Morgunblaðið - 12.09.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1978
41
fclk f
fréttum
WwM
+ Þessi mynd var tekin á
dögunum í Kaupmannahöfn á
uppboði þar sem m.a. var boðið
upp málverkið „Sommeraften
paa Skagen Strand“ (stóra
myndin sem hangir á veggn-
um). býzki blaðakóngurinn
Spinger hreppti þetta lista-
verk. Gaf fyrir það yfir hálfa
milljón danskra króna. Mál-
verkið er eftir P.S. Kröyers og
meðal dýrgripa í danskri mál-
aralist. Ráðgjafi blaðakóngs-
ins, ítalskur listfræðingur,
Lungagnini að nafni, var mætt-
ur á uppboðinu og bauð í
málverkið á vegum Springers,
sem heitir reyndar Axel Cæsar
Springer. Nokkru eftir að
þetta gerðist, en það vakti
mikla athygli á Danmörku,
tilkynnti Springer að málverk-
ið myndi komast aftur í eigu
Dana, því hann myndi gefa það
til Danmerkur að 20 árum
liðnum. Þangað til miin það
hanga í einkasafni blaðakóngs-
ins. En að þeim tíma liðnum
yrði málverkið eign listasafns-
ins í útgerðarbænum Skagen.
— Blaðamaður við Berl. Tid-
ende sendi Springer sjálfum
telexskeyti og sagði í því frá
vonbrigðum Dana yfir því að
þetta listaverk hefði verið
keypt úr landi. — Viðbrögð
Springers urðu sem sé þau, sem
að ofan greinir.
+ Þetta er nýjasta myndin af Grace prinsessu í Monakó. Hún er
hér f Kómahorg í fylgd með fulltrúa Páfagarðs og er á leið til
innsetningarathafnarinnar er Jóhannes Páll I. var settur í embætti.
+ bað gerðist í bænum Whart-
on í Texas í Bandaríkjunum
fyrir skömmu, að dauðadómur
var kveðinn upp yfir 35 ára
gamalli konu, Mary Lou And-
erson. Hún bafði fengið 29 ára
gamlan leigumorðingja til að
myrða föður sinn. Hann hafði
verið líftryggður fyrir 5.000
dollara. Sækjandinn f máli
þessu hafði fullyrt að hin
dauðadæmda kona hefði verið
vændiskona mestan hluta ævi
sinnar. Líftryggingarupphæð-
ina eftir föður sinn hefði hún
ætlað að nota til að bjarga
fjármálum, sem var þannig
háttað að fangelsi vofði yfir
henni. Verði þessum dauða-
dómi fullnægt verður Mary
Lou fyrsta konan sem tekin er
af lífi fyrir meiriháttar glæp í
því vfðlenda ríki Texas, síðan
1863.
Utsala Utsala
Kjólar, dragtir, blússur, pils, 20—80%
verölækkun.
Dragtin Klapparstíg 37.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Prestskosning
Kosning safnaöarprests viö Fríkirkjuna í
Reykjavík fer fram í Miðbæjarskólanum
laugardaginn 16. og sunnudaginn 17.
september n.k. kl. 10.00 til 18.00 báöa
dagana.
í kjöri er: Sr. Kristján Robertsson prestur aö
Kirkjuhvoli.
Þeir safnaöarmeölimir, sem ekki koma því viö
aö kjósa framangreinda daga gefst kostur á
aö kjósa í kirkjunni kl. 16.00 til 18.00 fram
aö kjörfundi.
Safnaöarstjórn hvetur alla meölimi safnaöar-
ins aö taka þátt í kosningunni. Mætum öll á
kjörstaö og lýsum þannig samstööu meö
hinum nýja presti.
Reykjavík, 8. september 1978.
Safnaöarstjórn.
Bjóóum alls konar mannfagnað velkominn.
Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi.
Veisluföng og veitingar að yöar ósk.
Hafið samband tímanlega.
HQTEL
LOFTLEIÐIR smi 22322
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU