Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978
Frækilegt björgunarafrek
Korchnoi náði jafntefli
þrátt fyrir hrakspár
Kortsnoj náði jafntefli þrátt fyrir
hrakspár.
Kortsnoj’ á allan heiður skilinn
fyrir virðingarverða viðleitni til
þess að glæða þetta einvígi lífi og
lit með djarflegri og nýstárlegri
taflmennsku í 20. skákinni. Karpov
notfæröi sér á meistaralegan hátt
þá litlu stöðuyfirburði sem hann
fékk með tilkomu peðameirihluta á
drottningarvæng. Biðleikur Karp-
ovs orkaði tvímælis en staöan var
mjög flókin og þrátt fyrir 30
mínútna umhugsun á biðleikinn
fann Karpov ekki þann bezta og
Kortsnoj slapp fyrir horn, en
margir skákmeistarar, þar á meöal
aðstoðarmaður hans, Keene, hafði
spáð Kortsnoj tapi. Endataflstækni
Kortsnojs naut sín vel í lok
þessarar skákar og með riddara-
fórn innsiglaöi hann jafntefliö.
Heföi Kortsnoj tapaö þessari skák
má telja víst að örlög hans hefðu
verið ráöin en með þessu jafntefli
lifir hann og áhangendur hans
ennþá í voninni um að hann fari að
vinna skák og jafna muninn sem
ennþá er 4—1 (og 15 jafnteflis-
skákir sem ekki eru taldar með)
20. einvígisskákin
Hvítt: Karpov
Svart: Kortsnoj
Caro — Kan vörn.
1. e4 — c6! (Loksins eitthvaö nýtt.
Þessa vörn hefur Kortsnoj aldrei
notað fyrr í einviginu og áreiðan-
lega afar sjaldan á sínum langa
skákferli. Aðalvopn hans hefur
verið annaðhvort Spánski leikurinn
eða Frönsk vörn 1.... e6. Korts-
noj hefur réttilega ekki séð annað
ráð vænna en að brydda upp á
einhverju nýju til þess að koma
andstæöingi sínum á óvart og
leiða skákina af alfaraleiöum.
Fyrrum heimsmeistari M. Botvinn-
ik beitti fyrir sig oft þessari vörn
með góðum árangri en Karpov
hefur einmitt gengið í skóla til hans
og eflaust numið eitthvaö af
fróðleik Botvinniks um þessa
byrjun.)
2. d4 — d5, 3. Rd2 — dxe4, 4.
Rxe4 — Rf6! (Stríðshanzkanum er
kastaö! Algengasti leikurinn í
þessari stöðu er 4.. . . Bf5 en
textaleikurinn hefur rutt sér rúms
undanfarið og meðal annarra sem
beitt hafa þessum leik er einmitt
aðstoðarmaður Kortsnojs, Ray-
mond Keene.)
5. Rxf6 — exf6!7 (Kortsnoj reynir
allt til þess að fara ekki troönar
slóðir. Algengara er að leika 5....
gxf6. Með textaleiknum tekur
Kortsnoj nokkra áhættu þó lítil sé
því nú fær hvítur peöameirihluta
drottningarmegin og eins og skák-
in teflist kemur sá ókostur mjög
vel í Ijós. Ein af undirstööureglun-
um í skák hljóöar þannig aö betra
sé aö drepa inn á boröiö (þ.e.
5. . . . gxf6) heldur en frá miðborð-
inu eins og Kortsnoj gerir. Kostur-
inn við leik Kortsnojs er hins vegar
sá að hann verður fljótur að koma
mönnum sínum í ákjósanlear
stööur og virðist ná fyllilega jöfnu
tafli).
6. Bc4 — Rd7 (Svartur undirbýr að
leika Rb6 og síöan Rd5 þar sem
riddarinn stæöi einna bezt)
7. Re2 — Bd6, 8. 0-0 — 0-0 (Annar
möguleiki var 8.... Dc7 til þess að
koma í veg fyrir næsta leik hvíts
Bf4. Áður en Kortsnoj tefldi þessa
skák undirbjó hann þessa vörn
með arngentíska skákmeistarnum
Oscar Panno sem er honum til
aðstoðar á Filipseyjum ásamt
fleirum. Við undirbúningsrann-
sóknir þeirra kvöldið áður kom
þessi spurning upp, en Kortsnoj
gerði ekki upp á milli þessara
leikja og var ánægöur meö þá
báöa).
9. Bf4 — Rb6, 10. Bd3 — Be6, 11.
c3 — Rd5, 12. Bxd6 — Dxd6, 13.
Dd2 — Had8, 14. Hfe1 — g6, 15.
Had1
(Keppendur hafa nú lokið liðsskip-
an og er hér var komiö sögu hafði
Karpov notað 45 mínútur en
Kortsnoj 10 mín. minna eða 35
mínútur. Þá ályktun má því draga
að byrjanval Kortsnojs hafi
þröngvað Karpov til þess að hugsa
sig örlítið lengur um en Kortsnoj.
Eins og fyrr segir er staöan í
jafnvægi utan þaö aö tvípeö svarts
er honum heldur fjötur um fót og
peðameirihluti hvíts á drottningar-
væng gefur honum viss fyrirheit)
15.. .. Kg7, 16. Be4 — Rc7, 17. b3
— Hfe8, 18. Bb1 — Bg4 (Kortsnoj
tekur það ráð að skipta upp á
biskup og riddara hvíts frekar
heldur en aö bíöa eftir komu
riddarans til f4 þar sem hann væri
ógnandi. Hvítur fellur ekki í þá
gildru að veikja peöastöðu sína að
óþörfu með 19. f3)
19. h3 — Bxe2, 20. Hxe2 — Hxe2,
21. Dxe2 — Rd5, 22. Dd2 — Rf4,
(Kortsnoj sýnist hafa komið ár
sinni vel fyrir borð með vel
staðsettan riddara á f4 en þar
hefur hann þó engin skotmörk að
herja á).
23. Be4 — f5 (Þessari framrás
fylgir sá ókostur aö skálína opnast
á svarta kónginn en svartur verður
aö sjálfsögöu að reyna aö nýta
peöameirihluta sinn á kóngsvæng)
24. Bf3 — h6, 25. h4 — Re6, 26.
De3 — Rc7, 27. c4! (Nú fer hvítur
af stað með sín peð á drottningar-
væng og um leið fer að þrengjast
athafnafrelsi svarta riddarans)
27.. .. f4, 28. Dc3 — Df6,
(Hvítur hótaöi fráskák d5 og
svartur vill frekar hindra það með
Df6 frekar en að leika t.d. Kg8 sem
hefði þó ekki verið miklu skárra. Til
þess að koma í veg fyrir væntan-
tega innrás hvítu drottningarinnar
á drottningarvæng hefði svartur
orðið að leika í 27.... b6, en því
fylgir hins vegar sá galli að peðið
á c6 er oröið veikt).
29. Da5! (Mjög öfugur leikur því nú
tapar svartur peði)
29 ... Re6 (Svartur herjar á d4 peð
hvíts í staðinn en hvítur á sterkan
svarleik ...)
30. d5! cxd5, 31. cxd5 — b6!
(Lúmskur millileikur en Karpov sér
lengra ...)
32. Da4! (Ekki 32. Dxa7 strax
vegna 32 ... Rd4 og svarti riddar-
inn er mjög ógnandi)
32.. . Rc5, 33. Dxa7 — Rd7
(Keppendur voru með sæmilegan
umhugsunartíma afgangs á þessu
stigi; þannig átti Karpov eftir 40
Skák
Gunnar Gunnars-
son skrifar um
20. einvígisskákina
mínútur til aö Ijúka 40 leikja
markinu en Kortsnoj átti eftir 20
mínútur)
34. d6 — Dxh4 (Svartur hirðir þaö
sem til fellur meðan hvítur geysist
upp með d-peöið)
35. Dc7 — Df6, 36. b4 — h5, 37.
a4 — Kh6, 38. b5 — g5, 39. Bc6
— Rc5, 40. d7 — Kg7, 41. He1 —
Re6 (Hér lék Karpov biðleik)
(Staöa Kortsnoj lítur svo sannar-
lega ekki vel út og ekki óeðlilegt
að mönnum kæmi saman um að
hún væri töpuð. Karpov hugsaði
sig lengi um biðleikinn, en tveir
leikir koma til greina 42. Dxb6 eöa
sá sem hann lék. Það sem Karpov
þurfti að hugsa um voru af-
leiðingarnar eftir 42. Dxb6 — g4
og síðar g3. Biðleikur Karpovs er
einkennandi fyrir hann: hann leikur
öruggari leiknum og áhættuminni
en um leið aukast jafnteflislíkur
Kortsnojs að miklum mun, enda
þótt hann veröi í framhaldinu að
beita allri sinni víöfrægu varnar-
tækni til þess að innbyrða jafntefl-
ið)
42. Dd6? — g4 (Eina mótspil svarts
eru peðin á kóngsvæng sem eru
komin á verulegt skrið)
43. Kf1 — g3, 44. De5 (Mótspil
svarts hefur borið árangur: hvítur
er farinn aö ugga um sinn hag og
býöur því drottningarkaup í
öryggisskyni. Vegna frelsingjans á
d-línunni og peöanna á
drottningarvæng er hvíta staöan
ennþá til muna vænlegri, en nú
fáum viö aö sjá hina gífurlegu
varnartækni Kortsnojs)
44... h4, 45. a5 (Karpov afræöur
að fórna a-peðinu til þess að hraöa
uppkomu b-peðsins).
45 ... bxa5, 46. b6 — Dxe5, 47.
Hxe5 — Hb8, 48. b7 — Rd8, 49.
He8 (Svarta staöan lítur vægast
sagt hörmulega út. Báðir menn
hans bæði riddari og hrókur eru
bundnir uppi á borði og geta sig
hvergi hrært)
49 ... Kf6, 50. fxg3 — fxg3, 51.
Ke2 — Kg7 (Svartur hefur ekki um
margt að velja)
52. Bf3 — a4, 53. He4 — Kf6 (Ekki
53 . . . Rxb7 vegna 54. Hg4 og
síðan Bxb7 og vinnur)
54. Hxa4 — Ke7, 55. Hxh4 (Hvítur
gat aö sjálfsögöu reynt aö valda
d-peðið með 55. Hd4 en eftir
55 ... Re6 kemst hvítur lítið áleið-
is)
55 ... Kxd7 (Svartur hefur náö
þeim merkilega áfanga aö drepa
hinn hættulega frelsingja á d-lín-
unni og þar meö þokast nær
jafnteflinu)
56. Hf4 — Kd6, 57. Hb4 — Kc7, 58.
Hc4 — Kd7, 59. Bg4 — Ke8,
60. He4 — Kf8, 61. Bd7 — Hxb7/
(Svartur fórnar manni til að
tryggja sér jafnteflið)
62. He8 — Kg7, 63. Hxd8 — Hb2,
og keþpendur komu sér saman um
jafntefli meö því aö ýta leikjablöð-
um hvors annars yfir til hins til
undirskriftar, en þannig fara þessir
kepþendur aö þegar þeir bjóða
jafntefli, en eins og menn muna
hafa þeir komið sér saman um
ræðast ekki við meðan á þessu
einvígi stendur a.m.k.
Áframhaldiö gæti orðið þannig:
Ef, 64. Kf3 — Hd2, 65. Kxg3 —
Kf6 og svartur vinnur biskupinn
aftur. Ef 64. Ke3 — Hxg2 og
skákin er orðin fræðilegt jafntefli
enda þótt hvítur hafi manni meira.
Er Korchnoi að
sækja í sig veðrið?
ÚRSLIT 20. einvígisskákarjnnar á
sunnudag, sem lauk með jafntefli
eftir 63 leiki, eru athyglisverð og
sýna svo ekki verður um villzt, að
Korchnoi er ekki af baki dottinn
og menn bíða bess nú spenntír að
sjá hann stýra hvítu mönnunum
gegn Karpov í 21. skákinni í dag.
Korchnoi gerði bað sem talið var
útilokað, er skákin fór í bið á
laugardag, að halda jöfnu og tefla
endataflíð óaöfinnanlega.
Skákin á laugardag var baráttu-
skák með ýmis tækifæri á báða
bóga. Korchnoi beitti Caro Kann
vörn, líklega í fyrsta skipti á
skákferli sínum. Karpov brást á
hefðbundinn hátt við pessari vörn
og fram eftir skák var sfaðan
jafnteflisleg. En í 22. leik lék
Korchnoi ónákvæmt og á auga-
bragði tók Karpov frumkvæöið í
sínar hendur og gat pjarmað að
svörtu mönnum Korchnois með
pví að leika d-peði sínu fram. Og
pegar skákin fór í bið pótti öllum
vera Ijóst, að Korchnoi væri með
koltapaö tafl. En prátt fyrir, að
Karpov eyddi hálfri klukkustund
af tíma sínum í biðleikinn, tókst
honum ekki að finna réttan leik og
Korchnoi fékk tækifæri á að
krækja í jafntefli.
Þessi athyglisveröu úrslit hafa
sumpart varpað nýju Ijósi á
einvígið og peir, sem á annað borð
fylgjast með skák, bera yfirstand-
andi einvígi nú saman við einvígi
peirra Karpovs og Korchnois í
Moskvu árið 1974. Þá munaði litlu,
að Korchnoi tækist aö bera
sigurorð af Karpov eftir að hafa
verið premur vinningum undir.
Hann jafnaði stöðuna í pví einvígi,
en Karpov tókst að merja sigur í
lokaskákinni og vann pví með
einum vinningi. Og ekki er ólík-
legt, pegar úrslit síöustu skáka
hér á Filippseyjum eru höfð í
huga, að eitthvað svipaö muni
endurtaka sig nú. Taflmennska
Karpovs hér, par sem hann hefur
yfirhöndina með 4 vinninga gegn
1 hefur í raun verið afar misjöfn,
hann hefur aldrei virkað mjög
sterkur og teflir alltaf með pá kvöð
ættlandsins á herðum sér, að
hann verði að sanna, að hann sé
fær um að sigra sovézkan útlaga
og andófsmann á skákborðinu.
Svo viröist sem Karpov sé nú að
preytast eða hvernig á að skýra
pað ööru vísi, að pað skuli taka
hann hálfa klukkustund að finna
réttan biðleik og leika síðan
alröngum leik strax á eftir.
Frekari rannsóknir á 20. skák-
inni, er hún fór í biö, hafa sýnt, að
mun fleiri jafnteflismöguleikar
voru í stöðunni en virtist við fyrstu
sýn og pað sem meíra er, að
Korchnoi hefur séð fyrir alla
helztu möguleikana strax að skák
lokinni. Ég hitti hann t.d. glað-
klakkalegan rétt eftir að skákin fór
í bið á laugardag og spurði hann
hvernig horfurnar væru. Hann
sagði auðvitað, að hann hefði betri
stöðu og ef sér hefði ekki skjátlast
í biðleiknum væru margar jafn-
teflisstöður hugsanlegar. Að-
stoðarmenn Korchnois, peir
Keene og Stean ásamt
argentínska stórmeistaranum
Oscar Panno, komust aö raun um
að vissulega haföi Karpov vinn-
ingsmöguleika, ef hann hefði
leikið rétt. En pað gerði hann ekki
og ef vinningur leyndist í stöð-
unni, væri hann ákaflega torsóttur
og flestar stööur sem komu upp
við rannsókn premenninganna
Harry Golombek
skrifar fi/rir
Morgunblaöiö
voru ákaflega flóknar og erfiðar.
Pannó lét svo um mælt, er
Korchnoi hafði lukkazt að halda
jöfnu, að hann hefði sýnt svo ekki
væri um að villast, að hann væri
einn af beztu endataflsmönnum
allra tíma.
Það fór ekkert á milli mála eftir
að skákin fór í bið á laugardag, að
sovézka sendinefndin taldi sigur í
höfn. Það var t.d. greinilegt á
tveimur aðaimönnum nefndarinn-
ar, peim Baturinsky og Balashov,
að peir bókuðu sigur. En eftir að
jafntefli var staðreynd breyttist
heldur betur upplitið á peim og
maður heföi getað haldið eftir
svipnum að dæma, að Karpov
væri premur vinningum undir í
einvíginu. Og hversu kaldhæönis-
legt sem pað nú var, höfðu
Rússarnir látið undirbúa herlega
veizlu á La Plaza hótelinu til að
fagna pví að nú væri aðens einum
vinningi áfátt í að takmarkinu væri
náð. Veizlunni var auðvitað frest-
að og andrúmsloftiö meöal Rúss-
anna var heldur kuldalegt, en
kátína ríkti að sama skaipi í
herbúðum Korchnois.
Nú bíða menn spenntir eftir 21.
skákinni, sem á að tefla í dag. Sá
grunur læöist pó aö sumum, aö
heímsmeistarinn muni fá skákinni
frekstað til fimmtudags, en hann
hefur rétt á að fresta einu sinni
enn. Eins og útlitið er í dag er
allsendis óvíst hvort tekst að leiða
einvígið til lykta í 24 skákum og ef
ekki, er hætta á, að einvígið rekist
á við Ólympíu-skákmótið í Buenos
Aires, sem á að hefjast 25. október
n.k. Hér eru fjölmargir skákmenn
að störfum viö einvígið, sem eiga
að tefla á Ólympíumótinu og
meðal peirra eru t.d. aöstoðar-
menn Korchnois peir Keene og
Stean og sovézki snillingurinn
Mikael Tal, sem er hér sem
fréttaritari sovézka skáktímarits-
ins 64.