Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1979 37 Dr. Magni Guðmundsson: Kanadabréf Kosningar standa nú fyrir dyrum í Kanada. Þar er í megin- atriðum tveggja flokka kerfi, eins og gjarnan í engilsaxnesk- um löndum. Aðalflokkarnir eru: írjálslyndir undir forustu Pierre Trudeaus og hægrisinnaðir undir forustu Joe Clarks. Hinir síðarnefndu kalla sig „progres- sive-conservatives“, sem verður varla betur þýtt en með orðinu „framsóknar-íhald". Loks er smár en vaxandi flokkur Ný-demókrata, sem fylgir stefnu Alþýðuflokkanna á Norðurlönd- um. Aðrir flokkar eru nær áhrifalausir eða í tengslum við fylkin eingöngu, eins og Parti Quebecois (Quebec-flokkurinn), sem býður ekki fram til Sam- bandsþingsins í Ottawa. Trudeau ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálamenn í Kan- ada. Hann er hámenntaður, skarpgreindur og einarður. Hef- ir hann hvað eftir annað leyst aðkallandi vandamál með hraða og festu. Má þar nefna uppreisn í Montreal 1969, óðaverðbólgu 1975 og nú síðast í haust póst- mannaverkfall, sem ógnaði öllu athafnalífi landsins. Á forsætis- ráðherrafundum Sambandsrík- isins og fylkjanna, sem haldnir eru öðru hverju, sjást yfirburðir Trudeaus einna gleggst. Þó hefir blásið heldur óbyr- lega fyrir honum undanfarið. Hann er gagnrýndur mun meira en áður og hefir jafnvel orðið fyrir ólátum á kosningafundum. Er mál manna, að hann hafi farið með völd full-lengi, þ.e. í þrjú kjörtímabil eða 11 ár sam- fellt. Stjórnmálamönnum vill gleymast, að fólk verður með tímanum þreytt og leitt á þeim. Trudeau hefir sjálfur sagt, að hann hefði kosið að draga sig í hlé. Hins vegar treysti hann engum nema sér einum til að fást við aðskilnaðarsinna í Que- bec og hinn skæða foringja þeirra, Réné Levesque. Þannig leggur hann í kosningabarátt- unni megináherzlu á þjóðarein- ingu og forustu. Joe Clark virðist síður til forustu fallinn, en reynslan kann að leiða annað í ljós. Hann hefir lítið eða ekkert fylgi í franska Kanada, og hann er jafnvel ekki studdur af eigin flokksmönnum öllum. Stóð talsverður styr um kjör hans í formannssætið. En Clark er fimur og harðskeyttur ræðumaður. Hann kveður efna- hag landsins, ekki þjóðarein- ingu, vera mál málanna. Bendir hann á atvinnuleysið í Kanada, en þar gengur nú milljón manns án vinnu, nál. fimm af hverju hundraði þjóðarinnar allrar. Þetta er erfðasynd Frjálslynda flokksins, segir hann. Og Tru- deau hefir ekki boðið upp á neina lausn aðra en það að „flytja atvinnuleysið út“, þ.e. vísa hin- um atvinnulausu úr landi á erlendan vinnumarkað, eins og Þjóðverjar eru sagðir hafa gert að lokinni seinni heimsstyrjöld. Það er mörgum undrunarefni, að Kanada, sem er eitt auðug- asta land veraldar, skuli ekki geta ráðið bót á atvinnuleysi. Kanadískir hagfræðingar hafa tilgreint tvær ástæður fyrir þessu. Önnur er sú, að Kanada- menn eru heimakærir og neita að færa sig úr stað, þó að atvinnu sé að fá í öðru héraði eða fylki. Hin ástæðan er, að hinn almenni borgari er ófús að starfa sjálfstætt og stofna til eigin rekstrar. Hann vill um- fram allt ráðast í þjónustu annarra — stórfyrirtækis eða opinberra aðila — og njóta þess skjóls og öryggis, sem slíku fylgir. Hins vegar hefir vísinda- stofnun Kanada rannsakað þetta mál frá grunni og komizt að þeirri niðurstöðu, að atvinnu- leysi í Kanada megi rekja til erlendrar fjárfestingar í land- inu. Útlendingar, einkum Banda- ríkjamenn, eiga flest stærri fyr- irtæki, og veldur það stöðugum fjárleka úr landi. Árður flyzt út í stað þess að vera fjárfestur innan landamæranna. Þá hefir Joe Clark farið háðu- legum orðum um stjórn peninga- mála í landinu. Hann hefir ráðizt af hörku gegn hávaxta- stefnu fjármálaráðherrans. Hét hann því þegar í upphafi kosn- ingabaráttunnar, að fyrsta verk sitt, ef flokkur hans næði völd- um, yrði að lækka vexti. Þar sem það er barnatrú sumra banka- stjóra hér á íslandi, að vaxtahækkun sé sjálfsögð og óumdeilanleg hagstjórnaraðferð á verðbólgutíma, skal vikið ögn nánar að þessu atriði. Kanada hefir um all-langt skeið haft óhagstæðan greiðslu- jöfnuð við útlönd. Ein af ástæð- unum fyrir því er fyrrnefndur fjárleki úr landi, sem hefir liklega aukizt við það, að vextir í Bandaríkjunum hafa verið hærri en í Kanada. Kanadísk fyrirtæki í eigu útlendinga kjósa fremur að geyma sjóði sína í formi bankainnstæðna og verðbréfa sunnan landamæranna. Hið sama gera raunar einnig ýmsir kanadískir þegnar, þó að þeir hafi ekki rekstur með höndum, enda eru fjármagnsflutningar milli landanna frjálsir. Þetta hefir veikt Kanada-dollar, sem hefir verið fallandi á liðnum mánuðum. Verðgildi hans var meira en US100 cent fyrir um tveim og hálfu ári, en var í byrjun þessa árs komið niður í US83 cent. Til þess að hamla gegn þessari þróun ákvað Gerald Bouey, yfir- maður miðbankans (Bank of Canada), að hækka vexti upp Magni Guðniundsson fyrir þá, sem gilda á bandarísk- um peningamarkaði. Þannig hef- ir vöxtum endurkeyptra víxla verið þokað upp á við í áföngum, brot úr hundraðshluta hverju sinni, unz þeir urðu 10'/*%. Grunnútlánsvextir viðskipta- bankanna, sem voru 8'/<% fyrir einu ári, eru komnir í 12% núna, sem þykir svimhátt í Kanada. — Bouey tók sérstaklega fram í ræðu sl. sumar, sem birt var í bankaritinu, að nefndar aðgerðir væru aðeins til þess ætlaðar að stuðla að greiðslujöfnuði við útlönd, en ekki draga úr verð- bólgu. Það hygðist hann gera með því að setja aukningu pen- ingaframboðs ákveðnar skorður. Voru nú allir sammála þessari vaxtahækkun? Nei, því fer víðs fjarri. Joe Clark og efnahagsráð- gjafar hans halda því fram, að fall kanadíska dollarans stafi ekki af mismun á vöxtum í Bandaríkjunum og Kanada, heldur af verðbólgu innanlands, sem er nú fast við 10%. Ein helzta ástæða verðbólgunnar er gífurlegur hallarekstur ríkisbús- ins um árabil undir stjórn frjáls- lyndra. Fjármálaráðherrann Jean Chretien er hins vegar ófús að skera niður opinber útgjöld, þegar kosningar fara í hönd. Slík ráðstöfun gæti orðið harla óvin- sæl meðal kjósenda. Sú er skýr- ingin á því, að hann fellst á peningaaðgerðir miðbankans. En hagfræðingar hafa bent á það, að vaxtahækkunin sjálf hafi stóraukið framleiðslukostnað fyrirtækja og torveldað sölu kanadískra útflutningsvara á erlendum markaði. Undir þetta er kröftuglega tekið af samtök- um iðnaðar og verzlunar. Vaxta- hækkunin er þannig bein orsök að óhagstæðum greiðslujöfnuði og verðrýrnun gjaldmiðilsins. Hið víðfræga Hagráð Kanada hefir i fréttabréfi ásakað mið- bankann fyrir að hafa með vaxtabrölti sínu tafið eða hindr- að efnahagsbata, er ella hefði komið sjálfkrafa. Einn virtasti fjármálamaður Kanada, Earl McLaughlin, bankastjóri stærsta viðskiptabankans í land- inu, The Royal Bank of Canada, tekur í sama streng. Hann kveð- ur ráðstafanir miðbankans vera þýðingarlausar eða h*'.fa gagn- stæð áhrif. Leyfa eigi kanadíska dollaranum að fljóta niður á við, eins og eðlilegt sé, unz útflutn- ings-atvinnuvegirnir nái sér á strik, Eftir er að minnast á Ed Broadbent, foringja Ný-demó- krata. Hann styður Joe Clark í því efni, að vexti eigi að lækka, en beitir öðrum rökum. Broad- bent telur, að vaxtaskrúfan, sem verið hefir í gangi í Kanada, hafi ekki veitt kanadískum fyrir- tækjum neitt svigrúm til kaup- hækkana. Þannig hafi matvörur hækkað í verði um 18% á hálfu ári, en vinnulaun um aðeins 6%. Þetta geti verkamenn ekki sætt sig við. Að öðru leyti beinir hann spjótum sínum gegn gróðamynd- un í iðnaði og verzlun á kostnað neytenda, gegn okri á þjónustu, svo sem læknishjálp, en læknar hafa umvörpum gengið úr sjúkrasamlögum. Hann vill fella niður skatta af lágtekjum, þjóð- nýta olíusölu o.s.frv. Um kosningaúrslit er ógerlegt að spá. I skoðanakönnunum hef- ir Joe Clark haft betur en Tru- deau. En kjörfylgið getur sveifl- ast til á síðustu stundu. Það fer eftir því, hvort er ofar í hugum fólks aðskilnaðarhættan eða ótryggt atvinnuástand. Sumir hygRja, að Ed Broadbent, sem leggur áherzlu á auðskilin, áþreifanleg dægurmál, komist í stjórnaraðstöðu. Þannig kynnu Kanadamcnn að eignast milli- flokk, sem semur ýmist til hægri eða vinstri — eftir því hvernig vindarnir blása. Grunnskólanemar í Ólafsvík: Vidurkenning fyrir „reykleysi” Ólalsvfk. 14. ma(. Grunnskólanum í Ólafsvík var slitið sl. föstudag. Nemendur við skólann voru 266 í 14 bekkjar- deildum. Fastráðnir kennarar voru 14 og stundakennarar 7. Mikil þrengsli eru í skóla- húsnæðinu sem er tvi- og þrísetið. Við skólaslit gat Gunnar Hjartar- son skólastjóri þess að náms- árangur hefði verið með bezta móti í vetur. Einnig gat hann þess, að þrír bekkir grunnskólans, þ.ám. efsti bekkur, hefði fengið senda viðurkenningu frá Krabba- meinsfélagi íslands fyrir að vera reyklausir, þ.a.e.s. engin nemandi í þessum bekkjum reykti. Mikil kennaraskipti verða við skóiann að hausti. Helgi. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AIGLYSINGA- SÍMINN ER: 22480 NÝTT SÍMANÚMER Á AFGREIÐSLU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.