Morgunblaðið - 05.06.1977, Page 15

Morgunblaðið - 05.06.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1977 15 tekið við skipsstjórninni þegar ég veiktist. É er nú alveg búinn að fá mig góðan af liðagigtinni. LANGMEST VERIÐ Á NÓTAVEIÐUM — Það iná eiginlega segja að ég hafi alla mína skipstjórnar- tíð verið með nótaveiðiskip. Það hefur orðið mikil breyting á þessu sfðan ég byrjaði og mesta breytingin varð auðvitað þegar síldin hvarf. Þetta snerist allt um sfldina hérna áður fyrr. Á gömlu góðu sfldar- árunum var auðvelt við þetta að eiga þegar sfldin var uppi við landið en svo fór hún að fjar- lægjast og árin 1966 og ’67 man ég að við vorum á síldveiðum rétt við Færeyjar. Vegna veik- indanna var ég ekkert á veiðum þau sumur þegar elta varð sfld- ina sem lengst norður í höf og hún var söltuð um borð. Þegar ég var að byrja að leysa af sumarið 1970 fór ég á sfldveið- ar í Norðursjó, íslenzku bátarn- ir voru þá að byrja að veiða þar sfld. Síðan hef ég farið á hverju sumri f Norðursjóinn þar til núna f sumar að Norðursjórinn er okkur alveg lokaður. Við gerðum það oft gott f Norður- sjónum, Ifka í fyrrasuntar, þótt kvótinn væri Iftill. Ég var hepp- inn að þvf leyti að ég fékk yfir- leytt hátt verð fyrir aflann. Það var auðvitað fyrst og fremst að þakka mannskapnum, strákun- um, sem sáu um að ganga frá síldinni. Velgengni við fisk- veiðar byggist ekki sfzt á góð- um mannskap, mönnum, sem maður hefur hjá sér ár eftir ár. Nú svo gerðust þau ánægjulegu tíðindi f fyrra, að við niáttum byrja að veiða síld að nýju fyrir Suðurlandi. Það verður hins vegar engin sfldveiði hjá okkur í haust, þvf stóru bátarnir fá vfst ekki úthlutað neinum kvóta í þetta sinn. GÓÐ ÚTKOMA Á LOÐNUNNI — Loðnuveiðarnar eru alltaf að verða mikilvægari fyrir nótaskipin. Ég hef auðvitað verið á loðnuveiðum undan- farna vetur og í fyrrasumar byrjuðum við á Súlunni á loðnuveiðum fyrir Norðurlandi ásamt Sigurði RE og Guðmundi RE og sfðar bættust við fleiri bátar. Það varð mjög góð út- koma á þessu hjá okkur í fyrra. Við héldum áfram alveg fram f desember og urðum aflahæstir. Í vetur varð útkoman einnig mjög góð á loðnuveiðunum og þann tíma sem ég var um borð, frá áramótum til marzloka, fiskuðum við t.d. fyrir 89 millj- ónir. Framundan er sumar- loðnuvertfð og ég hef þá trú að hún gangi enn betur en í fyrra, en þá komu f ljós ýmsir byrjun- arörðugleikar, sem væntanlega tekst að ráða bót á. Vinnslan gekk þá hægt fyrir sig og lönd- Framhald á bls. 33 Silfri hafsins landað úr Snæfellinu EA. Snæfellið var landsþekkt aflaskip, en þvf hefur nú verið lagt. skuli hafa mennina heima, en þegar maður fer að tala við þær snýst dæmið oft við. Þær eiga svo óskaplega bágt, maðurinn vinnur hálfan sólarhringinn og er svo þreyttur þegar hann kemur heim að það er ekki við hann mælandi. — Ertu ekki stundum hrædd um manninn þinn á sjónum? — Ég hef þann sið í byrjun vertíðar að kveðja hvern ein- asta skipverja og biðja Guð að fylgja honum. Þá eldri fæ ég að kyssa en hinir rétta mér hönd- ina. Síðan „sleppi” ég, óska skipi og skipshöfn gæfu og gengis. Óttann verðum við að geyma innst inni og sjómanns- konur eru kjarkmiklar og dug- legar. Björg fluttis til Akureyrar 10 ára gömul. Þar kynntist hún Baldvin og þau giftu sig árið 1952. Þau eiga þrjú börn, Þor- stein Má, Margréti og Finnboga Alfreð. — Ég hcf alltaf haft mikinn félagsskap af börnun- um og það er ekki svo litið atriði fyrir sjómannskonu, seg- ir Björg. Við fórum til dæmis upp á Fjall á skíði hvenær sem við gátum og öll eru börnin leikin á skíðum, þótt Margrét hafi nú náð lengst. Þorsteinn lærir nú skipaverkfræði í Nor- egi, Margrét lýkur stúdents- prófi í vor og Finnbogi Alfreð byrjar i Menntaskóla í haust. Björg segist fara í sund á hverj- um morgni, badminton eitt kvöld í viku, saumaklúbb sömu- leiðis eitt kvöld f viku og svo vinnur hún hálfan daginn á skrifstofunni hjá Frystihúsi KEA, með indælu fólki eins og hún segir. Það er því ekki yfir neinu að kvarta. — Ég vil nota tækifærið og senda öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra kærar kveðjur með ósk um farsæld og fengsæld á komandi árum. Til hamingju með daginn, sagði Björg að lokum. —SS. FRÁ LEHBEININGASTÖfl HÚSMÆflRA Vöruurvalið á áningarstöð- um ferðamanna-sjoppurnar Viða á helztu ferðamanna- leiðum eru sjoppur meðfram vegunum þar sem ferðamenn geta fengið eitthvað að borða á fljótlegan og auðveldan hátt án þess að þurfa að kosta til þess stórum fjárfúlgum. Timinn er verðmætur nú til dags, ferðamenn vilja ekki verja nema sem stytztum tíma i að matast og haga sjoppurnar rekstri sínum í samræmi við þær kröfur. Söluvarningurinn er þannig úr garði gerður að mjög auðvelt er að afgreiða hann, húsbúnaður og tækja- kostur er einfaldur svo að reksturskostnaðinum virðist í alla staði vera í hóf stillt. Fæðan sem á boðstólum er, likar vel, enda er mikið keypt. En hún er hins vegar ekki sam- sett í samræmi við kenningar manneldisfræðinga og lækna, sem segja, að við þurfum að draga úr neyzlu fiturikra fæðu- teguhda og takmarka ' sykur- neyzluna. Rannsóknir hjá Hjartavernd hafa leitt í ljós, að íslenzkir karlmenn eru að jafn- aði 10 kilóum of þungir. Það er mjög auðvelt að bæta við sig nokkrum kílóum af líkamsfitu, ef menn fara að lifa á sjoppu- mat dögum saman, enda er í honum mikil fita og mikill sykur. Sjoppueigendur telja það góða fjárfestingu að eiga mikið og fjölbreytt úrval af sælgæti, enda er álagningin 40%. Sæl- gætið er þvi sá varningur sem mest fer fyrir í sjoppunum. Sælgæti hefur einnig þann kost, að auðvelt er að geyma það, það skemmist ekki þótt það sé geymt i stofuhita mánuðum saman og það er hreinlegur og þægilegur sölu- varningur, sem auðvelt er að ganga frá í umbúðum. Sjaldan sjást nýir ávextir í sjoppunum. Sá sem borðar eina súkkulaði- plötu (100 g) fær rúmlega 500 hitaeiningar og geta margir þar með fullnægt 'A af orkuþörf dagsins, en ferðalangar sem sitja í upphituðum bifreiðum þurfa ekki á svo mikilli orku að halda. Með þvi að borða eitt epli eða eina appelsínu fást hins vegar ekki nema um 50 hitaeiningar. En epli og appelsinur hafa ekki eins gott geymsluþol og súkkulaði og álagningin er 41 %, en rýrnunin getur orðið allmikil, langtum meiri en í sælgætinu. Með kaffinu eru kökur á boð- stólum, um orkumagn þeirra skal ekki fjölyrt að sinni, en það væri hollara að borða gróft brauð i staðinn. En sá sem kaupir smurt brauð með kaffinu kemst varla hjá því að kaupa dágóðan skammt af majones. Ofan á hangikjöts- sneiðinni er ítalskt salat, ofan á „róastbeefið” remúlaði og hinar ágætu rækjur er því miður útflúraðar með majones i skrautrendum og toppum. Ur því að likamsþungi okkar er í rífara lagi mættum við tak- marka majonesnotkunina ofur- lítið. Ur einni matskeið af majones fást um 100 hita- einingar. Sjaldan eru gúrkur og tómatar á boðstólum i sjoppum sem þó er tilvalið að nota sem álegg ofan á brauð, en það er mjög orkusnautt álegg. Pylsurnar eru að sjálfsögðu mjög vinsælar hjá viðskipta- vinum, en þvi ekki hafa pylsu- brauðin helmingi stærri? Þá yrði hlutdeild fitunnar í pylsu- máltíðinni minni. Það er að sjálfsögðu ekkert vit i því að láta feita remúlaðisósu ofan á pylsurnar, enda ætti sinnep, tómatsósa og laukur að nægja til bragðbætis. Loks skal hér minnzt á gros- drykkina sem mikið eru seldir í öllum sjoppum, en i þeim er mikill sykur. Áður fyrr notuðu Islendingar mysu sem svala- drykk. Hún var vinsæl hjá fólki í heyyinnu. í mjólkurbúum landsins er mestallri mysu hent nú á dögum. Væri ekki unnt að hafa hana á boðstólum í sjoppunum? 1 mysu er mikið af kalki og B-vitaminum, hún er því hollari en gosdrykkirnir sem við nú leggjum okkur til munns i allt of rikum mæli. Urvalið af mjólkurafurðum i sjoppum er yfirleitt fátæklegt. Helzt er til is sem er með fitu- ríkari mjólkurvörum. Það væri ekki úr vegi að hafa þar jógúrt og skyr og fleiri mjólkur- afurðir. En sennilega er ekki unnt að ætlast til að sjoppueigendur fari að breyta söluvarningnum, þegar reksturinn gengur að óskum hjá þeim. Tilraunir með breyttan söluvarning geta verið Framhald á bls. 33

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.