Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979 19 heldur að hafa samband við Baldur Jónsson rektor Kennaraháskóla ís- lands. Þessar eru ákærurnar sem nem- endur KHÍ lásu upp fyrir ráðherra í gær: Við ákærum mennta- og fjármála- ráðherra fyrir að gera alla aðstöðu til náms í K.H.Í. og grunnskólum landsins verri en hún var áður en þeir tóku við starfi sínu. Við ákærum íslensk stjórnvöld fyrir að halda dýrar veislur og eyða þar með milljónum á milljónir ofan í sukk á sama tíma og þeir skera niður á smásmugulegan hátt fjárveitingar til jafn arðvænlegra fyrirtækja og menntastofnanir landsins eru. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að halda K.H.I. í svo miklu húsnæðishraki, að nú þurfi u.þ.b. 400 nemendur að stunda nám í húsnæði sem ætlað er 120 nemend- um. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að koma ekki til móts við óskir okkar um stöður á sama hátt og við komum til móts við beiðni ráðuneytanna um fjölgun í skólanum. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að koma vísvitandi í veg fyrir að framkvæmdir við ný- byggingu K.H.Í. geti hafist, þrátt fyrir að nægilegt fjármagn sé í sjóði til að hefja þær. ráðuneytið fyrir að koma í veg fyrir að eflt verði nýbreytni og tilrauna- starf í Æfinga- og tilraunaskóla K.H.Í. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að tryggja ekki að kleif séu kaup á námsgögnum til Æf. og Tisk. K.H.Í. í samræmi við hlut- verk hans. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að fastráðnir æf- ingakennarar í Æf. og Tisk. K.H.Í. geti ekki starfað samkvæmt erindis- bréfi sínu. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að hafa strikað æfingastjóra ólöglega út af launa- skrá í sparnaðaræði. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að koma í veg fyrir að sérmenntaðir starfskraftar fáist við námsgagnaverkstæði K.H.Í. og Æfingaskólann. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að halda Æfinga- skólanum í algjöru fjármagns- og húsnæðishraki. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðherra fyrir aðgerðir þeirra, en með þeim sýna þeir óbeint skilnings- leysi gagnvart börnum landsins og brjóti þar með gegn boðskap barna- árs. Við ákærum fjármála- og mennta- málaráðherra fyrir algjöra vanþekk- Ragnar Arnalds menntamálaráðherra ræðir við nemendur KHÍ í ráðuneytinu í gær en þar sátu nemendur í 2 klukkustundir. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að útvega ekki bráðabirgðahúsnæði uns fyrsta áfanga nýbyggingar er lokið. Við ákærum ráðherra og æðstu embættismenn þeirra fyrir þá sviðvirðilegu móðgun við Kennara- háskóla íslands og alla menntaða kennara hér á landi, að gera kennaramenntunina að jafngildi 10 vikna bréfaskóla. Við ákærum ráðherra og æðstu embættismenn þeirra fyrir fádæma þekkingar- og skilningsleysi á mikil- vægi kennaramenntunarinnar. Við ákærum menntamála- og fjár- málaráðuneytið fyrir síendurtekinn fjárhagslegan niðurskurð til K.H.Í., svo og allra menntamála í landinu. Við ákærum menntamálaráðu- neytið og fjármálaráðuneytið fyrir sífellt endurteknar truflanir á námi okkar í K.H.Í. og starfi kennara þar. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að ætlast til þrælkunarvinnu kennara K.H.Í. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að greiða ekki kennurum K.H.Í. laun fyrir yfir- vinnuþrældóminn á tilsettum tíma. Afgreiðsla launa eftir geðþótta- ákvörðunum er vítavert og ólöglegt athæfi. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneyti fyrir að strika út allar umbeðnar nýjar stöður við skólann og að auki fyrir að taka út af launaskrá einn bókavörð af tveimur, svo að nú er námið á góðri leið með að leggjast niður. Við ákærum mennta- og fjármála- ingu á kenningum um samband menntunar og hagvaxtar. Við ákærum ráðherra og æðstu embættismenn þeirra fyrir að ætla sér að ljúga inn á börn og foreldra þeirra bréfaskólalærðum kennurum sem fullgildum. Við ákærum menntamála- og fjár- málaráðherra fyrir að gera beina árás á menntun og menningu þjóðar- innar. Við ákærum menntamála- og fjár- málaráðherra og æðstu embættis- menn ráðuneyta þeirra fyrir að láta brjóstvit sitt eitt ráða ferðinni í menntamálum landsins. Við ákærum menntamála- og fjár- málaráðherra fyrir að leita ekki ráða hjá sér fróðari mönnum í mennta- málum. Við ákærum menntamálaráðherra fyrir að ganga á bak loforða sinna, um bætt innra starf skóla. Við ákærum menntamála- og fjár- málaráðuneytið fyrir að stuðla að því að grunnskólalög fái aldrei fram að ganga í verki. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að vera á móti breyttum kennsluháttum innan K.H.Í. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðherra fyrir að vera and- menntunarsinnaða. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðherra fyrir að spara af nísku og fáfræði fremur en af hagkvæmni og stjórnkænsku. Við ákærum mennta- og fjármála- ráðuneytið fyrir að stefna að því ljóst og leynt að leggja K.H.Í. niður. Haukur Viggósson og Einar Birgir Steinþórsson lesa upp ákærurnar fyrir framan fjármálaráðuneytið. Myndir Kristján. Hœttum ekki fyrr en eitthvað verður gert — segja nemendur KHÍ „VIÐ ERUM fyrst og fremst að mótmæla því að Kennaraháskól- inn skuli hafa verið haldinn í svelti hvað mannafla. húsnæði og f jármuni snertir. Það virðist vera stefna stjórnvalda að svelta allt hvað þetta þrennt varðar,“ sögðu Einar Birgir Steinþórsson og Ilaukur Viggósson nemendur í Kennaraháskólanum. „Ýmsar aðrar aðgerðir og ákvarðanir mennta- og fjármála- ráðherra sýna að þeir ætía sér að veitast að kennaranámi og gera skólann að 10 vikna bréfaskóla. Við hættum ekki fyrr en við höfum fengið það sem við viljum, skólinn er algjörlega óstarfhæfur eins og er. í síðast liðnum mánuði var öðrum bókaverðinum sagt upp og útilokar það alla vinnu á bókasafninu. Einnig var æfinga- stjórinn við skólann ólöglega strikaður út þar sem hann var fastráðinn við skólann. Það virðist sama hverjir ráða, þeir virðast ekki skilja gildi menntunar. Marg- ir ráðamanna hér eru ómenntaðir og hafa unnið sig upp og þeir halda að það sé hægt enn í dag. Þeir skilja ekki heldur sambandið á milli menntunar og efnahagsmála. Þegar aðrar þjóðir fjárfesta í menntun veitast íslenskir ráða- menn að henni," sögðu þeir. Kennararnir einnig með. Bjarni Bjarnason lektor við kennaraháskólann sagði að þessi mótmæli sem nemendur höfðu í frammi í gær væri alda sem risið hefði af mörgum ástæðum. „Það sem kom skriðunni af stað er brottvikning bókavarðarins. Hún hætti að fá laun í janúar þannig að bókasafnið er óstarf- hæft og skólinn því lamaður. Við kennararnir í skólanum slógumst í för með nemendunum til þess að láta einhvern þunga koma frá okkar hálfu. Ekki af því að við viljum vera með einhverjar kröfur. Við erum vissulega sam- mála nemendunum og mörgu því sem á spjöldunum stendur en sumt er of kryddað að okkar mati og sumt myndum við ekki vilja hafa meðferðis," sagði Bjarni. Um plássleysi í skólanum sagði Bjarni, að öllum sem sótt hefðu um skólavist hefði verið hleypt inn í skólann. „Kennurum hefur ekki verið fjölgað til jafns við fjölgun nem- enda og er vinnuálagið því mikið og þreytir mjög kennarana. Einnig gengur það misjafnlega að fá borgað. Þótt allt sé greitt gengur stundum treglega að fá greiðsluna. Bjarni sagði að aldrei fyrr hefðu kennarar staðið svo saman sem nú. Bæði vinstri og hægri sinnaðir kennarar væru nú sammála og ekki hefði verið ákjósanlegra veð- ur til kröfugöngu heldur en í gær. Loftur Guttormsson kennari sagði að langvarandi kreppa hefði orsakað þessa kröfugöngu. „Kenn- urum hefur-ekki verið fjölgað til jafns við fjölgun nemenda, ný- bygging hefur verið stöðvuð þrátt fyrir tilbúin útboð og fjármagn til byrjunarframkvæmda og fleira var það sem kom því af stað að þessi ganga var farin,“ sagði Loft- ur. „Gerum einhverjar ráðstafanir" Björn Þráinn Þórðarson nem- andi í KHÍ sagði að þeir myndu ekki hætta mótmælum fyrr en eitthvað hefði verið gert. „Við eigum örugglega eftir að gera einhverjar ráðstafanir. Fyrst og fremst verðum við að fá bóka- vörðinn aftur. Allar aðrar kröfur verða einnig að verða teknar til greina þar sem ástandið er algjör- lega óviðunandi eins og er,“ sagði Bjarni. Bjarni Bjarnason lektor við KHÍ Loftur Guttormsson. Björn Þráinn Þúrðarson. nem- andi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.