Morgunblaðið - 26.08.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.08.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1978 29 Frjáls lífeyris- sjóður Minnkandi sparn- aðartilhneiging FYRIR atbeina Fjárfestingaríé- lags íslands hefur verið settur á stofn lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem hefur það markmið að fullnægja þörf þess fólks sem enn stendur fyrir utan lífeyrissjóðakerfið og hefur áhuga á því að fá sem hæstan lífeyri en verði ekki bara þátttak- endur í nokkurs konar lánasam- vinnufélagi. Sigurður R. Helgason fram- kvæmdastjóri Fjárfestingar- félagsins, en það annast rekstur sjóðsins, var að því spurður hver væri helzti munurinn á ávöxtun t. d. spariskírteina og á því að leggja fé í Frjálsa lífeyrissjóðinn. Sé miðað við að viðkomandi greiði skatta miðað við hæsta þrep skattstigsins (40%) þá yrði ávöxtun fjárins miðað við sams konar fjárfestingu (spariskírteini) u. þ.b. 60% meiri hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum en í því tilviki að maðurinn festi féð á eigin vegum. í þessu sambandi má geta þess, að ákveðin áhættudreifing felst í því að leggja ekki allt sitt í eigin rekstur. Alltaf er sá möguleiki fyrir hendi að illa fari. Stofnun sjóðsins hefur verið mjög vel tekið, sagði Sigurður. Samkvæmt reglum sjóðsins geta allir einstaklingar er leggja stund á atvinnurekstur á eigin vegum eða í nafni annarra eða eru ekki lögskyldaðir til að vera í öðrum lífeyrissjóðum, orðið félagar í Frjálsa lífeyrissjóðnum. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjár- festingarfélags íslands, sími 83666. „Gjaldeyrissala bankanna, reiknuö á föstu gengi, var á fyrstu sex mánuðunum um 18% meiri en á sama tíma í fyrra. Sparnaðartilhneiging fer með öðrum orðum minnk- andi, en við þær aðstæður er afar mikilvægt að draga úr peningaframboði Seðlabank- ans og forðast þannig óhóf- lega aukningu innflutnings.“ Úr Hagtölum mánaðarins ág- úst 1978. Samræmt átak í nokkur ár Nú (á síðustu og verstu tímum) þegar öllu á að bjarga á fjórum mánuðum er ekki úr vegi að minna á orð sem rituð eru sem inngangsorð í ágústhefti Hagtalna mánaðarins en þar segir m.a. að það geti tekið jafnvel nokkur ár að ná verðbólgunni niður á það stig sem þekkist í nágrannalöndunum og for- senda þess að það gerist sé skipulegt og samræmt átak allra landsmanna. í inn- gangsorðunum segir m.a. „Að óbreyttum aðstæðum er því útlit fyrir að framfærslukostnaður verði að meðaltali allt að 45% hærri en í fyrra, og hækkun hans á hverjum ársfjórðungi er á þessu ári mun meiri en aðrar þjóðir teldu viðunandi á heilu ári. Margvíslegar ástæður liggja að baki þessari auknu verðbólgu og má þar nefna til mikla peninga- þenslu á fyrri hluta síðasta árs í kjölfar ört vaxandi útflutnings- tekna, óvenju miklar umsamdar launahækkanir á árinu 1977 ásamt fullri vísitölubindingu og nokk- urra mánaða hratt gengissig sem endaði með formlegri gengisfell- ingu í febrúar sl. Áhrif gengisfell- ingarinnar komu mjög skjótt fram í hækkuðu verðlagi innanlands og hækkaði vísitala framfærslu- kostnaðar um 11 xk % frá 1. febrúar til 1. maí og lítt eða ekki hefur dregið úr hraða verðbólgunnar því á þriggja mánaða tímabilinu til 1. ágúst eru horfur á að hann hafi verið jafnmikill og á þrem mánuð- um næst á undan. Sú staðreynd blasir því við að verðbólgan sem stríði hefur verið lýst gegn á hverju ári árum saman hefur reynst vera lævís óvinur sem erfitt hefur reynst að vinna bug á. Lækkun verðbólgunnar í áföngum niður á það stig sem hún er í nágrannalöndunum gæti tekið nokkur ár og sá árangur næst ekki nema með skipulögðu og sam- ræmdu átaki.“ A VIS AN ASKIPTI Ávisanaskipti Seðlabankans. Jan.-júni Júni 1974 1975 1976 1977 1977 1978 1977 1978 Ávísanaskipti, alls (m. kr.) . , . . 242.158 348.600 476.618 677.864 296.414 349.138 56.817 81.631 Mánaðameðaltal (m. kr.) . . . . 20.180 29.050 39.718 56.489 49.402 58.190 56.817 81.631 Fjölditékka(1000stk.) . . . . 6.403 • 7.115 7.997 7.538 3.538 3.274 626 717 Meðalupphseð tékka þús. kr.) , . . 37,8 49,0 59,6 89,9 83,8 106,6 90,8 113,9 Á meðfylgjandi töflu má sjá þróun helztu þátta varðandi ávísanaskipti Seðlabankans. Athyglisvert er að ávísanir eru færri 1977 en þær voru 1976, á sama tíma og meðal upphæð hverrar ávísunar hækkar um tæp 51%. Áfengi er víða skattlagt Áfengi er víð- ar skattlagt en á íslandi. I Dan- mörku kostar ein Whisky flaska 13 D.kr. í innkaupi til landsins en þeg- ar neytandinn borgar fyrir hana er verðið orðið 115 D.kr. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig verðið skiptist milli hinna einstöku aðila. 13,00 SÖLU- SKATTUR AÐRIR SKATTAR TIL INN- FLYTJ- ENDA 79,85 INNKAUPS- VERÐ 115,ookr Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum: VERÐTRYGGÐ RÍKISSJÓÐS: SPARISKÍRTEINI Yfirgengi miðaö Kaupgengi við innlausnarverö pr. kr. 100- Seölabankans 1967 5 flokkur 1968 1 flokkur 1968 2 flokkur 1969 1. flokkur 1970 1 flokkur 1970 2. flokkur 1971 1 flokkur 1972 1 flokkur 1972 2. flokkur 1973 1 flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. flokkur 1976 1 flokkur 1976 2 flokkur 1977 1 flokkur 1977 2, flokkur 1978 1. flokkur 2856.81 2488.03 2339.97 1742.88 1601.25 1166.96 1097.63 956.92 818.78 626.31 579.01 402.16 328.79 250.93 237.63 192.96 179.21 150.12 122.34 54.6% 36.8% 36.1% 36.0% 78.0% 35.8% 76.2% 35.7% 76.1% VEÐSKULDABRÉFX: Kaupgengi pr. kr. 100.- 1 ár Nafnvextir: 26% 79- 2 ár Nafnvextir: 26% 70,- 3 ár Nafnvextir: 26% 64- x) Miðað er viö auðseljaniega fasteign. HLUTABRÉF: Málning h'.f. Kauptilboð óskast. ÍNÍRKITinfiMtféM ÍAflftDl Hft VERÐBREFAMARKAÐUR Lækjargötu 12 —- R (iSnaðarbankahúsinu) Simi 2 05 80. OpiS frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.