Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979
47
Teheran, 5. febrúar. AP. Reuter.
AYATOLLAH Khomeini,
leiðtogi múhameðstrúar-
manna í íran, skipaði í
dag dr. Mahdi Bazargan
olíusérfræðing forsætis-
ráðherra sinn, en hinn
nýi forsætisráðherra er
þekktastur fyrir and-
stöðu sína gegn keisaran-
um á liðnum árum og
hefur af þeim sökum set-
ið í fangelsi um nokkurra
ára skeið að því er fréttir
frá Teheran í dag herma.
Náinn samstarfsmaður
hins nýja forsætisráð-
herra hefur sagt, að dr.
Mehdi sé sannfærður um
að íslamskt lýðveldi sé
hið eina rétta í stöðunni
og hann sé jafnframt
sannfærður um að ekkert
„samkrull“ með Bhaktiar
núverandi forsætisráð-
herra landsins komi til
greina.
Khomeini trúarleiðtogi tilkynnir á blaðamannafundi að hann hafi skipað Mehdi Bazargan (til hægri)
forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar.
Náinn samstarfsmaður
Bhaktiars skipaður for-
sætisráðherra Khomeinis
Frjálslyndishreyfingin, flokk-
ur Bazargans er talin vera betur
skipulögð en aðrir stjórnarand-
stöðuflokkar í íran að því er
fréttaskýrendur telja, og hefur
gert stjórn keisarans marga
skráveifuna síðustu árin, en
flokkurinn var ekki formlega
viðurkenndur af stjórnvöldum
fyrr en í september s.l.
Hinn 73 ára gamli forsætis-
ráðherra er talinn hafa mjög
mikil ítök í helztu stjórnmála-
hreyfingum landsins sem standi
í miðjunni. Þá er Bazargan sá
stjórnmálamaður sem mest hef-
ir borið á í allri mannréttinda-
umræðu sem fram hefur farið.
Hann hefur jafnan krafist þess
að allir pólitískir fangar verði
látnir lausir hið snarasta og
sagði í því sambandi að sitt
fyrsta verk við stjórnvölinn yrði
að fyrirskipa lausn allra pólit-
ískra fanga.
Bazargan var fyrst handtek-
inn fyrir andóf gegn keisaranum
fyrir 16 árum og sat þá inni í
nokkra mánuði. Síðast var hann
hnepptur í hald í 12 daga á
seinni helmingi síðasta árs.
Nokkuð kaldhæðnislegt þykir
að nú skuli Bazargan og Bhakti-
ar vera svarnir óvinir en þeir
hafa í gegnum árin unnið
manna mest saman í stjórnar-
andstöðunni og af fréttaskýr-
endum taldir hafa mjög lík
viðhorf til margra þjóðmála.
Eins og flestir andstæðingar
keisarans var Bazargan í þjóð-
ernisfylkingunni svonefndu á
árunum eftir 1950 sem síðar
neyddi konung landsins til að
flýja í útlegð 1953
Talið er að Bazargan hafi
unnið hug- Khomeinis þegar
hann heimsótti trúarleiðtogann
til Parísar í nóvember s.l.
Bazargan var gerður að yfir-
manni ríkisolíufyrirtækisins
stuttu eftir að það var þjóðnýtt
árið 1954. Hann var síðan settur
af vegna harðrar andstöðu sinn-
ar við keisarann.
Forsætisráðherrann nýi er
eins og flestir landsmenn hans á
þessum aldri menntaður í
Frakklandi og talar franska
tungu óaðfinnanlega enda er
franska það erlent mál sem
flestir tala.
Örlög
Bhuttos
ráðast
í dag
Rawalpindi, 5. febrúar — f\P-Reuter
HÆSTIRÉTTUR Pakist-
ans mun á morgun ákvoða
hvort Zulfikar Ali Bhutto
fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins skuli hengd-
ur fyrir að hafa undirbúið
morð á pólitískum and-
stæðingi er hann var við
völd fyrir fjórum árum, að
því er segir í fréttum frá
Rawalpindi, höfuðborg
landsins.
Talsmaður hæstaréttar sagði á
fundi með ferttamönnum í dag, að
niðurstaða dómsins yrði afhent
dómsmálaráðherra landsins í
fyrramálið en Bhutto hafði þegar
verið dæmdur til dauða af undir-
rétti á sl. ári.
Ef dauðadómur yfir Bhutto
verður staðfestur í hæstarétti
búast stjórnvöld við miklum óeirð-
um í landinu og hefur herinn í því
sambandi fengið boð um að vera í
viðbragðsstöðu. Stuðningsmenn
forsætisráðherrans fyrrverandi
hafa undanfarna daga haft sig
mjög í frammi og efnt til mót-
mælafunda til að andmæla dauða-
dóminum sem þeir óttast að verði
staðfestur. Yfirvöld hafa nú gripið
til þess ráðs að loka öllum skólum
landsins og banna allar samkomur
manna út þessa viku. Þá hafa allir
stúdentar sem búa á stúdentagörð-
um verið sendir til síns heima
þessa viku.
Þá herma fréttir frá Rawalpindi
að þúsundir stuðningsmanna
Bhuttos hafi á undanförnum
vikum verið hnepptir í fangelsi og
muni þurfa að dúsa þar um sinn.
Að sögn fréttaskýrenda í land-
inu eru meirihluti landsmanna á
bandi Bhuttos og er jafnvel óttast
að til borgarastyrjaldar kunni að
draga verði Bhutto hengdur.
Norskir
hermenn
fórust
í Líbanon
Ósló. 5. fpbúar.
Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl.
ROLF Hansen varnarmálaráðherra
Noregs sagði í dag að ekki væri
ástæða fyrir Norðmenn til að
draga sig út úr gæzluliði Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) í Líbanon að svo
komnu máli. en sem kunnugt er
fórust fjórir Norðmenn í gæzlu-
liðinu þegar þyrla þeirra fórst í
Suður-Líbanon um helgina.
Þyrlan fórst éftir að hún varð
fyrir skothríð hermanna frelsissam-
taka Palesínumanna (PLO) á yfir-
ráðasvæði SÞ, en hún var að sækja
særðan hermann.
Hýddir fyrir
sauðaþjófnað
Teheran, 5. febrúar, Reuter.
TRÚARYFIRVÖLD í borginni
Mashad í Norður-íran hafa dæmt
fjóra menn sem stálu 18 sauðum til
þess að húðstrýkjast. Vcrða sauða-
þjófarnir hver um sig að þola 30
svipuhögg á sitjandann.
Þar voru „þjónar Islams" sem
stóðu sauðaþjófana að verki, en víða
í landinu hafa hópar sjálfboðaliða
með ofangreindu heiti tekið að sér
störf lögreglu. Samhliða því hafa
„alþýðudómstólar“ einnig sprottið
upp í landinu.
Veður
víða um heim
Akureyri Z alskýjað
Amslerdam 2 skýjaó
AÞena 17 skýjað
Barcelona 20 heiðskírt
Berlín 0 heiöskírt
BrUssel 4 heiöskírt
Chicago -16 heiðskírt
Frankfurt 1 skýjað
Genf 9 rigning
Helsinki -4 heiðskírt
Jerúsalem 14 heiðskírt
Jóhannesarborg 28 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Lissabon 16 rigning
London 5 skýjað
Los Angeles 19 heiðskírt
Madríd 13 skýjað
Malaga 22 lóttskýjaö
Mallorca 21 léttskýjað
Miami 24 skýjað
Moskva •2 skýjað
New York 5 skýjað
Ósló -5 heíðskírt
París 8 skýjað
Reykjavík 1 alskýjað
Rio De Janeiro 25 rigning
Rómaborg 14 rigníng
Stokkhólmur -8 skýjað
Tel Aviv 19 heiðskírt
Tókýó 6 skýjað
Vancouver vantar
Vínarborg 7 skýjað
Korchnoi hlýtur ekki
náð hjá F.I.D.E.
Olten, Sviss, 5. febrúar, AP.
SVISSNESKA skáksambandið
skýrði frá því í dag, að 10-manna
stjórn F.I.D.E., alþjóða skáksam-
bandsins, hefði á fundi sínum í
Graz í Austurríki staðfest heims-
meistaratign Anatolys Karpovs
með því að neita kröfum áskor-
andans, Victors Korchnois, um að
32. skák einvígisins á Filippseyj-
um í haust yrði dæmd ógild.
Vísaði fundur FIDE kvörtun
Korchnois frá á þeirri forsendu,
að kvörtunin hefði verið lögð
fram of seint, að sögn svissneska
skáksambandsins.
Þessar lyktir þýða, að Korchnoi
hefur nú aðeins einn möguleika
eftir til að fá 32. skákina dæmda
ólöglega. Hefur hann í því sam-
bandi hafið mál fyrir dómstólum í
Amsterdam og stefnt Karpov fyrir
samningsrof. Segir Korchnoi, að
Karpov hafi í 32. skákinni brotið
samkomulag skákmanna um að
dularsálfræðingurinn Vladimir
Zuokhar skyldi ekki sitja framan
við ákveðna sætaröð í áhorfenda-
salnum í Baguoi.
Samkvæmt
svissneska
tilkynningu
skáksambandsins
ákvað FIDE-fundurinn að þetta
samkomulag skákmannanna væri
þeirra einkamál, og það því ekki
hlutverk FIDE að skera úr um
ágreining sem kann að rísa upp í
sambandi við það.
Loks segir í tilkynningu
svissneska skáksambandsins, að
ljóst sé af þessum niðurstöðum að
FIDE sé þess ekki megnugt að
framfylgja reglum í sambandi við
framkvæmd heimsmeistara-
einvígisins.
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
stjórnaði fundinum í Graz.
1959—-Þjóðhátíðardagur
Nýja-Sjálands færður til 6.
febrúar.
1952—Elísabet drottning II tek-
ur við völdum í Bretlandi.
1934 — Stavisky-óeirðirnar i
París (6—7. feb.): fjármála-
hneyksli leiðir til falls tveggja
ríkisstjórna.
1922—Ráðstefnunni um
takmörkun vígbúnaðar lýkur í
Washington.
1840—Waitangi-sáttmáli Breta
og Maóra á Nýja-Sjálandi
undirritaður.
Afmæli: Christopher Marlowe,
enskt leikritaskáld (15§4—1593).
— Mme de Sevigné, franskur
rithöfundur (1626—1696). —
Anna Bretadrottning
(1665-1714). - Sir Henry
Irving, enskur leikari
(1838-1905).
Andlát: Thurstan, erkibiskup í
Jórvik, 1140. — Aldus Manutius,
prentari, 1515. — Karl II af
Englandi og Skotlandi 1685. —
Joseph Priestley, vísindamaður,
1804. — Georg VI Bretakonung-
ur 1952. ■
Innlent: „Óðinn" bjargar áhöfn
„Notts County“ 1968. — f. Björn
Þórðarson forsætisráðherra
1879. — Magnús Guðmundsson
ráðherra 1879. — d. Þórður
Henreksson sýslumaður 1652. —
Nýi hafnargarðurinn í Reykja-
vik stórskemmist 1931. —
„Heiðrúnar" frá Bolungarvík
saknað 1968.
Orð dagsins: í þá daga var hann
vitrari en hann er núna; hann
fór oft að ráðum mínum —
Winston Churchill, brezkur
stjórnskörungur (1874—1965).