Morgunblaðið - 26.08.1978, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1978
Hveragerði
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaöiö í
Hverageröi.
Upplýsingar hjá umboösmanni í síma 4114
og afgreiöslunni í Reykjavík í síma 10100.
Verkamenn
Stundvísir og vandvirkir verkamenn óskast
nú þegar. Mikil vinna í vetur og gott kaup
fyrir duglega menn.
Tilboö ásamt nafni, síma og heimilisfangi
merkt: „Innivinna — 3898“ sendist Morgun-
blaöinu eigi síöar en 29. ágúst.
Utkeyrslu —
lagerstörf
Okkur vantar áreiöanlegan og reglusaman
mann til útkeyrslu og lagerstarfa. Þarf aö
hafa bíl til umráöa. Umsóknir sendist
Morgunblaöinu merkt: „0 — 7714“.
Ólafsvík
Umboðsmaður
óskast
til aö annast dreifingu og innheimtu fyrir
Morgunblaöiö í Olafsvfk.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 6269
og afgreiöslunni í Reykjavík, sími 10100.
Blaðburðarfólk
óskast
í Garöabæ
Lindarflöt — Hagaflöt — Garöaflöt —
Markarflöt og Sunnuflöt. Upplýsingar í síma
44146.
Kennara vantar
viö grunnskólann í Þykkvabæ. Upplýsingar
gefur Friörik Magnússon í síma 99-5650
eöa 99-5656.
Skólanefndin.
Gjaldkeri
Bifreiöaumboö óskar aö ráöa traustan og
góöan starfskraft meö reynslu til gjaldkera-
starfa. Góö laun í boöi. Tilboö sendist
Morgunblaöinu merkt: „Z — 7712“.
Línumenn
vanir stauravinnu óskast til starfa viö
byggingu háspennulínu. Uppl. í síma
94-3099.
Orkubú Vestfjaröa,
ísafiröi.
Viljum ráða
stúlku til léttra skrifstofustarfa og sendi-
feröa. Vélritunarkunnátta æskileg.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Laugavegi 164.
Sjúkrahús
Siglufjarðar
Hjúkrunarfræöingar óskast aö sjúkrahúsi
Siglufjaröar nú þegar eöa eftir nánara
samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-71166 og 96-71502 (heima).
Bókaútgáfa í
Reykjavík
vill ráöa starfskraft á skrifstofu frá og meö
1. október n.k. Hálfsdags starf kemur til
greina. Aöalverksviö er sölumennska og
dreifing, auk annarra tilfallandi starfa svo
sem prófarkalesturs. Laun samkvæmt
samkomulagi. Uppl. um fyrri störf sendist
blaöinu merkt: „Bókaútgáfa — 3565“.
Afgreiðslustarf
Viö óskum eftir aö ráöa duglega og
samviskusama stúlku til afgreiöslu í heimilis
og hljómtækjaverslun okkar. Vinnutími frá
1—6.
Tilboö sendist á afgreiöslu blaösins fyrir 31.
8. merkt: „D — 1832“.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A
Laus staða
Vantar nú þegar starfsmann til afgreiöslu-
starfa á skrifstofu byggingarfulltrúans f
Reykjavík. Vélritunarkunnátta nauösynleg.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist tii skrifstofu byggingarfulltrúa,
Skúlatúni 2.
Afgreiðslufólk
Vantar strax í ísbúö. Umsækjendur sendi
nöfn sín meö helstu upplýsingum til
auglýsingadeildar Mbl. fyrir 1. sept. merkt:
„ísbúö — 7724“.
Heimavinna
Konur vanar léreftasaum óskast. Tilboö
sendist Morgunblaðinu sem fyrst merkt:
„Heimasaumur — 7727“.
Kópavogsbúar
Starfsmenn óskast til framleiöslustarfa.
Uppl. hjá yfirverkstjóra mánudaginn 28. og
þriöjudaginn 29. ágúst frá kl. 1—3, uppl.
ekki veittar í síma.
Málning h.f.
Kársnesbraut 32, Kópavogi.
Mann vantar
til starfa á vörulager okkar í Garöabæ.
Sápugeröin Frigg
Lyngási 1
Garöabæ.
Skrifstofustúlka
óskast
hálfan daginn, fyrir hádegi, til léttra
skrifstofustarfa, sem fyrst.
Tilboö sendist Mbl. merkt: H—7734.
Borgarapótek.
Sölumaður
Fasteignasala óskar eftir aö ráöa reyndan
sölumann til starfa. Góöir tekjumöguleikar
og eignaraöild fyrir hæfan aöila.
Meö umsóknir veröur fariö sem algjört
trúnaðarmál. Umsóknir er greini menntun
og fyrri störf leggist inn á afgr. Mbl. fyrir
30. ágúst merkt: „Sölumaður — 7716.“
V arnarorð
til bókaþjófa
Morgunblaðið mun með réttu
kalla sjálft sig víðlesnasta blað
landsins. I lesendahópi þess munu
því fulltrúar allra stétta þjóð-
félagsins, og að sjálfsögðu reynir
blaðið að flytja efni og fréttir við
allra hæfi.
Á fimmtudaginn var mátti lesa
í blaðinu grein um bókaþjófnaði í
Konungsbókhlöðu í Kaupmanna-
höfn. Síðan var rætt við menn á
ýmsum söfnum hérlendis (sem
munu heita safnaaðilar á nútíma-
íslensku) og þeir spurðir um
ráðstafanir til að koma í veg fyrir
gripdeildir á vinnustöðum þeirra.
Meðal annars var rætt við
undirritaðan á „Handritastofnun"
(!) Árna Magnússonar. Réttilega
var eftir mér haft að hér í húsi
væri ekki þjófabjöllukerfi af neinu
tagi en hugur í mönnum að koma
því fyrir þegar næst yrði flóð í
buddu stofnunarinnar. I beinu
framhaldi af þessu og væntanlega
með hagsmuni þeirra lesenda í
huga sem leggja vilja stund á
bóka- og handritaþjófnað, kom'
síðan frétt á baksíðu blaðsins í
gær (föstudag) þess efnis að í
Árnagarði væri greiður aðgangur
að slíku góssi.
Hins vegar var þess að engu
getið í blaðinu, hvorki á fimmtu-
daginn né í gær, sem ég þó sagði
blaðamanninum, að hér er nætur-
vörður allar nætur og einnig
vörður að degi til um helgar.
Menningararfur þjóðarinnar
liggur því hvergi nærri svo á
glámbekk sem ætla mætti af lestri
Morgunblaðsins og hollara fyrir
bókelska menn og óheiðarlega að
sofa um nætur en að rölta suður
á Mela í von um auðtekinn feng.
En aldrei er of varlega farið og
vissulega ætti að vera hér þjófa-
bjöllukerfi tengt lögreglustöðinni
og eldvarnarkerfi tengt slökkvi-
stöðinni, því að í Árnagarði eru
geymd þau verðmæti sem íslensku
þjóðinni er betra að hafa en missa,
þótt að sjálfsögðu sé kostnaðar-
samt að varðveita þau.
Guðni Kolbeinsson
Stofnun Árna Magnússonar.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
JtíZl U'GLÝSINGA- siimiw rit-
22480