Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAI 1979
Byggingariðnaðurign:
Líkur á alvarlegu at-
vinnuleysi næsta vetur
„OKKUR sýnast þær blikur vera
á lofti. að við þurfum á verkfalls-
vopninu að halda fyrr en sfðar.
þó að við séum ekki f stakk búnir
til þess að taka endanlega
ákvörðun þar um fyrr en eftir
allsherjaratkvæðagreiðsluna,“
sagði Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, í samtali við
Morgunblaðið í gær. en fjölmenn-
ur fundur f félaginu, sem haldinn
var í gærmorgun, tók ákvörðun
um að fram færi allsherjar-
atkvæðagreiðsla f félaginu um
NÆSTKOMANDI laugardag
halda ýmis íélög byggingar-
iðnaðarmanna ráðstefnu um at-
vinnuhorfur í byggingariðnaði
og hefst hún kl. 9.30 að Hallveig-
arstöðum. Félögin, sem að ráð-
stcfnunni standa, eru Trésmiða-
félag Reykjavíkur, Múrarafélag
Reykjavíkur, Málarafélag
Reykjavíkur, Sveinafélag hús-
gagnasmiða og Sveinafélag pfpu-
lagningamanna.
Til ráðstefnunnar er boðið sveit-
arstjórnarmönnum á félagssvæði
þessara félaga, framkvæmda-
stjóra Húsnæðismálastofnunar
ríkisins og formanni nemafélaga í
byggingariðnaði. Frummælendur
verða Olafur Jóhannesson forsæt-
isráðherra, Gunnar S. Björnsson
formaður Meistarasambands
byggingarmanna og Benedikt
Davíðsson formaður Sambands
byggingarmanna.
I samtali við Mbl. sagði Gunnar
S. Björnsson að atvinna virtist
nægileg næstu mánuði og fram á
vetur, en illa horfði um er kæmi
fram á næsta vor og síðan næstu
1—2 árin og mætti m.a. rekja það
til minnkandi lóðaúthlutana.
Flugmannasamningamir:
heimild til stjórnar um að boða
verkfall.
Guðmundur Hallvarðsson sagði,
að um 120 manns hefðu setið
fundinn og hefði verið mikill
einhugur á honum. Fundurinn
samþykkti allsherjaratkvæða-
greiðsluna um heimild stjórnar
og samninganefndar um boðun
vinnustöðvunar einróma.
Atkvæðagreiðslan fer fram í dag
og á morgun og er kosið á milli
klukkan 09 og 17 í skrifstofu
félagsins að Lindargötu 9.
„Þetta er langþráð staðfesting á
því að við höfum haft á réttu að
standa í sambandi við hina
margnefndu gengisskekkingu sem
hefur farið mjög illa með iðnaðinn
og er þannig verulegur áfangi í
jafnréttisbaráttu hans,“ sagði
Haukur enn fremur.
Aðspurður um væntanlega
framvindu málsins innan EBE,
sagðist Haukur ekki eiga von á þvi
að bandalagið setti okkur stólinn
fyrir dyrnar, og styddu fyrri
kynningarviðræður þá skoðun
ótvírætt.
í frétt frá þessum félögum segir
m.a. að ástæða þessa ráðstefnu-
haids nú sé að verulegar líkur
virðast vera á því að n.k. haust og
vetur verði um alvarlegt atvinnu-
leysi að ræða i þessari atvinnu-
grein. Komi þar til umtalsverður
samdráttur í lóðaúthlutunum á
vinnusvæði þessara félaga á sama
tíma og stefnt virðist að sam-
drætti í opinberum framkvæmd-
um. Einnig megi benda á umtals-
verðan innflutning fullunninnar
trjávöru.
Ríkið lagði til 6-12%
grunnkaupshækkun
SÁTTANEFND ríkisins,.
sem vann að lausn kjara-
deilu ílugmanna innan Fé-
lags íslenzkra atvinnu-
flugmanna og Flugleiða
Hafskip og Bifröst
ræða um samvinnu
IIAFSKIP hf og skipafélag-
ið Bifröst hf. hafa gert
samkomulag um það, að
þessi tvö félög standi að
sameiginlegri könnun, sem
ætlað er að leiða í Ijós hvort
og þá með hvaða hætti haga
mætti hugsanlegu sam-
Fimm skip
seldu í Bret-
landi í gær
FIMM íslenzk fiskiskip
seldu afla í Bretlandi í gær
og var meðalverðið á bil-
inu 313 til 387 krónur
hvert kíló.
í Fleetwood seldu tveir bátar,
Þórir SF 41 lest fyrir tæpar 16
milljónir, meðalverð 387 krónur,
og Jóhannes Gunnar GK 62 lestir
fyrir 22,4 milljónir, meðalverð 363
krónur. í Hull seldu Kristbjörg
VE 35 lestir fyrir 11 milljónir,
meðalverð 313 krónur, Bjarnarey
VE 48 lestir fyrir 16,8 milljónir,
meðalverð 352 krónur, og loks
togarinn Sigluvík SI 158 lestir
fyrir tæpar 60 milljónir króna,
meðalverð 377 krónur. Uppistaðan
í afla skipanna var þorskur og ýsa.
Tvær sölur verða erlendis í dag,
fimmtudag.
starfi þessara tveggja
félaga. Ilvort félag hefur
skipað viðræðunefndir til
að fjalla um málið og er
stefnt að því, að niður-
stöður liggi fyrir seint í
sumar eða í haust. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér,
munu nokkrir valkostir
vera skoðaðir sérstaklega,
t.d. hvort þessi tvö skipa-
félög verði sameinuð.
Samkvæmt upplýsingum
Ragnars Kjartanssonar fram-
kvæmdastjóra hjá Hafskip hafa
viðræður farið fram milli félag-
anna nú um nokkurt skeið og varð
samkomulag um að vinna að þess-
ari sameiginlegu könnun. Af hálfu
Hafskips munu fjalla um málið
Ólafur B. Ólafsson og fram-
kvæmdastjórarnir Ragnar
Kjartansson og Björgólfur
Guðmundsson en viðræðunefnd
Bifrastar skipa Bjarni V. Magnús-
son og Finnbogi Gíslason fram-
kvæmdastjóri félagsins.
INNLENT
h.f., lagði til í sáttatillög-
um allt að 6 til 12% grunn-
kaupshækkanir. Sáttatil-
lögurnar voru þrjár og
fóru grunnkaupshækkan-
ir stighækkandi, unz þær
náðu hámarki í hinni
síðustu.
Flugmenn samþykktu síðustu
sáttatillöguna, sem fól í sér áður-
nefndar grunnkaupshækkanir á
bilinu 6 til 12%. Hins vegar
höfnuðu Flugleiðir h.f. tillögunni.
Deilan leystist síðan eins og kunn-
ugt er með þaklyftingu, sem fól í
sér prósentuhækkanir á bilinu frá
15 til 24%.
Þaklyfting flugmanna kom eins
og kunnugt er í kjölfar þaklyfting-
ar hjá opinberum starfsmönnum,
sem fengu hana með dómi Kjara-
dóms, sem kveðinn var upp 4.
marz. Flugmannasamningar voru
undirritaðir árdegis 7. apríl. Þak-
lyfting opinberra starfsmanna
gilti frá 1. janúar, en flugmanna
frá 1. apríl.
Unnið að slökkvistörfum um borð í Kristjáni Stefáni.
Ljósm. Mbl. Guðfinnur Bergsson.
Bátur skemmdíst af
eldi í Grindavík
Grindavík 16. maí.
UM SEXLEYTIÐ í morgun kom
upp eldur í bátnum Kristjáni
Stefáni ÞH 119 frá Húsavík, þar
sem hann lá hér ( höfninni. Tveir
skipverjar voru um borð og
þegar þeir urðu eldsins varir
gerðu þeir slökkviliðinu strax
viðvart. Það brá skjótt við og
tókst að slökkva eldinn og var
m.a. notuð froða við slökkvistarf-
ið.
Báturinn skemmdist talsvert,
aðallega i vélarrúmi og stýrishúsi.
Skipverjarnir tveir gengu rösk-
lega fram við slökkvistarfið og
fékk annar þeirra, Baldur Karls-
son, reykeitrun og var hann flutt-
ur á Borgarspítalann í Reykjavík.
— Guðfinnur.
EFTA-ráðið samþykkti
3% aðlögunargjaldið
FASTARÁÐ Fríverzlunarsamtaka Evrópu EFTA samþykkti á fundi sínun í gærmorgun, að hcimila
íslendingum fyrir sitt leyti, að leggja sérstakt tímabundið gjald á innfluttar vörur, sem tollar hafa verið
lækkaðir eða felldir niður af vegna aðildar íslands að EFTA, sem næmi allt að 3%.
Þetta er þó háð þeim skilyrðum að sama verði látið gilda um sams konar vöru frá löndum
Efnahagsbandalags Evrópu EBE og þessi heimild ráðsins rennur út 31. desember 1980.
Málið mun síðar verða til um- sérstakt tímabundið aðlögunar- ljúki 31. desember 1980. Gildistími
gjald á innflutta vöru frá þessum
fjöllunar hjá EBE 8. júní n.k., en í
því sambandi sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra í
gær, að hann ætti ekki von á þvi,
að um fyrirstöðu yrði að ræða af
hálfu EBE.
Fjármálaráðherra hefur þegar
lagt fram frumvarp á Alþingi um
ríkjum og er búist við því að hann
mæli fyrir því á fundi Alþingis í
dag.
I greinargerð með frumvarpinu
segir m.a.: „Gjaldtaka þessi á að
vera tímabundin. Gert er ráð fyrir
að hún hefjist 1. júlí n.k. og henni
Farmenn:
Undirmenn greiða at-
kvæði mn verkfallsboðun
hennar 18 mánuðir, á rætur að
rekja til þess ákvæðis EFTA
samningsins, að undanþágugerð af
þessu tagi skuli ekki standa lengur
en í 18 mánuði.
Sannar að við höfum
haft á réttu að standa
„Við erum að sjálfsögðu
ánægðir að heyra þessar fréttir.
Nú er einungis eftir að fá sam-
þykki EBE,“ sagði Haukur Björns-
son framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda er Mbl. innti
hann álits á samþykkt
EFTA-ráðsins.