Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 48
Tillitssemi kostar ekkert JltoriptttMiiMb ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979 verzno í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Brast á með fárviðri í Öxarfirði: Einn bátur komst til hafnar, 6 í var við Tjörnes „Sízt betra en í mannskaðaveðrinu 15. jan. s.l„” sagði skipstjórinn á Helgu Guðmunds 7 RÆKJUBÁTAR frá Húsavík lentu í gær í svipuðu veðri og mannskaðaveðrinu 15. jan. s.l., en komust allir heilu og höldnu til Iiúsavíkur eða í var. í morgun reru 7 rækjubátar frá Húsavík í góðu veðri á rækjumiðin austur í Öxarfirði, en þar voru þeir að veiðum í góðu veðri fram undir kl. 16. Þá brast hann á með fárviðri eins og hendi væri veifað, eins og einn skipstjórinn orðaði það, með stormi og hríð. Bjuggu allir bátarnir sig þá strax til heimferðar, en veður fór versnandi og um kl. 18 voru komin 10 vindstig á Mánárbakka og 400 m skyggni. Helga Guðmunds, skip- stjóri Guðmundur Karlsson, einn þeirra þriggja báta sem lentu á hliðinni í janúarveðrinu, var fyrst- ur af stað heim og var kominn lengst þegar veðrið var orðið alveg vitlaust, en hann hélt áfram inn til Húsavíkur og kom þangað kl. 21, Smygl fannst í Grundarfossi TOLLVERÐIR fundu 104 flöskur af áfengi og 20 kassa af bjór í ms. Grundarfossi um helgina, en skip- ið lá þá í Reykjavikurhöfn. Vínið, sem var aðallega vodka, var falið í íbúðum skipverja. Grundarfoss var nýkominn frá Evrópuhöfnum. eftir 5 tíma siglingu sem venjulega tekur tvo tíma að sigla. Guðmund- ur sagði að þetta veður hefði sízt verið betra en janúarveðrið þegar það var verst, en hann var kominn það langt fram fyrir nesið þegar mest gekk á að hann hélt áfram til Húsavíkur. Hinir bátarnir 6 sneru við við Hnarrann og leituðu allir vars á Bangastaðahöfn sem er austan á Tjörnesi og þar liggja þeir að talið er í öruggu vari, en Björgunar- sveitin Garðar sendi strax tvo talstöðvarbíla út á Tjörnes, því ekkert heyrðist á Húsavík til bátanna þar sem þeir liggja undir háu bjargi. Þegar fréttaritari Mbl. á Húsavík símaði í gærkvöldi höfðu björgunarsveitarmennirnir haft samband við alla bátana og allt var í bezta lagi. Björgunar- sveitin áætlaði að vera á vakt í nótt við Bangastaðahöfn og eins á Húsavík.Sjá „Stormurinn“ á bls 2. Kærði sama manninn fyrir tvær nauðganir Osk um gæzluvarðhald synjað UNG stúlka kærði um helgina tæplega þrítugan mann fyrir að hafa nauðgað sér tvisvar nú nýlega og liðu nokkrir dagar á milli brotanna, að sögn stúlkunnar. Rannsóknarlögregla ríkisins fékk málið til meðferðar um helg- ina. Gaf stúlkan þá skýringu að hún hefði ekki kært málið strax vegna hræðslu við manninn, sem hún kærði. Maðurinn var handtekinn um helgina og á sunnudaginn gerði Rannsóknarlögreglan kröfu um það að maðurinn yrði hnepptur í gæzluvarðhald. Sakadómur Reykjavíkur synjaði hins vegar þeirri beiðni. Maðurinn sem um ræðir mun áður hafa verið tengdur fjölskyldu stúlkunnar. Nemendur Kennaraháskóla íslands gengu í gær fylktu liði til fjármálaráðherra og menntamálaráð- herra til þess að mótmæla vinnuaðstöðu, húsnæðis- og kennaraskorti við skólann. Hluti nemenda settist inn í ráðuneytin og voru þeir þar í 2 klukkustundir. Ragnar Arnalds menntamálaráðherra ræddi við nemendurna og tók ljósm. Mbl., Kristján, myndina við það tækifæri. Sjá nánar „Ákæra menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og stjórnvöld“, bls. 20 og 21. „Ekki á þeim bux- unum að semja” Segir Björn Guðmundsson formaður FÍA—Flugfélags- menn og stjórn Flugleiða höfnuðu sáttatillögu STJÓRN Flugleiða og allir flug- menn í FÍA, sem greiddu atkvæði um sáttatillögu sáttanefndarinn- ar f deilu flugmanna, höfnuðu tillögunni sem óaðgengilegri. 48 flugmenn greiddu atkvæði og sögðu þeir allir nei og í bréfi stjórnar Flugleiða til sátta- nefndarinnar kvaðst stjórnin ekki geta fallist á þessa miðlunar- tillögu. Samkvæmt upplýsingum Björn Guðmundsson t.v. afhendir Hallgrfmi Dalberg atkvæðaseðla um sáttatillöguna áður en talning hófst í gær. Ljósmynd Mbl. Ól. K. M. Hallgríms Dalbergs formanns sáttanefndarinnar gerði sáttatil- lagan ráð fyrir því að launajöfnuð- ur yrði á tveimur árum í áföngum milli flugmanna á Boeing 727 og DC-8 og átti þetta að eiga sér stað í þremur áföngum. Þá áttu laun á Fokker að verða 95% af föstu kaupi flugmanna á Boeing 727 væri um 15 ára starfsaldur að ræða, en 94% hefði flugmaðurinn ekki náð 15 ára starfsaldri. Þá gerði sáttatillagan ráð fyrir þremur möguleikum varðandi lausn á samræmingu starfsaldurs- lista, en um það snýst málið fyrst og fremst og var þar í fyrsta lagi gert ráð fyrir því að stjórnir FÍA og FLF freisti þess að ná sam- komulagi um tvo menn fyrir 1. marz til þess að leysa þessi mál með fulltrúa frá Hæstarétti sem Jan Mayen rætt á þingi: Engin útfærsla án sam- ráðs við íslendinga — Sagði utanríkisráðheiTa vegna fyrirspumar Eyjólfs Konráðs Jónssonar EYJÓLFUR Konráð Jónsson bar fram utan dagskrár f efri deild Alþingis í gær fyrirspurnir í framhaldi af ummælum Bene- dikts Gröndals, utanríkisráð- herra, f norska sjónvarpinu sl. miðvikudag um heimild Norð- manna til efnahagslögsögu við Jan Mayen og fréttaflutningi af þeim. Spurðist hann fyrir um, hvað ráðherra og rikisstjórn áformi að gera til að tryggja hagsmuni íslands á Jan Mayen- svæðinu utan 200 sjómílna efna- hagslögsögu íslands; hvort ríkis- stjórnin hefði eitthvað gert til að hraða rannsókn á landgrunni ísiands og hvað fyrirhugað væri í því efni; hvort rikisstjórnin hefði eitthvað gert til að gæta réttinda okkar þegar ytri landgrunns- mörk til suðurs verði ákvörðuð og hvað fyrirhugað væri í því efni — og loks, hvort samstarf við Færeyinga um sameiginlega réttargæzlu þjóðanna hefði verið rædd við þá. — Skoraði Eyjólfur á utanrfkisráðherra að taka þessi mál, og þó einkum Jan Mayen- málið, upp á ríkisstjórnarfundi í dag, þar sem mörkuð yrði skýlaus afstaða stjórnarinnar — til að taka af öll tvímæli í þessu stóra hagsmunamáli. Meginatriði í svörum utanríkis- ráðherra voru þessi: • — 1) Fyrirheit hafa fengist frá norskum yfirvöldum þess efnis, að Norðmenn færi ekki út fiskveiði- landhelgi við Jan Mayen án þess að ræða það mál fyrst vandlega við íslenzk yfirvöld. Stöðugt samband hefur verið haft við norsk yfirvöld, ráðherra, ambassadora og aðra embættismenn um þetta mál. • — 2) Fulltrúar íslands hafa aldrei látið í ljósi neins konar viðurkenningu á rétti Jan Mayen til fiskveiðilögsögu. Ummæli í norska sjónvarpinu fólu ekki í sér viðurkenningu af þessu tagi. • — 3) Ég hefi alltaf neitað að segja orð um miðlínu milli íslands og Jan Mayen, en höfðað til sann- girnissjónarmiða, en hér býr heil þjóð, sem lifir á fiskveiðum, en á Jan Mayen enginn, sem lifir á auðlindum lands eða sjávar. • — 4) Samkomulag hefur orðið um að auka samstarf við Færey- inga um rannsóknir á loðnustofn- inum og göngum hans. Munu fundir þar um hefjast í Reykjavík eftir nokkrar vikur. Þingræða Eyjólfs Konráðs Jóns- sonar, meginatriði úr svari Bene- dikts Gröndal, utanríkisráðherra, og efnisatriði úr umræðunni eru birt á bls. 20—21 í dag. þriðja aðila. Annar möguleikinn reiknar með að hvort flugmanna- félag um sig skipi fulltrúa í þriggja manna nefnd fyrir 1. apríl og þriðji möguleikinn gerir ráð fyrir að Hæstiréttur skipi alla þrjá fulltrúana fyrir 1. maí 1979, en Hæstiréttur hefur fallist á að verða við slíku ef til kemur. Morgunblaðið náði sambandi við Björn Guðmundsson formann FÍA í gærkvöldi og innti hann álits á niðurstöðum atkvæðagreiðsl- unnar. „I fyrsta lagi, “ sagði Björn, „gekk sáttatillagan ekki nógu langt, við höfum hugsað okkur að ganga alla leið í launajöfnuninni, teljum það réttlætismál að fá sömu laun fyrir sömu vinnu. Hvað snertir kröfuna um leiðaskipting- una þá var þeirri kröfu ekki svarað í sáttatillögunni, en hvað snertir starfsaldurslistamál þá eru flug- menn Flugfélags Islands ekkert á þeim buxunum að semja né hlanda þeim málum saman við lista Loft- leiðaflugmanna. Ef listi yrði sam- einaður nú og uppsagnir yrðu út frá því að yngstu flugmönnunum yrði sagt upp þá myndi það bitna mun meira á flugmönnum Flugfé- lags íslands." Ekki náðist í forstjóra Flugleiða í gærkvöldi til þess að heyra álit þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.