Morgunblaðið - 14.02.1978, Blaðsíða 29
~~ MORGUNBLAÐIÐ, T’RIÐJUDAGUR 14. FEBRXJÁR 1978
37
félk í
fréttum
+ Þessar myndir eru teknar á
hljómlcikum með einni af vin-
sælustu hljómsveit meðal yngri
kynslóðarinnar þessa dagana.
Bay City Rullers. Þeim virðist
takast að hrífa smástelpur og
þær gráta og öskra eins og eldri
systur þeirra gerðu þegar The
Beatles og The Rolling Stones
voru upp á sitt besta. Myndirn-
ar eru teknar í Kaupmanna-
höfn, þar sem þeir héldu
hljómleika fyrir skömmu.
Unglingarnir lögðu á sig að
standa allt upp í 11 tíma fyrir
utan Hótel Plaza til þess eins að
sjá piltunum bregða fyrir, en
þeir höfðu þá flutt sig yfir á
annað hótel til að fá svefnfrið
fyrir skrækjandi krökkum.
Stórmeistara boðið að
tefla í Sovétríkjunum
SKAKSAMBANDI Islands hefur
borizt boð fyrir stjórmeistarana
Friðrik Olafsson eða Guðmund
Sigurjónsson á alþjóðlegt skák-
mót í Sotschi í Sovétríkjunum,
sem hefst 31. ágúst n.k.
Mót þetta verður I styrkleika-
flokknum 2500—2525 Elo-stig eða
í sama styrkleikaflokki og mótið,
serh nú stendur yfir í Reykjavík.
Fyrstu verðlaun eru 1000 rúblur,
eða um 300 þúsund íslenzkar
krónur. Ekki hefur verið tekin
um það ákvörðun hvort annar
hvor þeirra fer á mótið.
Þá hefur Guðmundi Sigurjóns-
syni borizt boð um að tefla á skák-
móti í Kólombíu, sem hefst 10.
marz. Hann hefur ekki svarað
þessu boði ennþá.
Bæjarráð Hafnarfjarðar:
Samþykkir hækkun
dagvistargjalda
MEIRIHLUTI bæjarráðs Hafnar-
fjarðar hefur samþykkt að leggja
til við bæjarstjórn að gjald fyrir
hálfsdagsvist á Leikskólanum
Alfaskeiði 16 verði 10.000 krónur
á mánuði frá 1. febrúar og að
gjald fyrir vistun á dagheimilinu
Víðivöllum verði 20.000 á mánuði
fyrir börn úr forgangshópum, en
26.000 krónur fyrir önnur börn.
Svör ríkis-
skattstjóra
BLAÐINU hafa borizt svör ríkis-
skattstjóra við fyrirspurn frá
Guðríði Kristjánsdóttur er birtist
I Mbl. 2.2., en spurningar hennar
voru þessar: 1. Hvaða ár var
byrjað að margfalda með 64
krónum þann dagafjölda sem
sjómenn eru skráðir á skip til að
finna út frádrátt þeirra vegna
fæðiskostnðaar? 2. Hvernig var sú
krónutala fundin? 3. Hvers vegna
hefur þessi tala — ein krónutala
til útreiknings á framtali — ekki
breytzt?
Svör ríkisskattst jörá eru þessi:
Svar við spurningu 1:
Gjaldárið 1969, þ.e. f framtali
árið 1969, tekjuár 1968.
Svar við spurningu 2:
Gjaldárið 1968, tekjuár 1967,
var mat þessa frádráttarliðar 54
kr. pr. dag. Hækkun í 64 kr. í
framtali 1969 var af þáverandi
ríkisskattanefnd ákvörðuð með
hliðsjón af hækkun matvöru og
kaupgjaids milli áranna 1967 og
1968.
Svar við spurningu 3:
Við lausn kjarasamninga báta-
sjómanna gaf rikisskattstjóri, sem
þáverandi formaður ríkisskatta-
nefndar og með samþykki meiri-
hluta hennar, munniegt loforð (í
simtali um miðnætti 11. febr.
1969) þess efnis að 64 kr. frá-
dráttur fyrir þann sama daga-
fjölda sem væntanlegt framlag
Aflatryggingasjóðs yrði miðað
við, skyldi standa óbreyttur í
gjaldamati ríkisskattanefndar
framvegis eða svo lengi sem að
mati ríkisskattanefndar, að
greiðslur Aflatryggingasjóðs, að
viðbættum umræddum 64 kr.,
mynduðu ékki skattskyld hlunn-
-indi.
Við breytingu á skipan Hkis-
skattanefndar hinn 1. okt. 1972
tók ríkisskattstjóri við verkefnum
rikisskattanefndar um ákvörðun
skattmata (sbr. rgíg. nr.
318/1972). Að mati ríkisskatt-
stjóra hefur engin sú breyting átt
sér stað i sambandi vió fæðis-
kostnaðargreiðslur Aflatrygg-
ingasjóðs sem gefi tilefni til
lækkunar eða afnáms þessa
frádráttar og standa því 64 kr'
óbreyttar í siðasta skattmati ríkis-
skattstjóra (gjaldárið 1978, þ.e. i
framtali árið 1978, tekjuár 1977).
Sigurbjörn Þorbjörnsson,
ríkisskattstjóri.
Vilja varðveita
Bernhöftstorfuna
Félag íslenskra myndlista-
manna skorar á ríkisstjórnina að
taka nú þegar ákvörðun um varð-
veislu og endurreisn Bernhöfts-
torfunnar í Reykjavik og lýsir sig
samþykkt ályktun aðalfundar
Torfusamtakanna frá 4. desember
1977 um þetta mál.
+ Hundar eru i miklu uppá-
haldi hjá mörgum og banda-
ríkjamenn eru engin undan-
tekning í þeim efnum. Þessi
hundur, sem heitir Ashley, er
þekktur um öll Bandarikin og
engin furða. Hann vinnur
hverja keppnina á fætur ann-
arri í að gripa diska og bolta á
lofti og hefur meðal annars
sýnt kúnstir sfnar við Hvíta
húsið í Washington. Hæst hef-
ur Ashley stokkið 2.40 m i há-
stökki, og merkilegt nokkuð,
hann kemur alltaf niður á fæt-
urna, og með diskana í kjaftin-
um. Og þegar heimsmeistara-
mótið í hundahoppi — sem fer
fram árlega í Bandarfkjunum
— var haldið sfðast f Holly wood
var Ashle.v öruggur sigurvegari
í flestum greinum mótsins.
Stjórnunarfélag islands
UM ÞJÓÐARBÚSKAPINN
Stjórnunarfélag íslands gengst
fyrir námskeiði um þjóðarbúskap-
inn dagana 22. — 28. febrúar n.k.
EftirtaIdir þættir þjóðarbúskaparins
verða teknir fyrir. Helstu hugtök og
stærðir þjóðhagsreikninga og þjóð-
hagsáætlana, svo sem þjóðarfram-
leiðsla, þjóðarútgjöld og utanrikis-
viðskiptii
Skýrslur um afkomu atvinnuvega
og ríkisbúskapar Áhrif efnahagsað-
gerða, svo sem í fjármáfum, pen-
ingamálum, gengismálum, launa-
málum og verðlagsmálum. Nám-
skeiðið er ætlað öllum þeim sem
áhuga hafa á þjóðmálum óg márk-
mið þess er, að þátttakendur geti
hagnýtt sér upplýsingar um þjóðar-
búskapinn og auðveldar þátttöku i
umræðum um efnahagsmál.
Leiðbeinandi: Jón Sigurðsson for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, Ólafur
Davíðsson hagfræðingur og Hall-
grimur Snorrason lögfræðingur.
Skráning þátttakenda fer fram á
skrifstofu stjórnunarfélagsins að
Skipholti 37, simi 82930.