Morgunblaðið - 26.08.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.08.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1978 3 Antony Bianchi í Cap 10 listflugvélinni á Reykjavíkurflugvelli í gær, en vélin er keypt fyrir nokkru til landsins. Hjá honum stendur Magnús Norðdahl flugmaður. Hin myndin sýnir Bianchi í listflugi erlendis á Cap-vél. Flugdagurinn í dag: Flýgur á hvolfi 1 15mhæð Á MEÐAN brezki listflugmaðurinn Antony Bianchi æfði sig í gær fyrir Flugdaginn á Reykjavíkurflugvelli urðu þrír bílárekstrar á Miklubrautinni svo það er vissara fyrir menn að vera klára á þeirri leið þegar Bianchi sýnir listir sínar á flugdeginum í dag, en hin fjölþætta dagskrá hans hefst kl. 13 svo fremi sem veður leyfir. Morgunblaðið ræddi við Bianchi í gær, en hann er einn kunnasti listflugmaður Evrópu og aðalstarf hans er listflug. Hann sýnir oft á Spitfire, en einnig á minni vélum eins og Slim, Cap og Pitts special. Tony kvaðst ætla að sýna yfir Reykjavíkurflugvelli allar helztu kúnstir sem hægt er að sýna í listflugi og verður hann með um 20 mínútna sýningar flug. Hann mun m.a. sýna kútveltur, bakfallslykkjur til allra átta og skiptir þá engu hvort vélinni er flogið á hvolfi eða uppréttri. Hann mun hefja kúnstir sínar í 1000 m hæð en sýningaratriðin næst jörðu verða í 3—5 metra hæð og í 15 metra hæð mun hann fljúga vélinni á hvolfi ef veður verður hagstætt. Alls munu 50—60 flugvélar taka þátt í dagskrá flugdagsins í dag, bæði innlendar vélar og erlendar eins og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu en meðal véla sem taka þátt í flugi á sýningunni og verða til sýnis eru þessar vélar: Douglas C-47 Dakota frá Danska Flughernum, Lockheed P-3B frá Norska Flughernum, Lockheed P-3C frá Bandaríska Flotanum, Sikorsky HH-3E frá Bandaríska Flughernum, Fokker F-27 Friendship frá Flugfélagi íslands, Fokker F-27 Friendship frá Landhelgisgæzlunni, Douglas C-118B (DC-6B) frá Bandaríska Flotanum, Hughes 500 þyrla frá Landhelgisgæzlunni, Transall C-160 frá Vestur-þýzka flughernum. Mikil eftirspum eft- ir skreið á Italíu FuUtrúi Verzlunarráds í Verdlagsnefnd: Frekari skýringar vantar í greinargerð verðlagsstjóra í FRAMHALDI af þeim umræð- um sem orðið hafa um greinar- gerð verðlagsstjóra um niðurstöð- ur norrænnar könnunar á inn- kaupsverði á vörum til Norður- landanna. hafði Mbl. samband við Árna Árnason, fulltrúa Verzlunarráðs íslands í Verðlags- nefnd. „Greinargerð verðlagsstjóra var lögð fram undir lok fundarins þar sem hún var kynnt og var aðeins lítillega fjallað um hana á þeim fundi. Ég fór fram á það á fundinum að verðlagsnefnd yrði gefið tækifæri til þess að athuga þessa könnun frekar, en verðlags- stjóri taldi það ekki geta beðið að gera efni hénnar opinbert. Þannig að greinargerðin var ekki rædd að neinu marki í nefndinni" sagði Árni er hann var spurður um umfjöllun könnunarinnar í verð- lagsnefnd. Aðspurður um hvaða vöruflokk- ar það væru sem þessi könnun tæki helst til, sagði Árni að hann hefði ekki frekari vitneskju um það er frá greindi í greinargerð verðlagsstjóra, sem birzt hefði í fjölmiðlum. Þannig að það lægi ekki fyrir hvort um 31 vörutegund væri að ræða eða 39. „Að mínu mati skortir töluvert á frekari skýringar á þessari könnun, en eins og greinargerðin er lögð fram er mörgum spurning- um enn ósvarað. Myndselulbandstæki framtíóarinnar til afgreióslu i dag! SAMANBURÐUR Á MYNDSEGULBANDI FRÁ NORDMENDE OG PHILIPS (birtur af hinu virta riti HIGH FIDELITY MARZ 1978) Video Home System (YHS) VCR Philips Bandbreidd: V2 tomma '/2 tomma sýningartími hverrar spólu lengst: 4 klst. 2 klst. 10 mín. (240 mín.) (130 mín.) Spilhraði er: 0.66 (fertommur á sek.) 2.8 fertommur á sek. Notar Notar 20.1 fertommur/mín 84.0 fertommur/mín. af bandi. MIKIL eftirspurn er nú eftir góðri skreið frá Ítalíu, en samkvæmt því sem Bragi Eiríksson for- stjóri Samlags skreiðar- framleiðenda tjáði Morgunblaðinu í gær, þá er nú mjög lítil skreið til í landinu fyrir þann mark- að. Ástæðuna fyrir þessari miklu eftirspurn eftir skreið á ítahu, er að sú skreið sem Norðmenn hengdu upp fyrir þennan markað á þessu ári, er ekki talin nægilega góð. Samkvæmt því sem Morgun- blaðið hefur fregnað, var sama og ekkert hengt upp af skreið fyrir Ítalíumarkað í vetur, þar sem bankarnir lánuðu ekki út þá skreið fyrr en í maí, en þá var vertíðin svo til búin. Bragi Eiríksson sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann, að hærra verð fengist fyrir skreiðina á Ítalíu nú en í fyrra og alltaf væri opinn markaður á Italíu fyrir vissa tegund af skreið. Þá sagði Bragi að ljóst væri að lítið yrði til af skreið á íslandi um áramót. Hvalvíl^ hefði nú losað 17 þús. pakka í Lagos í Nígeríu og væri komin til Port Harcourt til að losa 22 þús. pakka. Þá væri Eldvík komin að nígerískri lögsögu með fullfermi og síðan kæmi Hvalvík heim á ný og tæki fullfermi. Síðasta Nígeríuskreiðin færi síðan til Nígeríu í október. I Nígeríu er nú mjög góður markaður fyrir þurrkaða þorsk- hausa og hafa þegar verið sendir úr landi þ.e. á þessu ári, mörg þúsund pakkar. Verö á spólum (22/8 ’78) E-30: 8.980,- (30 mín.). E-60: 10.950- (60 mín.). E-180: 19.960 - ( 3 klst.). E-240: væntanlegar (4 klst.). Verö á spólum (22/8 ’78) VCR-30: 26.086 - ( 30 mín.). VCR-90: 26.086- ( 90 mín.). VCR-120: 41.000- (120 mín.). Verö á tækjum (22/8 ’78) (22/8 ’78) Nordmende Philips 655.185- 731.892- og 831.922- Til staðfestingar höfum við hið virta rit „High Fidelity“ á staðnum. Berið saman! Er ekki auðséð að Þetta er stórkostleg bylting? Skipholti 19 Sími 29800 27 ár í fararbroddi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.