Morgunblaðið - 06.02.1979, Side 7

Morgunblaðið - 06.02.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979 7 HROSSABRESTJ búuukollar IPÓLITÍSKIR Gagnkvæmar ástar- játningar Lúðvik Jósepssyni, for- manni Alpýðubandalags- ins, nægir ekki Þjóðvilj- inn til að auglýsa gagn- vsema samstarfshæfni stjórnarfiokkanna, heldur leggur hann undir sig heilsíðu í Vísi, helgaða Alpýðuflokknum. Hann segir bar m.a.: „Spurningin um ping- menn, hvort peir eru góð- ir eða slakir, hvort peir verða til gagns eða ógagns, er ekki um aldur peirra. Yfirborðs- mennska, oflátungshátt- ur og pekkingarleysi er alltaf til ills, hvort sem er hjá ungum eða gömlum. Þeir sem gusast áfram með stóryrði og hávaða og halda að peir viti allt, Þó að Þeir viti sáralítið, munu litlu góöu koma til leiöar. í hópi smákrata á Al- Þingi að Þessu sinni eru óvenju margir með Þessu marki brenndir: Þeir virka á mig eins og hrossabrestir. Það vantar ekki aö í Þeim heyrist. í Þeim brestur í hverju máli.“ „Hæsnabúið" Enn segir Lúðvík: „Þeir vilja gjörbreyta vinnu- brögðum á AlÞingi, Þó aö Þeir viti harla lítið um eiginleg Þingstörf. Þeir vilja skylda starfsnefndir AlÞingis með lögum til að annast eftirlit með fram- kvæmd allra laga. Og síðan eiga Þær að vera lögskyldaðar til að flytja AlÞingi skýrslur um framkvæmd laga. Þannig ættu samgöngunefndir AlÞingis að hafa eftirlit með framkvæmd um- ferðarlaga. Það yröi ekk- ert smáræðis nefndar- starf. Og félagsmála- nefnd ætti að líta eftir framkvæmd áfengislaga og vera lögskylduð til Þess. Þessir pólitísku hrossabrestir segja ann- an daginn, að dómsmála- ráðherra sé meðsekur í morðmáli, en hinn daginn vilja Þeir vera með hon- um í ríkisstjórn. Þeir Þykjast vita allt um verð- bólgu og rekstur atvinnu- vega, Þó aö Þeir hafi aldrei rekið svo mikið sem hæsnabú né unnið við aðalatvinnuvegi Þjóð- arinnar." Ekki veröur hór tekið undir allt Það, sem Lúð- vík segir, en orð hans eru viðbótarsýnishorn af inn- anhússerjum á stjórnar- heimilinu. Rökin gegn olíuheildsölu Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Tímans, segir svo í sunnudagspistli sínum: „Þremenningarnir, sem lýstu sig andvíga stofnun olíuheildsölu ríkisins, drógu niðurstööur sínar saman á eftirfarandi hátt: — Stofnun olíuheild- sölu ríkisins leiðir ekki til aukinnar hagkvæmni, Þaö koma fjögur fyrirtæki í staö Þriggja og verður óhagkvæm skipting milli smásölu og heildsölu, sem ekki er nú. — Uppkaup eigna, sem nú eru afskrifaðar og starfa Því í kerfinu án endurgjalds myndu valda nýjum fjármagnskostn- aði, sem neytendur yrðu aö borga. — Þar myndi losna fjármagn sem leita myndi eitthvað annað og verður ekki séð að Þaö sé Þarft eða heilbrigt í Þessu samhengi. — Fækka myndi inn- kaupakostum og Það er mjög varhugavert. — Enginn félagslegur Þrýstingur er í Þjóöfélag- inu til Þessarar breyting- ar, enda á samvinnu- hreyfingin meirihluta í stærsta olíufélaginu sem annast fast að helmingi olíusölunnar. Þar á og hluti útgerðarinnar aðild. — Neytandinn á nú um fleiri kosti að velja sem kynnu að tapast við Þessa breytingu, og Þá jafnframt sú viðmiðun um hagkvæmni sem felst í samanburði milli fleiri aðila á sama vettvangi." Lokaáfangi Mjólkár- línu tekinn í notkun Bolungarvik, 2. íebrúar. í DAG tók Orkubú Vestfjarða form- lega í notkun aðveitustöð hér í Bolungarvík. Stöðin, sem stendur í Syðridal, er lokaáfangi í byggingu Mjólkárlínu II. í ræðu sem Guðmundur H. Ingólfsson hélt við þetta tækifæri kom fram að bygg- ing þessarar nýju lfnu frá Mjólká til Bolungarvíkur er mesta mann- virki til orkudreifingar á Vestfjörð- um. Bygging Mjólkárlínu II hófst við Mjólká í Arnarfirði 1975, og var unnið að mestu samfleytt til ársloka 1977. Þá tekur Orkubú Vestfjarða við orkumálum Vestfirðinga og vantaði þá verulega á að línan kæmist í notkun, því sá verkþáttur sem var eftir var sérlega tafsamur og erfiður. Hinn 10. des. ‘78 var fyrri hluti Mjólkárlínu II tengdur og tekinn í notkun í aðveitustöð í Breiðdal. Línan Mjólká-Breiðadalur er um 35 km löng, alls 274 staurasamstæður, lengsta haf í línunni er 606 m, eitt af þremur yfir Dýrafjörð. Hæst liggur línan í 76 m hæð yfir sjó. Hægt er að reka línuna með sömu spennu og byggðalínur eru reknar með í dag og þá væntanlega vesturlína einnig. Linan Breiðadalur—Bolungarvík er 17 km löng og sú lína liggur hæst 750 m yfir sjó á Hestakleifafjalli. Með þessum línulögnum og að- veitustöðvum ætti dreifing raforku á aðalþéttbýlisstöðum á orkusvæðinu að vera í góðu lagi og ætti að ýta undir að staðið verði við gefin fyrirheit um vesturlínu. Að lokinni ræðu Guðmundar H. Ingólfssonar formanns Orkubús Vestfjarða hleypti Guðmundur Kristjánsson bæjarstjóri Bolungarvíkur straum á aðveitustöðina. Síðan bauð stjórn Orkubús Vestfjarða gestum til kaffi- drykkju í Ráðhúsi Bolungarvíkur. Með tilkomu þessarar aðveitu- stöðvar hér í Bolungarvík verður hægt að stöðva þær tvær dieselraf- stöðvar sem hér hafa verið keyrðar stöðugt undanfarnar vikur þó að þessi línumannvirki leysi stóran vanda í raforkudreifingu Vestfirð- inga þá eru ýmis vandamál sem bíða úrlausnar á þessu sviði. Þar er e.t.v. veikasti hlekkurinn 8 km sæstrengur yfir Arnarfjörð sem er eina tenging suðurfjarðanna við Mjólká. Stjórn Orkubús Vestfjarða lagði á það áherzlu í samtali við fréttaritara Mbl. að vesturlínu yrði komið upp hið fyrsta en tenging Suðurfjarð- anna í Arnarfirði er eitt atriðið er ýtir undir að það verði gert. Gunnar. Flugleiðir: Fjölgun farþega í áætlunar- flugi en fækkun í leiguflugi FARÞEGAR Flugleiða, þ.e. Flugfé- lags íslands, Loftleiða og Air Bah- ama, urðu alls árið 1978 786.758 og fjölgaði um 3% frá fyrra ári. Er þar um að ræða farþega í leigu- og áætlunarflugi. Fjölgaði farþegum í áætlunarflugi en fækkaði í leigu- flugi. Á leiðinni til og frá Chicago fjölgaði farþegum, en fjöldi far- þega til og frá New York stóð í stað og í innanlandsflugi jókst farþega- tala um 3,4% en hafði aukist um 14,4% frá ártnu ‘76-77. Hér fara á eftir nokkrar tölur er fram komu í frétt Flugleiða um flutninga á liðnu ári: I áætlunarflugi milli Islands og annarra Evrópulanda voru fluttir 151.130 farþega en voru 142.155 árið áður, aukning er 6,3%. í áætlunar- flugi fyrir Norður-Atlantshaf voru fluttir 274.989 farþegar en voru 239.816 árið 1977 og er aukning á þeim leiðum 14,7%. Á milli Luxem- bourger og Nassau voru fluttir 77.576 farþegar en voru 71.725 árið á undan. Aukning 8,2%. Innanlandsflug I áætlunarflugi innanlands voru árið 1978 fluttir 243.485 farþegar og varð aukning miðað við árið á undan 3,4% en þá varð farþega- fjöldi í fyrsta sinn meiri en íbúa- tala íslands eða 235.394. Samdráttur var í leiguflugi Flugleiða á árinu. Færri leigu- ferðir voru farnar milli Evrópu- landa og' íslands en árið áður og pílagrímaflutningar sem árið 1977 voru stundaðir með tveim þotum voru árið 1978 starfræktir með einni, og það aðeins fyrri helming tímabilsins, svo sem kunnugt er. Alls voru fluttir í leiguflugi Flug- leiða 29.593 en voru 64.296 árið á undan. Samdráttur nemur 54%. Þá flutti Air Bahama einnig færri farþega í leiguflugi en áður, 9.985 en 10.506 árið 1977. Fækkun nemur 5%. Vöruflutningar Vöruflutningar milli landa jukust á árinu. Á ieiðunum yfir Norð- ur-Atlantshaf voru fluttar 5,815 lestir sem er 20% aukning miðað við árið á undan. Ennþá meiri var aukningin á flugleiðum milli íslands og Evrópu. Þar voru fluttar 2,419 lestir og er aukning milli ára 33,7%. I innanlandsflugi var hinsvegar samdráttur í vöruflutningum. Flutt- ar voru 3.516 lestir sem er 15,3% minna en árið 1977. Spóna- Dlötur af ýmsum geröum og þykktum MJOG HAGSTÆTT VERÐ. íimburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Tann ENSKIR PENINGASKÁPAR eldtraustir — þjófheldir heimsþekkt framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 51888 Opið til kl. 10 öll kvöld Bílastæði. Sími 40609. Dömur athugið Er byrjuö með megrunarkúrana aftur Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma megrunarkúrnum. Megrunarnudd, partanudd og afslöppunarnudd. Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill. Nudd- og snyrtistofa Ástu Baldvinsdóttur, Hrauntungu 85 Kópavogi Verö kr. 84.400. BUOIN Skipholti 19 Sími 29800 EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.