Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978 7 Ný tækni í ósannindum Eins og mönnum er kunnugt er útgáfu bráða- birgðalaga óheimil, nema brýna nauðsyn beri til. Af Þeim sökum fylgir for- máli slíkri lagasetningu, Þar sem forsendur fyrir hinni brýnu nauðsym eru raktar og Það er gert í Því formi, að forseti íslands gjörir kunnugt, að við- komandi ráðherra hafi tjáö sér eitt og annað. í nýútkomnum bráða- birgðalögum um kjara- mál, segir, að brýna nauðsyn beri til að hrinda í framkvæmd Þegar í stað ákveðnum ráðstöf- unum til að tryggja rekst- ur atvinnuveganna, at- vinnuöryggi og frið á vinnumarkaði. Síðan seg- ir: „Þar á meðal séu ráðstafanir til Þess að kjarasamníngar gangi að nýju í gildi að Því er varðar laun almennra launÞega." Viö lestur Þessara bráðabirgðalaga kemur í Ijós, aö svo er alls ekki gert. Gengiö er á snið við gerða kjarasamninga í veigamiklum atriðum og við borð liggur, að Því sé slegið föstu, að samn- ingsrétturinn sé numinn úr gildi til 1. des. 1979. Hér er Því farið með bláber ósannindí. Dómur Dufgusar Dufgus er ekki myrkur í máli í Tímanum sl. sunnudag. Þar tekur hann hina nýju ríkisstjórn og stefnu hennar til um- fjöllunar í löngu máli og segir m.a.: „Það er ekkert í sam- starfssamningi stjórn- málaflokkanna, sem bendir ti! Þess, að í alvöru verði ráðizt til atlögu við Þau vandamál, sem alvarlegust eru í íslenzku Þjóöfélagi í dag. Ef stjórnun landsmála verður látin reka á reið- anum, eins og hægt er aö gera samkvæmt sam- starfssamningnum verð- ur verðbólga hér áfram um eða yfir 50% á ári og mun fara vaxandi. Það breytir engu Þar um, Þó að eigi að niöurgreiða verðbólguna. Með Því móti er í bezta falli hægt að leyna vandanum um stundarsakir á meðan hann grefur Þeim mun hraðar um sig.“ Síðar segir Dufgus, að Það sé höfuðnauösyn fyr- ir Framsóknarflokkinn, aö Þannig verði að mál- um staðið, að stuönings- menn hans geti litið á hann sem hyrningarstein allrar festu í fjármálum og efnahagsmálum. Og Dufgus fer ekki leynt með kvíða sinn í Þeim efnum, skírskotar til for- tíöarinnar og segir síðan um Framsóknarflokkinn: „Bregðist hann nú, tákn- ar Þaö endalok stuðnings margra beztu og traust- ustu manna flokksins, svo fremi að einhver annar flokkur veröi ein- hvers trausts verðugur." Fleiri kvíönir en Dufgus i Þessu sama sunnu- dagsblaði Tímans tekur ritstjóri hans Jón Sig- urðsson, Framsóknar- flokkinn til umfjöllunar í Mönnum og málefnum. Honum verður tíðrætt um hið mikla fylgishrun Framsóknar flokksins á Suðvesturlandi, í Reykja- vík og á Reykjanesi, og bendir á, að á Þessu svæði hafi mest fólks- fjölgun verið um langt árabil og Þar búi nú meíra en % landsmanna. Hann segir m.a.: „KjalarnesÞing hiö forna verður Því aö teljast Þungamiðja nútíma Þjóð- lífs, enda Þótt undir- stööuatvinnuvegirnír séu stundaðir um öll byggð- arlög landsins. Hvað sem Því líður er Það Ijóst, að flokkur sem missir fót- anna í Þessum byggðar- lögum er í miklum vanda staddur og á Það mjög á hættu að verða settur til hliðar í Þjóðlífinu.“ Ritstjóri Tímans gerir sér Ijóst, að Framsóknar- flokkurinn getur hér sjálf- um sér um kennt. „Það gildir einu hvaö fram- sóknarmenn sjálfir marg- ir hverjir vildu um Þetta sagt hafa,“ skrifar rit- stjórinn og bætir við: „Stjórnmálaflokkur, sem raunverulega vill vera hlutgengur verður að horfast í augu viö Þessar staðreyndir." í Þessum ummælum felst mikill áfellisdómur og viðurkenning á Því, aö Framsóknarflokkurinn hefur leynt og Ijóst staðið gegn eðlilegri atvinnu- uppbyggingu í Reykjavík og á Suðvesturlandi. Eðlilegur stuðningur viö atvinnurekstur par hefur á máli framsóknarmanna verið fjandskapur við byggðarstefnu í landinu, enda hafa peir leynt og Ijóst unnið gegn Því m.a. að atvinnurekstur á Stór-Reykjavíkursvæðini sæti við sama borð og annars staöar hvað fjár- magnsfyrirgreiðslu varð- ar. Ritstjóri Tímans gerir sér Ijóst, að Það er borin von fyrir Framsóknar- flokkinn, að hann nái fyrri styrkleika á Reykjavíkur- svæðinu, nema hér veröi söölað um. Þess vegna segir hann í Tímanum á sunnudaginn var, að Framsóknarflokkurinn geti ekki vænzt Þess, að fá meðbyr á Suðvestur- landi nema hann sýni fólkinu á Þessu svæði raunverulegan vilja: — „Það er ekki um Það að ræða að hverfa frá byggðastefnunni,“ segir ritstjórinn, „nema síður væri. Þar sem yfirgnæf- andi meirihluti Þjóðarinn- ar býr hljóta að vera byggöirl" Og má raunar segja, að Það sé ekki vonum fyrr sem Þessi almennu sann- indi Ijúkast upp fyrir Þeim, sem ritstýrir Tím- anum. Rétt spor írétta átt, sporin í TorgiÖ t •k Rally — kjormr í skólann ★ Loðfóðraðir. ★ Stæröir 35—41. ★ Litur — Brúnn. ★ Verö 9.150- ★ Rally — fást aðeins í Torginu. Póstsendum um allt land. Austurstræti : 27211 Nýtt — nýtt Frá Sviss, Þýzkalandi, Svíþjóö og ítalíu. Síö pils, stutt pils, blússur, peysur, húfur, hálsklútar, heröasjöl. Glugginn, Laugaveg 49. Verkfæra- hengi Veggplötur ásamt hengjum og krókum til að hafa verkfæri á. Fylgihlutunum má raða á plötuna eftir því sem best hentar. Ómissawii i vinnustöðum, verslunum, t.d. til útstillinga, ag heima við vilji maður hafa hlutina á vísum sta 3. Stærðir: A 2000 mm 475 mm I B 1500 mm 475 mm C 1000 mm 475 mm j D 500 mm 475 mm j ÚSfC£ XLi? Skipholti 17, simar 15159 og 122 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.