Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 47 r Iran: Fimm féllu á mánudag Tcheran, 11. septembcr. AP. Reuter BARDAGAR urðu enn í íran í dag og létu a.m.k. fimm manns lífið í borgun- um Meshad og Qum. Þús- undir manna efndu til mótmæla gegn ríkisstjórn- inni þrátt fyrir að bann,sé lagt við mannsöfnuði í herlögum stjórnarinnar. Stjórnin í landinu tilkynnti í da« að 333 pólitískir fangar hefðu verið látnir lausir og forsætisráð- herra landsins sagði í þinginu að herlögin yrðu numin úr gildi jafnskjótt og öldur lægði í landinu. Lofaði ráðherrann algjöru frelsi fyrir þegnana en þó því aðeins að stjórnarandstaðan virti stjórnar- skrána. Theodorakis borgarstjóri? Símamynd AP. Björgunarmenn skoða hér brot úr flugvélinni sem fórst í Rhódesíu fyrir skömmu og sem síðar leiddi til fjöldamorða á farþegum sem komust lífs af. Aþenu, 11. september. AP. MIKIS Theodorakis, laga- smiðurinn kunni, tilkynnti í dag að hann mundi bjóða sig fram við borgarstjórn- arkosningarnar í Aþenu í október. Kommúnista- flokkur Grikklands hefur lýst yfir stuðningi við framboð Theodorakis. Flokkurinn lýsti þessu yfir eftir að samningaviðræður við aðra vinstri flokka um sameiginlegan frambjóðanda til borgarstjóra enduðu án samkomulags. Arið 1975 vann sameiginlegur fram- bjóðandi vinstri flokkanna kosn- ingarnar. 10 féllu í Libanon Beirút, Líbanon, 11. september, Reuter—AP FRIÐARGÆZLULIÐ Sýr- lendinga í Líbanon hóf mikla skothríð á hverfi hægri sinna 1 Beirút síðla á sunnudagskvöldið með þeim afleiðingum að 10 manns féllu og yfir 100 særðust, að því er lögregl- an í Beirút skýrði frá í dag. (Jtvarpsstöð hægri sinna skýrði hins vegar frá því að einn hægri sinni hefði fallið og 25 særst í árásinni sem stóð fram á aðfaranótt mánudagsins. Útvarpsstöð hægri sinna skýrði ennfremur frá því í dag að einn áhrifamesti leiðtogi múhameðs- trúarmanna í Líbanon hefði horfið þegar hann var á ferðalagi í Líbýu. Sagði útvarpsstöðin að honum hefði verið rænt í Líbýu, en sendiráð Líbýu í Beirút sagði hins vegar í dag að hann hefði haldið til Rómar 31. ágúst. Slysavam- ir efldar Brussel. 11. scptember. AP. MILLI 25 og 30 þúsund íbúar í löndum Efnahagsbandalagsins látast af völdum slysa í heimahús- um árlega og milli 4 og 5 milljónir slasast á einn eða annan hátt segir í frétt frá handalaginu. Þá segir að Efnahagsbandalagið hyggist á næstu árum beita sér mjög hart fyrir því að slysavarnir í heimahúsum í löndum banda- lagsins verði efldar að mun. Þannig var umhorfs í útborg Delhi eftir flóðin miklu í síðustu viku. Þá hækkaði vatnsborð Yamuna árinn- ar um liðlega tvo metra. OÍ . AD Lezt ur kúabólu Birmin^ham, 11. september. Keuter. FJÖRUTÍU ára brezk kona lézt úr kúabólu í Birmingham á Bretlandi í dag. Konan sýktist á rannsóknarstofu sem hún vann á, en þar voru gerðar tilraunir með kúabóluveirur. Talið er víst að veikin hafi ekki breiðst út á Bretlandi og engin ástæða er talin til ótta meðal almennings vegna þessa tilfellis. Víetnömsk fjölskylda fær japanskan borgararétt Fujisawa, 11. september. AP. STJÓRN Japans hcfur nú ákveð- ið að veita víetnamskri fjölskyldu japanskan ríkisborgararétt, og er það í fyrsta sinn frá lokum styrjaldarinnar í Víetnam að það á sér stað. Nú bíða 443 aðrir víetnamskir flóttamenn í Japan eft.ir að vita hvaða örlög þeir hljóta. Þeir hafa sótt um japanskah ríkisborgara- rétt en verið synjað. Japanir skrifuðu ekki undir alþjóðlega samþykkt um flótta- menn árið 1951. Víetnömskum flóttamönnum í Japan hefur hing- að til verið leyft að dvelja í landinu þar til þeir hafa fengið leyfi til að setjast að í öðrum löndum. Theodorakis Hermannaveikin: 25 veikjast til viðbótar New York, 11. septembcr, Reuter. SL. LAUGARDAG höfðu 25 New York búar að auki veikzt af „hermanna- veikinni“ svokölluðu og hafa 103 manns þar með tekið veikina, að því er heilbrigðisyfirvöld borgar- innar tilkynntu í dag. Tveir hafa látist úr veikinni. Síðustu daga hafa vatnsgeymsl- ur og lofthreinsitæki á Garment-svæðinu á Manhattan í New York, þar sem veikin kom upp, verið hreinsuð, því talið er að sýklar kunni helzt að leynast þar. Læknar telja að hermannaveikin, sem er skyld lugnabólgu, sé ekki smitandi. Maos minnst á látlausan hátt Belgrad, 11. september. AP. KÍNVERJAR minntust þess með látlausum hætti að tvö ár voru í gær liðin frá andláti Mao Tse- Tung formanns. að sögn júgóslav- nesku fréttastofunnar Tanjug. Fréttastofan sagði að ekki hefði verið mikið gert úr kenningum formannsins fyrrverandi, eins og oft áður. I greinum í fjölmiðlum -lögðu kínverskir frammámenn hins vegar út af kenningunum og líktu þeim við marxisma. Þeir gáfu þar í skyn að kenningarnar fengju ekki alltaf staðist í framkvæmd. Lyf sem blekkir öndunar- mælingar París, 11. september. Reuter. LYF, sem komið getur sér vel fyrir ökumenn, sem fá sér í staupinu, verður sett á markað innan tíðar í Frakklandi. Lyfið er þeim eiginleikum búið, að það eyðir vínanda í blóðinu á ör- skammri stund og getur því hugsanlega orðið ökumönnum vopn gegn öndunarprófunum lögreglu. Franska heilbrigðismálaráðu- neytið samþykkti sölu lyfsins, sem er svissneskt og heitir Alsaver, undir því yfirskyni að hér væri um fæðubætandi töflur að ræða. Sala þess í Frakklandi hefst um svipað leyti og mjög ströng viðurlög við akstri undir áhrifum ganga í gildi í landinu. Veður víða um heim Amsterdam 19 skýjaó Apena 29 heiðskírt Barcelona 27 lótlskýjað Berlin 19 rigning Brussel 13 rigníng Chicago 33 heiöskírt Frankfurt 23 skýjað Ganl 22 léttakýjaö Helsinki 13 rigning Jóhannesarb. 36 skýjað Lissabon 31 léttskýjað London 24 léttskýjað Los Angeles 26 heiðskírt Madrid 35 léttskýjað Malaga 31 heiðskírt Mallorca 28 léttskýjað Miami 30 skýjað Moskva 15 rigning New York 21 skýjað Osló 11 skýjað Parts 25 skýjað Reykjavík 8 léttskýjað Rio De Janeíro 25 skýjað Rómaborg 23 heíðskírt Stokkhólmur 15 skýjað Tókýó 27 rigning Vancouver 19 skýjaö Vínarborg 22 skýjað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.