Morgunblaðið - 13.04.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.04.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRIL 197fe 31 DAIHATSU ÁRMÚLA 23 simi 81733 Páll V. Daníelsson: Hugleiðingar • x t /n ••• við profkjor Sjon sögu ríkaf' Páll V. Daníelsson andi þarf að vera ábyrgur í umhverfi sínu og þekkja það, svo að hann viti hvað gera skal og hvað beri að varast og umfram allt að hann geti með atkvæði sínu haft sem beinust áhrif á gang mála, þá tryggir hann um leið það aðhald, sem á þarf að halda til þess að koma í veg fyrir misbeit- ingu valds eða hvers konar aðra spillingu. Öll stjórnun verður þá áhrifaríkari, heilbrigðari og ódýr- ari. Hugarfar þeirra, sem við stjórn- un opinberra mála fást, þarf að mótast af því að þeir séu ekki að vinna þetta eða hitt fyrir fólk, heldur að vinna með fólki. Má í þessu sambandi nefna ýmiss konar frjálsa félagastarfsemi þar sem lifandi og kraftmikill áhugi fólks, og þá ekki síst ungs fólks, er fyrir hendi, þar á að vinna með til styrktar og átaka en ekki að kippa allri stjórnun til ríkisvalds eða sveitarféiaga. Og þannig er hægt að vinna að fjölmörgum málum. Þetta þurfa þeir að skilja, sem gefa kost á sér til stjórnunarstarfa á einu eða öðru sviði í þjóðfélag- inu. Að styðja frumkvæði og framtak einstaklingsins, hvort sem er á atvinnusviðinu, í félags- málum eða á ýmsum öðrum sviðum, verður alltaf farsælla en að fjötra allt í opinberu, ópersónu- legu og dauðu kerfi. Engin orka er Að vera sjálfstæður, frjáls og sjálfum sér nógur er það sem einstaklingurinn, bæði ungur og aldinn keppir að. Til þess að ná því markmiði, að einstaklingurinn geti verið frjáls og haft svigrúm til athafna á hinum ýinsu sviðum þjóðlífsins þarf öll opinber stjórnun að miða að því að skapa viðhlýtandi umhverfi. Það er bjargföst skoðun mín að nauðsynlegt sé að bera meira traust til einstaklingsins en gert er í dag. Lofa honum að fást við ýmis verkefni, sem nú eru í höndum opinberra aðila og þá einkum að ríkisvaldið verði að skila verkefnum, sem það hefur af einhverjum ástæðum dregið til sín, aftur til einstaklinga og byggðarlaga. Hinn almenni kjós- MS MS MS 2W sw MS M2 (ÍÁ£\ AUGLÝSINGA- TEIKNISTOFA MYIMDAMOTA Ad.ilstraiti 6 simi 25810 dýrmætari eða getur skapað meiri velferð og hamingju en sú, sem í manninum sjálfum býr. Þar er sú uppspretta, sem getur mótað betra og fegurra líf. Hornsteinar hvers þjóðfélags, hvers byggðarlags eru einstakl- ingarnir og heimilin. Bresti þeir hornsteinar glatast hamingjan og ýmiss konar óáran heldur innreið sína. Þetta þurfa þeir að skilja, sem leita eftir fylgi fólks við kosningar. Hreinskilni, velvilji og réttsýni eru þeir eiginleikar, sem í heiðri þarf að hafa. Það er undirstaða þess að finna farsæla lausn mála. Verði hægt að leysa hvert viðfangsefni á sínum stað og af fólki sem persónulega þekkir til verða öll mál einfaldari í lausn og þær flækjur, sem fylgja miðstýr- ingunni í þjóðfélaginu, hverfa. Eg vona að Hafnfirðingar haldi ávallt vöku sinni og verji og berjist fyrir auknu sjálfstæði byggðarlags síns og að þeir fulltrúar, sem veljast til þess að fara með stjórn bæjarmálefna næsta kjörtímabil, séu einarðir, hreinskilnir og dug- miklir, virði einstaklinginn og heimilin, vinni með fólki ungu og öldnu og hafi þá yfirsýn að geta litiö til allra átta því verkefnin eru ærin. Umfram allt vona ég að bæjarbúum takist að lifa í sátt og samlyndi hamingjusömu lífi. Páll V. Daníelsson. Japanskur gædingur Um þessar mundir baða milli 70—80 aldraðir Reykvíkingar sig í sólinni i Majorca. Fóru beir héðan fimmtudaginn 6. apríl á vegum félagsmálastofnunar borgarinnar og verða í prjár vikur. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðaskrifstofuna Úrval, sem sér fólkinu fyrir ágætum samastað og skipulagöi dvölina ytra. — Myndirnar eru teknar viö brottförina frá Keflavíkurflugvelli. Mátti par sjá mörg broshýr andlit. — Ijósm.: Heimir Stígsson. DAIHATSU iit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.