Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978
Loðnan á hraðri
leið frá Jan Mayen
LITIL sem ennin loðnuveifti hefur
verift frá því á föstudagskvöld, en
þá og á lauuardan tilkynntu 22 skip
um afla samtals 14470 lcstir. í (?ær
tilkynnti eitt skip um afla, lleltía
Guftmundsdóttir með 400 lestir.
íslenzki loðnuflotinn hélt sig um
120 mílur NV af Jan Mayen á
föstudag og virðist loðnan nú vera á
hraðri leið vestur á bóginn í átt til
Grænlands. Þegar norsku skipin
byrjuðu fyrst að veiða við Jan Mayen
voru þau 15—30 mílur frá eynni, og
þegar íslenzku skipin voru þar að
veiðum fyrst var loðnan 70 mílur NV
frá eynni.
Skipin sem tilkynntu um afla á
föstudagskvöld og laugardag, eru
þessi:
Kap 2. VE 600 lestir, Ársæll
KE 280, Gísli Árni RE 620, Eldborg
GK 460, Faxi GK 300, Hrafn
Sveinbjarnarson GK 220, Þórshamar
GK 580, Víkingur AK 1100, Fífill GK
520, Gígja RE 540, Hilmir SU 460,
Arnarnes HF 400, Helga RE 230,
Huginn VE 500, Guðmundur RE 450,
Bergur VE 240, Keflvíkingur KE 340,
Hrafn GK 300, Gullberg VE 320,
Súlan EA 250, Albert GK 380, Helga
2. RE 250, Náttfari ÞH 330 og
Ljósfari ÞH 100 lestir.
Margeir tapaði
Graz, Austurríki. 11. septcmber
AP. — Sovéski skákmaðurinn Serge
Dolmatov hefur nú náð forystu á
heimsmeistaramóti unglinga í skák
sem haldið er í Graz, eftir að hann
sigraði Argentínumanninn Gerardo
Barbero í sjöundu umferð, en hann
hafði skipáð efsta sætið ásamt
Sovétmanninum.
Effir sjö umferðir er staðan þessi:
1, Dolmatov, Sovétríkjunum, 6 vinn-
inga, 2. Nielsen, Danmörku, 5'/2
vinningur, 3.-5. Yusupov, Sovétríkj-
unum, núverandi heimsmeistari,
Björk, Svíþjóð, og Barbero, Argen-
tínu, allir með 5 vinninga. Þá eru
eftirtaldir skákmenn með 4,5 vinn-
inga: Roman, Frakklandi, Ristic,
Júgóslavíu, Cordes, Vestur-Þýzka-
landi, Foisor, Rúmeníu, Morrison,
Skotlandi, Mateu, Spáni, Plaskett,
Englandi, Wiel, Hollandi.
Margeir Pétursson, eini íslenzki
keppandinn tapaði í síðustu umferð
og hefur 4 vinninga að sjö umferðum
loknum, en mótinu lýkur á sunnu-
dag.
^ } /*
Ljóftfélagift
Ljóðskáld og Ljóðfélag á Ijóða- og tónlistarkvöldi í Norrœna húsinu
ALMENNA bókafélagið gengst fyrir ljóða- <>g tónlistarkvöldi í Norræna húsinu annað kvöld. Þar
lesa þrjú Ijóftskáld úr nýjum Ijóftahókum sínum. scm AB gefur út nú í haust. og Ljóðfélagið flytur
efni af hljómpliitu. sem einnig kemur út á vegum AB í haust. Ljóðskáldin sem lesa úr verkum sínum
eru Erlendur .Jónsson. sem les úr bók sinni Fyrir stríft, Ingólfur Jónsson frá Prestbakka sem les
úr bók sinni Vængir draumsins og Jón úr Vör sem les úr bók sinni Altarisbergift. Hljómplata
Ljóftfélagsins ber heitift Stjörnur í skónum og er Sveinbjörn Baldvinsson höfundur texta og tónlistar.
en auk hans flytja efnift Ragnheiftur Steindórsdóttir, Gunnar Hrafnsson og Kolbeinn Bjarnason.
Þeir treystust ekki tíl að
standa við stóru orðin
—segir Matthías Á. Mathiesen um
bráðabirgðalög vinstri stjórnar
ÞAÐ ER alveg ljóst, aft Alþýftu-
flokkur og Alþýftubandalag
hafa ekki treyst sér til að
standa vift þau loforð, sem
þessir tveir flokkar gáfu kjós-
endum sínum fyrir kosningar
um að setja samningana í gildi.
sagfti Matthías Á. Mathiesen,
fyrrverandi fjármálaráftherra,
er Morgunblaftift ræddi við
hann í gær um bráðabirgðalög
vinstri stjórnarinnar. Vinstri
stjórnin hefur ekki sett saran-
ingana í gildi, eins og glögg-
lega kemur fram í því, að stór
hópur launþega býr við vísi-
töluþak en ekki fulla vísitölu
eins og kjarasamningar þeir.
sem gerðir voru á sl. ári gerðu
ráð fyrir. Þeir treystust ekki til
að standa við stóru orðin, sagði
Matthías Á. Mathiesen enn-
fremur.
Vinstri stjórnin hefur heldur
ekki tryggt rekstrargrundvöll
atvinnuveganna. Hún hefur að
vísu fallizt á, aft gengi yrði
breytt en það eitt út af
fyrir sig leysir ekki vanda
atvinnuveganna eins og bezt
sést af því, að verðjöfnunarsjóð-
ur er rekinn með halla.
Það er spurt hvað Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði gert, ef hann
heföi átt aðiid að ríkisstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefði í
fyrsta lagi beitt sér fyrir réttri
gengisskráningu. Það eitt út af
fyrir sig hefði ekki leyst vanda
atvinnuveganna, eins og ég
sagði áðan. Það var hins vegar
sjónarmið Sjálfstæðisflokksins,
að nú þegar hefði átt að efna til
nýrra viðræðna milli vinnuveit-
enda og verkalýðsfélaga um
nýja kjarasamninga. og hvernig
fara ætti með launamál og
vísitöluhækkanir í sambandi við
gengisbreytinguna. Verkalýðs-
hreyfingin hefur sýnt alveg
nýjan samstarfsvilja undan-
farnar vikur og m.a. lýst því
yfir, að hún geti fallizt á óbreytt
grunnlaun allt næsta ár. Ég
mun ekki halda því fram, að
pólitísk afstaða ráði þessum
breyttu viðhorfum verkalýðs-
samtakanna heldur er ég sann-
færður um, að forystumenn
þeirra hafa gert sér grein fyrir
því, að þeir yrðú að taka
ábyrgari afstöðu og ég er þess
fullviss, að þeir hefðu ekki síður
verið fúsir til samstarfs við
ríkisstjórn, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði átt aðild að en
t.d. við ríkisstjórn undir forystu
Framsóknarflokksins. Þess
vegna tel ég að það hefði borið
tilætlaðan árangur að efna
þegar í stað til nýrra viðræðna
milli aðila vinnumarkaðar um
kjaramálin.
Um þessi bráðabirgðalög vil
ég að öðru leyti segja það, sagði
Matthías Á. Mathiesen, að með
þeirri afturvirku skattheimtu,
sem þau gera ráð fyrir, er
skapað mjög hættulegt fordæmi
og ég tel, að Alþingi þurfi að
gera ráðstafanir til þess að
verja skattgreiðendur fyrir slík-
um aðgerðum en það er í
samræmi við þau sjónarmið sem
ég hef haft í þessum efnum og
fylgdi fram í störfum mínum
sem fjármálaráðherra. I Noregi
t.d. er afturvirk skattheimt
bönnuð í stjórnarskránni. Ég tel
það einnig fráleitt að skatt-
leggja hljómplötur og hlóðfæri
svo að dæmi séu nefnd. Er
ástæða til að refsa fólki fyrir að
vilja njóta tónlistar og læra að
njóta hennar? Ég hefði haldið,
að ríkisvaldið hefði fremur átt
að stuðla að því en koma í veg
fyrir það með óheyrilegri skatt-
lagningu.
Annars er með þess-
um aðgerðum öllum stefnt að
stórkostlegum sjónhverfingum
og blekkingum með vísitöluna
og fólk á eftir að sjá rækilega
í gegnum þær, segir Matthías Á.
Mathiesen að lokum.
Sixhvatur Vilmundur.
Sighvatur
formaður
þingflokks
SIGIIVATUR Björgvinsson var í
gær kosinn formaður þingflokks
Alþýftuflokksins með 10 atkvæðum.
Það var Karl Steinar Guftnason sem
gerði tillögu um Sighvat sem
formann þingflokksins en Vilmund-
ur Gylfason, sem bauð sig fram til'
formanns, hlaut 3 atkvæði. At-
kvæðisrétt höfðu 14 þingmenn
flokksins og svokallaftur þinglófts,
Hilmar Jónsson, sem er tcngiliður
þingflokksins vift almennt flokks-
starf. Einn atkvæftaseðill var auftur
og einn þingmanna, Finnur Torfi
Stefánsson var fjarverandi.
Kosningu varaformanns og ritara
þingflokksins var frestað.
A þingflokksfundin im kom einnig
til umræðu sú fyrirætlun Magnúsar
H. Magnússonar heilbrigðis- og
tryggingamálaráftherra og félags-
málaráðherra, að ráfta sér sem
aftstoftarmann Georg Tryggvason,
sem gegnt hefur embætti bæjarlög-
manns í Vestmannaeyjum, en sú
fyrirætlun mætti andstöftu þing-
manna.
Langt í land
með nýtt
fiskverð
'FYRSTI fundur Verðlagsráðs
sjávarútvegsins um almennt fisk-
verð var haldinn í gær, en það er
hald manna að langan tíma geti
tekið að ná samkomulagi um
verðið, og samkvæmt því sem
Morgunblaðinu var sagt, búast
víst flestir fulltrúarnir í Verð-
lagsráðinu við, að verðákvörðun
verði vísað til yfirnefndar.
Yfirnefnd verðlagsráðsins kom
saman í gær til að fjalla um
verðákvörðun á loðnu og síld en
Morgunblaðinu var tjáð í gær-
kvöldi, að enn bæri mikið á milli
í þeim efnum.
Söluskattur af ýms-
um matvörum felld-
ur niður á föstudag
SÖLUSKATTUR fellur niður af
ýmsum tegundum matvæla frá og
meft föstudeginum næstkomandi.
svo og tekur þá gildi nýtt
kjötverð í samra-mi við auknar
niðurgreiðslur sem þá koma til
framkvæmda. Hins vegar eru
þegar komnar til nifturgreiftslur
á mjölkurvörum og kartöflum.
í tilkynningu fjármálaráðuneyt-
isins til söluskattsgreiðenda segir
m.a. um undanþágur, að frá og
með 15. þ.m. falli niður söluskattur
af öllum þeim matvörum, sem ekki
séu þegar undanþegnar söluskatti
— öðrum en gosdrykkjum, öli,
sælgæti og súkkulaðikexi. Með
matvöru teljist hvers konar vörur
sem ætlaðar séu til manneldis, svo
sem kjöt og kjötvörur, mjólk og
mjólkurafurðir, fiskur, ávextir,
grænmeti og aðrar nýjar og
geymsluvarðar matvörur.
Samkvæmt upplý^ingum sem
Mbl. hefur aflað sér voru þó fyrir
ýmsar matvörur undanþegnar
söluskatti. Skal þar fyrst telja
mjólkurvöru, kaffi, te og kakó, kex,
brauð, egg, svo og allir nýir ávextir
og grænmeti.