en miðað við það verð sem fæst fyrir kolmunnann á íslandi þurfa að fiskast um 300 lestir á dag að jafnaði til að bæði útgerð og sjó- menn geti verið ánægðir með sinn hlut. Margir færeysku bátanna hafa náð þessum árangri í vor og vel það. Ur því að Færeyingar geta veitt þennan fisk, eiga Íslendingar að geta það líka. Að minnsta kosti var það máltæki í Færeyjum fyrr á árum, „íslend- ingar geta allt“. Hins vegar hefur þróunin orðið sú á síðustu árum, að Færeyingar hafa algjörlega skotið okkur ref fyrir rass i út- gerðarmálum. — Þ.Ó. — Helmingur Framhald af bls. 34 milli sveitarfélaga aldrei niður fyrir 7.900 manns á ári (1966) en fer yfir 9.300 manns árið 1972, 9.400 manns 1973, 10.700 manns 1974, þegar hann er mestur, en lækkar lftillega aft- ur árið 1975. Búferlaflutningur milli landshluta er og minnstur á þessum áratug árið 1966, 4.990 manns, en mestur árið 1972 og 1973, 6.200 manns fyrra árið og 6.500 manns siðara árið. Á þessum áratug var flutn- ingsjöfnuður neikvæður gagn- vart útlöndum (flutt utan umfram innflutning) um 3.395 manns. Flutningsjöfnuður á Reykja- víkursvæðin var jákvæður þennan áratug en þó aðeins um 271 mann. Reykjanessvæðið eitt virðist sitja uppi með um- talsverðan ávinning af búferla- flutningunum, en þar er flutn- ingsjöfnuður jákvæður um 3.396 manns (svipuð tala og ut- an fer). Flutningsjöfnuður er neikvæður í öllum öðrum lands- hlutum á þessu tímabili sem hér segir: Mínus manns Vestfirðir 1953 Norðurland vestra ... 1512 Suðurland 1022 Vesturland 1016 Norðurland eystra ... 804 Austurland 603 I þessum tölum felst ein- vörðungu fólksflutningur (flutningsjöfnuður) milli landshluta, ekki eðlileg mann- aukning innan tilgreindra byggðasvæða. (Heimild: Árs- skýrsla Framkvæmdastofnunar 1976). — Vestfirðir Framhald af bls. 34 stéttarbræður þeirra annars staðar á landinu. Vegna jafnrar afladreifingar allan ársins hring er yfirvinna í fiskiðnaði á Vestfjörðum mjög mikil. Árið 1974 eru meðalbrúttótekjur framteljanda á landinu 1974 taldar 856.772 krónur. Reykja- vik er aðeins undir þessu meðaltali með 856.121 krónu. Kaupstaðir utan Reykjavíkur eru með 920.829 en Isafjörður einn sér með 945.845 krónur. Vestfirðir eru því ekki, hvorki íbúum sinum né landinu í heild, siður gjöfulir en aðrir landshlutar. (Tölulegar heim- ildir sóttar í Vestfjarðaráætlun, Almenna haglýsingu, apríl 1977). ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU \t GLYSINGA SÍMINN KR: 22480 ienn: SKAGFJORÐ HF Hólmsgata 4, Box 906. sími 24120. Reykjavik heimasimi sötumanns 11387. ~ mr. . : > MOSFELUNGAR Kjörverð íKjörvali KAFFI KAABER 1.P. . kr. 634 - NAUTAHAKK KR . 770 - KR. 247.- NAUTAGRILLSTEIK KR . 730 - KR. 216- NAUTABÓGSTEIK .. KR.730 - KR. 150- NAUTAGULLASH KR. 1.530 - KR. 96- NAUTABUFF KR. 1.650 - KR. 370,- NAUTA T-BEIN ... KR. 1.242 - KR. 144- NAUTALUNDIR KR. 2.050 - Gerið verðsamanburð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.