Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands. j lausasölu 100 kr. eintakíö. Siðleysi í skattaálögum Menn gerðu sér ekki háar hugmyndir fyrirfram um úrræði nýrrar vinstri stjórnar í efnahagsmálum. Allur aðdragandinn var þannig, að menn gátu búizt við því, að dýpra væri seilzt ofan í vasa skattborgaranna en áður. Þannig var fjálglega talað um fjármagnsflutninga í þjóðfélaginu eins og það væri sjálfsagður hlutur að ný ríkisstjórn hefði um það frjálsar hendur að taka fé frá einum og gefa öðrum. Og nú er komið í ljós, að frá öllum er tekið en minna gefið. Að einu leyti hefur ríkis- stjórninni tekizt að ganga svo fram af mönnum að með eindæmum er. En það er með því að setja um það bráða- birgðalög, að verulegur tekju- skattur skuli að nýju lagður á mikinn hluta tekjuskatts- greiðenda mörgum vikum eftir að álagningu skatta er lokið og kærufrestur útrunn- inn. Nú er svo komið, að tekjuskattar og skyldu- sparnaður nema allt að 70% á einstaklinga. Reynslan hefur sýnt, að skattskráin er síður en svo einhlítur mælikvarði á ráð- stöfunartekjur manna. Otrú- lega mikill fjöldi hefur að- stöðu til þess að fela tekjur sínar ýmis með því að fara í kringum skattalögin eða beinlínis að svíkja undan skatti. Hinn nýi tekjuskatts- viðauki nær ekki til þessa fólks. Hér er því enn verið að auka á ójöfnuð og misrétti í þjóðfélaginu í skattalegu tilliti. En með því er ekki öll sagan sögð. Sterk, lögfræði- leg rök hníga að því að hin nýja skattlagning brjóti í bága við ákvæði stjórnar- skrárinnar. Þannig hefur einn af varadómendum Hæstaréttar, Jónatan Þór- mundsson, prófessor, dregið það í efa í sjónvarpsviðtali að hin nýju skattalög yrðu staðfest fyrir dómi, ef skatt- greiðendur leituðu réttar síns fyrir dómstólunum. En það er líka önnur hlið á þessu máli, sem snýr að almenningsheill og góðu sið- ferði. Hér hefur það verið svo, að menn greiða opinber gjöld af tekjum sínum eftir á. Þeir verða því að miða sínar fjárskuldbindingar við það, að þeir geti staðið í skilum miðað við gildandi skattalög á hverjum tíma. Erlendis eins og í Noregi eru ákvæði í stjórnarskránni, sem vernda skattborgarann fyrir afturvirkni í skattalögum. Hér á landi hafa menn orðið að una slíku, en þó með þeirri mikilsverðu takmörkun, að miðað hefur verið við, að álagning opinberra gjalda hafi ekki farið fram. Það er enginn vafi á því, að hinar nýju skattaálögur verða mörgum ofviða og valda því að þeir geta ekki staðið í skilum. Þetta á ekki hvað sízt við um ungt fólk, sem er að hefja búskap eða þá, sem eru að ráðast í það þrekvirki að eignast þak yfir höfuðið. Slíkt fólk leggur á sig mikla vinnu og hefur þar af leið- andi miklar tekjur, sem hefur þó öllum verið ráðstafað. Nú á að refsa þessu fólki fyrir dugnað þess og sjálfsbjargar- viðleitni, fyrir það að það skuli vilja vera sjálfu sér nógt eins og hver frjáls maður þráir. Þegar stjórn- völd koma fram með þessum hætti heitir það á máli almennings siðleysi og vald- níðsla. í þessu sambandi er það lærdómsríkt fyrir kjósendur Alþýðuflokksins að minnast þess, að þingmenn hans hafa á hinum síðustu þingum lagt fram hvert frumvarpið á fætur öðru um stórlækkun eða algjöra niðurfellingu tekjuskatts. Þessi frumvörp hafa verið rökstudd með því að benda á, að stighækkandi tekjuskattur hafi óhjá- kvæmilega í för með sér misrétti milli þegnanna. Nú er þetta baráttumál gleymt, horfið í hít svikinna kosn- ingaloforða og fagurra fyrir- heita. Það hefur jafnan verið svo í tíð allra stjórna, að þær hafa ekki fyrr setzt að völdum en einstaklingurinn finnur að sér vegið. Með margs konar hætti eru at- höfnum hans settar þrengri skorður en áður, skattaálögur eru auknar og endalausar fjármagnstilfærslur í þjóð- félaginu skapa glundroða og öngþveiti í efnahagsmálum, þannig að enginn veit lengur, hvað hlutirnir kosta né hvaða fé hann hefur handa á milli. Ríkisstjórn Olafs Jóhannes- sonar er hér engin undan- tekning og með hliðsjón af því, sem hún hefur þegar gert, má búast við, að hér skapist mikið óvissuástand og öryggisleysi í efnahags- og atvinnumálum. H Ivai i seg ja 1 laui íþec |ai r o g atvim lurel cend lur um t irái labii rgðalöj |in? Morgunblaðið hefur snúið sér til fulltrúa ýmissa samtaka launþega og atvinnurekstrarins og spurt þá álits á bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar. Svör þeirra sem Mbl. tókst að ná tali af í gær fara hér á eftir: „Aðalatriðið að halda kaupmættin- um, enekkiað fáfleiri og verðminni krónur,“ — segir Bjarni Jakobsson, formaður Iðju • „Þessi lög eru of yfirgripsmikil til þess að unnt sé að átta sig á áhrifum þeirra til fulls á þessu stigi,“ sagði Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks í samtali við Morgunbiaðið í gær, er hann var spurður álits á bráðabirgðalögunum nýju. Bjarni sagði ennfremur, að breyting vísitölunnar um áramót, ef af yrði, væri mál sem vel þyrfti að skoða, og yrði vandlega fylgst með því. Að lokum sagði Bjarni, að það hefði alltaf verið keppikefli og yfirlýst stefna hans samtaka, að halda kaupmættinum, en ekki væri enn ljóst hvort hann héldist með tilkomu þessara nýju laga. Það kæmi í ljós síðar. „En það er sem sagt okkar helsta keppikefli að halda kaupmættinum, en ekki að fá fleiri og verðminni krónur fyrir vinnuna," sagði Bjarni. Fyrirheit sem endast skammt — segir Guðmundur H. Garðarsson, formaður VR • Guðmundur II. Garðarsson, formað- ur Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur, kvaðst þeirrar skoðunar að aðgerð- ir ríkisstjórnarinnar nú væru óskap- legur blekkingavefur, þar sem fólki væru gefnar vonir um mikla vörulækk- un en Guðmundur kvaðst álíta, að eins og til þessa væri stofnað mundi það fyrirheit aðeins endast skammt og allur aimenningur og þjóðarheill standa verr að vígi en ella þegar lyki því tfmabili, sem aðgerðirnar ná til. Um einstök atriði í lögunum kvaðst hann vilja segja að þriðja greinin væri orðuð mjög tvírætt, en þar segði: „Frá 1. desember 1978 og þar til um annað hefur verið samið skulu grunnlaun og tilhögun verðbóta á laun haldast óbreytt, eins og ákveðið er frá 1. desember 1978 samkvæmt almennum kjarasamningum, sem gerðir voru á árinu 1977 og á fyrstu fimm mánuðum 1978 og samkvæmt lögum þessum." Guðmundur kvaðst hljóta að leggja þann skilning í greinina að í henni fælist að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu hætt við þá fyrirætlun að lögbinda kaup og í samræmi við það hlytu aðilar vinnumarkaðarins að haga sér, og þá sérstaklega sá hópur fólks, sem starfaði við verzlunar- og skrifstofustörf og ýmiss önnur þjónustustörf, er dregizt hefði aftur úr í kjörum miðað við það er tíðkaðist í sambærilegum störfum hjá hinu opinbera. Þessi hópur hlyti nú að leita réttar síns. Guðmundur var spurður álits á heildarstefnunni í bráðabirgðalögunum. Guðmundur kvaðst telja, að heildar- stefnan í lögunum hefði mjög skaðleg áhrif á alla atvinnustarfsemi í landinu og sérstaklega væri hún neikvæð fyrir þann hóp fólks, sem með mikilli vinnu legði mikið fram til þjóðarbúsins og hefði tekjur í samræmi við það. Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar varðandi launamál stefndu að því að draga úr og drepa niður athafnahvöt manna. Lækkun álagningar í heildsölu óraunhæf — segir Jón Magnússon, formaður Félags ísl. stórkaupmanna • „Ég tel að lækkun álagningar um 10,5% í heildsölu sem íelst í bráða- birgðalögunum sé alsendis óraunhæf með tilliti til þess, að ekki hefur verið leiðrétt álagning frá síðustu gengis- fellingu, þó svo að áhrif frá þeirri gengisfellingu séu löngu komin fram og þá var yfirlýst af verðlagsstjóra að álagning í heildsölu væri of lág,“ sagði Jón Magnússon, formaður Félags ísl. stórkaupmanna í samtali við Mbl. „Þá má ekki síður benda á nýlega könnun verðlagsyfirvalda á innkaups- verði vara á Norðurlöndum, er leiddi í ljós að álagning hér er mun lægri en þar og þá yfirlýsingu verðlagsstjóra að álagningarlækkun virki öfugt og sé verðbólguhvetjandi. Benda má á að álagning hefur lækkað á hálfu ári um 20% og er í mörgum vöruflokkum á bilinu 6—9%, sem er langt undir raunverulegum dreifingarkostnaði". Jón sagðist ekki fá annað séð en að með þessum lögum í heild væri gripið til efnahagsúrræða, sem áður hefðu ekki komið að gagni, því að hann fengi ekki séð að í þeim fælust neinar nýjungar. Fráleitt að ganga að því að samningar verði óbreytt- ir til 1. des- ember 1979 — segir Björn Þórhallsson, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna. • „Það kann sumt í þessum bráða- birgðalögum að vera jákvætt, en svo er annað sem er alveg fráleitt, eins og það að íarið er fram á að samningar verði óbreyttir frá 1. desembcr næstkomandi til 1. desember 1979,“ sagði Björn Þórhallsson, formaður Landssam- bands íslenskra verslunarmanna, er Morgunblaðið spurði hann álits á nýju bráðabirgðalögunum. Björn sagði, að verslunarmenn héldu því fram, að þeir væru lægra launaðir en stéttir sem miðað væri við, svo sem opinberir starfsmenn og bankamenn. Sagði Björn, að verslunarmenn væru nú með lausa samninga, og ekki væri unnt um það að segja, til hvaða ráða þeir myndu grípa til að ná rétti sínum. Sagði hann að nú stæðu yfir samningafundir við atvinnurekendur, og ekki væri enn vitað hvað kæmi út úr þeim viðræðum, en þar kæmi þó vissulega til greina að semja til eins árs, það færi eftir efni samninganna að öðru leyti. Björn Þórhallsson vildi ekki tjá sig frekar um nýju bráðabirgðalögin að svo stöddu. „Vissir þættir koma hart niður á saltfisk- verkuninni“ segir Tómas Þorvaldsson • „Við hjá S.ÍF. höfum ekki fengið í hendur neitt sérstakt, annað en það sem þegar hefur komið fram í bráða- birgðalögunum. Um hvaða framhald ríkisstjórnin velur þekki ég ekki og þess vegna vil ég ekki dæma um það að svo komnu máli. Hins vcgar sýnist mér að vissir þættir í framkomnum bráðabirgðalögum komi hart niður á saltfiskverkuninni og um leið sjávarút- vegi almennt,“ sagði Tómas Þorvalds- son stjórnarformaður Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Mér sýnist að sú úttekt, sem þegar hefur verið gerð á starfsemi þjóðfélags- ins, sé það neikvæða, að hver sem tekur við, hlýtur að verða að gera mjög alvarlega hluti, sem hljóta að koma niður á öllum landsmönnum. Hvort rétta leiðin er nú valin, er ég ekki dómbær um enn, ég verð að sjá meira og vona ég að vel verði tekið a.m.k. á vandamálum saltfisksins sem nú er stærra og meira en við höfum þurft að glíma við í áratug," sagði Tómas. Þá sagði hann að svo virtist að gengishagnaðurinn af þeim vandræða- fiski sem legið hefði hjá saltfiskverkun- arstöðvunum allt sumarið yrði mjög stór, þá hefði rýrnum á gæðum o.fl. átt sér stað. Ennfremur hefðu bæst við háar vaxtagreiðslur, sem aldrei hefðu verið teknar með í dæmið. Aðgerðirnar bitna harð- ast á fram- leiðslu- greinunum — segir Davíð Sch. Thor- steinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda • Davíð Sch. Thorsteinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda, kvað það liggja fyrir að aðgerðir rikisstjórnarinnar væru bráðabirgðaráðstafanir og með þeim væri fyrst og fremst verið að færa peningana úr einum vasanum í annan. Það væri greinileg stefna í samstarfs- yfirlýsingunni að unnið skyldi að því að bæta hag framleiðsluatvinnuveg- anna en neikvæðustu áhrifin af þessu öllu væru þó þau að aðgerðirnar lentu harðast á framleiðsluatvinnuvégunum, svo að þarna stönguðust á orð og athafnir. Með aðgerðunum væri verið að leggja nýja skatta á framleiðsluna, því að þessir nýju skattar hvort heldur þeir hétu eignarskattsviðauki eða tekju- skattsauki lentu á framleiðslunni með einum eða öðrum hætti en ekki nándar nærri eins verulega á þjónustustarfsemi eða innflutningsverzlun. „Þeir sem eiga eru þeir sem framleiða en menn sem standa í framleiðslu þurfa húsnæði, vélar og tæki og nú á skattleggja þetta allt um helmingi meira en áður var gert. I annan stað er svo lagður skattur á framan við allar fyrningar, 6% tekju- skattsviðauki en öllum ætti að vera ljóst að fyrningar eru lífsnauðsynlegar allri framleiðslustarfsemi." Davíð sagði, að þarna væri aftur vegið í sama knérunn, því að þarna væri það framleiðslan sem þyngstu byrðina þyrfti að bera, því að þjónustustarfsem- in væri ekki með eins mikið fjármagn bundið í eignum og framleiðslustarf- semin og hefði þar af leiðandi ekki sömu fyrningar. Þetta kvað Davíð telja að stangaðist gróflega á við yfirlýstan tilgang laganna. Hins vegar væru þarna á ferðinni ráðstafanir, sem aðeins gætu staðið örskamman tíma og nú væri meginatriðið að nota þessa 3% mánuð fram til áramóta til að koma fram með gjörbreyttar tillögur um aðgerðir eftir áramót, því að það sem væri boðið upp á í bráðabirgðalögunum væri ekki vænleg leið til árangurs og sízt til þess fallin að treysta atvinnuöryggi þeirra þúsunda, sem að framleiðslustörfum ynnu í landinu. Davíð sagði að lokum, að algjört skilyrði til iðnrekstrar væri jafnvægi og öryggi, og það sem einkum hefði háð iðnaðarframleiðslu á Islandi væri það öryggisleysi, sem verðbólgan skapaði og tíðar sveiflur í efnahagslífinu. En ef nú bættist við þetta öryggisleysi að ekki væri einu sinni hægt að treysta því lengur að landslög væru haldin með því að mönnum væri gert að greiða gjöld aftur á bak um allt að hálfu öðru ári, þá væri mælirinn svo fullur að út úr flæddi. „Það hefur þó verið sá einn hlutur sem maður hefur getað treyst á hér er að lög landsins séu haldin og ég álít það því forkastanlegt að láta skattalög verka aftur fyrir sig og tel að það eigi eftir að hafa mjög alvarlegar afleiðingar." • • „Ofugmæli þeirra fyrir- heita að afnema bæri tekjuskatt“ — segir Þórhallur Hall- dórsson, formaður St. Rv. • „Ég treysti mér ekki til þess að segja til um hvqrt þessar ráðstafanir koma til með að minnka verðbólgu í landinu. tryggja kaupmátt launafólks og stuðla að réttlátari skiptingu þess fjármagns sem þegnar þjóðfélagsins þurfa að láta af hendi til sameigin- legra þarfa okkar,“ sagði Þórhallur Halldórsson, formaður Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. er hann var spurður álits á bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar. „Það væri betur ef svo yrði,“ sagði Þórhallur ennfremur," en margt er óljóst og óráðið um framvindu þessara mála, og best að fella dóminn þegar þar að kemur, og ljóst verður hvernig til hefur tekist. Þó verð ég að segja það, að áform um afturvirkandi skattlagningu, og aukna skattheimtu af tekjum einstaklinga niður í 2,7 milljónir og hjóna niður í 3,7 milljónir virðast mér vera hreinasta öfugmæli þeirra fyrir- heita að afnema bæri tekjuskatt af almennum launatekjum," sagði Þórhall- ur að lokum. „Ætlun ríkis- stjórnarinnar greinilega ekki að setja samningana í gildi“ — segir Jón Hannesson, formaður launamálaráðs BHM • „Það er alveg ljóst, að ætlun ríkisstjórnarinnar er ekki að setja samningana í gildi, heldur er um að ræða áframhaldandi samningsrof á opinberum starfsmönnum,“ sagði Jón Hannesson, er Morgunblaðið leitaði álits hans á bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar. Jón er formaður launa- málaráðs Bandalags háskólamanna. Sagði Jón, að með þessum nýju lögum væri vegið að BHM úr tveimur áttum, annars vegar með skattlagningu, og hins vegar með því að setja þak á verðbætur. Varðandi afturvirkni skatta, sagði Jón það sína skoðun, að ákaflega vafasamt væri að það ákvæði laganna fengi staðist, en það yrði kannað nánar. Hvað snerti aðra þætti bráðabirgða- laganna, svo sem aðgerðir til að draga úr verðbólgu og niðurfærslu verðlags, sagði Jón, að erfitt væri að meta fyrir fram hvað úr því yrði, en það yrði fylgst með framvindu mála, og yrði það metið að verðleikum þegar þar að kæmi. Að öðru leyti vísaði Jón Hannesson, formaður launamálaráðs BHM, til ályktunar kjararáðs, sem send var fjölmiðlum fyrir helgi. Þar segir meðal annars, að ný ríkisstjórn hafi brugðist Vonum laun- þega og ákveðið að aðeins hluti af þeim samningum sem gerðir voru á síðast- liðnu ári skuli ganga í gildi. í ályktuninni er einnig mótmælt harðlega hækkun álagðs tekjuskatts, og lögmæti þeirrar ákvörðunar dregin í efa, eins og Jón benti einnig á. „Fiskverðið er ekki komið enn,“ segir Óskar Vigfússon • „Ekki hef ég áttað mig enn það vel í þessum efnahagsaðgerðum, að ég hafi mikið um þær að segja. Þá á eftir að ákveða bæði nýtt loðnuverð, nýtt sildarverð og almennt fiskverð, þannig að það sem snertir okkur sjómenn mest, hefur enn ekki komið í ljós,“ sagði Oskar yigfússon forseti Sjómannasam- bands Islands, og kvaðst Óskar vilja bíða með að tjá sig frekar um málið. „Ekki aðal- atriðiðað kaup hækki, ef vöruverð stendur í stað eða jafnvel lækkar,“ segir Karl Steinar Guðna- son, varaformaður Verka- mannasambandsins • Karl Steinar Guðnason, varafor- maður Verkamannasambands íslands, hafði þetta að segja um nýju bráða- birgðalögin, er Morgunblaðið innti hann álits á þeim í gærkvöldii „Þessi lög eru í anda þess sem viþ höfum viljað, að ekki skipti máli hvort kaup hækki, það er ekkert aðalatriði, ef unnt er að tryggja að vöruverð haldist óbreytt eða jafnvel lækki.“ Að öðru leyti kvaðst Karl Steinar ekki vilja tjá sig almennt um bráðabirgða- lögin á þessu stigi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.