Morgunblaðið - 13.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
47
LEIKA AFRAM I
V-ÞÝZKALANDI
ALLAR LÍKIJR eru á því að íslenzku handknattleiksmennirnir, sem leika í V-Þýzkalandi
endurnýi samninga sína við félög sín og leiki með þeim áfram næsta keppnistímabil að
minnsta kosti. Þá berast þær fréttir frá Svíþjóð, að sænsku meistararnir Drott, hafi gert
Ágústi Svavarssyni gott tilboð um að leika áfram með liðinu, en Ólafur Benediktsson
mun hins vegar vera á heimleið. Hann liggur nú á sjúkrahúsi eftir að hafa slitið hásin
leik með Olympia á sunnudaginn.
Ólafur H. Jónsson — áfram hjá
Dankersen.
1
Ólafur H. Jónsson sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær,
að hann myndi leika áfram með
Dankersen næsta árið og Axel
Axelsson væntanlega líka. Einar
Magnússon hefur framlengt
samning sinn við Hannover og
samkvæmt honum verður Einar
hjá liðinu næstu tvö árin. Óljóst
er hvort Gunnar Einarsson
verður áfram hjá Göppingen eða
skiptir um félag, en allar líkur
eru á að hann verði áfram ytra.
Keppnistímabilinu í hand-
knattleiknum í Vestur-Þýzka-
landi lýkur ekki fyrr en um
miðjan júnímánuð þar sem
bikarkeppnin hefst ekki fyrr en
deildakeppninni er lokið. Um
síðustu helgi vann Dankersen
nauman sigur á Cerchslag, 24:23.
Axel Axelsson gerði 6 mörk í
leiknum, Ólafur 4. Göppingen og
Hannover töpuðu bæði sínum
leikjum og er Hannover fallið, en
staða Göppingens er frekar
slæm. Einar lék ekki með
Hannover um síðustu helgi
vegna meiðsla.
Eins og fram hefur komið
ætlar Ólafur Benediktsson að
hætta að leika með Olympia í
vor og kemur því að öllum
líkindum heim. Drott hefur hins
vegar gert Ágústi tilboð og er
það mjög freistandi, eins og
Ágúst orðaði það í spjalli við
Mbl. í gær. Þá hefur hann fengið
tílboð frá fleiri félögum og eru
þau einnig í athugun. Þá eru þeir
Viðar Símonarson og Hörður
Harðarson að hugsá um að koma
heim, en Hilmar Björnsson
íhugar tilboð, sem honum hafa
borizt. Þeir Viðar og Hörður
léku með Hammarby í 2. deild-
inni sænsku í vetur og Hilmar
þjálfaði liðið. Árangurinn varð
frekar slakur, enda íslending-
arnir einu leikmenn liðsins, sem
eitthvað kunna fyrir sér í
handknattleiknum, að því er
kunnugir segja.
- þr
Einar Magnússon — tveggja
ára samningur við Hannover.
í KSÍ óskar
! landsleikja
1 viö Bermúda
' Knattspyrnusambandið
I skrifaði fyrir nokkru til
| Bermúda og fór fram á tvo
landsleiki milli íslands og
I Bcrmúda. Var hugmynd for
| ystumanna KSÍ, að
■ Bermúdamenn léku hér á landi
í vor, en leikurinn ytra færi
| síðan fram í haust eða á næsta
I ári. Enn þá hefur ekki borizt
svar að utan og dvina vonirnar
um að þessir gestir komi
| hingað í ár. ísland lék fyrst
| gegn Bermúda hér á landi 1964
og vann íslenzka liðið 4i3.1969
I léku liðin að nýju saman í
| Reykjavík og úrslit þá urðu 2.1
. fyrir iandann. í nóvember
' sama ár var síðan leikið á
| Bermúda og unnu gestgjafarn-
| ir þá 4.2.
I ---~~---
| BJARNI
Felixson
formaður
! fréttamanna
BJARNI Felixson. íþrótta-
I fréttamaður Sjónvarpsins, var
| nýlega kjiirinn formaður Sam-
taka íþróttafreltamanna. Tek-
ur Bjarni við þcim starfa af
| Steinari J. Lúðvíkssyni. Með
I Bjarna í stjórn eru þeir Sig-
mundur 0. Steinarsson á
I Tímanum og Ágúst I. Jónsson
| á Morgunhlaðinu. í varastjórn
. Hallur Ilallsson á Dagblaðinu
I og Steinar J. Lúðvíksson, rit-
| stjóri íþróttablaðsins.
GLÆSILEGT
HEIMSMET í
5 KLÓMETHJM
Kenýumaðurinn Henry Rono
setti nýtt heimsmct í 5 km
hlaupi í háskólakeppni í Kali-
fornfu á laugardag. Hljóp hann
vegalengdina á 13.08,4 sem er
ótrúlegur tfmi. Gamla heims-
metið átti Nýsjálendingurinn
Dick Quax og var það 13.12,9.
Rono vann yfirburðasigur í
hlaupinu, síðustu 400 metrana
hljóp hann á 59,6 sek. Henry
Rono stundar nám við háskóla
í Washington-fylki í Bandarfkj-
unum, og hefur hann náð góðum
árangri að undanförnu, setti
hann t.d. nýlega háskólamet í 3
km hlaupi 7.41,9.
Öruggur sigur
ur meistara
HIÐ árlega tvíliðaleiksmót KR
í borðtennis fór fyrir nokkru
fram í KR-heimilinu. Röð efstu
manna varð sú sama og á
íslandsmótinu á dögunum.
KR-ingarnir ungu, Tómas Guð-
jónsson og Hjálmtýr Hafsteins-
son. unnu örugglega. en í
úrslitum mættu þeir Gunnari
Finnbjörnssyni og Ragnari
Ragnarssyni, Erninum. í
þriðja sæti urðu Stcfán Kon-
ráðsson, Gerplu, og Hjálmar
Aðalsteinsson, KR.
Sumardagsmót
í badminton
SUMARDÁGSMÓT TBR í
badminton verður haldið í húsi
félagsins fimmtudaginn 20. I
apríl og hefst klukkan 14. |
Keppt verður í einliðaleik í 4 ,
flokkum pilta og stúlkna 1
fæddra 1960 og síðar. Þátttöku- |
tilkynningum skal skilað til i
TBR fyrir 15. aprfl n.k. j
Tveír sigrar j
hjá Herfölge i
IIERFLÖGE - lið Atla Þórs I
Iléðinssonar — byrjar vel í 3. |
deildinni í Danmörku og hefur
unníð sigur f báðum leikjum '
sínum í deildinni til þessa. Um |
síðustu helgi lék liðið á útivclli .
gegn Skamby og vann 3.0. Atli I
Þúr gcrði eitt marka liðsins. |
Ahorfendur að leikjunum í 3. .
deildinni eru yfirleitt á bilinu I
3—500 og aukningin hefur orðið j
minni en búist var við þegar
atvinnuknattspyrnan var tekin I
upp f Danmörku. Eitt lið f þriðju |
deildinni þarf þó ekki að kvarta.
Holsterhro hefur fengið Bobby I
Moore til liðs við sig og 1000 |
manns fylgdust með leik liðsins
um sfðustu helgi. Það dugði þó I
ekki til að fá þcnnan fræga |
kappa í vörnina, Holsterbro og
108 landsleikjamaðurinn Bobby I
Moore töpuðu 0.1. i
fslandsmót |
og dómara- i
námskeið •
í fimleikum
ÍSLANDSMÓTIÐ t fimleikum
átti að fara fram dagana
18.—19. marz síðastliðinn, en |
vegna ófyrirsjáanlegra ann- ,
marka á þessum keppnisdögum
var mótinu frestað á sfnum |
tíma. Verður það í staðinn i
haldið 6. og 7. maí n.k. í
íþróttahúsi Kennaraháskólans I
og hefst keppnin klukkan 15 |
báða dagana. Þátttökutilkynn-
ingar berist til stjórnar FSÍ í
sfðsta lagi 24. aprfl n.k. |
Dagana 1.—7. maí verður
haldið dómaranámskeið á veg-
um FSÍ. Tveir norskir kennar I
ar koma hingað til lands og |
kenna á námskeiðinu. sem fer
fram í fþróttahúsi Kennarahá-
skólans. Kennt verður sam- |
kvæmt keppnisreglum Alþjóða ,
fimleikasambandsins (FIG).
Dómarar þurfa að staðfesta |
þátttöku sína til stjórnar FSÍ
eða Fimlcikadómarafélagsins
fyrir 23. aprfl n.k. I
AUGLÝSING
Adidas fréttir
Ný tegund af ADIDAS skóm —
„World Cup 78”
ADIDAS hefur enn einu
sinni komið á óvart. Nú með
nýja tegund af knattspyrnu-
skóm (sjá mynd). Skótegund
þessi „World Cup ‘78“ er
búin að vera lengi í smíðum
hjá sjálfum snillingnum Adi
Dassler, stofnanda og eig-
anda Adidas verksmiðjanna.
Skór þessir hafa gengið
undir ótrúlegustu prófraunir
á fótum margra þekktustu
knattspyrnumanna heims.
Einkunnin sem skórnir fá>
FRÁBÆRIR SKÓR.
Mestur tími fer í hlaup.
Nákvæmir útreikningar
sanna að jafnvel afburða
knattspyrnumenn á borð við
Beckenbauer hcfa knöttinn
ekki nema fáeinar mínútur í
hverjum leik. Mestan tímann,
eða ca. 90%, eru þeir á
hlaupum án boltans.
Með því að hanna þessa nýju
Adidas skó og nota ný efni í
þá, hefur tekist að gera skóna
léttari, mýkri og sveigjanlegri
en aðra skó, nánast sem
spretthlauparaskó. Léttleiki
hins nýja gervi-efnis í sóla
ásamt hinu sérlega létta
yfirleðri gera þessa nýju skó
„World Cup ‘78“ (apeins 240
grömm) 20% léttari en eldri
tegundir.
Og það sem meira er. Yfir-
leðrið er íborið (impre'gner-
að), þannig að raki og aur-
leðja, sem nóg verður af í
Argentínu, — og þyngir skóna
um helming — mun ekki ná
að þyngja Adidas World Cup
skóna, heldur mun efnið í
þeim hrinda frá sér og því
halda sér í 240 gramma
þyngdinni, hvernig sem
ástand vallanna verður.
ADIDAS „world Cup ‘78“
skórnir eru því taldir vera
algjör bylting á sínu sviði.
Frá Björgvin Schram umboösmanni Adidas.1