Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1979
3
Hermann Guðmundsson Einar Ögmundsson
Átök um kosningu
í atvinnuleysis-
tryggingasjóð
ÁTÖK urðu um kosninKU fulltrúa í stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs
Alþýðusambands íslands á dögunum. Ilugðust Alþýðubandalagsmenn
fella út einn stjórnarmann, Hermann Guðmundsson fv. formann
Hlífar, er lcngi hefur átt sæti í stjórninni, en Einar Ögmundsson
fulltrúi Alþýðubandalagsins studdi Hermann.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér átti að
tilhlutan Alþýðubandalagsins að
fella Hermann Guðmundsson úr
stjórn atvinnuleysistrygginga-
sjóðs. Einar Ögmundsson fulltrúi
Alþýðubandalagsins í stjórn ASÍ
studdi Hermann hins vegar og
vildi ekki hvika frá þeim stuðningi
sínum og hélt Hermann sæti sínu.
Við kosningu varamanna, þar sem
Einar Ögmundsson hefur verið
annar, kom fram tillaga um annan
Alþýðubandalagsmann, Guðjón
Jónsson, og náði hann kosningu
ásamt Óskari Hallgrímssyni. Er
talið að með því hafi Alþýðu-
bandalagsmenn viljað ná sér niðri
á Einari fyrir stuðning hans við
Hermann Guðmundsson. Þess má
að lokum geta, að það var Snorri
Jónsson, forseti ASI, sem stakk
upp á Guðjóni Jónssyni í stað
Einars Ögmundssonar.
Fundir sjálfstæð-
ismanna vel sóttir
Á SUNNUDAGINN voru haldnir
fundir í herferð Sjálfstæðis-
flokksins „Þjóðin var blekkt —
snúum vörn í sókn“ og var
ráðgert að halda fjóra fundi.
Fella varð niður fundi á Ólafsvík
og Siglufirði vegna ófærðar, en
haldnir voru fundir í Vestmanna-
eyjum, Dalvfk og Garðinum. Þá
voru haldnir fundir á Sauðár-
króki og á Snæfellsnesi, í
Grundarfirði og í Ólafsvík.
Að sögn Birgis ísl. Gunnars-
sonar voru fundirnir vel sóttir og
urðu „miklar umræður, sem báru
vott um áhuga fundarmanna á
Sjálfstseðisflokknum“, að því er
Birgir ísleifur sagði.
Frumvarp á Alþingi:
Umboðslaun greiðist
af söluverði en ekki út-
flutningsbótum búvöru
TVEIR þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, Pálmi Jónsson og Al-
bert Guðmundsson, hafa iagt
fram á Alþingi frumvarp til laga,
þess efnis, að umboðslaun af sölu
iandbúnaðarafurða erlendis skuii
framvegis greiðast sem ákveðinn
hundraðshluti af því verði, sem
fyrir vöruna fæst en ekki af
heildsöluverði, sem er verulega
hærra vegna mikilla útflutnings-
bóta úr ríkissjóði. í greinargerð
kemur fram, að Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga, sem er
helzti útflytjandi ísienzkrar bú-
vöru, hefur fengið greidd umboðs-
laun af heildsöluverði eins og það
er ákveðið í upphafi verðlagsárs.
Hefur raunvirði vörunnar
erlendis þá engin áhrif á upphæð
umboðslauna útflytjandans, held-
ur greiðast þau einnig að hluta af
því fé, sem varið er til útflutnings-
uppbóta. Tæplega verður fallist á,
segir ennfremur í greinargerðinni,
að hér sé farið að í samræmi við
eðlilegar viðskiptavenjur.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að landbúnaðarráðherra ákveði
umboðslaun fyrir útfluttar bú-
vörur að fengnum tillögum fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, en það
er flutt til breytinga á lögum nr.
101/1966 um framleiðsluráð land-
búnaðarins, verðskráningu, verð-
miðlun og sölu á landbúnaðarvör-
um o.fl.
SÁÁ ræða við skóla-
fólk í 14 kaupstöðum
SAMTÖK áhugafólks um áfengis-
vandamálið, SAÁ, efndu í gær til
fræðslufundar með 13—16 ára
nemendum í Gagnfræðaskóla
Keflavíkur og sóttu um 450
nemendur fundinn. í síðustu viku
voru gagnfræðaskólarnir á Akra-
nesi og í Hafnarfirði heimsóttir
þar sem málin voru rædd við
rösklega 1000 nemendur og auk
þess voru haldnir almennir
fræðslu- og leiðbeiningafundir á
þessum stöðum.
SÁÁ mun á næstu vikum heim-
sækja 14 aðra kaupstaði sam-
kvæmt upplýsingum Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar framkvæmda-
stjóra SÁÁ. í kvöld kl. 20.30
verður almennur fræðslu- og
ieiðbeiningafundur haldinn í
Gagnfræðaskólanum í Keflavík og
er hann opinn öllum.
Kveninniskór
frá kr. 390
Kvenpeysur
frá kr. 990
Kvenblússur
frá kr. 950
Pils
frá kr. 1.900
Brjóstahöld
frá kr. 800
Sokkabuxur
frá kr. 195
Strigaskór
frá kr. 495
Snjóbomsur
frá kr. 2.700
Stígvél
frá kr. 490
Flauels- og gallabuxur
frá kr. 2.500
Vinnuskyrtur
frá kr. 1.300________
Herraskyrtur
frá kr. 1.500
Gluggatjaldaefni
frá kr. 790__________
Flónel efni
frá kr. 230__________
Flauel efni
frá kr. 690
Denim efni
frá kr. 990
Köflótt léreft
frá kr. 495
TORGSINS
úsinu Haliveigarstíg
IÐNADARHÚSINU
HALL VEIGARSTÍG