Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 IBKIUEFA KEFLVÍKINGAR tryggðu sér þriðja sætið í 1. deild með öruggum sigri yfir Víkingi á laugardaginn og þar með sæti í UEFA-keppninni að ári, en þessi tvö lið börðust ein um það hnoss. Enginn hefði trúaað því þegar keppnistímabilið var hálfnað að Keflvíkingar myndu ná svona langt, því þá voru þeir í fallbaráttunni. En seinni hluta mótsins breyttist leikur liðsins mjög til hins betra og góður endasprettur kom því upp í þriðja sætið. Víkinfíum nægði jafntefli í leiknum í Keflavík á laufjardaginn og fvrir leikinn voru heimamenn ekki allt of bjartsýnir á góðan árangur, því fyrirliði liðsins, Gísli Torfason, hafði farið til Spánar daginn áður. Leikmenn töldu sig vanta stjórnanda á vellinum í fjarveru Gísla og óskuðu eftir því að þjálfarinn Guðni Kjartansson léki með. Það varð úr og Guðni stóð sig eins og hetja í þessum fyrsta og eina ieik sínum með meistaraflokki í sumar. Keflvíkingar léku undan mjög sterkum vindi í fyrri hálfleik og réðu þá lögum og lofum á vellin- um. Þeir skoruðu þá þrívegis án svars frá Víkingum. Fyrsta mark- ið kom strax eftir 5 minútur og var það herfilegt klaufamark Diðriks markvarðar. Þórður Karlsson tók langt innkast, boltinn kom niður á völlinn rétt fyrir framan Diðrik og liltiWUMIMU IBK - Víkin9ur3:1 5“ m Wl !.;:4 * .€* ' * ** ' • Róbert Agnarsson kominn inn í vítateig Keflavíkinga og skallar að marki ÍBK. en án árangurs. Texti og myndi ■ Sigtryggur Sigtryggsson hoppaði yfir hann og í slána, þaðan niður á marklínuna þar sem Einar A. Olafsson var til staðar og skoraði auðveldlega. Á 12. mínútu bættu Keflvíking- ar við marki. Einar lék laglega á varnarmenn Víkings úti við vinstri kant og sendi boltann inn í teiginn þar sem Jóhannes Bárðarson var fyrir. Jóhannes missti boltann klaufalega frá sér til Þórðar Karlssonar og til þess að kóróna vitleysuna braut Jóhannes ennþá klaufalegar á Þórði inni í teignum og vítaspyrna var umsvifalaust- dæmd og það réttilega. Ólafur Júlíusson tók spyrnuna en Diðrik varði. En þar sem dómarinn taldi að Diðrik hefði hreyft sig of snemma var spyrnan endurtekin og í þetta sinn tók Steinar Jóhannsson spyrnuna og urðu honum ekki á nein mistök. Þriðja mark Keflvíkinga kom svo á 43. mínútu. Ólafur Júlíusson tók hornspyrnu frá hægri og gaf vel fyrir markið, þar sem Steinar Jóhannsson var staddur. Steinar skallaði boltann fyrir markið aftur til Einars Ásbjörns sem skaut að markinu og Ragnar bakvörður Víkings varði með hendi á mark- línunni. Vítaspyrna var dæmd og úr henni skoraði Einar Ásbjörn af öryggi, Víkingarnir höfðu vindinn í bakið í seinni hálfleik og sóttu mun meira en gekk illa að skapa sér góð tækifæri, þar sem vörn Keflvíkinga var þétt fyrir og lék auk þess árangursríka rangstöðu- taktik. Róbert Agnarsson átti nokkra skallabolta framhjá eftir horn- og aukaspyrnur og Jóhann Torfason skemmti áhorfendum með skotum, sem fóru óraleið frá markinu. En 12 mínútum fyrir leikslok reyndi Jóhann enn eitt skotið af 30 metra færi og í þetta skipti urðu honum ekki á mistök, boltinn fór inn með feiknaafli efst í markhornið nær, í slá og inn og átti Þorsteinn markvörður ekki minnstu möguleika á því að verja. Eitt glæsilegasta ef ekki glæsileg- asta mark sumarsins, mark sem hefði sómt sér vel í HM í Argentínu. Sigur Keflvíkinga var verð- skuldaður í þessum leik. Þeir voru miklu ákveðnari en Víkingarnir og léku betri knattspyrnu. Þeir nýttu sér vel vindinn í f.h. og vörnin var mjög sterk þegar á reyndi í seinni hálfleik. Hefur leikur liðsins tekið algerum stakkaskiptum frá fyrri hluta mótsins, en undirrituðum fannst ÍBK þá eitt af allra slökustu liðum deildarinnar. Þá vantaði þann mikla baráttuanda, sem einkenndi liðið í fyrra en hann er greinilega til staðar á ný. Víkingsliðið var slakt að þessu sinni. Varnarleikurinn var í mol- um í fyrri hálfleik og sóknin einhæf og bitlítil. Víkingsliðið hafnaði í fimmta sæti eins og undanfarin ár og virðast seint ætla að taka framförum. í STUTTU MÁLIi f.slandsmótið 1. deild, Keflavíkurviillur 9. scptember, ÍBK—Víkinttur 34 (3.0). Mnrk ÍBK. Einar Áshjnrn Ólafssnn á 5. ok 43. mínútu. Steinar Jóhannssun á 12. minútu. Mark Vikings. Jóhann Torfasun á 78. mínútu. Áminnintti Engin. Áhnrfendur. 745. Blikamir tóku FH með sér niður í 2. deild BREIÐABLIK í Kópavogi, sem þegar var fallið niður í 2. deild, gerði sér lítið fyrir og sigraði FH 3—1 á heimaveili þess síðarnefnda, Kaplakrikavelli, á iaugardag og tók FH með sér niður. Það var ekki að sjá á leik FH-inga að þeir væru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni, jafnvel jafntefli hefði tryggt þeim aukaleik við KA um sæti í 1. deild. Þrátt fyrir óskabyrjun hjá FH-ingum, þeir voru búnir að skora sitt fyrsta mark í leiknum eftir 25 sek. (áreiðanlega mettími í 1. deildinni), tókst þeim ekki að ná tökum á leiknum og baráttuþrek leikmanna var ekki nægilegt miðað við hversu þýðingarmikill leikurinn var þeim. spyrnu og eftir góða fyrirgjöf kom hörkuskot en það sleikti stöngina utanverða. Litlu síðar bjargar Sveinn vel góðum skallabolta. Þegar hvorki gekk né rak hjá FH- var sem leikmenn misstu móðinn. Blikarnir komust nú æ meir inn í leikinn og sóknir þeirra fóru að þyngjast. Birgir Teitsson kemst í í fyrri hálfleik léku FH-ingar á móti allsnörpum vindi. Hófu þeir leikinn og gekk knötturinn þegar út á kantinn til Janusar Guðlaugs- sonar sem brunaði upp og þegar hann kom að endamörkunum sendi hann knöttinn vel fyrir mark UBK. Sveinn Skúlason markvörð- ur var ekki nægilega vel með á nótunum og knötturinn barst til Viðars Halldórssonar sem skaut föstu og góðu skoti rétt utan markteigsins, og skoraði. Voru liðnar rétt 25 sek. af leiktímanum og er undirritaður sannfærður um að þetta er mettími í 1. deild við að ná marki í upphafi leiks. Þetta kom sem köld vatnsgusa framan í leíkmenn UBK og ætla mætti að þeir hefðu misst móðinn við að fá þetta mark á sig, þar sem þeir höfðu lítið að berjast fyrir en það var síður en svo. Þeir voru ekki á þeim nótunum að gefa neitt eftir og á 13. mín. leiksins náðu þeir að jafna leikinn. Eftir að hafa pressað all stíft á mark FH, barst knötturinn út á völlinn, þar var einn Blikanna fyrir og sendi hann knöttinn viðstöðulaust inn í vítateig FH, þar.sem barst knötturinn til hins bráðefnilega leikmanns Hákonar Gunnarssonar, sem náði að skora iaglega. Eftir mark þetta mátti heita að jafnræði væri með liðunum, sótt. var á báða bóga og báðum liðum tókst að skapa sér nokkur marktækifæri sem þó ekki nýttust. Viðar Halldórsson átti eítt besta tækifærið á 20. mínútu en skot hans fór hátt fyrir markið. Ef eitthvað var voru sóknir FH öllu hættulegri. En einkennandi var hversu bæði liðin notuðu vallarbreiddina lítið og spilið var afar þröngt. Síðari hálfleikur var líflegur á köflum, þrátt fyrir að töluvert bæri á ónákvæmum sendingum og háloftaspyrnum. Framan af síðari hálfleik sóttu FH-ingar meira og áttu nokkur allgóð tækifæri. Leifur komst einn í gegn á 10. mín. hálfleiksins en skaut framhjá. Á 21. mín. síðari hálfleiksins skall hurð nærri hælum hjá UBK. FH fékk horn- FH - UBK 1:3 Textii Þórarinn RagnarssonJ gegnum vörn FH, en þegar hann á markvörðin eftir reýnir hann skot af stuttu færi en það mistekst illa og fer framhjá. Á 40. mínútu leiksins skora svo Blikarnir, og er Sigurjón Rannversson þar að verki. Fékk hann góða sendingu út á kantinn, brunaði inn í vítateig- inn og fór sér engu óðslega þar sem hann var illa valdaður rétt utan markteigs, skaut föstum jarðarbolta í fjarlægara horn marksins og skoraði. Aðeins þrem- ur mínútum síðar skorar svo Birgir Teitsson þriðja mark Blik- anna og innsiglar sigur þeirra. Óð Birgir í gegnum vörn FH og varnarmennirnir voru sem stein- gervingar svo dauðir voru þeir. Skoraði Birgir fram hjá úthlaup- andi markverðinum léttilega. Nú voru aðeins 2 mínútur eftir af leiknum og því aðeins beðið eftir flautu dómarans. Óvænt úrslit og víst er að KA-menn hafa fagnað vel er þeim barst fréttin út til Spánar þar sem lið þeirra er í skemmtiferð. Það voru niðurlútir leikmenn FH sem gengu.til búningsklefa sinna eftir leikinn. Þórir Jónsson þjálfari liðsins kunni ekki skýr- ingu að tapi þeirra. — Við áttum ein sjö til átta góð marktækifæri í leiknum og þegar ekki er hægt að nýta eitthvað af þeim er varla nema von að illa fari. Skástu menn FH í leiknum voru þeir Viðar Halldórsson og Ólafur Danivals- son, sem þó hættir til að einleika of mikið með knöttinn. í heildina vantaði meiri baráttuvilja í leik- mennina. Lið Breiðabliks lék þennan leik allvel á köflum og gafst liðið aldrei upp þrátt fyrir mótlæti. Börðust þeir frá fyrstu til síðustu mínútu í leiknum. Bestu menn þeirra voru Einar Þórhallsson og Helgi Helga- son í vörninni. Þá áttu framlínu- menn liðsins góða spretti inn á milli. í stuttu málii (slandsmótið 1. deild. Kaplakrikavöllur 9. sept. UBK - FH (3-1). Mörk UBK| Hákon Gunnarsson á 13. mínútu. Sigurjón Rannversson á 85. m(n. og Birgir Teitsson á 88. mln. Mark FIL Viðar Halldórsson á 1. mín. Áminninx engin. Áhorfendur 450. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 25 * ÍÉf P u* Á t' Jiilil ■ ■ wm m . mm : > ♦ *** ** m W V ** " Glæsileg tilþrif hjá Sigurði Haraldssyni, sem þarna tókst að verja í horn. VALUR HAFÐI BETUR í UPPGJÖRI RISANNA Glæsilegur árangur Valsmanna í íslandsmótinu VALSMENN innsigluðu sigur sinn í íslandsmótinu með því að leggja Akurnesinga að velli L0 í síðasta leik mótsins á Laugardalsvellinum á sunnudaginn að viðstöddum 2500 áhorfendum. Leikurinn bar þess greinileg merki að hann hafði engin áhrif á endanleg úrslit mótsins, leikmenn voru mátulega afslappaðir, minnugir þess að framundan eru erfiðir leikir hjá báðum liðum í Evrópumótunum. Leikurinn var því opinn og skemmtilegur og mikið um marktækifæri, sem þó ekki nýttust. Alveg eins og í fyrri leik liðanna á Akranesi var leikurinn jafn og jafntefli réttlátust úrslit þótt Valsmenn hafi hrósað sigri alveg eins og á Akranesi. En engum blandast hugur um, að þarna léku tvö iangbeztu knattspyrnulið ís- lands. Sigur Valsmanna í mótinu er óvenjuglæsilegur, 17 sigrar í 18 leikjum, eitt jafntefli en ekkert tap, 35 stig af 36 mögulegum. Afrek, sem trauðla verður jafnað eða betrumbætt. Fyrri hálfleikurinn var öllu fjörugri en sá seinni og skiptust liðin þá á um að sækja. Akurnes- ingar voru meira með boltann en Valsmenn sköpuðu sér þó fullteins mörg tækifæri. Ingi Björn var atkvæðamikill við mark Akurnes- inga og þrívegis átti hann skot á markið, tvö fóru framhjá markinu en í eitt skipti varði Jón markvörð- ur mjög veí. Á 43. mínútu munaði ekki nema hársbreidd að Valur skoraði mark. Löng sending kom fram völlinn inn fyrir vörn Akur- nesinga og komust þeir á auðan sjó Ingi Björn og Albert, að því er virtist rangstæðir. Jón markvörð- ur reyndi að bjarga með úthlaupi en hann hitti ekki boltann og Albert fékk boltann í dauðafæri, en þegar hann ætlaði að senda hann í mannlaust markið var Karl Þórðarson kominn á vettvang og tókst að bjarga í horn. Glæsilega gert hjá Karli og gott dæmi um það hve mikilvægur hann er Akranesliðinu. Akurnesingar fengu einnig mörg mjög góð tækifæri, t.d. átti Pétur Pétursson þrívegis mögu- leika á því að skora en Sigurður markvörður og varnarmenn Vals sáu við honum. Þá átti Matthías hörkuskot að markinu eftir góðan undirbúning Karls og Jóns Al- freðssonar en Sigurður varði stórglæsilega. Valsmenn sóttu öllu meira til að byrja með í seinni halfleik en brátt jafnaðist leikurinn og bæði liðin áttu góð tækifæri. Hálfdán Ör- lygsson, sem var mjög hættulegur á vinstri vængnum hjá Val, átti stórgóða sendingu fyrir markið en Ingi Björn var of seinn að átta sig og hann náði ekki til boltans fyrir opnu marki. Hinum megin átti Karl Þórðarson skot að markinu, sem sleikti stöngina utanverða. Stuttu síðar braust Pétur mjög laglega i gegn hægra megin og gaf boltann fyrir markið til Matthías- ar, sem var í dauðafæri einn metra frá marki en Sigurður varði skot hans frábærlega vel niðri í blá- horninu. A 25. mínútu kom sigurmarkið. Hálfdán átti þá enn eina af sínum hættulegu sendingum fyrir markið frá vinstri kantinum. Jón Þor- björnsson hljóp glæfralega út úr markinu og hugðist slá boltann út úr teignum. Það mistókst að nokkru og boltinn barst til Alberts Guðmundssonar, sem skaut við- stöðulaust á markið. Jón var úti í teignum og Árni Sveinsson einn til varnar í markinu. Boltinn stefndi í markið alveg uppi við slá og Árni sá ekki aðra möguleika til varnar en taka boltann með höndunum. Vítaspyrna var dæmd og úr henni skoraði Ingi Björn með þrumu- skoti, sláin inn. Eftir markið drógu Valsmenn sig aðeins aftar á völlinn og Akurnesingar sóttu þá meira. Skömmu eftir markið slapp Guð- mundur Kjartansson með skrekk- inn þegar hann handlék knöítinn að baki sigrinum ÞAÐ VORU mikil fagnaöarlætí í búníngsklefa Valsmanna aö loknum leiknum við ÍA og sífellt var verið aö óska Þeim til hamingju með ís- landsmótið og sigurinn gegn Akur- nesingum. Þeim voru færð blóm í tilefni dagsins og dreypt var ó kampavíni úr íslandsbikarnum. Blaöamaður ræddi viö nokkra leik- menn liðanna aö síöasta leiknum loknum og fara víðtölin hór ó eftir. Fyrst tókum viö fyrirliða liðsins, Inga Björn Albertsson, tali og spurðum hann fyrst hvort besta liðið hefði sigraö í mótinu í ár? — Já, ég er jafn sannfæröur um iö besta liðið vann og ég er sannfæröur um aö næstbesta liðið er í öðru sæti. Var einhver einn leikur fremur öðrum sem olli þáttaskilum — Tvímælalaust leikurinn uppi á Akranesi, þaö haföi mikið aö segja fyrir okkur að ná tveimur stigum út úr þeim leik. Annars færir leikurinn hér í dag okkur heim sanninn um þaö hvaöa lið er best. Viö áttum skiliö stærri sigur í dag en raun varö á. — Hvaða leikur var erfiðasti leikur mótsins fyrir ykkur, og hver sá ánægjulegasti? — Erfiöasti leikur mótsins var fyrri leikur okkar við Þrótt en sá skemmti- legasti var leikur okkar við Víking er við sigruðum 5—2. — Hverju þakkar þú þann frábæra árangur aö tapa aðeins einu stigi í öllu mótinu í sumar? — Fyrst og fremst hversu góðum mannskap við höfum á að skipa. Þá hefur þjálfarinn gott lag á okkur, tekst að gera okkur ánægöa inni á vellinum, og þá verður andinn góður. Markvörður Valsmanna, Sigurður Haraldsson, sló botninn í íslandsmót- ið að þessu sinni með því að sýna snilldarleik í markinu. Fékk Sigurður aðeins átta mörk á sig í öllu mótinu og veröur það aö teljast til meiri háttar afreka. Við inntum Sigurð eftir því hvaöa mark hefði veriö einna leiðinlegast aö fá á sig? — Fyrsta markið sem var skoraö hjá mér í mótinu, sagöi Sigurður, það var hálfgert klaufamark. Mér tókst ekki aö halda knettinum, missti hann frá mér og varð þess vegna að sjá á eftir honum í netið eftir skot Arnórs úr Víkingi. — Annars hef ég leikið betur í sumar eri áður vegna þess að þetta er fyrsta sumarið sem ég hef nægilega leikreynsiu til aö standa mig vel. Þá hef ég haft frábæra vörn fyrir framan mig og það hefur nú ekki lítið aö segja. Eg held aö ekki sé vafi á að heilsteyptasta liöiö hafi sigraö í mótinu, sagöi Siguröur aö lokum. — Ertu ánægöur með þína frammistöðu í mótinu í sumar? — Já, ég er það. Ég get veriö ánægöur meö aö hafa sloppið viö öll meiösli og þaö er ekkert sem hefur hrjáö mig en slíkt spilar mikiö inn í þetta allt. — Ertu bjartsýnn á Evrópuleikina? — Þýðir nokkuö að vera annað. Þetta eru nú engir smákarlar sem viö fáum, vonandi gengur þetta allt samt vel. pr. Valur - ÍA 1:0 Textii Sigtryggur Sigtryggsson Myndi Kristján Einarsson aö því er virtist inni í teignum en ekkert var dæmt. Pétur átti góðan skalla að markinu en Sigurður varði mjög vel og rétt fyrir leikslok var Sigurður aftur á ferðinni og varði þrumuskot Karls Þórðarsonar með miklum tilþrif- um. En ekki fór boltinn í markið og Valsmenn stóðu því uppi sem sigurvegarar og eins og að líkum lætur voru þeir glaðir og ánægðir þegar þeir tóku við Islandsbikarn- um í leikslok. Stuðningsmenn Vals létu heldur betur í sér heyra við þá athöfn og sungu hástöfum söng sinn, „Hverjir eru beztir, Valur!!!,, Enginn vafi leikur á því að Valsmenn' geta þakkað sigurinn Sigurði Haraldssyni öðrum frem- ur. Hann hefur staðið sig frábær- lega vel í deildinni í sumar og þessi leikur var kórónan á þá frammi- stöðu. Þeir voru tveir í sérflokki á vellinum, Siguröur og Karl Þórð- arson í liði ÍA. Karl hefur verið ómetanlegur fyrir Akranesliðið í sumar og í þessum leik sýndi hann allar sínar beztu hliðar, var helsti uppbyggjari sókna, skæður uppi við mark Vals og aftasti maður varnarinnar þegar því var að skipta. í STUTTU MÁLIt Islandsmótið 1. dcild. Lauxardalsvöllur 10. september. Valur — ÍA LO (0t0) Mark Valst Ingi Björn Albertsson á 70. mfnútu. ÁminninKt Enxin. Áhorfendur. 2503. Valur ÍA ÍBK ÍBV Víkingur Fram Þróttur KA FH Breiðab. 18171 1813 3 18 84 18 83 18 91 18 7 2 18 46 8 22- 18 3 510 14- 18 2610 22- 18 3114 19- 0 45- 2 47- 6 31- 7 29- 8 27- 9 23- 8 35 13 29 25 20 24 19 31 19 31 16 -27 14 38 11 -37 10 -45 7 Valur — ÍA ÍBK - Víkingur ÍBV - Fram FH - UBK Einkunnagjöfin VALUR. SÍKurður Haraldsson 4. Guðmundur Kjart- ansson 3. Grfmur Ss-mundsen 2, Hörður Hilmarsson 2. MaKnús BerRs 2, Sævar Jónsson 2. Inifi Björn Albertsson 3. Atli Eðvaldsson 3. Albert Guðmundsson 2, Guðmundur Þorbjörnason 2. Hálfdán ör- lyKsson 3, Jón Einarsson (vm) 1. (A. Jón Þorbjörnsson 2. Guðjón Þórðarson 2, Árni Sveinsson 3, Jóhannes Guðjónsson 2, SÍKUrður Ilalldórsson 3. Sveinbjörn Hákon- arson 2, Karl I>óröarson 4, Jón Alfreðsson 3, Pétur Pétursson 3, Matthfas HallKríms- son 2. Kristinn Björnsson 2. Jón GunnlauKs- son (vm) 2. Andrés Ólafsson (vm) 1. DÓMARI. MaKnús V. Pétursson 2. UBK. Sveinn Skúlason 2. Gunnlauxur HelRason 2. Þórir Gfslason 2, ólafur Friöriksson 2, F.inar Þórhallsson 3. Helíri Helxason 3. Hákon Gunnarsson 2. Birjtir Teitsoon 2, Jón Guðmundsson 2. Sigurjón Rannversson 2. Heiðar Breiðfjörð 3. FH. Friðrik Jónsson 2. Benedikt Guöbjartsson 2, Pálmi Jónsson 2. Lokí Ólafsson 2. Jón Hinriksson 2, Maxnús Teitsson 2. Viðar Halldórsson 3. ólafur Danivalsson 3. Janus GuðlauKsson 2. Leifur HelKason 2. ÁsKeir Arnórsson 2. Þórir Jónsson (vm) 2. DÓMARI. Róbert Jónsson 3. (BK. Þorsteinn Bjarnason 3. Guðjón Guðjónsson 2. Óskar Færseth 3. SÍKurbjörn Gústafsson 3, Guðni Kjartansson 3. SiKurður BjörKvins- son 2, Einar Á. Ólafsson 3, Þórður Karlsson 2, Steinar Jóhannsson 2. Skúli Rósantsson 2, Ólafur Júlfusson 2. ómar Injrvarsson (vm) 1. VÍKINGUR. Dlðrik Ólafsson 2. Raxnar Gfslason 1, Magnús Þorvaldsson 2, Gunnar örn Kristjánsson 2. Róbert Agnarsson 3, Heimir Karlsson 2. Viöar Elíasson 2, Jóhannes Bárðarson I. Jóhann Torfason 2, Óskar Tómasson 1. Lárus Guðmundsson I. Gunn lauKtir Kristfinnsson (vm) 2, Guðmundur Guðmundsson (vm) 1. DÓMARI. Guðmundur Haraldsson 3. ÞRÓTTUR. Rúnar Sverrisson 2. Guðmundur Gfsiason 2, Árni ValKeirsson 2, Jóhann Ilreiðarsson 3, Sverrir Einarsson 2, Þorvaldur Þorvaldsson 2, Sverrir Brynjólfsson 1, Halldór Arason 2, Páll Ólafsson 2, Áxúst Hauksson 3, ÞorKeir ÞorKeirsson 2, Ársselt Kristjánsson (vm) 4. KA, Þorbermir Atlason 2, HelKÍ Jónsson 2. Gunnar Gfslason 3. Ólafur Haraldsson 2, Haraldur Iiaraldsson 3. Steinþór Þórarins- son 2. Óskar InKÍmundarson 2, Eyjólfur ÁKÚstsson 2. Gunnar Blöndal 3. Elmar Geirsson 3. Ármann Sverrisson (vm) 2. DÓMARI. Valur Benediktsson 3. iBV. Páll Pálmason 2. Einar Friðþjófsson 2. Örn Óskarsson 3, Þórður HallKrfmsson 2, Friðfinnur FinnboKason 2. Sveinn Sveins- son 3, Valþór SiKþórsson 1. Óskar Valtýsson 2, SiKurlás Þorleifsson 3. Karl Sveinsson 3, Gústaf Baldvinsson 2. Snorri Rútsson (vm) 2, Ómar Jóbannsson (vm) 1. Fram. Gu .mundur Baldursson 2, Gústaf Björnssou 2. Trausti Haraldsson 2, Gunnar GUðmundsson 2. Hafþór Sveinjónsson 1, SiKurberKur SiK»teinsson 2, Rúnar Gfslason 2. Rafn Rafnsson 2, Pétur Ormslev 3. Guðmundur IlafberK 3. Guömundur Steins- son 1, Kristinn Atlason (vm) 2. Dómari, óli Ólson 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.