Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1979 Ingólfur Guðbrands^son: Að vera sigldurl Menning og kenning Elínar ■ Skemmtilegt viðtal Elínar Pálmadóttur við unga stúlku, sem siglt hefur um heimshöfin á norsku skipi hefst á ummæl- um í garð íslenzkra ferðaskrif- stofa, sem ekki verða látin óátalin: „til að komast út fyrir land- steinana fór hún ekki þá hefð- bundnu íslenzku leið að vinna myrkranna á milli í 11 mánuði og láta svo ferðaskrifstofu skipuleggja fyrir sig mánaðar- dvöl á sólarströnd...“ Ekki mundu margir Islend- ingar sjá sig um í heiminum, ef ferðalög þeirra væru bundin við að ráða sig á norsk skip í siglingum um heimshöfin, og í annan stað hafa ferðlög sjó- manna í erlendum höfnum hingað til ekki endilega verið með meiri menningarbrag en ferðalög skipulögð af ferðaskrifstofum. Ummæli blaðamansins gefa í skyn að lítið sé á sólarlandaferðum að græða og auk þess séu þær svo dýrar að fólk verði að strita myrkranna á milli í 11 mánuði til þess að komast í 1 mánuð á sólarströnd. Slík ummæli um það brautryðjandastarf, sem Ingólfur Guöbrandsson. unnið hefur verið á því sviði að koma íslendingum ódýrt til suðurlanda eru bæði ómakleg og villandi. Sannleikurinn er sá að ís- lendingar búa við betri að- stæður á beztu stöðum Mið- jarðarhafsins en tíðkast um ferðafólk frá nokkru öðru landi Evrópu. Ferðir þessar eru til þess fallnar að vera bæði heilsubætandi og mennt- andi. Vel geur verið að það sé merkileg lífsreynsla út af fyrir sig, sem ég hef farið á mis við, að borða steiktan hund í Man- ila eins og viðmælandi blaða- mannsins, en hingað til hefur ekki þótt ómerkilegt að kynn- ast listum og menningu Mára á Spáni t.d. í Granada, Sevilla og Cordova, njóta náttúrufeg- urðar og lista Ítalíu og sjá borgir eins og Feneyjar, Flor- enz og Róm eða þá sögu og byggingalist Grikklands og sjá Akropolis, Delfi og Epidavrus. Það sýnist ástæðulaust og verður ekki séð hvaða tilgangi þjónar að fara niðrandi orðum um þjónustu, sem stuðlar að því að gefa almenningi kost á að kynnast þessum undrum heimsins undir leiðsögn sér- fróðra manna, en það tekur út yfir þegar gefið er í skyn að sú þjónusta sé rándýr, meðan fólk getur flogið á loftbrú suður til Miðjarðarhafsins með beztu farþegaþotum fyrir minna en bensínkostnaðinn á ökuferð kringum landið, þótt sú leið sé fimm sinnum lengri sem flogið er en hringvegurinn kringum landið og ferðin í heild með fyrsta flokks aðbún- aði kosti aðeins mánaðarlaun láglaunafólks, en ekki 11 mán- aða laun, eins og blaðamaður gefur í skyn. Ferðalög um fjarlæg lönd og lítt þekktar ferðamannaslóðir geta auðvitað verið forvitni- leg, og þeim ferðamáta er undirritað' r ekki heldur með öllu ókunnur, en hann verður aldrei við hæfi fjöldans, sem þarf á tilbreytingu, hvíld, fræðslu og skemmtun að halda auk þess að styrkja líkams- hreysti sína í góðu loftslagi. Það ber annað hvort vott um lítilsigldan hugsunarhátt eða ókunnugleika að gera lítið úr því framlagi til íslenzkra ferðamála, sem hinar ódýru, velskipulögðu ferðir til sólar- landa hafa verið undanfarin ár. Ingólfur Guðbrandsson. Ármann Örn Ármannsson; Hefur félagsmálaráð- herra áhuga á hagkvæm- um íbúðabyggingum ? Það hefur löngum verið kapps- mál landsfeðra okkar í ræðu undanfarin ár, að beita sér fyrir lækkun byggingarkostnaðar. Þessi mál hafa ekki verið beint í brennidepli síðustu mánuði, annars vegar vegna stórsviptinga í landsmálunum og hins vegar virðast ráðamenn hafa fundið nokkuð góða lausn á þessum málum þ.e. hætta bara nánast að byggja. Svo stórfelldur samdrátt- ur blasir nú við í hinum hefð- bundnu opinberu byggingarfram- kvæmdum og íbúðabyggingum a.m.k. á Reykjavíkursvæðinu að liggur við algeru verkefnaleysi. Nú nýlega var ákveðið að hækka svokölluð almenn húsnæðismála- stofnunarlán upp í 5,4 milljónir fyrir íbúðir gerðar fokheldar 1979. Tilgangur þessara lána er að gera athugasemd við reglur þær, sem Nýtt símanúmer á afgreiðslu blaðsins 83033 Jttt>tj$tuvt>Títí>ií> lán þessi eru greidd út eftir. Byggingaverktakar hafa áður bent á að eftir að þrískipting útborgun- ar var tekin upp, vinna þessi lán gegn framleiðni í íbúðabygging- um. Einkum hafa það verið byggingaverktakar á Norðurlandi, sérstaklega á Akureyri, sem hafa réttilega bent á hvaða áhrif það hefur, þegar útborgun þessara lána er dreift á allt að 1 '/2 ár frá því að hús eru fokheld, enda er verktakaiðnaður í íbúðabygging- um þróaðri og framleiðni almennt meiri á Akureyri en víðast annar- staðar á landinu. Þeir hafa rétti- lega bent á að með eðlilegum framkvæmdahraða og góðri skipu- lagningu er auðvelt að skila íbúðum í sambýlishúsi frá fok- heldu ástandi til afhendingar á sex mánuðum. Nú er byggjendum ætlað að fjármagna hús að fokheldu ástandi algerlega á eigin kostnað. í mörgum tilvikum er fólk að skipta um íbúð og stækka og verður þá að selja litlu íbúðina um leið og það fer að byggja eða festir kaup á íbúð í byggingu hjá byggingaverktaka. Andvirði útborgunar litlu íbúðarinnar fer síðan í að greiða nýju íbúðina upp að fokheldu ástandi eða liðlega það. Síðan fær fólk lánafyrir- greiðslu að upphæð 5,4 milljónir til að brúa mismuninn. En hvernig er þá greiðslu þessa láns háttað? Ef tekið er dæmi um íbúðakaup- endur, sem hafa keypt í sambýlis- húsi, sem varð fokhelt í síðasta mánuði þ.e. febrúar. Hvernig má búast við að greiðslu húsnæðis- málastofnunarláns verði háttað-til þeirra. Jú, í stuttu máli '/» hluti lánsins 1.800.000 kr. verður væntaniega tilbúinn til greiðslu f júli n.k.. næsti '/i hluti f janúar 1980 og þriðji hluti í júlí 1980. Þetta þýðir í raun, að viðkom- anda er fyrirskipað að vera í eitt og hálft ár að ljúka sinni íbúð eftir að hún hefur verið gerð fokheld og þá væntanlega að leigja eða fá einhvers staðar inni á hrakhólum þann tíma til viðbótar þeim tíma, sem tók að gera íbúðina fokhelda. Eigi byggingarverktaki að halda sér við að byggja hagkvæmt og ljúka íbúðinni á sex mánuðum og AÐALFUNDUR Mjólkur- samlajís KEA var nýlega haldinn og sátu hann um 150 mjólkurframleiðend- ur. Fram kom á fundinum að innlagt mjólkurmagn var 24.887.285 lítrar og hafði aukizt um 974.611 lítra frá fyrra ári. Foru yfir 97% mjólkurinnar í 1. geti fengið fjármagn til þess úr almenna bankakerfinu, verður byggingarkostnaður samt hátt á aðra milljón króna dýrari á íbúð en vera þyrfti, ef lán þessi væru greidd út þegar við fokheldisstig, þó ekki sé tekið tillit til verðbólgu né húsaleigu. Með öðrum orðum mætti lækka lánin um a.m.k. 1.5 milljón króna að óbreyttu raun- gildi, ef þau fengjust greidd út á þeim tíma, sem þau þyrftu að greiðast út á, þ.e. eðlilegum byggingartíma a.m.k. frá fokheldu ástandi til loka byggingartíma. Hver er hagkvæmnin í þessu og flokk og var meðalfitu- magn hennar 4.075%. Mjólkurframleiðendur voru 293 og hafði fækkað um 10. Meðalinnlegg á framleið- anda var 84.939 lítrar og voru um 20% mjólkurinnar seld sem neyslumjólk en 80% fór til vinnslu og voru framleidd 605 tonn af smjöri, 934 tonn af ýmsum tegundum osta, 61 tonn af fyrir hvern er erfitt að koma auga á. Því verður raunar vart trúað að sá ráðherra, sem hefur með þessi mál að gera, félagsmálaráðherra, hafi áttað sig á þessu, enda hefur víst verið annríkt hjá landsfeðrum okkar í „stóru málunum" síðan þeir tóku við. Hér er um stórt skref aftur á bak að ræða. Stór- felld öfugþróun átti sér stað á sínum tíma, þegar farið var að þrískipta lánsupphæð fyrir nokkr- um árum, en nú, þegar auk þess á að hafa um 6 mánaða biðtíma eftir fyrsta hluta lánafyrirgreiðslu hins opinbera, verður vart annað séð en farið sé skipulega að vinna gegn hagkvæmni og framleiðni í íbúðarbyggingum af hálfu hins opinbera. Því verður ekki trúað af byggingarverktökum fyrr en á reynir að félagsmálaráðherra láti ekki þessi mál til sín taka nú þegar og komi þróun í þessum mikilvæga þætti félagsmála í rétta átt í stað þeirrar öfug- þróunar, sem nú virðist vera að eiga sér stað. Annars fer svo, að lán húsnæðismálastofnunar til hins almenna borgara verður skrípaleikur. Svo má ekki verða. F.h. Verktakasambands Islands Ármann ö. Ármannsson. mysingi og mysuosti, 158 tonn af skyri, 193 tonn af kaseini og 30 tonn af jógurt. Smjörbirgðir voru um síð- ustu áramót 494 tonn. Þá kom fram í reikningsyfirliti að heildarverð til framleið- enda var kr. 136.11 lítra að frádregnum kr. 4.28 í verð- miðlunargjald og náðist þannig staðargrundvallar- verð. Mjólkursamlag KEA: Innlagt mjólkurmagn jókst um 974 þús. 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.