Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979
31
Breytingar á úthlutunarreglum L.Í.N:
Fulltrúi f jármálaráðherra
andvígur, námsmenn sátu hjá
Samþykktar hafa verið breyt-
ingar á úthlutunarreglum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna fyrir
árið 1978 til 1979, en fyrri reglur
frá árinu 1976 hafa sem kunnugt
er verið ákaflega umdeildar,
einkum þó og sér í lagi fyrir
verðtryggingu námslánanna.
Einnig voru mjög umdeildar
reglur sem þáverandi sjóðsstjórn
setti um úthlutun eftir fjölskyldu-
stærð og fjölskylduaðstæðum
námsmanna. Á sínum tíma höfð-
aði S.I.N.E. mál vegna þessa máls,
eins konar prófmál, þar sem fyrir
voru teknar aðstæður námsmanna
í Noregi. í sumar féll dómur í
málinu fyrir bæjarþingi, náms-
manninum í vil. Málinu var áfrýj-
að, og hefur Hæstiréttur enn ekki
kveðið upp úrskurð sinn, en að því
er formaður sjóðsstjórnarinnar,
Þorsteinn Vilhjálmsson, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
telur meirihluti sjóðsstjórnarinn-
ar núverandi, gömlu reglurnar
ólöglegar, og er því sammála
dómnum.
í samráði við menntamálaráð-
herra hafi því verið eitt af fyrstu
verkefnum stjórnarinnar að
breyta þessum reglum, og er því
starfi nú lokið. Þær breytingar
sem nú eru lagðar fram eru gerðar
með samþykki tveggja sjóðsstjórn-
armanna, einn var á móti, en tveir
sátu hjá . Það voru tveir fulltrúar
frá menntamálaráðherra sem voru
samþykkir, fulltrúi fjármálaráð-
herra var andvígur og fulltrúar
námsmanna sátu hjá.
Sjóðsstjórnin er skipuð fyrr-
greindum þremur fulltrúum ríkis-
valdsins en þremur fulltrúum
námsmanna, en þó hefur ríkis-
valdið meirihluta ef í odda skerst,
því atkvæði formanns ræður úr-
slitum.
Helstu atriðin í breytingunum á
úthlutunarreglunum fara hér á
eftir:
1. Reiknaður framfærslukostn-
aður námsmanns fer eftir fjöl-
skyldustærð og öðrum aðstæð-
um skv. sérstökum hlutfalls-
stiga. Þessi aðferð tryggir að
námsmaður með stærri fjöl-
skyldu fær alltaf hærra lán, ef
eins stendur á að öðru leyti.
2. Tekin er upp sú aðalregla að
framfærslukostnaður náms-
Afskipunum
á síld lýk-
ur í þess-
um mánuði
manns og fjölskyldu hans
reiknast í heilt ár en allar
tekjur á þeim tíma hafa áhrif
til lækkunar á námslán.
3. Tekið er umsvifalaust til
greina ef tilteknar gildar
ástæður valda því að náms-
maður hefur skertar vinnu-
tekjur í leyfum eða maki hans
getur ekki aflað tekna. Hér
getur t.d. verið um að ræða
atvinnuleysi, veikindi, ómegð
eða barnsburð.
4. Tölur sjóðsins um reiknaðan
framfærslukostnað á mánuði
eru hækkaðar um Vi eða 8,33%
umfram verðlagshækkanir,
m.a. til móts við þá almennu
kaupmáttaraukningu sem orð-
ið hefur í landinu á síðastliðn-
um 2—3 árum. Aflað er fjár til
þessarar hækkunar með því að
breyta meðferð á tekjum
námsmanns þannig að þær
dragast nú að fullu frá fram-
færslukostnaði. Skv. fyrri
reglum gat námsmaður hins
vegar haft tekjur allt að svo-
kölluðum marktekjum sem
Ef yður vantar rafritvél fyrir
heimilið eða skrifstofuna er
rétta vélin.
Gott verð. Mikil gæði.
ívar
Skipholti 21. Reykjavik,
simi 23188.
voru nokkru hærri en fram-
færslukostnaður hans i leyf-
um.
5. Beinn námskostnaður, þ.e.
kostnaður vegna bóka, rit-
fanga og annarra námsgagna,
kemur nú að fullu til viðbótar í
námsláni, í stað þess að áður
gerði hann það aðeins að 68
hundraðshlutum.
6. Settar eru efnislega nýjar
reglur um meðferð tekna hjá
þeim sem hefja nám að nýju
eftir nokkurt hlé sem þeir hafa
notað til vinnu á almennum
vinnumarkaði. Vonast er til að
hinar nýju reglur auðveldi
fólki með almennar launatekj-
ur að komast inn í námslána-
kerfið ef það vill hætta vinnu
og t.d. fara í framhaldsnám.
7. Samhliða því sem framfæri
Wellenkupplung
Uonax Planox Vulkan
Doppelflex Hadeflex
SflQmrBaiuigjiyir
<& (g@
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Byggingavöru-
afsl áttur
í Ný borgáfo
1.—17 , U februar
Nýborg, Byggingavörur, Ármúla 23, sími 86755.
LOKATÖLUR um söltun Suður-
landssíldar á haust- og vetrar-
vertíðinni liggja nú fyrir.
Hcildarsöltunin varð 194.417
tunnur eða um 28% meiri en á
vertíðinni 1977, en þá var saltað
meira af SuðurlandssiTd en
nokkru sinni áður. Af hringnóta-
sfld var saltað í 106.248 tunnur,
en af reknetasfld voru saltaðar
88.169 tunnur. Svipað magn af
þessum tölum fór í flök eða
tæplega 12 þúsund tunnur.
Þrír staðir skáru sig nokkuð úr
með söltuharmagn á vertíðinni,
Höfn í Hornafirði með 49.498
tunnur, Vestmannaeyjar með
39.079 tunnur og Grindavík með
29.125 tunnur. Síld var unnin á 15
stöðum á vertíðinni.
Afskipanir hafa staðið yfir
stanzlaust frá því í nóvember og er
nú búið að flytja út samtals um
108.000 tunnur. Verið er að lesta
þessa dagana um 13.000 tunnur í
M/s Hvassafell til Sovétríkjanna
og um 12.000 tunnur í M/s Skeiðs-
foss til Norðurlanda. Gert er ráð
fyrir að afskipunum verði að
mestu lokið í lok febrúar.
Nýtt frá
R0WENTA
KAFFIKANNA + HITABRÚSI
HAGSTÆTT VERÐ.
Fæst í næstu raftækjabúö.
maka er tekið inn í útreikning
námslána er tekið aukið tillit
til tekna makans. Ef makinn
er tekjulágur og hefur gildar
ástæður til þess, verður þetta
til þess að námslán hækkar
verulega, en á hinn bóginn
lækka lán þeirra sem eiga
tekjuháa maka, til að mynda
lán til barnlausra hjóna sem
hafa vinnutekjur sem svara
200 þús. á mánuði á núverandi
verðlagi, eða þar yfir.
8. Gert er ráð fyrir að námsmað-
ur eða maki geti verið tekju-
lausir í allt að 6 mánuði við
barnsburð.
9. Tekið er sérstakt tillit til þess
kostnaðar sem fylgir börnum
ef báðir foreldrar eru í fullri
vinnu, að meðtöldu námi. Hér
er m.a. átt við dagvistunar-
kostnað eða hliðstæðan kostn-
aðarauka.
10. Við merðferð á tekjum náms-
mannafjölskyldunnar er ævin-
lega byrjað á því að draga frá
skatta sem hún hefur sannar-
lega greitt á tekjuöflunartíma-
bilinu.
Varahlutir
I bflvélar
Stimplar,
sltfar og hringir
Pakknlngar
Vélalegur
Ventlar
Ventilstýringar
Ventilgormar
Undirlyftur
Knastásar
Tímahjól og keðjur
Olíudælur
Rokkerarmar
Þ JÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84S15 — 84516
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði
í febrúar og marz 1979.
Skoðun fer fram sem hér segir
Mánudagur 12. febrúar G-1 til G-150
Þriöjudagur 13. febrúar G-151 til G-300
Miövikudagur 14. febrúar G-301 til G-450
Fimmtudagur 15. febrúar G-451 til G-600
Föstudagur 16. febrúar G-601 til G-750
Mánudagur 19. febrúar G-751 til G-900
Þriöjudagur 20. febrúar G-901 til G-1050
Miövikudagur 21. febrúar G-1051 til G-1200
Fimmtudagur 22.febrúar G-1201 til G-1350
Föstudagur 23. febrúar G-1351 til G-1500
Mánudagur 26. febrúar G-1501 til G-1650
Þriöjudagur 27. febrúar G-1651 til G-1800
Miövikudagur 28. febrúar G-1801 til G-1950
Fimmtudagur 1. marz G-1951 til G-2100
Föstudagur 2. marz G-2101 til G-2250
Mánudagur 5. marz G-2251 til G-2400
Þriöjudagur 6. marz G-2401 til G-2550
Miövikudagur 7. marz G-2551 til G-2700
Fimmtudagur 8. marz G-2701 til G-2850
Föstudagur 9. mars G-2851 til G-3000
Mánudagur 12. marz G-3001 til G-3150
Þriöjudagur 13. marz G-3151 til G-3300
Miðvikudagur 14. marz G-3301 til G-3450
Fimmtudagur 15. marz G-3451 til G-3600
Föstudagur 16. marz G-3601 til G-3750
Mánudagur 19. marz G-3751 til G-3900
Þriöjudagur 20. marz G-3901 til G-4050
Miövikudagur 21. marz G-4051 til G-4200
Fimmtudagur 22. marz G-4201 til G-4350
Föstudagur 23. marz G-4351 til G-4500
Mánudagur 26. marz G-4501 til G-4650
Þriöjudagur 27. marz G-4651 til G-4800
Miövikudagur 28. marz G-4801 til G-4950
Fimmtudagur 29. marz G-4951 til G-5100
Föstudagur 30. marz G-5101 til G-5250
Skoöun fer fram viö Suöurgötu 8, Hafnarfirði frá kl.
8.15 til 12.00 og 13.00 til 16.00 alla framangreinda
skoöunardaga.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiöum til skoðunar. Viö skoöun skulu ökumenn
bifreiöanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber
skilríki fyrir því, aö bifreiðaskattur og vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því aö
skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver aö koma bifreið sinni til skoöunar á
auglýstum tíma, veröur hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferöarlögum og bifreiðin tekin úr
umferö hvar sem til hennar næst. •
Viö fullnaðarskoðun bifreiöa skal sýna Ijósastillingar-
vottorö.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga aö máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
1. febrúar 1979.
Einar Ingimundarson.