Morgunblaðið - 26.08.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.08.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1978 HENNING CHRISTOPHERSEN FORMAÐUR VENSTRE Hefur tekizt að snúa flokknum um 180 gráður af fimi og sannfæringu Fæstir hefðu gert sér í hugarlund fyrir ári að Henn- ing Christophersen yrði sá leiðtogi Venstre sem annað- hvort leiddi flokkinn til stjórn- arsamstarfs við Jafnaðar- mannaflokkinn í fyrsta skipti f stjórnmálasögu Danmerkur, eliegar yrði til að leggja fram sinn skerf til að skeyta saman á ný samvinnu borgarflokk- anna. Um þessar mundir er liðið ár frá þvf að Poul Hartling, hinn gamalreyndi fyrrverandi formaður Venstre, boðaði hina sterku samfylk- ingu frjálslyndra borgara- flokka sem raunhæfa lausn fyrir framtfðina. Nú hefur flokkurinn undir forsjá hins nýja leiðtoga á fáeinum vikum kúvent gersamiega, eða eins og Danir orða það „tekið 180 gráðu snúning“ og einbeita sér nú heilshugar að því er virðist að Jafnaðarmönnum í stað borgaraflokkanna. Eftir um það bil mánuð héðan í frá heldur Venstre landsfund og þar mun Henning Christo- phersen óefað hljóta kjör án mótframboðs, en á hinn bóginn er hann að gangast undir hæfnisprófið nú um þessar mundir. Hvursu sem honum vegnar í því mun hann fá í hendur formennskuna, en hins vegar gæti vitnisburður sá sem hann hlýtur orðið á ýmsa lund. Ekki verður dregið í efa að Henning Christophersen hefur leitt flokk sinn eftir þeim brautum sem voldugur fyrir- rennari hans Hartling hefði lagt blessun yfir og reynt að fylgja sjálfur, vegna þess að með þessu hefur Venstre verið aflað eins mikilla áhrifa og mögulegt er. Mesta afrek Hartlings í Venstre var að koma á fót ríkisstjórn Venstre, sem er sjálfsagt sú minnsta minnihlutastjórn sem sett hefir verið á laggir og honum tókst að hafa hana starfhæfa. Samvinna við hina borgaraflokkana fór út um þúfur þennan tíma og það var einmitt það samband sem að nokkru hafði lukkast Poul Hartling að ráða bót á sl. haust með yfirlýsingunni um hið ofluga borgaralega samstarf. Hugmyndir þær sem Hemíing Christophersen hefur eru hinar sömu og fyrirrennara hans, en búizt er við að hann fari ef til vill ekki hina sömu leið að marki. Það ár sem Henning Christo- phersen hefur setið sem formað- ur hefur sýnt þetta. Mjög nauðsynleg kynslóðaskipti hafa orðið í forystu Venstre og því er eftirtektarvert hvaða leið hinn nýi forystumaður velur nú. Með kynslóðaskiptunum verður einn- ig breyting á því foringjafyrir- komulagi sem ríkt hefur í flokknum. Segja má að Poul Hartling hafi nánast verið einráður — eða að minnsta kosti réð hann því sem hann vildi ráða — innan flokksins á stjórnmálaferli sínum. Þegar Henning Christopher- sen tók við formannsstöðunni á Henning Christophersson. eftir Hartling urðu margir til að spá því að mótframboð kæmi síðan gegn honum á landsfund- inum. Sumir hafa litið á hann sem nákvæma eftirlíkingu af Hartling og ýmsum þótti það ljóður á ráði hans að hann taldist til hinna svokölluðu menntamanna. Hann varð stú- dent úr fornmáladeild og verk- fræðingur árið 1965. Leið hans til stjórnmála og umfram allt þeirrar áhrifastöðu sem hann er nú kominn í hefur 'verið fyrst og fremst fyrir tilstilli og stuðning ungra flokksmanna og hann hefur þótt laginn að laða að sér ýmsa snjalla skipuleggjendur með góða menntun, stjórnunarhæfi- -leika og lipurt og sannfærandi tungutak, en gætt þess í hví- vetna að taka fyllsta tillit til „gömlu mannanna" í flokknum. Hann náði skjótum frama innan flokksins því að hann hafði aðeins setið eitt ár í þinginu þegar hann var kosinn varafor- maður Venstre árið 1972. Síðan var eðlilegt framhald að hann tæki við þegar Hartling dró sig í hlé og síðan hefur hann að flestra dómi unnið svo drjúgt starf innan flokksins að hann nýtur þar nú fyllsta stuðnings og trúnaðar. Einu aðilarnir innan flokksins sem hafa sýnt lit á andstöðu við Christopher- sen voru „uppreisnaröfl á Kaup- mannahafnarsvæðinu sem ósk- uðu eftir því að Niels Anker Kofoed, fyrrverandi fiskimála- ráðherra, tæki við, en það fékk veikan hljómgrunn. Henning Christophersen tók við arfleifðinni um sterka borg- aralega einingu frá fyrirrennara sínum. Það er ekki lítil kúnst að hafa tekið þennan 180 gráðu snúning af þeirri fimi og sann- færingu sem hann hefur gert, svo að öll sólarmerki benda nú til samsteypustjórnar Venstre og Jafnaðarmannaflokksins. Eitt verka Gabor Attali, sem verður á sýningu á verkum hans í Galleri Suðurgötu 7, sem opnuð verður á laugardaginn. Gallerí Suðurgata 7: Sýning á verkum ungverska listamannsins Gabor Attlai NÆST komandi laugardag, 26. ágúst, verður opnuð í Galleri Suðurgötu 7 sýning á verkum ungverska listamannsins Gabor Attalai. Gabor er einn þeirra listamanna sem eru að brjótast undan ofurvaldi hinnar opinberu Iistastefnu í landi sínu, að því er segir í fréttatilkynningu frá Gallerfinu, og verður hann að teijast einn af leiðandi mönnum neiðanjarðar listahreyfiiigar- innar í Austantjaldslöndunum. Gabor Attali er fæddur í Buda- pest 1934 og nam við listaháskól- ann í Budapest á árunum 1953—‘58. Hann hefur haldið fjölmargar listsýningar um gjör- valla Evrópu og hans hefur verið getið í fjölda erlendra listtímarita. Hér á landi hefur hann sýnt tvívegis áður, í Gallerí Súm. Gabor Attalai hefur gefið út tímaritin „Time“ og „Future“. Heiti sýningarinnar Gallerí Suðurgötu 7 er: „Red-y and post red-y mades", en síðast liðin ár hefur Gabor unnið að einu gríðar- stóru samhangandi verki út frá nokkurs konar „terna". Hann hefur haldið þrjár sýningar hliðstæðar þessari í Póllandi, Hollandi og nú síðast í heimalandi sínu eftir talsvert þref, en þess má geta að um það bil 10.000 manns kolnu að sjá þá sýningu. Á sýningunni í Gallerí Suðurgötu 7 notar Gabor innviði Gallerísins sem hluta af verkinu, en sýningin hefur borist DAGANA 28. ágúst til 1. september n.k. verður haldið þing Norræna bankamannasambands- ins, NBU, á Islandi. Þingið fer með æðstu völd í málefnum NBU og verða þingfulltrúar um 70 frá öllum Norðurlöndunum. Fyrir utan venjuleg þingstörf verða ýmsir málaflokkar teknir til meðferðar. Má þar nefna aðbúnað starfsmanna og hollustuhætti á vinnustað, starfsuinhverfi o.fl. og þróun tölvutækni í bönkum. Tölvu- notkun í bönkum hefur verið mikið hingað með póstsendingum, því listamaðurinn hefur ekki tækifæri til að ferðast frá heimalandi sínu.. Sýningin er opin daglega frá 4—10 og 2—10 um helgar. Verkin eru til sölu. Hún stendur frá 26. ágúst til 10. september. til umræðu hjá samtökum banka- manna á hinum Norðurlöndunum, ekki sízt með tilliti til ýmissa vandamála sem upp hafa komið gagnvart starfsmönnum, bæði menntunarlegs- og félagslegs eðlis. Af hálfu Sambands íslenzkra bankamanna sitja þingið sex fulltrúar. Þingsetning verður mánudaginn 28. ágúst kl. 9.00 á Hótel Loftleiðum. (Fréttatilkynning) Norrænir bankamenn þinga á íslandi Um 100 björgun- arsveitarmenn á landssamœfingu • Landssamæfing slysavarna- tímis sýndu piltar úr björgunar- félaga og björgunarsveita' var sveit Súgandafjarðar meðferð haldin að Núpi í Dýrafirði gúmbáta og fleira. Einnig var dagana 28.—30. júlí s.l. sýnd ný gerð línubyssu og ýmis Mótið var sett að morgni hjálpargögn fyrir björgunar- laugardagsins 29. júlí og hófst sveitarmenn, t.d. neyðarblys og dagskrá með því að mönnum var ýmsir sjúkrabúnaður, sem björg- raðað niður í 4 hópa. Þessum unarsveitin í Hnífsdal sá um. hópum var síðan veitt leiðsögn í Mótinu var síðan slitið klukkan eftirfarandi atriðum: í skyndi- 11.00 árdegis. hjálp, leiðbeinandi var Snorri Mótsdagana var veður hlýtt og Hermannsson frá ísafirði; í hæglátt og það eina sem angraði meðferð áttavita undir leiðsögn mótsgesti voru’ nokkrar gróðra- Daða Ingimundarsonar frá skúrir, er féllu síðari hluta Patreksfirði, auk þess sem laugardags og á sunnudagsmorg- Erlingur Thoroddsen og björgun- un, segir í fréttatilkynningu frá arsveit Ingólfs í Reykjavík leið- mótinu. Á föstudeginum 28. júlí beindu í klettaklifi og sigi. mættu á staðinn björgunarsveit- Síðari hluta dagsins fengu armenn frá Vesturlandi, Vest- mótsgestir að fylgjast með því fjörðum og Norðurlandi ásamt þegar sigið var niður 30 metra fjölskyldum sínum í vel búnum háan hamravegg eftir slösuðum bifreiðum Slysavarnafélaganna. manni og hann hífður upp á Um lánætti höfðu skráð sig í börum. Um kvöldið höfðu gestabók um 180 manns, en alls kvennadeildirnar kvöldvöku fyrir urðu mótsgestir 228, þar af voru mótsgesti. um 100 björgunarsveitarmenn. Sunnudagsmorguninn 30. júlí Mótsstjórar voru Sigurður V. hófst dagskrá kl. 8.30 á því að Bernódusson frá Bolungarvík og björgunarsveitin Skutull frá ísa- Daði V. Ingimundarson, Patreks- firði sá um fluglínuæfingu. Sam- firði. Frá lands- samæfingu slysavarna- félaga og björgunar- sveita. Leið- beint var í bjargsigi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.